Morgunblaðið - 07.11.1978, Page 2

Morgunblaðið - 07.11.1978, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978 Fjögur skip seldu ytra FJÖGUR crlend fiskiskip seldu ytra í nær. ýmist í Enjjlandi eða V-Þýzkalandi. í dan cr síðan ráðgert að eitt skip, Gylfi frá Patreksfirði. selji í Grimsby. Hegranes seldi í gær 114,6 tonn fyrir tæplega 40 milljónir króna í Hull og var meðalverðið 348 krónur á kíló. Ottó Vathne seldi 47,3 tonn í Cuxhaven fyrir 15,8 milljónir, meðalverð 344 krónur. Rán seldi 62 tonn í Grimsb.v fyrir 21 milljón, meðalverð 333 krónur. Loks seldi Vigri í Cuxhaven, 201,2 tonn fyrir 46 milljónir króna, meðalverð 228 krónur. Gúmbátur nr. 8 ÁTTA gúmbjörgunarbátar af bandarísku flugmóðurskipi eru nú komnir í leitirnar, en skipið lenti í vondu veðri hér út af landinu og missti alls 22 slíka báta. Vélbátur- inn Arnar fann einn bát út af Þorlákshöfn um helgina en síðan tilkynnti bóndi í Austur-Landeyj- um að hann hefði fundið einn bát þar sem brim hefði borið hann nærri einn kílómetra á land upp. Nafn manns- ins sem lézt MAÐURINN, sem lézt á laugardagsmorguninn af af- leiðingum vinnuslyss í Múla- fossi daginn áður, hét Þorlákur Bjarni Halldórsson, Álfheimum 60, Reykjavík. Þoriákur heitinn var fæddur 8. ágúst 1956 og því 22 ára gamall. Hann var ókvæntur. Óhapp í Þorlákshöfn: Loðnan rann inn íþrófullaaf mjöli Þorlákshöfn, 6. nov. HÉR hefur allt verið á kafi f sfld og loðnu um helgina. Á land bárust 2500 tonn af loðnu á rúmum sólarhring af 5 bátum. Það óhapp vildi hins vegar til þegar verið var að landa loðnu f verksmiðjuna að gamall rennustokkur bilaði og loðnan rann inn í aðra þró en til var ætlast, en þar var geymt mjöl, pokar og frágengið, 240 tonn. Ekki liggur fyrir hve mikið er skemmt af mjölinu né hve mikið tjón hefur af þessu hlotizt, en það var auðvitað neyðarráðstöfun að geyma mjölið þarna því engin önnur geymsla var fyrir hendi. Tekizt hefur að stöðva rennsli loðnunnar inn í mjölþróna en verksmiðjan er orðin full. Hjá söltunarstöðinni Borgum hf. og Meitlinum var saltað í 3500 tunnur af síld frá föstudegi til mánudags. Þarna vinna 40 stúlk- ur. I söltunarstöð Glettings hf. var saltað í 450 tunnur og flakað í um 50 tunnur, en síðan eru flökin sett í edik og seld á Þýzkalandsmark- að. í dag er verið að salta 35 tonn hjá Glettingi, en sú síld barst í dag. Hjá Meitlinum voru fryst 80 tonn af síld frá því á föstudaginn og við frystinguna vinna 32. Hér er því nóg að starfa eins og stendur. — Ragnheiður. Verkfallið heldur áfram: Eggert G. flaug inn ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAGIÐ í Reykjavík kaus um heigina 38 fulltrúa á flokksþing Alþýðuflokks- ins, scm verður um næstu helgi. Einna mesta athygli við þessa kosningu vakti hið mikla fylgi sem Eggert G. Þorsteinsson, fyrrver- andi alþingismaður hlaut í kosning- unni, en hann náði sem kunnugt er ekki öruggu sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík í vor sem leið. Alls greiddu 207 félagar atkvæði í kosningu Alþýðuflokksfélagsins og varð Eggert efstur, hlaut 164 at- kvæði. Gylfi Þ. Gíslason, fyrrum alþingismaður, kom næstur með 152 atkvæði, þá Sigurður E. Guðmunds- son forstjóri með 142 atkvæði, Björgvin Guðmundsson, borgarfull- trúi með 140 atkvæði, Sjöfn Sigur- björnsdóttir fékk 133 atkvæði, Björgvin Vilmundarson sjötti