Morgunblaðið - 12.10.1978, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 12.10.1978, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978 29 Kristinn Guðnason — Minningarorð Svipmyndir frá keppni hjá Bridgedeild Breið- firðingafélagsins, en þar stendur yfir tvímenn- ingskeppni. Brldge Umsjón: ARNÓR RAGNARSSON Kristinn Guðnason var fæddur 14. júlí 1895 á Hlemmiskeiði á Skeiðum og voru foreldrar hans Guðni Jónsson otí Ingunn Ófeitís- dóttir, sem bjuggu á Hlemmiskeiði til ársins 1901. Börn* þeirrra voru auk Kristins Aldís, tfarðyrkju- kona, Vilborg, húsmóðir á Reykja- völlum, Ófeigur skipstjóri, Jón Söðlasmiður á Selfossi og Frí- mann, sem drukknaði á unglings- aldri. Afi Kristins Guðnasonar í föðurætt var Jón, sem síðast bjó á Húsatóftum á Skeiðum Guðnason- ar bónda í Skeiðaháholti Hafliða- sonar í Langholti Nikulássonar bónda í Hróarholti. Móðir Guðna á Hlemmiskeiði var Aldís dóttir Þorsteins bónda á Brúnavallakoti Jörundssonar á Laug í Biskups- tungum. En Jörundur var sonur Uluga Jónssonar kirkjusmiðs og staðarsmiðs í Skálholti. Afi Krist- ins Guðnasonar í móðurætt var Ófeigur f. 10. des. 1831, bóndi í Fjalli á Skeiðum Ófeigssonar ríka á Fjalli Vigfússonar bónda í í Fjalli Ófeigssonar Sigmundssonar. Kona Ófeigs Ofeigssonar var Vilborg Eyjólfsdóttir hreppstjóra í Auðsholti í Biskupstungum Guð- mundssonar. Börn þeirra voru níu, þeirra á meðal Ófeigur, Guðmund- ur, Eyjólfur í Reykjavík, Helga í Reykjavík, Ólafur verzlunarstjóri í Keflavík og Ingunn kona Guðna á Hlemmiskeiði. Ófeigur ríki í Fjalli (f. 27. febr. 1790) Vigfússon var í sumar barst okkur sú sorgar- fregn frá Danska heyrnleysingja- félaginu, að íslandsvinurinn Ole Munk Plum væri látinn. Var hnn þá staddur í sumarhúsi sínú i Svíþjóð er dauða hans bar að. Ekki verður í lítilli minningar- grein hægt að gera tæmandi yfirlit yfir störf hans í þágu heyrnleys- ingja, svo vítt spannaði verksvið hans á þeim vettvangi. Hér í þessari stuttu minningargrein yrði því kannske meira um upptalningu að ræða enda surnir þættir starfs hans okkur ekki nógu kunnir til að fjalla um. I júní 1974 kom Norðurlandaráð heyrnleysingja til Islands og þingaði hér í fyrsta skipti um málefni sín. íslendingar stóðu þá utan við þessa Norðurlandasam- vinnu, sem í fjölda ára hefur starfað á hinum Norðurlöndunum. Ole Munk Plum var forseti ráðsins. Það kom því eðlilega í hans hlut að móta þessa sam- vinnu, sem við gerðumst aðilar að. Hann fæddist í Kaupmannahöfn 23. maí 1915. 6 ára gamall missti hann heyrn. Hafði hann því gott vald á málinu og hafði öðlast nokkurn málskilning er hann varð fyrir veikindum, sem leiddu til heyrnarleysis. Hann lauk meist- araprófi í trésmíði -og starfaði í fjölda ára sem verkstjóri hjá Landssímanum í Kaupmannahöfn. Ritari Danska heyrnleysingjasam- bandsins var hann um átta ára skeið. Einnig var hann í stjórn Skandinaviska heyrnle.vsingja- sambandsins, sem fjallar um táknmál. Hann var mjög fær í táknmáli og kunni táknmál fjölda þjóða, auk Alþjóðatáknmálsins. tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Ingunn Eiríksdóttir en síðari kona huns var Kristín Ólafsdóttir, ekkja séra Stefáns á Felli og voru þau barnlaus. Ófeigur og Ingunn Eiríksdóttir, sem fædd var 15. marz 1797 áttu tólf börn og var Ófeigur afi Kristins eitt þeirra. Ingveldur var dóttir Eiríks Vigfús- sonar dannebrogsmanns og bónda á Reykjum og seinni konu hans, Guðrúnar. Guðrún var dóttir