Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 Austurlína tengd í dag Rafmagnsveitur ríkisins taka við Kröfluvirkjun AUSTURLÍNA, línan frá Kröflu til aðveitustöðvar- innar við Hryggstegg í Skriðdal, verður tengd inn á Austurlandskerfið í dag og verða þá Suður-, Norð- ur- og Austurland sam- tengd í eina heild. Vinna við Vesturlínu er hafin og er áætlað að Vesturland og Vestfirðir komist í sam- tengingu við aðra lands- hluta á árinu 1980. Hafskip óskar eftir vidrædum vid Bifröst „VIÐ MUNUM halda stjórnar- fund á moricun og taka þá fyrir þessa ósk Hafskips um viðræður.“ sagði Þórir Jónsson formaður stjórnar Bifrastar hfen á stjórnarfundi Hafskips í fyrra- dag var forstjóra félagsins falið að skrifa Bifröst hf. og óska eftir formlegum viðræðum um hugsan- lega samvinnu skipaféiaganna. Mbl. spurði Þóri, hvað liði viðræðum Eimskipafélagsins og Bifrastar og sagði hann, að þær hefðu legið niðri að undanförnu vegna fjarveru Bjarna Magnús- sonar varaformanns stjórnar Bifrastar, en hann var væntan- legur til landsins í gærkvöldi. Tenging Austurlínu hefst um klukkan 11:30 í dag og verður Hjörleifur Guttormsson iðnaðar- ráðherra meðal viðstaddra í að- veitustöðinni við Hryggstekk. Guðjón Guðmundsson rekstrar- stjóri Rafmagnsveitna ríkisins sagði í samtali við Mbl. í gær, að reiknað væri með að tengingunni yrði að fullu lokið á um klukku- stund, en reiknað er með að línan færi Austfirðingum 17—20 MW, sem Guðjón sagði að ætti að duga þeim næstu tvö árin. Ríkisstjórnin hefur samþykkt að óska eftir því að Rafmagnsveitur ríkisins taki við rekstri Kröflu- virkjunar og sagði Guðjón stefnt að því að það yrði um áramótin en tíminn þangað til yrði notaður til að ganga frá samningum um yfirtökuna, en aðilar þeirra samn- inga eru Kröflunefnd, iðnaðar- ráðuneytið og rafmagnsveiturnar. Þeirra eigin orð Febrúarlögin „sviptu launafólk 5-6 vikna launum á einu ári” — sagði Eðvarð Sigurðsson 22. júní sl. Eðvarð Sigurðsson formaður Verkamannafélagsins Dags- brúnar og þingmaður Alþýðu- bandalagsins sagði í viðtali við Þjóðviljann 22. júní sl.: „F'yrir mér eru kjaramálin höfuðatriði. Það er það sem maður -stendur í daglega, ár og síð. Þetta síðasta kjörtímabil hefur einkennst af látlausu stríði. ... Með lögunum í febrúar var bannað að greiða nema helming umsaminna verðbóta á launin, sem í reynd svipti launafólk 5—6 vikna launum á einu ári. Aðeins þessari löggjöf var mætt með víðtækustu aðgerðum sem verkalýðshreyfingin hefur haft í frammi gegn slíkum ráðstöfun- um rikisvaldsins. Þessi barátta náði hámarki í sveitarstjórnakosningunum, þegar launafólk notaði kjör- seðilinn til þess að færa kjara- baráttuna inn á hinn pólitíska vettvang..." „Fleiri krónur í um- slagið hefur aldrei verið keppikefli verka- lýöshreyfingarinnar ’ ’ — sagði Eðvarð Sigurðsson 27. nóv. sl. Eðvarð Sigurðsson sagði á Alþingi 27. nóvember sl., þegar efnahagsráðstafanir ríkis- stjórnarinnar voru til umræðu: „Hins vegar mun ég ekki dylja neinn þess, að hér er um eftirákaup að ræða og segja má, að verkalýðshreyfingin gefi hér eftir vissan hluta af umsömdu kaupi... Grundvallarmarkmið ríkis- stjórnarinnar í þessum efnum er að sjálfsögðu að reyna að tryggja kaupmátt launanna sem allra best og að tryggja atvinnu- öryggið. Fleiri krónur í umslag- ið hefur aldrei verið keppikefli verkalýðshreyfingarinnar út af fyrir sig, heldur verðmætið, kaupmáttur þeirra króna, sem um er samið. Þess vegna er afstaða verkalýðshreyfingarinn- ar til þessara mála nú ekkert nýmæli." Háhyrningarnir bíða enn HÁHYRNINGARNIR fimm, sem Sædýrasafnið í Hafnarfirði hefur fangað lifandi og verða seldir til Japans, eru enn í búrinu sem komið hefur verið upp í Grindavík- urhöfn. Að sögn Jóns Kr. Gunn- arssonar forstöðumanns safnsins hefur enn ekki fengizt lendingar- leyfi fyrir flugvél þá sem flytja á háhyrningana til Japans, en þessir flutningar eru á kostnað kaupand- ans. Alls hefur Sædýrasafnið fangað 10 háhyrninga í haust og hafa 5 þegar verið seldir til Bandaríkjanna. Samanlagt verð- mæti þessara háhyrninga eru 220 milljónir króna, en Jón tók fram að gífurlegur kostnaður væri samfara veiðunum. Frumvarp