með 114 atkvæði og Emilía Samúelsdóttir hlaut 110 atkvæði. Þá vakti það og athygli að Bjarni Guðnason varð 10. með 103 atkvæði enda þótt hann hafi aðeins gengið til liðs við Alþýðu- flokkinn skömmu fyrir síðustu kosningar og þá boðið sig fram í Austurlandskjördæmi. Á hinn bóginn náði Hilmar Jónsson í Sjómannafélagi Reykja- víkur ekki kjöri en hann hefur lengi verið ötull baráttumaður fyrir Al- þýðuflokkinn. Rétt er að taka fram að allir þingmenn flokksins, 14 að tölu, eru sjálfkjörnir á flokksþingið. Stundakennarar höfnuðu tilboöinu FÉLAG stundakennara viö Háskóla íslands samþykkti einróma á félagsfundi, sem haldinn var í gærkvöldi, að hafna tilboði fjármálaráðu- neytisins og heldur því áfram verkfall það sem stundakenn- arar hafa boðað út þessa viku. Að sögn forsvarsmanna há- skólans var erfitt að meta áhrif þessa verkfalls í gær á kennsl- una innan skólans vegna þess hversu dreifð hún er. Þrír fulltrúar stundakennara áttu fund með fulltrúum fjármála- ráðuneytisins og menntamála- ráðuneytisins, þar sem kynntar voru tillögur ráðuneytanna til lausnar deilunni og á fundi stundakennaranna í gærkvöldi var síðan tekin afstaða til hennar og niðurstaðan á þá lund sem að framan greinir — tilboð- inu var hafnað einróma. r Urskurðaður 1 40 daga gæzluvarðhald MAÐURINN, sem var handtekinn á föstudaginn, grunaður um að hafa nauðgað mállausri og heyrnarlausri konu um fyrri helgi, var úrskurðaður í allt að 40 daga gæzluvarðhald á laugardaginn var. Sakadómur Reykjavíkur frestaði að taka afstöðu til þeirrar beiðni Rannsóknarlögreglu ríkisins að maðurinn skyldi sæta geðrann- sókn á tímabilinu. Þá má geta þess að Rannsóknarlögregla ríkisins hafði sett fram ósk um það að maðurinn yrði úrskurðaður í allt að 60 daga gæzluvarðhald. Kjartan Ólafsson alþingismaður: „Verkalýðshreyfmgin og ríkis- stjómin íþjónustu Kóka kóla ” „Tek ekki þátt í Morgunblaðsgríni,” segir Svavar Gestsson aðspurður um fullyrðingar Kjartans KJARTAN ólafsson, einn af þingmönnum Alþýðubandalagsins, gagnrýnir fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar í verðlagsnefnd harðlega 1' grein sem hann skrifar í Þjóðviljann 1' fyrradag og kallar þá „bandamenn Kóka Kólamanna14, og spyr hvað komi fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar á íslandi til að heimta 25% hækkun'á smjörlfki og kóka kóla þegar ríkisstjórnin sé að berjast við verðbólguna. Morgunblaðið sneri sér í gær til Svavars Gestssonar við- skiptaráðherra og leitaði um- sagnar hans um þessi ummæli þingmannsins. Ráðherrann tók fyrirspurninni illa og kvaðst ekki standa í neinu Morgun- blaðsgríni. Morgunblaðið náði einnig sambandi við einn af fulltrúum ASÍ í verðlagsnefnd, Ásmund Stefánsson, og leitaði álits hans á ummælum Kjartans Ólafssonar. „Aðalatriðið sem að þessu máli snýr,“ sagði Ás- mundur, „er að okkar afstaða og ákvörðun í þessu máli var tekin með rökstuðningi og þeim rök- stuðningi hefur ekki verið hnekkt." í grein sinni segir Kjartan Ólafsson m.a.: „En hvernig stóð þá á því, að ríkisstjórnin gafst svo fljótt upp í verðbólgustríðinu við Kóka-Kólamenn og smjörlíkis- eigendur? Skýringin er aðeins ein, og hún er mjög undarleg. Skýring- in er sú að fulltrúar sjálfrar verkalýðshreyfingarinnar í verðlagsnefnd skrifuðu óhikað upp á kveinstafi Kóka-Kóla- manna, og smjörlíkiseigenda um 25% hækkun