Morgunblaðið - 08.12.1978, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978
21
Hella upp á 2—12 bolla
í einu og halda heitu.
Philips vörur
— Philips þjónusta.
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
„Um 40 titlar og
aldrei fleiri ís-
lenzkar skáldsögur
segir Örlygur Hálfdánarson bókaútgefandi
„FYRIR fullorðna er ég með um 25
bókatitla fyrir jólin og um 15 fyrir
börn. Sumt er framhald af því sem
við höfum áður gefið út, bækur í
sérstökum flokkum og annað er
nýtt,“ sagði Örlygur Hálfdánarson
hjá Bókaútgáfunni Örn og Örlyg-
ur í stuttu spjalli um bókaútgáfu
fyrirtækisins fyrir jólin, en bóka-
útgáfan gefur nú út 5 nýjar
íslenzkar skáldsögur og kvað
Örlygur þá aldrei hafa verið með
fleiri. Þær heita Einkamál Stefan-
íu eftir Ásu Sólveigu, en hún hefur
áður skrifað fyrir sjónvarp. Þetta
er saga um líf ungrar stúlku sem
giftist, eignast börn og býr í blokk,
saga úr hversdagslífinu um hluti
sem eru svo sjálfsagðir að orð eru
ekki um þá höfð í daglegu tali. Þá
er skáldsagan Helgalok eftir
Hafliða Vilhelmsson en hún fjall-
ar um skáld sem lifir sínu mótaða
lífi sem einstaklingur, en skyndi-
lega kemur kona óboðin inn í líf
hans í bíl í Hvalfirði. Hann skýtur
yfir hana skjólshúsi til einnar
nætur, en þær urðu fleiri en ein og
fleiri en tvær og það kemur að því
að skáldið ræður ferðinni ekki
lengur, en svo hverfur konan
sporlaust. Árni Birtingur og
skutlan í skálanum heitir ein nýja
íslenzka skáldsagan eftir Stefán
Júlíusson. Bók sem fjallar um
Árna poppara og ungt fólk, ástir
og ævintýri og áhugamál þess þar
sem fram kemur sterkari kjarni í
unga fólkinu en margur eldri vill
trúa.
Sú grunna lukka heitir morð-
saga með staðreyndir í efnisþræði
frá 18. öld eftir Þórleif Bjarnason.
Bókin fjallar um bónda og stúlku
á Vestfjörðum sem fella hugi
saman og strjúka til Stranda. Þau
setjast að á mjög afskektum bæ
hjá bændafólki. Allir vita en
enginn segir neitt og þegar spúsan
hverfur skyndilega fýkur spennan
Árni Birtingur og
skutlan í skálanum
(k'pparinn Árnt Rirtinjtur «>g vinr.r hans <•£ félagi Jobbi rromma
etu i teiA lil Attonryrar ]».r seiu Jxar cru ráðnir ul að skcmmta
Forsíða einnar af nýju islenzku
skáldsögunum frá Erni og
Örlygi.
upp og langvinn málaferli hefjast,
en þrátt fyrir meðferð í hæstarétti
Dana kom ávallt sama niðurstað-
an, enginn sagði neitt.
Þar sem bændurnir brugga í
friði heitir fimmta íslenzka skáld-
sagan hjá Erni og Örlygi, bók eftir
Guðmund Halldórsson frá Bergs-
stöðum, saga heimslistar og
heimabruggs í norðlenzkri sveit á
bannárunum. Það er fjallað um
holdið og andann, jákvæða menn
sem kunna að skipta um skoðun og
tilþrif þeirra til þess að gera sér
dagamun því annað er uppgjöf.
Þetta er bændasaga í bili milli-
stríðsáranna um misjafnlega
skilningsrík yfirvöld í straumum
dagsins.
Asi í Bæ segir frá aflaklóm og
andans mönnum
„Ási í Bæ á létt meö að skrifa. Frásögn hans er
alltaf full af fjöri og gáska og málfarið hressilegt
og hispurslaust. .. allir þeir, sem yndi hafa af
hressilegum sögum, sjávarlöðri og sprútti munu
lesa hana sér til mikillar ánægju.”
Jón Þ. Þór(Tíminn)
„Hinn kímilegi og óuppskrúfaði stíll hans nýtur
sín einkar vel í þessum þáttum sem eru skemmti-
legir aflestrar, sumir bráðfyndnir. . . maóur les
bókina sér til ánægju. ..”
Sveinbjörn I. Baldvinsson (Morgunblaðið)
ólafur Gunnarsson
MILLJON
PRÓSENT MENN
„Ólafur Gunnarsson er rithöfundur sem hefur
gaman af að segja sögu. Bók hans ber sannri frá-
sagnargleði vitni. í henni er víða að finna kynleg-
ar og skemmtilegar sögur. Sumar þeirra styðjast
við fyrirmyndir. Til dæmis mun mörgum verða
hugsaö til viss kaupsýslumanns í Reykjavík...
Aðalatrióiö er að bók Ólafs Gunnarssonar er
lifandi saga, að mínu mati með skemmtilegri bók-
um eftir ungan höfund sem ég hef lesiö lengi.”
Jóhann Hjálmarsson (Morgunblaðið)