Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978 Flokksráðs- og formannaráðstefna Sjálfstæðisflokksins: Nefndarálit um kosninga- úrslitin, stefnumótun og skipulagsreglur flokksins Á flokksráðs- og formannaráðstcfnu Sjálfstæðisflokksins, sem lauk síðdegis á sunnudag, fóru fram miklar umræður um úrslit kosninganna síðast liðið vor, stefnumótun flokksins í framtiðinni og um skipulagsmál. Grundvöllur umræðnanna voru tillögur nefndar er miðstjórn Sjálfstæðisflokksins skipaði í sumar til að fjalla um framangreind atriði. Var upphaflega gert ráð fyrir að nefndarmenn yrðu fimm, en síðast bættust tveir við. Á flokksráðs- og formannaráðstcfnunni var samþykkt, að birta opinberlega álit nefndarinnar, og verður hún nú send hinum ýmsu félögum og samtökum sjálfstæðismanna til umfjöllunar. Álit nefndarinnar fer hér á eftir, eins og það var lagt fyrir flokksráðs- og formannaráðstefnuna. Síðari hluti nefndarálitsins verður birtur í blaðinu síðar. I. Inngangur „Þann 13. júlí 1978 var svohljóð- andi tillaga samþykkt á fundi miðstjórnar og þingflokks: „Sameiginlegur fundur miðstjórn- ar og þingflokks Sjálfstaeðisflokks- ins haldinn í Valhöll 13. júlí 1978 samþykkir að kjósa fimm manna nefnd til að: 1. Kanna orsakir kosningaúrslita í byggða- og Alþingiskosningunum 1978. 2. Fjalla um málefnalega stefnu- mótun, skipulagslega uppbyggingu, útbreiðslustarf, fjármögnun, starfs- mannahald og rekstur Sjálfstæðis- flokksins. Nefndinni er falið að kanna viðhorf forráðamanna flokkssamtak kanna og skila áliti og tillögum til miðstjórnar og þing- flokks fyrir 15. ágúst 1978. Með nefndinni starfa fram- kvæmdastjóri flokksins og fram- kvæmdastjóri þingflokksins". í nefndina voru kjörin: Birgir ísl. Gunnarsson, sem jafnframt var fjalla um og loks greinargerð með -tillögunum. Einn nefndarmanna, Ingólfur 'Jónsson hafði ekki aðstöðu til að •mæta á síðustu fundum nefndarinn- ar og tók því ekki þátt í lokaaf- greiðslu málsins. II. Úrslit kosninganna Eitt verkefni nefndarinnar er að reyna að meta ástæður þær er lágu til kosningaósigurs Sjálfstæðis- flokksins í sveitastjórnarkosningun- um í maí og alþingiskosningunum í júní s.l. Það álit sem hér fer á eftir byggir annars vegar á umræðum er fram hafa farið innan nefndarinnar en hins vegar á viðtölum við einstaklinga, svo og álitsgerðum þeirra aðila er nefndin leitaði til, sem voru fulltrúa- og kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins. 1. Efnahagsmál Það er skoðun nefndarinnar að engin ein ástæða verði talin hafa og að Sjálfstæðisflokksins væri þörf við úrlausn mála, ef takast ætti að koma á festu í efnahagsmálum þjóðarinnar að nýju. Skilningur virtist fyrir því meðal þjóðarinnar fyrri hluta kjörtímabilsins, að rót- tækra aðgerða væri þörf. Sjálf- stæðisflokknum tókst þó ekki að nýta til fulls þennan jarðveg, og fylgja kosningasigri sínum þannig eftir. Enginn vafi er á því, aö samstarfið við Framsóknarflokkur- inn var hemill á nauðsynlegar aðgerðir. Framsóknarflokkurinn var forystuflokkur í vinstri stjórninni og því tregur til að viðurkenna mistökin þar og að nauðsyn bæri til að breyta um stefnu. Efnahagsaðgerðirnar haustið 1974 voru verulegar viðnámsaðgerðir er haft hefðu frambúðarþýðingu ef ekki hefði komið til ófyrirsjáanlegt verðfall á meginútflutningsvörum