Morgunblaðið - 08.12.1978, Page 10
1 0 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978
„Samt hafa mennirnir tvö
eyru en aðeins einn munn ”
NÝLEGA kom út hjá Almenna
bókalélaKÍnu harnahókin Tóta
tíkarspeni eftir Þóri S. Guð-
bergsson. sem synir hans tveir.
Kristinn Rúnar ojí Illynur Örn
myndskreyttu. í tilefni af því
sneri Mbl. sér til bóris og
spurðist nánar fyrir um bók-
ina.
— Sagan varð eingöngu til
vegna minna eigin barna, —
sagði Þórir S. Guðbergsson. —
Eg skrifaði hana einum sex eða
átta sinnum, endurbætti og
lagaði, og þróaðist hún svo
þannig, að mér fannst efnið
mjög vel til þess fallið, að
foreldrar læsu bókina með
börnum sínum. Það er nauðsyn-
legt, því að bókin vekur spurn-
ingar og er skrifuð með það í
huga, að fullorðnir lesi hana
með börnunum.
Þórir S. Guðbergsson hefur
skrifað einar tíu eða tólf bækur
áður fyrir unglinga, en þetta er
fyrsta bókin fyrir yngri aldurs-
hópa.
— Bókin er tileinkuð ári
barnsins, sem hefst 1979, —
sagði Þórir. — Mér finnst það
vera eitt meginvandamál nú, að
foreldrar hafa ekki tíma til að
hlusta á börn sín. Við, sem
fuliorðin erum, eigum erfitt með
að setja okkur inn í heim
barnanna. I sögunni um Tótu
tíkarspena segir einmitt frá
lítilli telpu, sem enginn vildi
hlusta á eða sinna, því að allir
voru svo uppteknir. En svo fann
hún tréð og það hafði tíma til að
hlusta, en tréð segir á einum
stað við Tótu: „Samt hafa
mennirnir tvö eyru en aðeins
einn munn! Kannski ættu þeir
að hlusta meira en þeir tala.“
— Langflestir kvarta yfir
tímaleysi og gefa sér ekki tíma
með börnunum. Árin líða fljótt
og allt í einu eru fuglarnir
flognir úr hreiðrinu. Mér finnst
tímaleysið meðal annars koma
fram í því, að foreldrarnir vilja
frekar gera eitthvað fyrir börn
sín en með þeim. Auðveldara er
að kaupa bók, gefa þeim og segja
þeim að lesa hana heldur en lesa
meö þeim. Eða gefa þeim 500
krónur fyrir bróferð ellegar
segja þeim að fara út og leika í
stað þess að láta eftir sér að
leika við þau.
Nauðsynlegt er að taka tillit
Rætt við Þóri
S. Guðbergsson
vegna nýút-
kominnar barna-
bókar hans
Tótu tíkarspena
til ýmissa þátta í barnabókum
fyrir þennan aldursflokk. Text-
inn verður að vera stuttur og
skýr og atburðarás fremur hröð,
svo að börnin þreytist ekki. Ekki
má vera of mikið af litum og
leturgerð verður að vera við
hæfi barnanna svo að hún trufli
þau ekki við lesturinn. Byrjend-
ur í lestri eiga erfitt með, eða
ráða hreinlega ekki við, að lesa
smátt letur. Margar bækur fyrir
yngri kynslóðina eru að lang-
flestu leyti vel gerðar, en i
fæstum tilvikum er tekið tillit
til þessara þátta.
Samvinna mín og drengjanna
hefur verið mjög lærdómsrík.
Það er allt of sjaldan, sem
maður fær tækifæri til að eiga
náið samstarf við börn sín. —
Eins og áður segir eru það
Hlynur Örn, sem er 11 ára
gamall, og Kristinn Rúnar,
nýlega 14 ára, sem teikna
myndirnar í bókinni, Hlynur
Örn persónurnar, en Kristinn
Rúnar bakgrunn og skugga.
— Eg hef ekki áður teiknað í
bók, sagði Kristinn Rúnar, — en
mér fannst þetta ágætt. Við
höfum teiknað fyrir sjónvarpið
og erum núna með myndaseríu
um Pétur prófessor fyrir það. —
Kristinn hefur samið smá lag
við seríuna og spilar sjálfur
undir á gítar.
— Mér fannst þetta frekar
erfitt, sagði Hlynur Örn, — en
það var ekki erfitt að teikna
svipbrigðin á persónunum. Við
teiknuðum myndaseríu fyrir
sjónvarpið í fyrra um Brelli og
Skellu í sex þáttum. Það var allt
öðru vísi, ég þurfti að vanda mig
meira við bókina. — þetta var
þolinmæðisverk, sagði Þórir, —
og mikill undirbúningsvinna.
Drengirnir urðu að binda sig við
ákveðna stærð og lögun mynd-
anna. Við höfðum tillögur um
myndaefni opnar og strákarnir
komu með hugmyndir og gagn-
rýndu sitt á hvað eftir því sem
tilefni gáfust.
