Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978 47 ETA banaði einum og sœrði tvo Bilbao, 6. nóvcniber. AP. ÞJÓÐARVARÐLIÐI féll í skot- árás ok annar særðist eftir að fótboltaleik lauk í Tolosa í nátírenni San Sebastian í gær. 12 ára drengur særðist í árás- inni, en þrjár grímuklæddar leyniskyttur sem |>ar áttu hlut að máli komust undan. Fuilvíst er talið að árásarmennirnir hafi verið úr ETA-hreyfingunni, en hryðjuverkamenn úr henni hafa verið óvenjuathafnasamir á síðustu vikum. Góð upp- skera í Sovét Moskvu — 6. nóvember. AP. KOSYGIN for.sætisráðherra So- vétrikjanna segir að knrnupp- skera fari í ár yfir 230 milljón- ir lesta, en það er mesta uppskera sem um getur í Sovétríkjunum. Vætusamt hefur verið í Sovétríkjunum f ár. og telja vestrænir sérfræð- ingar í Moskvu að gæði þessar- ar miklu uppskeru séu ekki sem skyldi. Enn er of snemmt að «era ráð fyrir því hvaða áhrif kornuppskeran í Sovétríkjun- um muni hafa á innflutning á korni þan«að frá Bandarikjun- um. Kanada. Ástralíu og iiðrum liindum. en slíkur innflutning- ur hefur verið gífurlegur á undanfiirnum árum, þe>?ar uppskera í Sovét hefur verið fáda ma lélejg. íhugun 6T lausnin Salisbury. B. nóvemher. AP. RÚMLEGA 50 iðkendur „inn- hverfrar íhugunar" eru komnir til Rhódesíu frá Bandaríkjunuin og ætla að binda enda á skærustríðið sem hefur geisað í sex ár í landinu með „heiiaöld- um“. „Taugakerfi þjóða geta trufl- ast rétt eins og manna,“ sagði leiðtogi hópsins, Jerry Daniels frá San Franeiseo. Strauss forsœtis- ráðherra í Bœjaralandi MUnchrn, fi. núvemher. Renter. FRANS Josef Strauss var um helgina kjörinn forsætis- ráðherra í Bæjaralandi. en í kosningum til ríkisþingsins, sem haldnar voru fyrir hálfum mánuði, hlaut flokkur hans, CSU. nær sextíu prósent at- kva'ða. 125 þingmenn greiddu Strauss atkvæði á ríkisþinginil. 76 greiddu atkvæði á móti honum. en 1 þingmenn voru fjarverandi atkvæðagreiðsi- una. 25 murtir í Rhódesíu Salisbury, 6. nóvember. AP. 25 BLÖKKUMENN hafa veriö myrtir nyrzt í Rhódesíu, að því er hernaðaryfirvöld í landinu segja. Ekki kom fram í yfirlýs- ingunni hverjir ættu sök á fjöldamorðunum, sem eru ein- hver hin mestu frá því að stríðið í Rhódesíu hófst fyrir sex árum, en látið að því liggja að þjóðernissinnaðir skæruiiðar standi að baki. Zambíustjórn heldur því fram að rhódesískir hermann tíðki það þessa dagana að dulbúast sem zambískir hermenn og herji síðan á vegfarendur í Suð- ur-Zambíu. Hitler hafði lítið innsæi Bunn, fi. nóvember. Reuter. INNSÆI Adolfs Hitlers var ekki eins mikið og af var látið og raunar ekki hans sterka hlið segir hergagnaráðherra hans, Albert Speer. í grein í blaðinu Welt am Sonntag. Hann segir að innan við einn tíundi hernaðarspádóma hans hafi rætzt. Ilann talaði mikið um bardaga þegar Þjóðverjum gekk vel og skcllti skuldinni á hers- höfðingja sína þegar ósigrar hrönnuðust upp. neitaði að sætta sig við eigin mistök og sakaði hershöfðingjana um að hlýða ekki skipunum sínum. Þegar Hitler varð reiður hegð- aði hann sér eins og óþekkur sex ára krakki, hann var barnaiega þrjózkur og lærði aldrei af mistökum sínum. Það var ekkert hægt að segja honum, segir Speer. Hitler hafði eins sterk áhrif á hershöfðingja sína og ævintýra- mennina í flokknum. Hershöfð- ingjarnir voru heiðarlegir menn, gæddir hermannadyggðum, en brotnuðu af stöðugri návist Hitlers, segir Speer. Fráfarandi forsætisráðherra írans, Jaafar Sharif-Emami, ávarpar þingið í Teheran í umræðum um traust á stjórnina. Herforingj ar með völdin í Iran fram að kosningum Tcheran, 6. nóvember. AP. Reuter. GHOLAM Reza Azhari hershöfðingi, forseti íranska herráðsins síðan 1971, var í dag skipaður forsætisráðherra írans í kjölfar óeirða, íkveikja og rána. Stjórnin