Morgunblaðið - 08.12.1978, Page 3
Hef mestu fyrirlitn-
ingu á þessari bók
„ÉG HEF mestu fyrirlitningu á
þessari bók,“ sagði Ólafur
Skúlason dómprófastur, er Mbl.
leitaði álits hans á bókinni
Félagi Jesús. „Sérstaklega
finnst mér útgáfufyrirtækið
bíta höfuðið af skömminni,
þegar það auglýsir í kvöld og
hvetur fólk til að lesa bókina og
sannfærast. Ég fæ ekki séð
hvernig fólk á að sannfærast af
skáldsögu, því nú hefur það
komið fram, að skáldsaga á
þetta að vera.
Hitt er líka umhugsunarvert
að til þessarar útgáfu er veittur
Lágkúra og óskamm
feilinn þvœttingur
„ÞESSI
þykir vænt um norræna sam-
vinnu er þetta sorglegt. Mér er
það vel ljóst að þessi styrkur er
veittur af þeim einstaklingum,
sem í stjórn sjóðsins sitja, en
ekki Norðurlandaráði, en engu
að síður leiðir þetta hugann að
því og þess starfi.
bók er lágkúra,
óskammfeilinn þvættingar,
samansettur í þeim yfirlýsta
tilgangi að koma því inn hjá
börnum að guðspjöllin séu lygi,
að kristin trú sé ljót blekking og
framsetningin er blygðunarlaus
ögrun við allar sæmilega heil-
brigðar tilfinningar," sagði
biskupinn yfir Islandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, er Mbl.
spurði um álit hans á bókinni
Félagi Jesús.
„Enginn færi að brjótast í því
að koma bók sem þessari í
hendur íslenzkra barna ef ekki
í þessari bók er raunverulega
reynt að spilla því sem allt
heilbrigt fólk sér tærast og
fegurst í fari Jesú. Þegar Jesús,
sem kirkjan hefur í hásæti, er
sakaður um það sem öllum
finnst gróft og sóðalegt þá get
ég ekki séð annað en að um
guðlast sé að ræða.“
byggi annað undir en áhugi á
bókmenntum eða list,“ sagði
biskup.
styrkur norræna menningar-
málasjóðsins. Fyrir okkur sem
Utihljómleik
ar við Úti-
markaðinn
Útimarkaðurinn á Lækjar-
torginu í Reykjavík verður
opinn í dag á venjulegum
verzlunartíma svo og á
morgun og hefur nú verið
komið upp palli við Turninn
og í dag munu þar koma
fram skemmtikraftar.
Milli klukkan 2 og 3 kemur fram
hljómsveitin Ljósin í bænum, en
það er Karnabær sem stendur að
eins konar hljómplötukynningu í
samvinnu við Útimarkaðinn og
kemur hljómsveitin aftur fram
upp úr kl. 17, en kl. 17 verður á
pallinum Háskólakórinn og syngur
nokkur lög. Kristinn Ragnarsson,
einn af forstöðumönnum Úti-
markaðarins, sagðist vona að þessi
nýbreytni gæfist vel og sagði að
markaðurinn yrði opinn næstu
helgar bæði á föstudögum og
laugardögum og reynt yrði að hafa
einhverja dagskrá á pallinum
næstu helgar, en hann verður
hafður uppi þar til um áramót.
Síðustu vikuna fyrir jól verður svo
Útimarkaðurinn opinn á hverjum
degi.
ekki bara
draumur.
Fjármálarádu-
neytid greiddi
skuld félags-
stofnunnar
Fjármálaráðuneytið greiddi i
gær Rafmagnsveitu Reykjavíkur
skuld félagsstofnunar stúdenta,
sem nam 10.944.074 krónum, en
Rafmagnsveitan lokaði sem
kunnugt er fyrir rafmagnið í
félagsstofnunni á miðvikudags-
morgun, en því var aftur hleypt á
síðdegis.
Benzínhækk
un frestað
EINHVER bið verður á því að nýtt
bensínverð taki gildi. Eins og
kunnugt er samþykkti verðlags-
nefnd að hækka bensínið á fundi
sínum í fyrrakvöld og var búizt við
því að ríkisstjórnin myndi fjalla
um málið í gær, en hún þarf að
staðfesta hækkunina. Hins vegar
var hækkunin ekki afgreidd á
fundi stjórnarinnar í gær.
16 ára piltur
drukknaði
BUÐIN
SEXTÁN ára pilt, Stefán ómar
Svavarsson, Möðruvöllum 13 í
Reykjavík, tók út af skipinu
Rauðsey á loðnumiðunum á
þriðjudagsmorgun og drukknaði
hann.
Skipholti 19,
sími 29800.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 3
Biskup og dómprófastur um bókina Félagi Jesús: