Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978 Unglingar loka götu fyrir skriðdrekum með setumótmælum í borginni Mashad í Iran, Mótmælin stóðu heilan dag. Norðmenn og Sovétmenn semja um aflatakmarkanir Frá Jan Erik Lauré. fréttaritara MurKunblaAsins í Ósló. NORÐMENN o>; Sovétmenn hafa koniið sér saman um að minnka þorsk- og loðnuveiði- kvóta á næsta ári, þannig að veiða má 660 þúsund tonn af þorski og 1,8 milljón lestir af loðnu. Norðmenn mega veiða 60% af loðnunni og Sovétmenn 40%, en upphaflega kröfðust Norðmenn þess að mega veiða 75%. Þorskkvótinn skiptist til helminga milli Norðmanna og Sovétmanna eftir að skip frá öðrum ríkjum hafa fengið 90 þúsund lestir. Þorskkvótinn hefur verið minnkaður um 150 þúsund tonn. Samkomulag tókst um ^afla- takmarkanir þessar eftir viku viðræður í Ósló. Rætt var um það deilumál ríkjanna hver fara skuli með eftirlit á gráu svæðunum í Barentshafi, en samkomulag tókst ekki um það atriði. Hvað viðkemur veiðum skipa frá öðrum ríkjum en Noregi og Sovétríkjunum má veiða 15 þúsund tonn af þorski við Svalbarða, 45 þúsund innan efnahagslögsögunnar við Noreg og 30 þúsund innan lögsögu Sovétríkjanna, en auk þess getur hvort ríkið um sig veitt heimildir til veiða á 7500 tonnum á gráu svæðunum. Kína bætir samband sitt við Thailendinga Bangkok. 6. nóvember. AP. KÍNVERSKI varaforsætisráð- herrann Teng Hsiao-ping ræddi í dag sambúð Kínverja við stórveldin og hann og Thailendingar urðu sammála um að auka viðskipti og efna- hagssamvinnu þjóðanna sam- kvæmt áreiðanlegum heimild- um í Bangkok. Samkvæmt hcimildunum ræddu Teng og forsætisráð- herra Thailands. Kriangsak Chomanan samskipti Kína við Handaríkin. Japan. Sovétríkin, Víetnam. Norður-Kóreu og Burma á lokuðum fundi. Teng kom í heimsókn sína í gær og þessi heimsókn og væntanlegar heimsóknir hans til Malaysíu og Singapore eru almennt taldar sýna að Kínverj- ar vilji reyna að treysta stöðu sína í Suðaustur-Asíu í ljósi kínverska kommúnistaflokks- samninga þeirra sem Rússar og Víetnamar hafa gert með sér. Um helgina fylgdu Rússar eftir vináttusamningnum sem þeir hafa gert við Víetnama með yfirlýsingum um fullan stuðning gegn „útþensluáformum" og „yfirgangi" Kínverja. Alexei Kosygin forsætisráð- herra sagði á fundi í Kreml í tilefni 61 árs afmælis byltingar bolsévíka að Rússar vildu treysta vináttuna við Víetnama og styðja sjálfstæðisbaráttu þeirra gegn Kínverjum. Foringi norður-víetnamska kommúnistaflokksins, Le Duan, sat milli Leonid Brezhnevs forseta og hugsjónafræðingsins Mikhail Suslovs þegar Kosygin flutti ræðu sína. I gær fóru varaformaður ins, Wang Tung-hsing, og Yu Chiu-li í óvænta heimsókn til Phnom Penh þar sem þeir hafa rætt við Pol Pot forsætisráð- herra. Heimsóknin er skoðuð sem mótleikur gegn vináttu- samningi Rússa og Víetnama. Samkvæmt bandarískum leyniþjónustuskýrslum vinna Kínverjar að því að hjálpa Kambódíumönnum að byggja nýjan flugvöll þar sem orrustu- þotur og sprengjuflugvélar geta lent, herma fréttir frá Washington. Flugvöllurinn er norðvestan við Phnom Penh og gerð hans á að vera lokið eftir nokkra mánuði. Talið er að Kínverjar muni útvega Kambódíumönnum þær þotutegundir sem þá vant- H æ gr iuppr eisn í Afghanistan Islamabaxi. 