er skipuð hermönnum og einum óbreyttum borgara, Amir Khosro Afshar, sem verður áfram utanríkisráðherra. Kunnugir telja að sú ákvörðun að veita stjórn Sharif-Emami lausn og skipa herforingja forsætisráðherra sé ekki bráðabirgðalausn. Hins vegar er talið að keisarinn muni standa við það loforð sitt að efna til frjálsra þingkosninga næsta sumar. Óeirðir héldu áfram í Teheran í kveikt var í borginni ollu afsögn hernum. Herlögreglan um 20 ritstjórum og morgun og í annað sinn var ráðizt inn á lóð brezka sendiráðsins sem skemmdist mikið af eldi í gær- kvöldi. Að þessu sinni var ráðizt inn í húsnæði starfsfólks sendi- ráðsins en engan diplómata sakaði og fjölskyldur þeirra ekki heldur. Keisarasinni Azhari hershöfðingi, hinn nýi forsætisráðherra, er talinn ein- dreginn stuðningsmaður keisara- dæmisins. Hann hefur orð fyrir að vera guðhræddur múhameðstrúar- maður og tilheyrir Shíta-trú- flokknum eins og 90% þjóðarinn- ar. Azhari hlaut menntun sína í íranska herskólanum og hefur sótt hernámskeið í Bandaríkjunum. Hann er kunnur fyrir ágæta stjórnunarhæfileika og er sagður engin sambönd hafa við kaup- sýslumenn. Keisari ákvað að skipa Azhari hershöfðingja eftir átta klukku- stunda viðræður við helztu ráðu- nauta sína. Meðan viðræðurnar stóðu yfir rifu óeirðaseggir niður hús í miðborginni, kveiktu í strætisvögnum, réðust inn í banka ,og á stjórnarbyggingar. Keisarinn ákvað að reyna hernaðarlega lausn þar sem trúarleiðtogar og leiðtog- ar stjórnarandstöðunnar höfðu neitað að fallast á pólitíska lausn á ólgunni í landinu. Óvænt tilkynning „Bráðabirgöalausn" Keisarinn lagði á það áherzlu í ávarpi til þjóðarinnar að skipun hermannastjórnar væri bráða- birgðalausn og stafaði af því að tilraunir til að mynda samsteypu- stjórn stjórnmálaflokka hefðu farið út um þúfur. Tilkynning keisarans kom kunnugum á óvart þar sem þeir telja að herforingja- stjórnin sitji fram að kosningun- um sem eiga að fara fram á næsta ári. í ávarpi sínu hét keisarinn því að ábyrgjast að fyrri mistök yrðu ekki endurtekin. Hann viður- kenndi líka að verkfallsmenn hefðu í flestum tilfellum haft rétt fyrir sér. „Morðin og glundroðinn í mörg- um landshlutum voru komin á svo alvarlegt stig að sjálfstæði lands- ins stafaði hætta af. Hinir hörmu- legu atburðir á sunnudag þegar ríkisstjórnarinnar. Til þess að koma í veg fyrir frekari ólgu og morð og til þess að koma á lögum og reglu hef ég reynt að gera mitt bezta til að mynda samsteypu- stjórn en það tókst ekki. Þess- vegna var ég tilneyddur að skipa bráðabirgðastjórn herforingja," sagði keisarinn. Ritskoðun Um leið og Sharif-Emami sagði af sér var lýst yfir herlögum og hérmenn lögðu undir sig í morgun fréttastofur og aðra mikilvæga staði. Skriðdrekar og brynvarðir vagnar sóttu að aðalbyggingu útvarpsins og sjónvarpsins og lögðu hana undir sig. Útkoma fjögurra blaða af fimm í höfuð- borginni var bönnuð. I óeirðunum sem leiddu til afsagnar Sharif-Emamis hefur verið eyðilagður verulegur fjöldi banka, verzlana, veitingahúsa, hótela, annarra bygginga og bif- reiða. Andstæðingar stjórnarinnar hafa haft í frammi ýmiss konar mótmæli og hrópað: „Niður með keisarann". \ Margir ritstjórar og blaðamenn neita að mæta á blöðum sínum og að hlýða leitar að blaðamönnum sem eru sakaðir um að hafa æst til óeirða. Fimm ritstjórar þriggja stærstu blað- anna voru handteknir í morgun. Viöbúnaður Hermenn eru á verði við opin- berar byggingar og sendiráð. Svíar fluttu úr sendiráði sínu þegar óeirðirnar stóðu sem hæst í gær þar sem sagt var að sprengju hefði verið komið fyrir í byggingunni. Olía hækkar Kuwait, 6. nóvember, AP. Arabískir olíuframleiðendur hafa komist að samkomulagi um að hækka verð á olíu um 10 af hundraði á fundi olíufram- leiðsluríkja (OPEC) í næsta mánuði, að því er blaðið A1 Seyassa skýrir frá í dag. Blaðið segir að þjóðhöfðingjar ara- bísku olíuframleiðsluríkjanna hafi komist að þessu samkomu- lagi á fundi leiðtoga Arabaríkja í Baghdad, og kemur hækkunin til framkvæmda um næstu áramót. Blaðið hefur eftir áreiðanleg- um heimildum að olíuráðherrar Arabaríkja muni taka á sig ferð til vestrænna iðnaðarríkja áður en OPEC-fundurinn verð- ur haldinn, til að skýra ástæð- urnar fyrir olíuhækkuninni. Öllum skólum og háskólum hefur verið lokað. Vopnaðir hermenn eru á verði við allar stjórnarbyggingar. Við- brögð stjórnarandstöðuleiðtoga hafa verið væg. Einn þeirra kvað ráðstafanir keisarans skiljanlegar þar sem ástandið hefði verið óútreiknanlegt. Talsmaður Þjóð- fylkingarinnar, Darish Forohar, skoraði á þjóðina að varðveita einangrun sína. Horfurnar á pólitískri lausn virðast hafa farið út um þúfur vegna yfirlýsingar Þjóðfylkingar- innar um að flokkurinn og hinn útlægi Shíta-leiðtogi Ayatullah Khomaini, hefðu sameinast gegn keisaranum. Khomaini sagði í viðtali við AFP í París að „þjóðin mundi reka“ hvern þann mann sem tæki við ábyrgðarstöðu hjá núverandi stjórn. „Lega írans auðveldar brott- vikningu keisarans. Svokölluð hvít bylting hans á að svipta þjóðina afkomu sinni,“ sagði Khomaini. Núverandi barátta er barátta gegn keisarastjórninni sem reynir að halda íran undir bandarískri yfirdrottnun og þeirra sem vilja að Iran verði óháð allri erlendri yfirdrottnun," sagði Khomaini. Khomaini ræddi í síðustu viku við dr. Karim Sanjabi, leiðtoga Þjóðfylkingarinnar sem hefur innan vébanda sinna stjórnmála- flokka frá lengst til hægri til lengst til vinstri að kommúnistum undanskildum. Þeir lýstu síðan yfir stofnun „írönsku og islömsku þjóðarhreyfingarinnar" og báru stjórnina þungum sökum. Endurreisnarstarf í Peking: Ball um helgina PekinK. 6. nóvember - Rcuter ekki sízt ungviðisins, þyldi trotta og aðra slíka menningar- UM IIELGINA var slegið upp hann ekki. dansa. Þar kom að að frönskum PekinK. 6. nóvember — Rcuter UM IIELGINA var slegið upp balli í Peking, hinu fyrsta sem haldið er með vitund pg vilja yfirvalda í tuttugu ár. Á sjötta áratugnum var dans stiginn af miklum þrótti í höfuðborg kínverska alþýðulýðvcldisins og er í minnum haft að þá var Chou EnLai umsvcrmaður danshcrra í alþjóðlcga klúbbn- um í miðborg Peking þar sem dansleikir voru haldnir viku- lcga. Smám saman dró úr teiti þessari unz forkólfar menning- arbvltingarinnar tóku málið alfarið í sínar hendur árið 1966 og bönnuðu ósómann, þar scm talið var að siðferði þcgnanna. En það var kátt hérna um laugardagskvöldið í Peking, þar sem um 400 manns voru saman komin í alþjóðaklúbbnum í hinum fjölskrúðugasta klæðn- aði. Sumir voru í kjól og hvítt, en aðrir í gallabuxum. Bros- mildir þjónar, greinilega hinir ánægðustu með hina nýju siði, voru á þönum með drykki, og skemmtu sér hið bezta yfir dansfimi gestanna, sem voru af ýmsu þjóðerni. Tónlist var leikin af hljómböndum, en nokkuð þótti skorta á fjörið framan af, því að ekki var boðið upp á annað en tangóa, fox- trotta og aðra slíka menningar- dansa. Þar kom að að frönskum pilti var nóg boðið og dró hann upp úr pússi sínu snældu með brakandi diskómúsíkk, og fór þá að hitna í kolunum. Skemmtu gestir sér hið bezta fram eftir nóttu, en samkomunni lauk með því að nýjárssöngur Skota „Auld Lang Syne“ hljómaði um sali. Var þá verulega farið að draga af hljómburðartækjunum, auk þess sem hljómbandið var ekki eins og bezt gerist. Forráðamenn alþjóðaklúbbs- ins segja að ballið hafi verið í tilraunaskyni, en hafa heitið því að taka til vinsamlegrar athug- unar hvort ekki verði haldið áfram á sömu braut.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.