Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978 45 höfundur virðist hafa kynnt sér kenningar hans og þorir að bera þær fram í þessari skáldsögu sinni. Almennt hugsar fólk ekki langt út fyrir „hinn þrönga markaða baug“. Og flestir halda að við séum ein í heiminum, þ.e. í alheiminum. Flest hugsum við ekki langt út fyrir jörðina, og þó er nú búiö að uppgötva alheiminn með óendan- legum fjölda hnatta og óendan- legri víðáttu. Og þekkingarástand sumra ann- arra mannkynja mun vera svipað og hér: Einnig munu þau sum halda, að þau séu ein í alheiminum (eins og. skáldsagan gerir ráð fyrir), og þau vita lítt eða ekki um lífsamböndin, sem tengja menn og mannkyn allra byggðra hnatta misjafnlega sterkum böndum. Slík mannkyn eru á útjaðri vitheims, eins og er um okkar mannkyn, ennþá. En vonandi er, að bráðum fari áð rofa til, og að skuggar fávisk- unnar víki fyrir magnandi geislum lífs og vits, sem háþroskaverur lengra kominna mannkynja beina til okkar jarðarbúa. Okkar er að taka hér undir og vera.með en ekki móti, svo farsæl breyting geti sem fyrst orðið á öllum högum mann- kyns okkar. Ekkert er okkur eins nauðsynlegt og að bætt verði úr sambandsleysinu við lengra komn- ar lífstöðvar. Ingvar Agnarsson." Þessir hringdu . . . eða meira en nóg og spurningin er líka hvað eigi að gera við það allt. Heyrt hefi ég einhvern tala um það hvort ekki væri hægt að láta þessar umframbirgðir okkar renna sem þróunarhjálp til einhverra er þarfnast gætu þeirra og mætti þannig slá þær tvær flugur í einu höggi að nýta þessar birgðir og jafnvel auka okkar framlag til þróunarlanda, því við höfum áreiðanlega efni á því. Yrði það kannski alltof dýrt í framkvæmd? Væri ekki hægt að fá flugfélögin okkar til að flytja þetta út í fáeinum ferðum og þar með yrði málið leyst? Eða er kannski enginn á þeim svæðum sem gæti lagt sér til munns afurðirnar í þeim búningi sem við borðum þær, sem smjör og ost eða hentar það ekki þessum þjóðum? Vel má vera að svo sé og því þurfi að finna aðra lausn. • Hvað á að gera við matinn? Ofangreindrar spurningar spurði maður nokkur sem hringdi og velti því fyrir sér hvort hér á landi yrði ekki bráðum „fullt hús matar“ eins og hann sagði og í framhaldi af því hvað hægt væri að gera við allan þennan mat, sem við getum ekki torgað: „Nýlega hafa komið fram fréttir af miklum birgðum landbúnaðar- vara, einkum mjólkurvara, og er nú svo komið að í landinu eru til ársbirgðir eða meira af t.d. osti og smjöri. Hvað á að gera við allan þennan mat? Geymist hann svo lengi að hann megi bíða eftir að við þörfnumst hans eftir 12—15 mánuði? Verði hann fluttur út þýðir það þá ekki allmikið tap, eða er hægt að losna við landbúnaðar- vörur til útlanda á framleiðslu- verði eða meira jafnvæl? Eg hef ekki heyrt um það. Verður þá reynt að minnka framleiðslu á landbúnaðarvörum og hvernig samræmist það stefn- unni um sífellt stærri bú og hagkvæmari rekstrarlega séð? Með öðrum orðum er hér ekki á ferðinni nokkuð stórfellt vanda- mál, sem erfitt verður að leysa? Nóg mun líka vera til af kjötinu Umsjón: Margeír Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í Reggio Emilia á Ítalíu um síðustu áramót kom þessi staða upp í skák þeirra M. Kovacs, Ungverjalandi, sem hafði hvítt og átti leik, og Wagmans, Bandaríkjunum. 32. Hxg6! - Hxd3 (En ekki 32.... fxg6? 33. Bc4+) 33. Hxg7+ - Kxg7 34. Dg4+ — Kh7 35. cxd3 og svartur gafst upp. Eftir 35.... Hg8 getur hvítur t.d. þvingað fram auðunnið hróksendatafl með 36. Dh4+. M. Kovacs sigraði á mótinu, hann hlaut 8(4 v. af 11 möguleg- um. Næstur kom sovézki stór- meistarinn Averbakh með 7(4 v. HÖQISTI HREKKVÍSI " þETTA E£\J óry<?jUHto67M, Opp- T Ofc r/\M\?EHEe>V\Jöo>klNN\!,‘ Allt á sama stað Laugavegi 118-Simi 22240 | EGILL VILHJÁLMSSQN HE ESABESAB ESAB ESAB Missið ekki nióur þráðinn Það er dýrt að fylgjast ekki með og missa þannig niður þráðinn! Hafið samband við okkar sér- þjálfaða starfslið um: Rafsuður, Rafsuðutransara, þræði á rúllu, eða annan fylgibúnað. Allar upDlýsingar og ráð- leggingar eru fúslega veittar án skuldbindinga Nýjasta línan frá ESAB er BANTAM C02-Bantam iLeltbyggð koisyru raf suðuvel Mini Bantam Hobby ratsuðuit.uis.tfi 80 amper Bantam Maxi Bantam Lettbyggður ratsuðu- Lettbyggður r.itsuðu transan UOamper transari til iðnaðar 180 amper = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRFANTANIR-LUÓNUSTA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.