6. nóv. Reuter IIÆGRISINNAÐIR upp- reisnarmenn í Afghanistan segjast haía tekið sovézkan liðsforingja til fanga. Talsmaður hreyfingarinnar Islömsk bvlting sagði í Islama- had að liðsforinginn hefði verið í hópi stjórnarhermanna sem hefðu gefizt upp fyrir skæru- liðum í norðausturhéraðinu Kunar. milli höfuðborgarinnar Kabul og landamæranna að Pakistan. í síðustu viku sagði hreyfing- in að liðsmenn hennar hefðu skotið sovézkan liðsforingja til bana og að hann hefði haft það starf að skipuleggja stjórnar- herinn í Kunar. Hreyfingin sagði í yfirlýsingu að skæruliðar hefðu tekið 146 stjórnarhermenn til fanga, náð vopnum á sitt vald og eyðilagt að minnsta kosti þrjá skrið- dreka. En í yfirlýsingunni sagði að hreyfingin hefði einnig orðið fyrir miklu manntjóni í sveit- inni Kandesh í Kunar þegar liðsmenn hennar urðu fyrir loftárásum stjórnarflugvéla. Uppreisnarmenn hafa haldið því fram að þeim hafi nokkurn sinnum orðið vel ágengt gegn stjórn Mohammad Tarakki for- seta sem tók völdin í byltingu sem stuðningsmenn Moskvu-stjórnarinnar gerðu án átaka í apríl í vor. En engin staðfesting hefur fengizt sam- kvæmt öðrum heimildum. Gialdskrár hafna hækki um 35% NÍUNDI ársfundur Hafnasambands sveitarfélaga var haldinn í Reykjavík 3. nóvember síðastliðinn. í setningarávarpi bauð formaður Hafnasambandsins, Gunnar B. Guðmundsson, fulltrúa og gesti velkomna, en meðal þeirra voru samgönguráðherra, Ragnar Arnalds, Aðalsteinn Júlíusson hafnamálastjóri og Hjálmar R. Bárðarson siglingamálastjóri. í ávarpi samgönguráðherra kom fram að áætlað fjármagn til hafnarframkvæmda á yfirstand- andi ári væri 2.7 milljarðar. Ennfremur skýrði ráðherra frá því, að á yfirstandandi Alþingi yrði lagt fram frumvarp til vitalaga, en 1. desember næstkom- andi verða liðin 100 ár frá því, að fyrsti vitinn var reistur hér á landi. Eftirfarandi tillögur voru sam- þykktar á fundinum: 1. Grundvallarrannsóknir á sviði hafnamála, þannig að fram- kvæmdaáætlanir byggist á traust- ari grunni en almennt hefir verið og athugun á framtíðarhafnar- svæðum. 2. 35% hækkun á gjaldskrám, er taki gildi frá 1. janúar næstkom- andi. 3. 4ra ára áætlun um hafnar- gerðir hljóti þá meðferð, sem hafnalög gera ráð fyrir. 4. Skipulag hafnasvæða og að Hafnamálastofnun og Skipulags- stjórn ríkisins taki upp fastmótuð og samræmd vinnubrögð við gerð tillagna um skipulag hafnasvæða og tengsl þeirra við bæjarfélög. 5. Að stjórn Hafnasambands sveitarfélaga beiti sér fyrir því að þáttur um hafnamál í tillögum verkaskiptingarnefndar verði tek- inn til sérstakrar athugunar og hraðað svo sem verða má. 6. Varnir gegn grútarmengun. Beinir fundurinn því til hafnar- stjórna, að eftirlit með löndun á bræðslufiski verði aukið með það fyrir augum að koma í veg fyrir mengun sjávar og fjara á hafna- svæðum, ennfremur er tilmælum beint til Heilbrigðiseftirlits ríkis- ins og Siglingamálastofnunar