þjóðarinnar, sem leiddi til þess, ásamt hækkandi innflutningsverði, að viðskiptakjör hríðversnuðu og þar með minnkaði það sem þjóðin hafði • liluti ráóstefnufulltrúa á fundi á Ilótel Esju á laugardag. Fremst á myndinni eru flokksráðsmenn úr Norðurlandskjördæmi eystra. formaður, Ellert B. Schram, Inga Jóna Þórðardóttir, Ingólfur Jónsson, Jón Magnússon, Pétur Sigurðsson og Sigurlaug Bjarnadóttir. Jafnframt störfuðu með nefndinni Sigurður Hafstein, framkvæmdastjóri flokks- ins og Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, framkvæmdastjóri þingflokks- ins. Nefndin hóf störf strax eftir að hún var skipuð og lét það verða sitt fyrsta verk að senda spurningalista til formanna- allra fulltrúaráða og kjördæmisráða flokksins. Voru þannig send út 44 bréf. Svör bárust frá 18 aðilum, þar af frá öllum kjördæmisráðum nema einu. Að auki sendi Fulltrúaráð flokksins í Reykja- ' vík svör, sem þeim bárust frá 14 flokksfélögum í Reykjavík. Fljótlega kom í ljós, að nefndinni var skammtaður of naumur tími til ^ð skila áliti og var miðstjórn skýrt frá því. Gerður var útdráttur úr svörum þeim, sem bárust og er sú greinargerð II. kafli þessa álits. Þá koma tillögur um þau mál, sem nefndinni var sérstaklega falið að valdið þeim hnekki er Sjálfstæðis- flokkurinn beið í kosningunum 1978 einkum þó alþingiskosningunum. Þrátt fyrir þessa staðreynd fer ekki á milli mála að efnahagsmál voru meginmál kosninganna og að verð- bólgan reyndist flokknum þung í skauti, og þótt önnur mál hafi haft þýðingu dró úr henni að þessu sinni vegna efnahagsmálanna. Hér er ekki fyrst og fremst átt við það, að umræðan í kosningabaráttunni hafi snúizt nær einvörðungu um þennan málaflokk heldur fremur hitt, að í þessum mikilvægasta málaflokki kosninganna töldu kjósendur að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki uppfyllt vonir sínar. Arið 1974, er ný stjórn var mynduð undir forystu Sjálfstæðisflokksins, áttu kjósendur von á róttækum efnahagsaðgerðum í kjölfar fjár- málaóreiðu þeirrar, er vinstri stjórn- in (1971—1974) hafði leitt yfir þjóðina með eyðslustefnu sinni og aðgerðum í efnahagsmálum. Sjálf- stæðisflokkurinn hafði líka fyrir kosningarnar 1974 gefið ótvírætt í skyn, að róttækra aögerða væri þörf til ráðstöfunar. Efnahagsaðgerðir voru því framkvæmdar á ný fyrri hluta árs 1975. En aðgerðir þessar ollu ekki straumhvörfum í íslenzkum efnahagsmálum, heldur voru fyrst og fremst viðnámsaðgerðir vegna nýrra áfalla. Þá varð framkvæmda- og lög- gjafarvaldinu það samtímis á, að vera ekki sjálfu sér samkvæmt. Af opinberri hálfu var haldið uppi of miklum framkvæmdum og fjárfest- ingu miðað við ríkjandi aðstæður, sem annars vegar höfðu í för með sér þensluáhrif en hins vegar sýndu, að ríkisvaldið gekk ekki fram fyrir skjöldu með niðurskurð af sinni hálfu jafnhliða því sem það dró verulega úr einkaneyslu. Einkum hafa Kröfluvirkjun og Borgar- fjarðarbrú verið nefndar í þessu sambandi. Samdráttur einkaneyslu án tilsvarandi samdráttar opinberr- ar neyslu átti þannig þátt í að ýta undir kröfugerð í þjóðfélaginu. Hin aukna kröfugerð leiddi síðan til hinnar óraunhæfu kjarasamninga í júní og október 1977. Það er skoðun nefndarinnar að við lok júnísamninganna 1977 hafi Sjálfstæðisflokknum láðst að skýra sem skyldi. hvaða afleiðingar