Morgunblaðið - 08.12.1978, Síða 12

Morgunblaðið - 08.12.1978, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 12 Galdramennirnir styrkja vonandi stöðu Skógaskóla í menntakerfinu Á afmælisdegi Skógaskóla í nóvembermánuði voru form- lega afhent með viðhöfn lista- verk. sem Benedikt Gunnars- son listmálari hefur verið að vinna að í sumar og haust fyrir austan. Eru þetta þrjú verk, sem öll eru í anddyri skólans. Stór máluð veggskreyting á grind og boltuð á vegginn og tvö önnur minni en samstæð verk. Þau eru einnig máluð, en á járnrömmum. sem settir eru inn í vegginn. Stóra verkið er 5,60 m á breidd og 1,90 á hæð. Þessi atburður á sér nokkra forsögu og tengsi Benedikts við skólann einnig. Því var Bene- dikt sóttur heim, í þeim til- gangi að ræða við hann. — Já, það er rétt. Tengsl mín við skólann eru býsna merkileg, svaraði hann að bragði. Ég kem fyrst að skólanum sem starfs- maður málarameistara, þegar húsið var í byggingu. Þá vann Viðtal við Benedikt Gunnarsson ég þarna við að mála skólahúsið í tvö sumur og átti þá heima á Skógum. I lok þessarar vinnu bað þáverandi skólastjóri, Magnús Gíslason, mig um að gera veggskreytingu í anddyrið. Þetta var árið 1950. Þá var ég 21 árs gamall og mitt í listnámi. Hafði verið í lista- skóla í Danmörku og var á leið út aftur, þá til Parísar. — Ég gerði þessar skreyting- ar, var búinn að hugsa verkið og teikna það upp, þegar ég fór, en fékk félaga minn Eirík Smith til að mála aðra mynd- ina, sem hann gerði af mikilli vandvirkni. Þetta voru tvær myndir í anddyri skólans. — En hvað kom fyrir þær? — Þegar Edduhótelið tók til starfa, þurfti að mála allan skólann, því allt varð að vera hreint og fínt. Þessi verk voru farin að láta á sjá að einhverju leyti. Fínpússningin farin að brotna eitthvað upp úr veggn- um. I stað þess að gera við, var það ráð tekið að mála einfald- lega yfir myndirnar. Voru myndirnar þá leystar upp með óblönduðu salmíaki, svo að hægt væri að mála með plast- málningu yfir. Þessi æskuverk eru sem sagt horfin af sjónar- sviðinu og ég syrgi þau ekki — en upp af þeim hafa sprottið miklu sterkari stofnar og líf- vænlegri, vona ég. — Hvað áttu við með því? — Þessar gömlu myndir þóttu nokkuð furðulegar á sínum tíma, þótt flestir skildu inntak þeirra án mikilla heila- brota. Að minnsta kosti hafa Úr anddyri Skógaskóla með veggskreytingu Benedikts, einu stóru málverki og tveimur minni samstæðum. Mikið er af bláum tærum litum í myndunum, sem ekki sést á þessari mynd. En Benedikt segir að Skógaheiði, Eyjafjallajökull og Mýrdaisjökull hafi verið kveikja stóra verksins, ásamt eldvirkni beggja jöklanna. En minni verkin fjalla um landnámsmanninn og galdramanninn Þrasa Herjólfsson. Benedikt Gunnarsson f vinnu- stofu sinni f Kópavogi. þessar myndir festst í vitund margra nemenda Skógaskóla og fylgt þeim um lífsins ólgusjó. Slíkur var þá máttur þeirra eftir allt. Á 20 ára brottskrán- ingarafmæli sínu tóku gamlir nemendur, útskrifaðir 1957, sig til og ákváðu að gangast fyrir því að koma aftur upp mynd- skreytingu í anddyrið eftir mig. Þessi hópur hefur mikinn áhuga á gamla skólanum sínum og ber að þakka frumkvæði hans. Og kannski má spyrja: „Hvað segir þetta um uppeldis- og menningargildi myndlistar- verka í skólum? — Ég er þessum hópi ákaf- lega þakklátur, hélt Benedikt áfram. Framtak og framsýni nemendahópsins er einstakt. MÓÐIR MÍN — húsfreyjan Fyrra bindi þessarar bókar seldist mest allra bóka okkar á síðasta ári. Hér er að finna eftirtalda fimmtán nýja þætti um nýjar mæður skráða af börnum þeirra« Sólveig Þórðardóttir frá Sjöundá eftir Ingimar Jóhannesson, Jóhanna Kristín Jónsdóttir frá Álfadai eftir Jóhannes Davíðsson, Steinunn Frímannsdóttir frá Helgavatni eftir Huldu Á. Stefáns- dóttur, Hansína Benediktsdóttr frá Grenjaðarstað eftir Guðbjörgu J. Birkis, Björg Þ. Guðmundsdóttir frá Höll eftir Sigurð S. Haukdal, Hlíf Bogadóttir Smith frá Arnarbæli eftir Sigríði Pétursdóttur, Svanhildur