Morgunblaðið - 22.10.1978, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. OKTOBER 1978
35
sér reiði þýsku hernámsyfirvaldanna
í Noregi, setið um skeið í fangabúð-
um í Þýskalandi, en svo fyrir góðra
manna milligöngu mátt setjast að í
Berlín, fengið styrk og aðstöðu til að
geta búið þar ásamt konu sinni og
sinnt fræðum sínum. Við vorum
kunnugir frá fornu fari og hann bauð
mér að vera kvöld með þeim hjónum,
og auðvitað töluðum við mest um
ástandið í Noregi, og um Hamsun.
Því var það að ég skrifaði Seip
sumarið eftir stríðslok, þegar lög-
reglan í Noregi fór að hafa afskipti af
Hamsun og hann var sakaður um
landráð. Ég sagði honum frá viðtali
okkar Zuchners og taldi nauðsyn á að
strax yrði reynt að hafa samband við
hann — þeir hlytu að vera margir,
sem vildu að fram kæmu öll þau
heimildargögn, sem mýkt gætu hugi
manna í harð Hamsuns og orðið
heiðri hans til varnar.
Mér er ókunnugt um hvað þá þegar
kann að hafa verið gert til að hafa
upp á Zuchner og fá hann til að láta í
té skýrslu um fund Hamsuns og
Hitlers, og því síður veit ég hvort
bréf mitt til prófessors Seips hafi
nokkru valdið í þeim efnum. En
einhvern veginn hefur sú skýrsla
orðið kunn, og áður en varð um
seinan. Ég sé í bók Torkild Hansens
að skýrsla Zúchners hafi „síðar meir
komið fram eftir löngum krókaleið-
um meðan stóð á málsókninni gegn
Hamsun" og að hún sé nú „aðal-
heimildin að vitneskju okkar um
hvað sagt var“.
Berghof, fjallabústaöur Hitlers,
sem oft var kallaöur Arnarhreiör-
iö, en Þar tók Hitler á móti
Hamsun.
Torkild Hansen segir ítarlega frá
för Hamsuns á fund Hitlers, og frá
viðureign þeirra. Og nú skil ég til
fulls að Ernst Zúchner, vinur Noregs
og vinur Hamsuns, hafi glaðst í
hjarta sínu yfir því, sem honum
einum manna auðnaðist að færa í
letur handa eftirtímanum.
Það má Hitler eiga, að hann vildi
sýna Hamsun sem mestan sóma,
áður en hann vissi hvað til stóð.
Hann lét einkaflugvél sína sækja
hinn aldna skáldhöfðingja til Vínar-
borgar, og haga öllum viðtökum eins
og við ætti þegar eitt af mikilmenn-
um heims sækti hann heim.
Enda urðu fyrstu kveðjur þeirra
alúðlegar. En þeir höfðu ekki skipst á
mörgum orðum þegar Hamsun hóf
máls á erindi sínu, réðst á Terboven,
sakaði hann um að stefna að því að
Noregur yrði Þýskt „prótektorat".
Hitler stillir sig, reynir að sveigja
viðtalið að öðrum efnum. En Hamsun
lætur ekki slá sig út af laginu með
þessu móti og herðir sóknina,
heimtar frávikningu Terbovens —
uns þar kemur að Hitler stendur upp
og gengur út, án þess að kveðja gest
sinn.
Hamsun órvæntir um árangur af
tilraun sinni til að bjarg'a Noregi úr
klóm Terbovens — og setur að
honum grát.
Fyrir utan beið glæsilegur vagn til
að aka honum aftur á flugstöðina. —
K.A.
Marie og Knut Hamsun áriö 1910
Hamsun-hjónin áriö 1939.
Áriö 1951, áriö áöur en Knut
Hamsun andaöist.
ENN NÝTT AJAX
Þykkt Ajax,
skilar þér skínandi gólfum
og baðherbergjum.
Notið það þynnt á gólf, flísar og hreinlætistæki og Nýtt Ajax er fljótvirkt, auðvelt í notkun, með
óþynnt á föst óhreinindi. f þessu nýja Ajaxi eru ferskri hreinlætisangan.
sérstök hreinsiefni, sem taka því fram, sem áður
hefur þekkst.