Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978 3 Ljósm : RAX. Stefnt að opnari umræð- um um innanflokksmál — sagði Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins á blaðamannafundi í gær GEIR HALLGRÍMSSON, formaöur Sjálfstæðisflokksins, boöaði í gær til blaðamannafundar í framhaldi af flokksráðs- og formannaráðstefnu flokksins, sem haldin var um helgina. Auk Geirs voru á fundinum Sigurður Hafstein, framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins, og Birgir ísleifur Gunnarsson. Geir sagði, að líklega væri þetta fyrsti blaðamannafundur- inn sem Sjálfstæðisflokkurinn boðaði til. Fundurinn væri þáttur í þeirri viðleitni flokksins að aðlaga sig nýjum aðstæðum í þjóðfélaginu, og hluti þess væri að opna umræður um innan- flokksmál. Kvaðst Geir vænta þess að flokkurinn þyldi slíka hreinskilni og hreinskiptni, og að kjósendur kynnu að meta slík vinnubrögð. A fundinum var blaðamönnum afhent álit nefndar er miðstjórn Sjálfstæðisflokksins setti á lagg- irnar í sumar til að kanna orsakir byggða- og alþingiskosninganna í vor, og einnig fjallaði um mál- efnalega stefnumótun flokksins, skipulagsmál og fleira. Nefndina skipuðu sjö menn, og var Birgir ísleifur Gunnarsson formaður nefndarinnar. Geir Hallgrímsson sagði, að fulltrúar á flokksráðsfundinum hefðu verið sammála um að birta álit nefndarinnar opinberlega. Þá verður það einnig sent út til flokksfélaganna, þar sem það verður tekið til athugunar og umfjöllunar. Síðar verður svo óskað eftir ábendingum og tillög- um að skipulagi flokksins. Sagði Geir að þeim hugmyndum yrði safnað saman og þær teknar til nánari athugunar. Verða þær síðan felldar að skipuiagsreglum flokksins, og lagðar fyrir lands- fund sem haldinn verður í vor. Álit nefndarinnar er birt í heild (fyrri hluti) á öðrum stað í Morgunblaðinu í dag. Á blaðamannafundinum gerði Birgir Isleifur Gunnarsson einnig grein fyrir helstu atriðum í greinargerð nefndarinnar. í áliti nefndarinnar eru gerðar tillögur um fjölmörg atriði, sem snerta skipulag og starfsemi flokksins. Má þar nefna meðal annars tillögur um aukið fræðslu- og útbreiðslustarf á vegum flokksins, eflingu verka- lýðsráðs flokksins og nýjar hug- myndir um prófkjör. I því sam- bandi er bent á nauðsyn þess að allir stjórnmálaflokkar haldi prófkjör sín á sama degi og á sama stað. Flokkarnir hafi sam- eiginlegan kjörseðil, þannig að hver kjósandi geti aðeins tekið þátt í prófkjöri hjá einum flokki. Þá má nefna tillögur um hvernig staðið skuli að málefna- legri stefnumótun flokksins, þar sem áhersla er lögð á virka samvinnu við flokksmenn um land allt um undirbúning stefnu- mótunar. Enn má nefna að gerðar eru tillögur um að breikka grundvöll að styrktarmannakerfi flokksins, um breytta skipan á starfsliði flokksins og auka nýtingu Sjálf- stæðishússins. Geir Ilallgrímsson á blaða- mannafundinum síðdegis í gær. Sigurður Hafstein. framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins til yinstri. til hægri Birgir ísleifur Gunnarsson borgarfull- trúi. Meðal þess sem nefndin leggur til, er að forystumynstri flokks- ins verði breytt. Stofnað verði embætti ritara, er kosinn verði sérstaklega á landsfundi. Verk- efni hans verði fyrst og fremst að starfa að innri málefnum flokks- ins. Hann verði jafnframt for- maður fimm manna fram- kvæmdastjórnar, er miðstjórn kýs. Verkefni framkvæmdastjórnar verði í meginatriðum: Að vinna almennt að eflingu flokksstarfs- ins í einstökum kjördæmum og byggðarlögum í samvinnu við viðkomandi flokksstofnanir og samtök. Hafa á hendi umsjón með útbreiðslu- og áróðursmálum flokksins í samvinnu við út- breiðslunefnd. Fylgjast með störfum málefnanefnda, sam- ræma störf þeirra og koma á framfæri tillögum og hugmynd- um nefndanna. Fylgjast með störfum fjármálaráðs og annarra þeirra nefnda, sem kosnar eru á vegum miðstjórnar. Fylgjast með starfsmannahaldi flokksins og skrifstofuhaldi. Birgir Isleifur skýrði frá því, að tveir nefndarmanna hafi gert fyrirvara á um þennan þátt álits nefndarinnar. Hafi þeir skýrt fyrirvarann á þann hátt, að stofna ætti sérstakt embætti formanns miðstjórnar, er kosinn skyldi á landsfundi, í stað em- bættis ritara. Geir Hallgrímsson sagði, að mikilsverðar upplýsingar væri að finna í skýrslu nefndarinnar, en þó væri það svo að menn kynni að greina á um ýmis atriði, einkum hvað varðaði skýringar manna á úrslitum kosninganna. Því ætti fremur að líta á skýrsluna sem grundvöll frekari umræðna held- ur en einhvern stórasannleik í málinu. Sjá fyrri hluta skýrslu um kosn- ingaúrslit bls. 16—17 og stjórn- málaályktun bls. 20—21. MEÐ FLDRIDH Flórida í allan vetur. Seljum farseöla um allan heim. FERDA MIDSTÖÐINNI NÖR HSHING Nor fishing Oslo 20—26 nóv. KANARÍ EYJAR Kanaríeyjar í allan vetur. Ferðamiðstöðin hf. « Aðalstræti 9 - Símar 11255 - 12940

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.