Jör- undsdóttir frá Syðstabæ eftir Guðrúnu Pálsdóttur, Aðalbjörg Jakobsdóttir frá Húsavík eftir Guðrúnu Gísladóttur, Jakobína Davíðsdóttir frá Hrísum eftir Davíð Ólafsson, Sigríður Jónsdóttir Bjarnason eftir Hákon Bjarnason, Ásdís Margrét Þorgrímsdóttir frá Hvítár- bakka eftir Þorgrím Sigurðsson, Kristín Sigurðardóttir frá Skútustöðum eftir Hall Hermannsson, Þórdís Ásgeirs- dóttir frá Knarrarnesi eftir Vernharð Bjarnason, Dóra Þórhallsdóttir frá Laufási eftir Þórhall Ásgeirsson og Grethe Harne Ásgeirsson eftir Evu Ragnarsdóttur. / minningu hennar, sem eldinn tól ao kveldi og blós i glæóurnar aó morgni, hennar, sem breytti ull I fat og mjólk i mat, sem einatt var fræóandi og uppalandi og allan vanda leysti i önn og erli dagsins - Hver þáttur þessarar bókar er tær og fagur óóur um móóuróst. Móðir mín — Húsfreyjan er óskabók allra kvenna. ömmunnar, mömmunnar, eiginkonunnar og unnustunnar. Hver þáttur bókarinn- ar er tær og fagur óður um umhyggju og ljúfa móðurást. Ég veit ekki til þess aö á íslandi hafi það fyrr gerst, að gamlir nemendur gagnfræðaskóla, menntaskóla eða háskóla hafi ráðið myndlistarmann til eins viðamikilla listsköpunarstarfa sem hér um ræðir. Raunar ekki heldur haft spurnir af slíku erlendis. • Úr nágrenni Skóga og sögu — Segðu okkur eitthvað um stóru myndina. Myndin er táknræn, út- skýrir Benedikt. Hún fjallar óbeint um nágrenni Skóga. Skógaheiði, Eyjafjallajökull og Mýrdalsjökull voru aðalkveikja verksins, ásamt eldvirkni beggja jöklanna. Síðan eru í verkinu atriði, sem m.a. minna á nærveru mannsins og lífríki heiðarinnar. — En smærri verkin tvö? — Samstæðu verkin fjalla um landnámsmanninn, bónd- ann og galdramanninn Þrasa Þórólfsson Herjólfssonar hornabrjóts frá Hörðalandi í Noregi, en hann bjó á Þrasa- stöðum í nágrenni Skógafoss. Þrasi var rammgöldróttur og frægur fyrir að hafa valið eitt frumlegasta „bankahólf" ver- aldar til að geyma í fjársjóð sinn og galdratæki, þ.e. hylinn undir Skógafossi. Myndasamstæðan sýnir fjár- sjóðinn frá nokkuð óvenjulegu sjónarhorni og galdrameistar- ann til hliðar, segir Benedikt. Annars voru þeir nágrannarnir Þrasi og Loðmundur gamli í Sólheimum — sem einnig var kynngimagnaður galdramaður svo sem alþjóð veit — fyrstu vatnsveitustjórar á íslandi. Þrasi veitti. Skógaá austur yfir gróðurlandið, en Loðmundur veitti Jökulsá vestur á bóginn. En þeir hættu, þegar þeir sáu að hrekkjabrögð þeirra stefndu að landauðn. Og þar með hafa þeir e.t.v. líka verið fyrstu landverndunarmenn hérlendis. Þáttur Loðmundar gamla er ekki með í veggskreytingu þessari, en næsta vr mun ég aðstoða hann við að taka sér bólfestu í skólanum, andspænis Þrasa félaga sínum og verða þar með hluti af heildarskreyt- ingunni. Er vonandi að koma galdramannanna í skólann styrki stöðu Skógaskóla í menntakerfinu. Afhending myndanna eftir Benedikt Gunnarsson fór fram 19. nóvember sl., á 29 ára afmæli skólans. Sverrir Magn- ússon skólastjóri veitti þeim viðtölu. Úr fyrrnefndum nem- endahópi töluðu Árni Reynis- son, framkvæmdastjóri Nátt- úruverndarráðs, Sigurður Sig- urðarson dýralæknir, Gunnar Björnsson viðskiptafræðingur, sýslumaður Vestur-Skaftfell- inga, Einar Oddsson, en sýslan hefði veitt fjárhagsaðstoð til verksins svo og fræðslustjóri Suðurlands Jón R. Hjálmars- son. Þetta er þriðji skólinn, sem Benedikt Gunnarsson listmál- ari hefur prýtt listaverkum. Skólahúsið í Hofsósi prýðir listaverk sem hann gerði fyrir nokkrum árum, 25 fm verk í steinsteypu og glermósaikverk úr steindu gleri fellt inn í með lýsingu í veggnum. Fyrir tveim- ur árum gerði Benedikt svo 34ra fm veggskreytingu í nýja grunnskólahúsið í Vík í Mýrdal. Er hún felld í járnbentan steinsteypuvegg. Gengur bæði inn í og stendur út úr veggnum. Er dýpsta holan í forminu 25 sm á dýpt. Og nú síðast hefur Benedikt skreytt Skógaskóla með málverkum — og ætlar auðheyrilega ekki að gera það endasleppt viö þann skóla. — E.Pá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.