þessir samningar aðila vinnumarkaðarins hefðu fyrir þjóðarheildina og barátt- una við verðbólguna. Þá hefði fyllilega komið til greina að ríkis- stjórnin neitaði fulltingi við samn- ingana og firrti sig þannig á skýlausan hátt ábyrgð af þeim. Októbersamningarnir við opinbera starfsmenn voru í raun afleiðing fyrri samninga og tóku af öll tvímæli um það, hvað væri að ske í efnahagsþróun þjóðarinnar. Hin síðbúnu viðbrögð, sem síðan fólust í febrúarlögunum í vetur gengu í rétta átt, en náðu ekki hljómgrunni hjá kjósendum m.a. vegna þess, að þeir töldu að ríkisvaldið hefði í raun staðfest fyrir sitt leyti júnísamning- ana með undirskrift undir október- samningana og þannig gefið mönn- um ástæðu til að ætla að þessir samningar gætu verið raunhæfir. Misnotkun stjórnapandstöðu á valdi launþegasamtaka kom og í veg fyrir að efnahagsaðgerðir næðu tilgangi sínum. Ástæður þær, er hér hafa verið raktar, höfðu alvarlegar afleiðingar fyrir Sjálfstæðisflokkinn þar eð hann er það þjóðfélagsafl sem þjóðin hefur treyst til að ráða fjármálum sínum á erfiðleikatímum. í tengslum við febrúaraðgerðirnar liggur síðan önnur ástæða fyrir kosningaósigri Sjálfstæðisflokksins, sem hefur haft veigamikla þýðingu, en það er skortur á skýringum á þeim efnahagsaðgerðum svo og öðrum ráðstöfunum, sem gripið var til á hinum ýmsu tímum valdaskeiðs ríkisstjórnarinnar. Sjálfstæðisfólki og þá ekki síður öðrum kjósendum skorti tilfinnanlega á kjörtímabilinu rök fyrir aðgerðum stjórnvalda á hverjum tíma, — réttlætingu á þeim og þá um leið sannfæringu fyrir réttmæti þeirra. Hér er um að ræða geysilega mikilvægan þátt í upplýs- ingamiðlun og dreifingu aðgengi- legra og auðskilinna staðreynda, sem eru forsenda þess að afla skilnings og fylgis þeim ráðstöfunum, sem gripið er til. Hér er um að ræða einn mikilvægasta þátt stjórnmálabar- áttunnar, sem leggja verður áherzlu á, ef Sjálfstæðisflokknum á í framtíð að takast að fá þjóðfélagsþegnana til liðs við sig eða a.m.k. sýna skilning þeim aðgerðum, er hann síðar kann að þurfa að eiga þátt í að fram- kvæma. Framangreindu til áréttingar má nefna sem dæmi, að á 3ja mánaða fresti breytist verð landbúnaðarvara og þó svo hafi'verið um margra ára skeið þá er fjöldi fólks, sem ekki skilur enn eða gleymir samhengi verðhækkunaráhrifa hins sjálfvirka vísitölukerfis og stjórnvöld hafa ekki nema stundum séð ástæðu til að skýra út fyrir fólki þetta samhengi og þá um leið hverjar eru ástæður hækkananna. Til úrbóta varðandi framangreind atriði vísast til tillagna hér síðar í álitsgerð þessari. 2. Forysta flokksins. Mjög hefur verið haft á orði hin síðari ár að ágreiningur hafi verið og sé meðal forystumanna Sjálfstæðis- flokksins. Þessi orðrómur hefur að mati nefndarinnar veikt traust margra á flokknum og valdið því að flokksmenn hafa ekki gengið eins samhentir til kosninga og kosninga- undirbúnings og nauðsynlegt var. Það er ljóst, a.m.k. að afioknum síðustu kosningum að flokksmenn telja sig geta gert þá kröfu til forystumanna sinna, að þeir standi saman og starfi saman af heilindum og með heill flokksins í huga. Þetta á ekki aðeins við um forystumenn flokksins í þrengsta skilningi heldur gildir hið sama að sjálfsögðu um þingmenn flokksins og aðra þá er til forystu hafa valizt. Þá er það og umkvörtunarefni flokksmanna að þessi forystusveit Sjálfstæðisflokks- ins hafi ekki verið í nægilegum tengslum við hinn almenna flokks- mann og flokksstarfið í heild. 