Morgunblaðið - 19.11.1978, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 19.11.1978, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER Í978 45 Deleríum í Garðinum Sl. fimmtudagskvöld frum- sýndi Litla leikfélagið í Garði Deleríum Búbónis, leikrit þetta bræðra Jóns Múla og Jónasar Árnasonar. Milli 130 og 140 manns voru á sýningunni og var henni mjög vel tekið. Deleríum Búbónis var fyrst sýnt í Iðnó 1958 á vegum LR og eru því um 20 ár síðan leikritið var fyrst sýnt. Flosi Ólafsson leikstýrir verkinu í Garðinum en hann hefir áður sett það upp. Það var á Akureyri 1959. Leikritið er stórskemmtilegt á að horfa. Leikarar stóðu sig með mikilli prýði á frumsýn- ingunni og undirleikur Grettis Björnssonar er frábær. Auðséð er að leikstjórinn, Flosi Ólafsson, kann að vinna sitt verk og er stórskemmti- legt að sjá hvernig honum hefir tekizt í glímunni við verkið og lítt reynda leikendur sem skiluðu hlutverkum sín- um með miklum sóma — öll. Stærstu hlutverkin eru í höndum Hólmbergs Magnús- sonar og Ólafs Sigurðssonar en aðrir leikendur eru: María Guðfinnsdóttir, Helga Ólafs- dóttir, Unnsteinn Kristinsson, Margrét Sæbjörnsdóttir, Ómar Jóhannsson, Torfi Steinsson og Svavar Óskars- son. Ekki er hægt að skilja svo við sýninguna öðruvísi en að minnast á leikmyndina. Hún var mjög smekkleg og bar þar hæst skrifborð og stóll for- stjórans sem bæði voru út- skorin af Sævari Helgasyni sem hafði yfirumsjón með leikmyndinni. Verkið tekur tvær klukkustundir og tuttugu mínútur í flutningi. Næsta sýning verður í sam- komuhúsinu á sunnudag kl. 16. Þá verða sýningar í samkomu- húsinu í næstu viku. Einnig er ákveðið að fara í nágranna- byggðirnar með verkið svo og upp í Kjós. Arnór Ragnarsson. Jafnvægismálaráðherrann (Ólafur Sigurðsson) og Ægir Ó. Ægirs forstjóri (Hólmberg Magnússon) taka lagið. Attræður — Einar Gestsson Norðurkoti Hann Einar Gestsson frændi minn á afmæli á morgun, 20. nóvember. Þá hefur hann gengið 80 ár af sinni ævileið. Einar er fæddur í Garðinum, en fluttist um tveggja ára aldur með móður sinni, þá ekkju, suður á Miðnes, þar sem hann hefur alið sinn aldur síðan. Á þessum tímamótum í lífi frænda míns reikar hugurinn aftur í tímann til bernskuára minnna. Þá áttum við margar ánægjulegar samverustundir. Sér- lega minnisstæðar eru heimsókn- irnar, þegar hann kom hjólandi til þess að láta pabba klippa sig. Mér þótti alveg sjálfsagt að taka vel á móti gesti þessum, enda borgaði hann mér alltaf klippinguna með því að hella smáaurunum úr buddunni sinni og láta mig telja þá í sparibaukinn minn. Þetta voru stórar stundir, sem gleymast seint. Sjálfsagt hef ég þarna notið þess að einhverju leyti að ég ber nafn móður hans, Gróu Einars- dóttur, en henni unni Einar mjög. Já, það var eitthvað sérstakt við þennan frænda. Það var svo gott að hitta hann og tala við hann, en til þess hafði hann alltaf nógan tíma. Svo var hann svo karlmann- lega vaxinn, að hann hlaut að vera mjög sterkur. Eitt þótti mér alveg stórkostlegt við hann, hvað hann var duglegur að synda. Þá skynjaði ég ekki til fulls afrekin hans á því sviði, en er það því ljósara nú, hvers konar afrek það hefur verið af manni hans tíðar, er hann sextán ára gamall bjargaði for- manni sínum frá drukknun, er báti þeirra hvolfdi á leið tiljands úr róðri. Eða er hann sýndi björgun af strandstað og synti með mann á baki og bát í togi til lands. Barnsaugun sáu jú manninn í réttu ljósi — mikið þrekmenni. I dag finnst mér hann Einar alveg eins og þá. Hann er alltaf hress og kátur, en yfirlætislaus í viðmóti. Hann hefur umgengist fjöldann allan af fólki á ýmsum aldri og víða að, enda sótti hann fyrr á árum vinnu sína utan heimahaga eins og þá var títt meðal ungra og vaskra manna af Suðurnesjum. Einar tók vélstjórapróf á sínum tíma og er því fyrst og fremst sjómaður, en hefur annars unnið hvers konar störf, sem til falla hverju sinni. Að félagsmálum sveitar sinnar hefur hann unnið frá unga aldri og ber þar hæst störf í þágu Ungmennafélags og Slysavarnadeildarinnar Sigurvon- ar í Sandgerði, þar sem hánn var lengi formaður björgunarsveitar- innar. Hann hefur yndi af lestri góðra bóka og ýmiskonar fræði- legu grúski og kann því frá ýmsu að segja, ef eftir væri leitað, því hann er minnugur vel. Að lokum óska ég Einari frænda hjartanlega til hamingju með afmælisdaginn og bið guð að blessa honum ókomnu árin. Iðunn Gróa. Ráðinn forstöðu- maður bankaeftir- lits Seðlabankans BANKASTJÓRN Seðlabankans hefur ráðið Þórð Ólafsson lögfræð- ing í starf forstöðumanns banka- eftirlits Seðlabankans frá 1. nóvember 1978. Tekur hann við því starfi af Sveini Jónssyni viðskipta- fræðingi, sem látið hefur af störfum hjá bankanum. Þórður Ólafsson er fæddur 26. júlí 1948. Hann lauk stúdentsprófi frá M.A. 1968 og lögfræðiprófi frá Háskóla íslands í janúar 1975. Þórður hefur síðan starfað við bankaeftirlit Seðlabankans síð- ustu tvö árin sem deildarstjóri. Þórður ólaisson. Frá Bing&Gröndahl höfum víð stærsta og besta úrvalið: Kaffi- og matarstell: Við bjóðum 15 tegundir af kaffi- stellum, og 6 tegundir af matar- steilum þ.á.m. hið sígilda Máva- stell með flestum aukahlutum. Hvítar styttur: Allar tegundir af hvítum styttum t.d. „Pínurnar" „Börn að leik" og „Sjávarbörnin". Ennfremur gott úrval af styttum í lit. Lítlð við í verslun okkar. Jólaplattinn 1978 Thorvaldsen plattarnir í gjafapakkningu. Auk þess eigum við i takmörkuðu magni jólaplatta ”66 og ”71, ”75 ”76 og ”77 alla í gjafapakkningu. Mæðradagsplattinn allir sex: Dagur, Nótt og árstíðirnar: Sumar, Vetur, Vor og Haust. Þýzki borðbúnaðurinn er kominn. 9 tegundir, takmarkaðar byrgðir. 1978 Postulíns- og kristalsdeildin hefur verið stækkuð og endurbætt. Verið velkomin til að líta við . Gjafaúrvalið hefur aldrei verið fallegra. R AMM AGERÐIN: Hafnarstræti 19

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.