Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 Verstu mannréttinda- brot frá stríðslokum — segir Boston lávarður Sameinuðu þjððirnar, New York, 7. des. — Reuter BOSTON lávarður, fulltrúi Bret- lands í þjóðfélags-, mannúðar og menningarnefnd Allsherjarþings SÞ, sakaði í gær yfirvöld í Kambódíu um mjög víðtæk og gróf brot á mannréttindum — verstu brot sinnar tegundar frá því í síðari heimsstyrjöldinni. Skýrði lávarðurinn meðal ann- ars frá einu atviki þar sem 78 þorpsbúar voru teknir af lífi með Með eyrað í vasanum Keetmanshoop, Namibíu, 7. des. Reuter MÓSES Minnie vatt sér inn í réttarsal í Keetmanshoop í dag, dró vinstra eyra sitt upp úr vasanum og skellti því á púlt dómarans sem sönnunar- gagni. Var Willem nokkur van Wyk sekur fundinn um að hafa bitið eyrað af Mósesi í áflogum, og úrskurðaði dómarinn að hann skyldi hljóta makleg málagjöld. Dómur í málinu hefur enn ekki verið kveðinn upp, en þegar hann hefur verið birtur, getur Móses gert tilkall til sönnunargagnsins, sem verður í vörzlu yfirvaldanna, — ef hann hefur áhuga. því að höggvið var aftan á háls þeirra með rekum. Bætti hann því við, að ef fréttir, sem borizt hafa frá Kambódíu um mann- réttindabrot, yrðu staðfestar, væri það um að ræða grófustu og viðbjóðslegustu afbrot á þessu sviði um áratuga skeið. Kvaðst Boston lávarður fagna því að fulltrúi Kambódíu, sem nú bæri nafnið „lýðveldið Kampuchea", væri viðstaddur og hlýddi á orð hans. Ljóst væri samkvæmt heimild- um víða að, að aftaka foringja úr hersveitum fyrri yfirvalda í Kambódíu væri ekki aðeins hefnd, framkvæmd í hita sigurvímunnar, heldur skipulögð stefna, sagði fulltrúinn. Jafnvel fjölskyldur foringjanna væru líflátnar. Lávarðurinn sagði að samkvæmt fregnum þeim, sem berast frá Kambódíu, væri þjóðin þar hneppt í ánauð. Tim Hok, fulltrúi Kambódíu, svaraði ásökunum brezka full- trúans, og sagði að brezk yfirvöld hefðu engan rétt á að tala um mannréttindi almennt, né heldur um Kambódíu í því sambandi. „Nýlenduveldi" hefðu framið af- brot gagnvart Kambódíu og fleiri ríkjum, og ætti þetta við bæði um Bretland og Bandaríkin. For- dæmdi hann þessi afskipti af innanríkismálum Kambódíu, sem væri sjálfstætt, fullvalda, hlut- laust og óháð ríki. Ríkisstjórn Ohira tekur við í Japan Tókýé, 7. des. — Reuter JAPANSKA þingið staðfesti í dag skipan Masayoshi Ohira í embætti forsætisráðherra landsins, og síðar í dag lagði Ohira fram ráðherralista sinn. Með staðfestingu þingsins fékkst iausn á innanflokksdeilum í Frjálslynda demókrataflokknum, sem gátu leitt til stjórnarkreppu í landinu. Það eru aðallega nýir menn, sem taka sæti í ríkisstjórn Japans að þessu sinni. Aðeins einn ráðherr- anna átti sæti í fráfarandi ríkis- stjórn Takeo Fukuda, en það er utanríkisráðherrann Sunao Sonoda, sem gegnir því embætti áfram til að tryggja óbreytta utanríkisstefnu, að sögn talsmanns nýju stjórnarinnar. Hefur Ohira áður skýrt frá því að sambandið við Bandaríkin verði hornsteinn utanríkisstefnu Japans. Frjálslyndi demókrataflokkurinn er klofinn í fimm aðalfylkingar, og skiptast ráðherraembættin milli fylkinga þannig að Ohira fær fimm ráðherraembætti, Fukuda fjögur, Kakuei Tanaka-fylkingin þrjú, og fylkingar kenndar við Yasuhiro Nahasone fyrrum varnarmálaráð- herra og Takeo Miki fyrrum for- sætisráðherra tvö ráðherraembætti hvor. Stóraukin heróín- neyzla í V-Evrópu Bonn, 7. des. — AP. MJÖG mikið framboð er af hreinu og ódýru heróíni í Vestur-Evrópu, að sögn lögregluyfirvalda, og hefur það leitt til vaxandi neyzlu og dauða meðal unglinga, sem minnir helzt á reynsluna