Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978 39 A NÆSTUNNI REGNBOGINN. KÓNGUR í NEW YORK Innan skamms verður tekin hér til sýninga sú næsta í Chaplin-mynda- flokknum, KÓNGUR í NEW YORK, (1957), og var hún næst síðasta verk meistarans KÓNGUR í NEW YORK fjallar um bandaríska lífshætti, séða með augum landflótta kóngs Evrópuríkis. En um þær mundir sem sem myndin var gerð var Chaplin sjálfur útlægur gerr í Bandaríkjunum sökum kommúnistaofsókna McCarthys. Aðeins blá- kaldnr rann- vernleikinn Ég var í ágætu skapi þetta kvöld og stjörnubjört haust- nóttin leiddi huga minn að myndinni CLOSE ENCOUNTERS ... og nýjum, næsta dularfullum fréttum af FFH yfir Ástralíu. Ég var á leiðinni heim í Mosfells- sveit og nánast engin umferð þar sem komið var yfir miðnætti. Ég hló með sjálfum mér að bjartsýni Spielbergs, en ein- hversstaðar sá ég það haft eftir honum að á meðan á kvikmyndatöku CLOSE ENCOUNTER stóð, þótti honum málið orðið sér all- skylt og rýndi löngum uppí ómælisvíddir himinhvolfsins. Án árangurs, því engin teikn- in sá hann á lofti. Meðfædd forvitni mín espaðist við þessar hugrenningar; því ekki að stansa smástund og renna augunum aðeins uppí loftið? Hin jarðbundna og órómantíska helft mín batt snarlega enda á slíka endemisfirru — og áfram var ekið. Og þá gerðust ósköpin! Vélin fór að hiksta og ljósin að smádofna — visst, ægi- magnað atriði úr CLOSE ENCOUNTERS ... kom eins og örskot uppí huga mér. Vesalings Richard Dreyfuss! Og sú órómantíska lét ekki á sér kræla. Nú gerðust marg- ir, válegir hlutir á skömmum tíma: Djöfulmóður rann á mælana, einkum rafmagns- mælinn, snerust þeir og börðust upp og niður; eitt augnablikið fóru ljósin af en annað lýstu þau bjartar en nokkru sinni fyrr; mér var ómótt og var þungt um andardrátt. Vélin var sem í dauðateygjunum. Þetta var orðið hábölvanlegt ástand og hvernig í ósköpunum stóð á því að engin bifreið sást á þjóðveginum. Nú tók Toyotan nokkra hressilega fjörkippi, síðan lognaðist hún útaf, ljósin blikkuðu nokkrum sinnum framandlega í mæla- borðinu þar sem mælarnir tifuðu án afláts. Hvernig í ósköpunum stendur á þessu, hugsaði ég með mér og reyndi að finna eðlilega skýringu á þessum voveiflegu atburðum — bíll- inn nýkominn úr viðgerð og geymirinn nýr? ( Þess skal getið að undirritaður veit álíka mikið um það sem gerist undir vélarhlífinni og líf á öðrum hnöttum). Skemmst er frá að segja, að ævintýrinu lauk inná rafmagnsverkstæði kvöldið eftir. Á reikningi (reyndar ævintýralega háum), sem mér var réttur uppí hendurn- ar, stóð skrifað, hversdags- legri hendi: 1. stk. alternator. Jóla- stemmning Sjaldan eða aldrei hafa kvikmyndahús borgarinnar boðið uppá jafn ágætar sýn- ingar — yfir höfuð — eins og um þessar mundir. Hver stórmyndin rekur aðra. Lítið lát er á aðsókn að STAR WARS, CLOSE ENCOUNTERS..., SATURDAY NIGHTFEVER og SLAP SHOT. Úrvals- myndin NETWORK sem er öllu alvarlegri og ekki pró- grammeruð afþreyingar- mynd, lét undan vegna vin- sælda fyrrnefndra mynda og hlaut ekki þá aðsókn sem henni sæmdi. En Tónabíó heldur áfram á sömu braut. Nú eru hafnar þar sýningar á athyglisverðri og sögufrægri heimildarmynd um lok sam- vinnu þeirra listamanna sem hvað mestan svip hafa sett á okkar samtíð — ?