um að hafa frumkvæði í mengunar- vörnum vegna löndunar og vinnslu á bræðslufiski. Fundinn sóttu 86 fulltrúar og gestir. I stjórn voru kosnir eftir- taldir menn: Gunnar B. Guðmundsson, Reykjavík, for- maður, Guðmundur Ingólfsson, ísafirði, Stefán Reykjalín, Akur- eyri, Sigurður Hjaltason, Horna- firði, Alexander Stefánsson al- þingismaður, en hann er tilnefnd- ur af stjórn Sambands íslenzkra sveitarfélaga. Sjálfstæðisflokkurinn: Stjómmálaskólinn hefet á mánudaginn STJÓRNMÁLASKÓLI Sjálfstæð- isflokksins hefst mánudaginn 13. nóvember næstkomandi, klukkan 9 árdegis, en skólahald fer fram í Sjálfstæðishúsinu, Valhöll, Háa- leitisbraut 1. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, setur skól- ann, og flytur stutt ávarp. Skólinn er heilsdagsskóli, og stendur frá klukkan 9 til 18, daglega frá 13. til 18. nóvember. Meginþættir námskrár verða sem hér segir: 1. Þjálfun í ræðumennsku. fund- arsköp o.fl. 2. Almenn félagsstörf og notkun hjálpartækja. 3. Þáttur fjölmiðla í stjórnmála- haráttunni. 4. Form og upphygging greinar- skrifa o.fl. 5. Um blaðaútgáfu. 6. Helztu atriði íslenzkrar stjórnskipunar. 7. íslenzk stjórnmálasaga. 8. Skipulag og starfshættir Sjálfstæðisflokksins. 9. Um sjálfstæðisstefnuna. 10. Stefnumörkun og stefnufram- kvæmd Sjálfstæðisflokksins. 11. Stórisannleikur og frjáls- hyggja. 12. Utanríkismál. 13. Sveitarstjórnarmál. 14. Vísitölur. 15. Staða og áhrif launaþcga- og atvinnurekendasamtaka. 16. Efnahagsmál. Ennfremur verður farið í kynn- isferðir í nokkrar stofnanir. Skólinn er opinn öllu sjálfstæð- isfólki, hvort sem það er flokks- bundið eða ekki. Þeir, sem áhuga hafa á þátttöku í skólanum, eru beðnir um að skrá sig sem allra fyrst í síma 82900 eða 82963. ísland með Tansaníu á móti Amin Utanríkisráðherra Noregs hefur fyrir hönd íslands og hinna Norðurlandanna lýst yfir stuðningi ríkisstjórna þessara landa við Tansaníu og fordæmt árás Ugandahcrja á landið. að því er kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá utanríkisráðuneytinu sem hljóðar svoi Knut Frydenlund, utanríkisráð- herra Noregs, sem er í opinberri heimsókn í Tansaníu, afhenti í gærdag forseta landsins svohljóð- andi yfirlýsingu fyrir hönd Norðurlandanna: Ríkisstjórnir Danmerkur, Finn- lands, íslands, Noregs og Svíþjóð- ar fordæma hina hættulegu vopn- uðu innrás, sem nýlega hefur verið gerð inn á landsvæði Tansaníu. Ríkisstjórnirnar líta á þessi friðrof sem mjög alvarlega aðgerð. Þær lýsa stuðningi við Tansaníu og forseta landsins, Julius Nyerere, í hinni erfiðu stöðu sem upp hefur komið. Sveit Þórarins bikarmeistari í bridge 1978 Sveit Þórarins Sigþórssonar sigraði í bikarkeppni sveita í bridge sem lauk á Hótel Loftleið- um um helgina. Spilaði sveitin 64 spila úrslitaleik við sveit Guð- mundar P. Arnarssonar og lauk viðureigninni með því að sveit Þórarins hafði hlotið 179 punkta á móti 93. Eftir 32 spil var staðan 98-34. I sveit Þórarins eru ásamt honum: Óli Már Guðmundsson Hörður Arnþórsson og Stefán Guðjohnsen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.