Kolbeins (f. 1731), sem var tengda- sonur sr. Jóns Eyjólfssonar á Gilsbakka og aðstoðarprestur hans og mun þar vestra hafa ort Hann notaði mikið látbragð svo samtal við hann var oft sem besta leiksýning. Það var því vandfund- inn maður sem ekki skildi hann, jafnvel þó sá maður mælti ekki á danska tungu eða kynni nokkuð í merkjamáli. í tuttugu og átta ár var hann aðalritstjóri Danska heyrnleys- ingjatímaritsins „Dovebladet“. Hann skrifaði um fjölda málefna er snertu hag og vandamál heyrn- le.vsingja og ekki síst var hann mikill áhugamaður um varðveislu minja um þau mál. Árin 1953—1974 var hann for- seti framkvæmdanefndar hand- iðnaðar og leiðsagnarsambands heyrnleysingja. í átján ár var hann varaforseti Heimssambands heyrnleysingja. Frá 1955 til 1978 var hann forseti Danska heyrn- leysingjasambandsins. í yfir tuttugu ár var hann meðlimur í framkvæmdanefnd sem sér um hina kunnu Gilsbakkaþulu: Kátt er um jólin/ koma þau senn/. Kristinn Guðnason hefur tæp- lega verið alinn upp í allsnægtum frekar en gerðist á þeim tíma og á unglingsárum vann hann ýmis störf bæði til sjávar og sveita en árið 1915 fluttist hann til Reykja- víkur og hóf ári síðar fólksflutn- inga um Reykjavík og nágrenni og áætlunarferðir til Keflavíkur og austur um Árnessýslu. Hann var einn af stofnendum B.S.R. árið 1921 og vann þar til ársins 1927 en þá hóf hann aftur áætlunarferðir austur í Biskupstungur og til Laugarvatns. Árið 1933 stofnaði hann verzlun við Klapparstíg og verzlaði með bifreiðavarahluti. Hann byggði stórhýsið viö Klapp- arstíg 25—27 og síðar Suðurlands- braut 20 og starfrækti verzlun sína þar. Kristinn Guðnason stækkaði og byggði upp fyrirtæki sitt jafnt og þétt. Hann var hæglátur maður og prúðmenni og gekk hávaðalaust að hverju verki og verkin tala um það hverju hann áorkaði. Það var sagt um Njál á Bergþórshvoli að ailt hefði orðið að ráði sem hann réð mönnum. Kristinn Guðnason liðsinnti ekki aðeins þeim sem hann vissi að þess þurftu með heldur fór hann þann veg að það kom að notum og varð happasælt. Margir sem þekktu hann munu minnast hans með þakklæti og til góðs vinar liggja gagnvegir þótt hann sc firr farinn. Kona Kristins var Ástríður Stefanía Sigurðardóttir bónda á Harastöðum í Vesturhópi Árna- sonar. Kristinn lézt þ. 9. ágúst sl. á ferðalagi í Bandaríkjunum. Jóhann Mór Guðmundsson kvikmyndir á vegurh heyrnleys- ingjasambandsins. Hann átti stór- an þátt í því að danir gátu gefið út stóra táknmálsorðabók 1907, sem nefnd var bláa bókin og sumir kölluðu biblíu heyrnleysingja. Hann var í nefnd þeirri er sá um útgáfu Alþjóðatáknmálsbókarinn- ar Gestuno er út kom 1975. Margskonar heiður hlotnaðist honum fyrir störf sín og hygg ég að þar hafi hæst náð er hann var útnefndur heiðursdoktor Gallaudet College í U.S.A. á Alheimsráðstefnunni 1975. Hendurnar sem þekktust af flestum heyrnarlausum eru nú hættar að tala, en minningin um Qle Munk Plum mun verma hjörtu okkar. Þó er þaö huggun harmi gegn að afköst hans voru með ólíkindum og prentlistin mun geyma verk hans svo heyrnleysingjar geta notið um ókomifi ár. Edith Plum, sem stóð við hlið mannsins síns í erilsömu starfi hans, sendum við samúðarkveðjur. Ole Munk Plum var jarðsettur frá Sct. Thomas Kirke í Frederiks- borg þ. 15. júlí s.l. Ilervör Guðjónsdóttir Guðmundur Egilsson. Bridgedeild Breið- firðingafélagsins Þremur umferðum af fimm er lokið í tvímenningskeppn- inni og er staða efstu