—The Beatles. Gamla Bíó hefur um nokk- urt skeið boðið uppá endur- sýningar á vinsælustu mynd Walt Disney fyrirtækisins, MARY POPPINS (til heiðurs Þórarni Eldjárn?). Þar er síðan væntanleg dönsk mynd, sem undirrituðum er tjáð að vakið hafi talsvert umtal á Norðurlöndunum, þar sem hún var frumsýnd í haust. Myndin, sem ber nafnið VETRARBÖRN, er byggð á samnefndri skáldsögu sem út kom í síðastta mánuði á islenzku. Austurbæjarbíó mun von bráðar hefja sýningar á mynd sem beðið hefur verið Saturday Night Fever Bönnuö inmtn 12 Ara Sýnd kl. 3. 6 og u S«la aögöngumifta befst kJ. 2 SiAMta •vninnarhalnl Þeir aem hala diörlum myndum mega ekkl ml&n al þeaaari. Hún er hreint 1ráb*r Tekin I Hong Kong meö þokkagyö|unnl Olivia Paacal. Bönnuö börnum innan 16 ara. •WGrj Hörkuskot snbrews • vaa ovki TFrHNICOLOR* iffle FraBgaeu og meat sótta mynd allra tíma. Myndln aem slegiö hefur öll met hvaö aösókn anertlr frá upphafi kvlkmynd- anna. Leikaljóri: Qaorga Luces Tónlial: John Williama. ’ *"£ I • '°9 9 VVB& ____, Lucky Luciano Hörkuspennandi kvikmynd sem byggö er á sönnum heimildum um hinn illræmda Maliuloringla Lucky Luciano islenzkur texti Ný bráöakemmtileg bandan'ak gamanmynd um hrottalengiö .iþróftaUÖ*. \ nvynd þeaaari halda þeir álram aamatarli léiagarntr Qeorge Roy HUI og Paul Newman. er þeir hófu meö myndunum Butch Caaaidy and ttw Sundance kld og The Stlng. iatenakur textl. Haakkaö verö. Sýnd kl. 5. 7.30 og 10. Harry og Walter gerast banka- ræningjar Frábaar gamanmynd. Meö Mtchael Caine. Elllot Qould og James Caan Sýnd kl. 9. eftir með nokkurri óþreyju undanarin ár, en það er önnur New York mvnd Lum- ets, DOG DAY AFTER- NOON. Þar var á dögunum sýnd geðsleg smámvnd, ODE TO BILLY JOE. byggð á vinsælum söngtexta Bobbie Gentry. Myndin naut tals- verðra vinsælda erlendis, og þá einkum um vestan hafs, en hér fór hún framhjá flestum þar sem hún féll í skugga risamyndanna. Paul Newman og hinir ruddarnir í rustalegasta íshokkíliði sem sést hefur, hressa ærlega uppá geð borg- arbúa í Laugarásbíói. Og handritið er svo sannarlega ekkert tæpitungumál. Þegar þar kemur verður það það músikmynd sem siglir í kjöl- far hennar í kvikmyndahús- inu, ein sem er glæný af nálinni og nefnist F.M. Er hún ein af fjölmörgum mynd- um sem skotið hafa upp kollinum eftir að vinsældir SATURDAY NIGHTFEVER komu í ljós. Líkt og nafnið bendir til, gerist myndin að mestu leyti í útvarpsstöð, sem að sjálfsögðu flytur eingöngu vinsæla dansmúsik. í myndinni eru leikin mý- mörg lög sem notið hafa mikilla vinsaélda á undan- förnu ári. Þá kemur m.a. fram söngstjarnan og augna- yndið Linda Roonstadt, en með aðalhlutverkið fer tón- listarmaðurinn og æringinn Martin Mull. Hann hefur þegar verið orðaður við Osc- arsverðlaunin fyrir leik sinn... .. .og öll þessi gróska hefur meira að segja fært örlitinn roða í Regnbogann, því þar er væntanlegt næstu daga verk meistara Chaplin, KONGUR í NEW YORK. • h* k z w ’c w qMe •

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.