til laga lagt fram á Alþingi í gær: Stefnt að samdrætti í fram- leiðslu landbúnaðarvara — bráðabirgðaráðstafanir segir landbúnaðarráðherra — langtímaáætlanir í undirbúningi „ÉG MUN óska þess að sérstaklega önnur grein þessa frumvarps nái fram að ganga fyrir áramót,“ sagði Steingrímur Her- mannsson landbúnaðarráð- herra á blaðamannafundi í gær þar sem hann kynnti frumvarp til laga um breytingar á lögum um Framleiðsluráð landbúnað- arins, verðskráningu, verð- miðlun og sölu á landbún- aðarvörum o.fl. Frumvarp þetta var lagt fram á Alþingi í gær. Steingrímur sagði, að afurða- málum landbúnaðarins væri nú stefnt í voða og gæti hugsanlega leitt til þess að bankar drægju úr INNLENT, afurðalánum. Frumvarpið sem lagt var fram í gær felur í sér bráðabirgðaráðstafanir en Stein- grímur sagði, að hafinn væri undirbúningur að langtímaáætlun í landbúnaðarmálum. Þar verður lögð áhersla á að bændur fái tekjur til jafns við viðmiðunar- stéttir, að draga sem mest úr framleiðslu umfram innanlands- þörfina og að tengja þróun land- búnaðarins byggðaþróuninni. Einnig kom það fram hjá Steingrími, að hann hyggst leggja fram frumvarp sem miðast að því að losa um styrkveitingar til ákveðinna framkvæmda í land- búnaðarmálum. Sandgerði f ær hitaveitu í dag SANDGERÐI verður tengt Hitaveitu Suðúrnesja í dag, en fyrr er hitaveita komin til Grindavíkur, Ytri-Njarðvíkur og Kefla- víkur. í Garðinn kemur hitaveita upp úr áramótun- um og í Voga á miðju næsta ári. Síðan verður vallar- svæðið tengt hitaveitunni um áramót 1980—81. Hitaveituæðin til Sandgerðis frá Keflavík er um 7 km löng, en Sandgerðis- og Gerðaæð var boðin út 21. apríl sl. og er áætlaður kostnaður í vinnu og efni 364,1 milljón krónur. Dreifikerfi í Sand- gerði var boðið út 24. maí sl. og er áætlaður kostnaður við það 164.2 milljónir króna, en dreifiveitan nær til um 240 húsa og hefur þegar verið lögð í 150 hús. í Garðinum eru komin 50—60% dreifiveitunnar og búið er að semja um dreifiveituna í Vogum og vinna við aðveituæð þar er hafin. Kaupunum á Skólavörustíg 14 rift — en ekki vegna kærunnar MORGUNBLAÐINU barst í gær yfirlýsing lögmanna seljanda og kaupanda fasteignarinnar Skóla- vörðustígur 14, sem mikið hefur verið í fréttum að undanförnu. Kemur þar fram að aðilar hafa orðið sammála um að rifta þessum kaupum og eru ástæður þess skýrðar í yfirlýsingunni. Hún fer orðrétt hér á eftin 1 YFIRLÝSING. Seljandi og kaupendur fast- éignarinnar Skófávörðustíg 14, hafa nú komið sér saman um að rifta þessum kaupum. Seljandi afsalaði greindri fast- eign hlutafélagi kaupenda, Stjörn- unni hf., og skyldi kaupverð greiðast í peningum með yfirtöku skulda og með útgáfu veðskulda- bréfa. Svo var umsamið að seljandi gerðist hluthafi í Stjörnunni hf., starfsmaður félagsins og stjórnar- formaður, enda var þannig frá málum gengið að til þess að skuldbinda félagið skyldi til koma samþykki allrar stjórnar félags- ins. Þegar þessi atriði eru höfð i huga má segja að verðið hafi ekki verið of lágt. Eftir að samningar höfðu verið undirskrifaðir varð seljanda ljóst að skattalegar ástæður sem hann hafði ekki hugleitt áður, svo og aðrar ástæður, gerðu það að verkum að samningar þessir gætu orðið honum mjög óhagstæðir. Af þessum ástæðum fór hann þess á leit við kaupendur að kaupin yrðu látin ganga til baka. Kaupendur skilja ástæður seljanda og hafa samþykkt riftun. Jafnframt hafa aðilar komið sér saman um að leigusamningur sem þeir gerðu með sér á s.l. sumri yrði endurnýjaður með nokkrum breyt- ingum. Fyrir nokkrum dögum aftur- kallaði seljandi kæru á kaupanda til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Báðum aðilum er ljóst að samn- ingar sem nú hafa verið gerðir um riftun kaupanna hafa ekki verið gerðir vegna áðurgreindrar kæru heldur af fúsum og frjálsum vilja beggja aðila. Reykjavík, 7. desember 1978. Guðjón Steingrímsson hri. Bergur Guðnason hdl. Hækkun fasteigna- skattanna samþykkt HÆKKUN fasteigna- skatta var samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur á tólfta tímanum í gær- kvöldi með átta atkvæð- um meirihlutans gegn atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.