og gerðu þeirra kröfu að sinni. Hér var kominn sá banda- maður Kóka-Kólamanna, sem ríkisstjórnin mátti síst af öllu styggja og hlaut að taka tillit til í þessum efnum sem öðrum, því að án hans hefði stjórnin sjálf aldrei orðið til. En hvað er svo það, sem kemur fulltrúum verkalýðs- hreyfingarinnar á íslandi til að heimta 25% hækkun á smjörlíki og Kóka-Kóla á sama tíma og í landinu situr ríkisstjórn, sem berst við verðbólguna og styðst við verkalýðshréyfinguna? — Svarið við þeirri spurningu hlýtur að vera ærið flókið, og best að lesendur Þjóðviljans reyni að finna það hver fyrir sig. Hitt skal sagt hér, að hvorki verkalýðshreyfingin né nein ríkisstjórn á hennar vegum, mun vinna stóra sigra í þjón- ustu við Kóka-Kólamenn, heldur í stríði við þá og þeirra líka." „Getur orðið eril- samt starf á stundum” segir Magnús Torfi, nýráðinn blaðafulltrúi rí kisst j órn arinn ar FORSÆTISRÁÐHERRA hefur ráðið Magnús Torfa Ólafsson, fyrrverandi ráðherra, til að gegna störfum sem blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar og mun hann taka tii starfa um miðjan mánuðinn, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá forsætis- ráðuneytinu. í samtali við Mbl. í gær sagði ólafur Jóhannesson að hann hefði ráðið Magnús til starfans þar eð hann tcldi hann mjög hæfan til að gegna því starfi og kvað hann starfssvið hans geta orðið ailvíðtækt, því að allir ráðherrar í stjórninni ættu að geta notið starfa hans í svo miklum mæli sem þeir kysu. Magnús Torfi Ólafsson sagði í samtali við Mbl. að hann hefði ekki tekið þetta starf að sér nema honum litist bærilega á það, og ástæðan væri meðal annars sú að hann háfi verið allkunnugur þeim manni, er fyrstur gegndi því starfi og segja mætti að hefði mótað starfshefðir þess, þ.e. Bjarna heitnum Guðmundssyni, og kvaðst Magnús telja að affarasælast væri að gegna því á svipaðan hátt og hann lagði grundvöll að. „Ég verð annars vegar að sinna því að koma á framfæri því sem þessi ríkisstjórn vill láta frá sér heyra, sér í lagi forsætisráðherra, því að blaðafulltrúastarfið til- heyrir forsætisráðuneytinu. Hins vegar vonast ég einnig til að geta eftir föngum liðsinnt fréttafólki, sem leitar eftir upplýsingum sem almenning varða, og hugsanlegt er að ég geti átt þátt í að vísa því á eða afla fyrir það.“ Magnús var spurður að því hvort hann teldi að þetta yrði erfitt starf. „Ég geri ráð fyrir því að þetta geti orðið erilsamt starf á stundum, en mér finnst það nú satt að segja svo nærri þeim starfsvettvangi, sem ég starfaði á lengi vel, að ég geri mér vonir um, að mér veitist ekki óhæfilega erfitt að ráða við það og sér í lagi hygg ég gott til þess að vinna með mörgum þeim sem ég þekki frá fornu fari og enn fást við fréttamennsku á blöðum og ríkisfjölmiðlum." Viðamikið fíkniefnamál RANNSÓKNIN á fíkniefnamáli því sem fíkniefnalögreglan hefur nú til meðferðar er langt komin. Um helgina var einn maður látinn laus eftir að hafa setið 27 daga í gæzluvarðhaldi en gæzluvarðhalds- vist annars manns var framlengd um 10 daga. Hann hafði áður setið 30 daga inni. Tveir menn sitja því nú í fangelsi út af máli þessu, sem er eitt hið viðamesta sem til kasta fíkni- efnalögreglunnar hefur komið og nær til smygls hingað til lands en einnig milli landa erlendis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.