3. Prófkjör. Sjálfstæðisflokkurinn efndi víða til prófkjöra bæði fyrir sveitar- stjórnar- og alþingiskosningarnar. Hér var um að ræða opin prófkjör, og þar sem reynt var að vekja sem mesta athygli á frambjóðendum og tryggja mikla þátttöku. Víðtæk kosningabarátta átti sér stað fyrir þessi prófkjör af hálfu margra þeirra er þátt tóku í þeim og stuðningsmanna þeirra. Að prófkjör- unum loknum og þegar kom að hinum eiginlegu kosningum varð hinsvegar ljóst, að prófkjörin höfðu skapað vissan kosningaleiða í röðum sjálfstæðismanna auk þess sem prófkjörsbaráttan hafði víða valdið sárindum, sem ekki höfðu gróið um heilt er kosningar fóru fram. Þá má til sanns vegar færa, að baráttan í sumum þessum prófkjörum bar of sterkan keim af hreppapólitík og þurfti því ekki að gefa rétta mynd af vilja kjósenda í kjördæmunum sem heild. Þá voru baráttu aðferðir stuðningsmanna einstakra fram- bjóðenda umdeildar. Á grundvelli fenginnar reynslu af prófkjörum eru settar fram nokkrar tillögur síðar í álitsgerð þessari auk þess sem skipuð hefur verið nefnd á vegum Skipulagsnefndar Sj álfstæðisflokks- ins, er hefur þáð verkefni að gera heildarúttekt á prófkjörsfyrirkomu- lagi flokksins og er nefndinni gert að skila tillögum fyrir áramót. 4. Slaknandi siðferði. Sú umræða sem varð á kjörtíma- bilinu um fjársvikamál, glæpi og spillingu í þjóðfélaginu kom tví- mælalaust niður á stjórnarflokkun- um, Framsóknarflokki og Sjálfstæð- isflokki, þar eð þau bentu til vaxandi uppiausnar í því þjóðfélagi, sem þessir flokkar stjórnuðu. Umræða sú, er Alþýðuflokkurinn hafði frum- kvæði i að halda uppi og sá áróður hans, að hreinsa þyrfti ærlega til, féll óumdeilanlega í góðan jarðveg, sem sýnir glöggt að fólk lítur þessi mál alvarlegum augum. 5. Sveitarstjórnarkosningar. Þau atriði, sem rakin hafa verið hér á undan, snúa að meginefni til að úrslitum bæði sveitarstjórna- og alþingiskosninga, enda eiga úrslit þeirra, að áliti nefndarinnar, sér rætur í sömu orsökum. Víðast hvar um landið var í sveitarstjórnarkosn- ingunum fyrst og fremst kosið um landsmál. Því má fullyrða að sú áætlun Sjálfstæðisflokksins að reyna að einskorða umræðuna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar við sveitarstjórnarmál, í þeim mæli sem stefnt var að, tókst ekki. Þó er það líklegt, að þessi áætlun hafi verið réttmæt miðað við aðstæður og hugsanlega forðað flokknum frá enn tilfinnanlegra tapi í þeim kosning- um. 6. Ýmislegt. Þegar litið er til baka, er Ijóst að Sjálfstæðisflokkurinn gekk ekki nægjanlega samhentur til kosninga. Þá gerði Sjálfstæðisflokkurinn ekki nægilegan greinarmun á því, sem hann vildi stefna að í þjóðmálum og þvi sem samstaöa náðist um i ríkisstjórn, með þeim afleiðingum, að í vitund fólks var ekki mögulegt að greina þarna á milli og er þetta ekki í fyrsta skipti, sem slíkt hendir Sjálfstæðisflokkinn í stjórnarað- stöðu honum tiP tjóns. Ennfremur skorti á, að flokkurinn kynnti stefnu sína með einföldum og hnitmiðuðum hætti, sem auðveldaði stuðnings- mönnum hans að tala máli hans á þann hátt að allir skildu, hver væru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.