frá Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum. Talið er að megnið af herófninu komi frá Mið-Austurlöndum. Heróín-notkun hefur farið minnkandi í Bandaríkjunum undanfar in ár, og má í þvf sambandi benda á, að fyrstu árin cítir 1970 voru um 900 árleg dauðsföll í New York sem rekja mátti til heróínneyzlu, en á yfirstandandi ári er talið að þau verði um 400. I Vestur-Þýzkalandi, þar sem eiturlyfjavandamálið er hvað mest, er talið að um 50 þúsund manns hafi ánetjazt heróíni, og af þessum fjölda munu um 20% vera á aldrinum 12—16 ára, en það vandamál var óþekkt þar í landi fyrir aðeins þremur árum. Að sögn lögreglunnar í Stokk- hólmi er þar einnig um mikla aukningu að ræða, og bent er á í því sambandi að í fyrra hafi lögreglunni tekizt að komast yfir 82 sendingar af heróíni, en á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafi sendingarnar verið 127. Segir talsmaður lögreglunnar í Stokk- hólmi, að þeim unglingum hafi fjölgað hörmulega mikið, sem neyta heróíns. í Frakklandi hefur dauðsföllum tengdum heróínneyzlu fjölgað úr 72 í fyrra í um 100 það sem af er þessu ári. Á Ítalíu hefur dauðsföll- um fjölgað úr 26 árið 1975 í 57 á þessu ári, og í Danmörku hefur þeim fjölgað úr 39 árið 1976 í 85 á fyrstu 10 mánuðum þessa árs. Það er aðeins í Bretlandi og Hollandi, sem eitthvað hefur rofað til í þessum málum, og er það sett í samband við handtöku kínverskra smygl- og söluhópa í báðum löndum. Yfirvöld segja að heróínið, sem selt er í Vestur-Evrópu, komi aðallega frá Afghanistan, Pakist- an og Iran gegnum Tyrkland. Um 1,2 milljónir tyrkneskra verka- manna búa í Vestur-Þýzkalandi, og er álitið að margir úr þeirra hópi smygli heróíni í smáum skömmtum við heimkomuna frá heimsóknum til ættlandsins. Erf- itt er að hafa hemil á þessu smygli, því eins og bent er á þá fara um 80 milljónir ferðamanna um Vestur-Þýzkaland árlega, og ekki er unnt að leita á þeim öllum. 15 Þessi munaðarlausu börn eru systkini frá Víetnam sem hafast þessa stundina við f flóttamannabúðum í Thailandi, eftir að foreldrar þeirra drukknuðu er sjóræningjar réðust á smábát, sem átti að flytja þau frá Víetnam til Thailands. Ástandið í búðunum er ömurlegt, en þar hafast við um 2500 manns. Viðskiptasamningur EFTA og Spánar Genf. 7. des. — AP. FASTAFULLTRÚAR aðildarríkja EFTA í aðalstöðvum samtakanna í Genf og sérstakur fulltrúi Spánar undirrituðu í dag með fyrirvara gagnkvæman verzlunarsáttmála, sem miðar að því að fella niður alla innflutningstolla á iðnaðarvörum og ýmsum unnum fisk- og landbún- aðarvörum. Er samningurinn svip- aður viðskiptasamningi Spánar og Efnahagsbandalagsins, sem gerður var árið 1970. Samkvæmt nýja samningnum hljóta útflutningsvörur frá aðildar- ríkjum EFTA, þ.e. Austurríki, Finn- landi, íslandi, Noregi, Portúgal, Sviss og Svíþjóð, sömu tollafgreiðslu og varningur frá EBE-löndum. Á sama hátt hlýtur útflutningur frá Spáni sömu afgreiðslu hjá EFTA-ríkjum og hjá EBE. Reiknað er með að samkomulag þetta verði endanlega undirritað snemma á næsta ári. Alger nýjung árg. 1979 CROWN 5100 ' Tæki sem beöiö var eftir. Verð: 188.780 Tilboð 1) Stadgreiðsla með 4% staðgreiðsluafslætti eða heyrnatæki stereo. 5 hver kaupandi sem staögreiöir fær tölvuúr. 2) 60% út og rest 2 mán. vaxtalaust. 3) 50% út og rest á 3 mán. Model — 5100 1979 Sambyggt hljómtæki með: 1) MAGNARA: 20 wött musik. 2) ÚTVARPI: FM stero, LW, MW. 3) SEGULBANDSTÆKI: meö sjálfvirkri upptöku. 4) PLÖTUSPILARI: fyrir allar plötur. 5) TVEIR HÁTALARAR FYLGJA. BUÐIN Skipholti 19. Sími 29800.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.