para þessit Ása Jóhannsdóttir — Sigríður Pálsdóttir 774 Erla Eyjólfsdóttir — Gunnar Þorkelsson 749 Benedikt Björnsson — Magnús Björnsson 716 Magnús Oddsson — Þorsteinn Laufdal 699 Halldór Helgason — Sveinn Helgason 684 Hans Nielsen — Hilmar Guðlaugsson 672 Bjarni Jónsson — Jón Oddsson 669 Björn Gíslason — Ólafur Guttormsson 667 Meðalárangur 630 Næst síöasta umferðin verður spiluð á fimmtudag og hefst kl. 20. Spilað er í Hreyfilshúsinu 3. hæð. . Bridgefélag kvenna Eftir 6 umferðir (2 kvöld) í barómeterskeppni félagsins er staða efstu para þessii Gunnþórunn Erlingsdóttir — Ingunn Bernburg 174 Aðalheiður Magnúsdóttir — Kristln Karlsdóttir 165 Kristjana Steingrímsdóttir — Halla Bergsdóttir 159 Júlíana Isebarn — Margrét Margeirsdóttir 153 Meðalskor er 0 Næstu tvö kvöld, 16. og 23. okt., verða spilaðar 3 umferðir á kvöldi, en á fjórum þar næstu kvöldum verða spilaðar 4 um- ferðir á kvöldi. Síðasta kvöldið, 27. nóvember, verða svo spilaðar 3 umferðir. Hjónaklúbburinn Tveimur kvöldum af fjórum er lokið íjharómeterkeppninni og eru Dóra og Guðjón langefst með 11 stig. Þau urðu í öðru sæti í fyrra eftir harða keppni við Erlu og Kristmund sm nú eru í fjórða sæti með 40 stig. Þá munaði aðeins einu stigi á pörnum að keppni lokinni. Staða efstu para: Dóra — Guðjón 111 Sigríður — Gísli 67 Friðgerður — Jón 43 Erla — Kristmundur 40 Ólöf — Hilmar 36 Guðrún — Ragnar 34 Dröfn — Einar 25 Erla — Gunnar 20 Mealárangur 0 Næst verður spilað þriðjudag- inn 24. október. Islands í sumar, en enginn ræður sínum næturstað. Um leið og ég sendi Fríðu rnína hinstu kveðju yfir móðuna miklu með hjartans þakklæti fyrir ógleymanlegar samverustundir, sendi ég börnum hennar og öllu hennar fjölmarga skyldfólki mínar innilegustu samúðarkveðjur. J.ll. Hjörleif Fríða Marcussen—Kveðja Afmœlis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. Fa'dd 11. september 1911 Dáin 19. ágúst 1978. Lögð hefur verið til hinstu hvílu í Kaupmannahöfn Hjörleif Fríða Marcussen en hún lést snögglega hinn 19. ágúst, löngu fyrir aldur fram. Foreldrar hennar voru Jóna Hjörleifsdóttir og Guðmundur Ingimundarson. Voru þau ógift. Fríða ólst upp í Reykjavík, fyrstu árin á heimili móður sinnar og síðan hjá föður sínum og konu hans, Helgu Gísladóttur. Innan við tvítugt giftist Fríða dönskum manni, Helga Marcussen gullsmið, en þau skildu eftir nokkurra ára sambúð. Þau eignuðust tvö börn sem bæði eru uppkomin, Annetta búsett í Kaupmannahöfn og John sem býr í Þýskalandi. Fríða skrapp til að vera viðstödd brúð- kaup Johns sonar síns. Það var hennar hinsta för. í Þýskalandi veiktist hún skyndilega og gekkst þar undir uppskurð en ekki reyndist í mannlegu valdi að bjarga lífi hennar. Við Fríða kynntumst fyrir tæp- um 20 árum, og tókst þá með okkur einlæg vinátta sem aldrei bar skugga á. Hún var einstakt prúðmenni í allri umgengni, vönd- uð í orði og verki. Fálát var hún að eðlisfari en hrókur alls fagnaðar í sínum vinahópi. Hún mætti tölu- verðu andstreymi í lífinu þótt ekki væri það kunnugt öðrum en þeim sem þekktu hana best. Fyrir átta árum flutti Fríða til Kaupmannahafnar þar sem hún eignaðist fallegt heimili. Lengst af vann hún á sjúkrahúsum eða við hjúkrun í heimahúsum. Eg heimsótti Fríðu í fyrrasumar og síst óraði mig fyrir að það yrði í síðasta sinn sem ég sæi hana. Sjálf hafði hún haft á orði að skreþpá til Minning: Ole Munk Plum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.