Bókin um Tótu tíkarspena er
gefin út hjá Almenna bókafélag-
inu og er að öllu leyti unnin
hérlendis, en eftir því sem blm.
komst næst er þetta eina
barnabókin á markaðinum á
þessu ári, sem eingöngu hefur
verið unnin hér á landi. Mynda-
mót hf. sá um filmuvinnu og
plötugerð, Prentsmiðjan Oddi
hf. um setningu og prentun
bókarinnar, en hún er bundin
hjá Sveinabókbandinu hf.
Þórir S. Guðbergsson og börn
hans, talið frá vinstrii Þóra
Bryndís, Hlynur Örn og Krist-
inn Rúnar.
Þessi broshýru andlit láta ekki sitt eftir liggja við undirhúning á basarnum. en þau eru þarna að búa til
lukkupoka.
Köku- og kertabazar skíöadeildar Ármanns
Köku- og kertabazar skíðadeild-
ar Ármanns verður haldinn á
laugardaginn 9. desember í
Ármannsheimilinu að Sigtúni 20,
kl. 14.00, en ágóðinn rennur til
lyftubyggingar þeirra Ármenn-
inga í Bláfjöllum, sem áformað er
að koma upp fyrir jól. Félagar í
skíðadeildinni hafa unnið ötullega
að lyftubyggingunni í sumar og
haust, og er nú verið að reka
endahnútinn á þær framkvæmdir.
Þetta er efalaust mikið ánægjuefni
(fyrir þá fjölmörgu bæjarbúa)
unga sem aldna á Stór-Reykja-
víkursvæðinu, sem tekið hafa
skíðabakteríuna, en óhætt er að
fullyrða, að engin ein iþrótt hefur
náð jafn almennum vinsældum
sem skíðaíþróttin.
Lyftan sem er milli 400—500
metra löng, og nær frá rótum
Kóngsgils og efst á. svonefndan
tind 702.
Aðventukvöld
í Víkurkirkju
EINS og venja hcfur verið undan-
farin ár verður aðventukvöld í
Víkurkirkju að þessu sinni annan
sunnudag í aðventu 10. desember
kl. 20i30. Verður þar fjölbreytt
efnisskrá í tónum og taii.
Ræðu kvöldsins flytur Ólafur
Ólafsson kaupfélagsstjóri á Hvols-
velli, frú Málfríður Eggertsdóttir,
Vík, annast upplestur, auk annars
efnis syngur frú Ragnheiður Guð-
mundsdóttir einsöng, kirkjukórinn
flytur valinn verk við undirleik frú
Sigríðar Ólafsdóttur organista
kirkjunnar, unglingar taka þátt í
samkomunni og börn úr grunn-
skóla Víkur tendra aðventuljós.
Þess er vænst að sem flestir sjái
sér fært að mæta og finni sig fúsa
til að auka við helgi komandi
hátíðar með því að taka af alhug
þátt í þessari samverustund í
Vikurkirkju 10. desember.
Ingimar Ingimarsson.
4
Víkurkirkja.
Aðventu-
kvöld í
Kársnessókn
Kársnessöfnuður heldur
sína árlegu aðventuhátíð í
Kópavogskirkju á sunnu-
dagskvöld kl. 20.30, hinn
annan sunnudag í aðventu.
Að venju hefur verið vandað til
efnisskrárinnar. Tónlist verður
flutt af organista kirkjunnar
Guðmundi Gilssyni og kirkjukór-
inn syngur þætti úr þýskri messu
eftir Franz Schubert. Þá mun
Ingveldur Hjaltested syngja aríur
eftir Hándel og Stradella.
Hugvekju kvöldsins flytur
Björgvin Sæmundsson bæjarstjóri
í Kópavogi og Guðrún Þ. Stephen-
sen leikari les jólasögu sem hún
hefur þýtt.
Undanfarin ár hafa aðventu-
samkomur safnaðarins alltaf verið
vel sóttar og vonum við að svo
verði enn. Þegar ytri jólaundir-
búningurinn er hafinn þá má
andlegi undirbúningurinn heldur
ekki gleymast. Aðventukvöldið
hjálpar fólki við andlegan undir-
búning og vekur það til umhugsun-
ar um hið sanna innihald
jólahátíðarinnar.Árni Pálsson,
sóknarprestur.
Helga Ólaísdóttir (Guðrún Æg-
irs) og Ómar Jóhannsson (Unn-
dór Andmar) í hlutverkum sínum
í Dcleríum Búbónis.
Á faralds-
fœti meö
Deleríum
Búbónis
Garði, 7. descmber
LITLA leikfélagið fer í leikför til
Selfoss og Reykjavíkur um helg-
ina með Deleríum Búbónis en það
hefir nú verið sýnt alls 10 sinnum
í Garðinum og nágrenni. Alls
hafa nú um 800 manns séð
leikritið.
Sýningin á Selfossi verður í
Selfossbíói föstudagskvöld 8. des-
ember klukkan 21 og á laugardags-
kvöld verður sýning í Félagsheim-
ilin'u á Seltjarnarnesi og hefst hún
einnig kl. 21. — Fréttaritari.