Morgunblaðið - 08.12.1978, Side 28

Morgunblaðið - 08.12.1978, Side 28
2 8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 „Yerulegt atvinnuleysi mun skella á, og bitna fyrst og fremst á þjónustugreinum” segir Tryggvi Pálsson, formaður rafverktakasambandsins AÐALFUNDUR Landssambands íslenskra rafverktaka var nýlega haldinn, svo sem frá hefur verið skýrt hér í Morgunblaðinu. Fund- urinn. sem að þessu sinni var fjölsóttari en um langt árabil, fór fram á Hótel Loftleiðum í Reykja- vík. Til fundarins komu rafverk- takar alls staðar að af landinu, en rafverktakar munu nú vera um 300 talsins. Formaður Landssambands ís- lenskra ratverktaka er Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri bygg- ingarfyrirtækisins Smára h.f. á Akureyri. Blaðamaður Morgun- blaðsins hitti Tryggva að máli, er hlé gafst milli fundarstarfa, og bað hann að fraða okkur um starfsemi sambandsins. Stormasamt starfsár „Það verður ekki annað sagt,“ sagði Tryggvi, „en að það starfsár, sem nú er að ljúka, hafi verið æði stormasamt. Það eru ýmsar ugg- vænlegar blikur á lofti í efnahags- og þjóðmálum. Launa- og verð- hækkanir á öllum sviðum hafa sjaldan orðið meiri á skemmri tíma, eða frá sólstöðusamningun- um í júní 1977 til þessa dags, og enn stöndum við frammi fyrir þó nokkrum hækkunum hinn 1. des- ember næst komandi." — Hvernig standa rafverktak- ar að vígi á þessum erfiðu tímum? „Þeir standa vafalaust nokkuð misjafnlega að vígi. En það er staðreynd að óðaverðbólga ógnar atvinnulífi landsmanna, og sjálf- stæði þjóðarinnar er í hættu, ef ekki tekst að rjúfa þann vítahring §em skapast hefur vegna víxl- hækkana verðlags og kaupgjalds. Það vekur okkur til umhugsun- ar, hvernig skuli á því standa, hvernig það megi gerast að slíkir samningar skuli gerðir, og það er furðulegt, að áður en menn skrifuðu undir þá samninga, sáu menn fyrir uggvænlegar afleiðing- ar, sem þó hafa orðið enn meiri en nokkurn gat órað fyrir. Kaup rafvirkja á 1. ári hefur hækkað frá 22. júní 1977 til 1. september síðast liðinn, um u.þ.b. 60%, en það hefur aðeins veitt þeim um það bil 6 til 8% kaupmáttaraukningu. Útseld vinna þessara sömu rafvirkja hefur hækkað í hlutfalli við launahækkunina, en rekstraraf- koman hefur sjaldan verið bág- bornari. Þar hefur munað mest um gífurlegar vaxtahækkanir, en vextir eru í dag orðnir um 3 til 4% af heildarveltu. Þá hefur efnis- álagning verið skert með beitingu 30% reglunnar við síðustu gengis- fellingar, og nemur skerðingin milli 4 og 5%. Verulegar kostnaðarhækkanir hafa svo orðið á öllum rekstrarlið- um, svo sem bifreiðakostnaði, síma, raforku og rekstrarvörum. Auk þess er svo farið að skatt-, leggja afskriftir. Þá hafa hin afturvirku skattalög eflaust komið við einhverja okkar.“ — Hvaða afleiðingar hcfur þetta ástand á rafverktakastarf- semina þegar til lengri tíma er litið? „Afleiðingar þessa linnulausa kapphlaups leiða fyrr eða síðar til verulegs atvinnuleysis, sem bitna mun fyrst á öllum þjónustugreinum.“ 300 rafverktakar á landinu — Hversu mikið er umfang rafiðnaðarins f landinu nú? „I dag eru starfandi um 300 rafverktakar á öllu landinu, með um 1100 menn í sinni þjónustu. Rafverktakafyrirtæki á íslandi eru frekar smá að meðaltali, gagnstætt því sem er í nágranna- löndum okkar, og lætur nærri að á bak við hvert rafverktakafyrir- tæki séu um 765 einstaklingar. Til samanburðar má geta þess að í Danmörku sem hefur fæsta ein- staklinga á bak við hvert rafverk- takafyrirtæki utan íslands eru 1936 íbúar á bak við hvert fyrirtæki, en mest í Finnlandi 4,229 íbúar, og á þessi samanburð- ur við um Norðurlöndin eingöngu." Fjölþætt starfssvið En hvert er starfssvið rafverk- takans raunverulega? „Vegna eðli rafmagnsvinnu, eru gerðar miklar kröfur til rafverktaka, bæði hvað varðar menntun og skyldur, enda mikið í húfi ef störf þeirra eru ekki vel af hendi leyst. Rafveitur setja raf- verktökum á hverjum stað ákveðin skilyrði fyrir því að hefja rafverk- takarekstur, með útgáfu sérstakr- ar löggildingar. Leyfin eru oftast' til 5 ára í senn, og þurfa rafverktakar að setja fjártrygg- ingu fyrir því að efna skyldur sínar við viðskiptavini, gagnstætt því sem almennt gerist um leyfi til atvinnurekstrar. Þá þurfa rafverk- takar að sækja um leyfi fyrir öllum meiri háttar raflögnum og breytingum, svo og um heimtaug- ar til bygginga og að lokum er verki er lokið að tilkynna viðkom- andi rafveitu um verklok, sem þá lætur yfirfara verkið og gera athugasemdir sem úr þarf að bæta innan viss tíma, ef ekki er farið að fyrirmælum um reglugerðir og verkvöndun. Þá þurfa rafverktakar að fylgj- ast vel með öllum nýjungum, sem eru meiri í rafverktakaiðn en mörgum öðrum iðngreinum, og má benda á í því sambandi mikla fjölbreytni í öllum rafeindarbún- aði. Slíkar nýjungar kalla á aukna menntun, og hafa rafverktakar lagt mikla áherslu á endurmennt- un sem yfirvöld virðast ekki gefa nógu mikinn gaum. I því sambandi að standa undir auknum kostnaði við endurmennt- un, var gert samkomulag við Rafiðnaðarsamband Islands í árs- byrjun 1975, um að greiða 0,75% af greiddum vinnulaunum rafvirkja í sérstakan sjóð sem nefnist Eftir- menntunarsjóður. í sambandi við eftirmenntunina hafa verið haldin námskeið víða um land, og kennari m.a. sóttur til Danmerkur. Gagn- stætt ýmsum námskeiðum sem iðngreinar halda, og gefa iðnað- armönnum kaupauka, svo kölluð 10% námskeið, gefa eftirmenntun- arnámskeiðin þeim sem þau sækja ekkert í aðra hönd nema aukna þekkingu sem ekki er svo lítils virði." Tryggvi Pálsson Glíma við verðlags- yfirvöld — Hvernig er háttað sam- komulagi ykkar við verðlagsyfir- völd? „Mikill tími fer í það á hverju ári að glíma við verðlagsyfirvöld, en skömmtunarskrifstofa verð- lagsstjóra á sér enga hliðstæðu. Það hefur jafnvel verið gengið það langt í ákvörðun álagningar, að okkur hefur verið neitað um að fá að selja út ákvæði í löglega gerðum samningum, og stöndum við í málaferlum við verðlagsskrif- stofuna út af slíku máli. Alagning er í raun svo naumt skömmtuð, að ógerningur er að fylgjast með framþróuninni í greininni, og halda úti sæmilegum fyrirtækjum. Iðnaðarmenn hafa verið stimplaðir með nafngiftinni „upmælingaraðall" og á það að vera mælikvarðinn á dýra þjón- ustu, en sem dæmi vil ég geta þess að það eru aðeins um 20% allra rafvirkja í landinu sem vinna samkvæmt ákvæðisvinnutaxta, og er okkar taxti sá eini sem er viðurkenndur af opinberum aðil- um, og undir eftirliti þeirra. Raunar er það furðulegt, að verðlagsyfirvöld skuli vera að eltast við útsölu iðnaðarmanna, þar sem samkeppnin er það mikil að hún heldur verðlagningunni innan eðlilegra marka, á sama tíma og aðrar greinar fá að valsa É€UMMK> RÁMÉRTIL MÍN Pétur Gunnarsson ÍG UM MlG FRÁMÉRTIL MÍN L PÉTUR GUNNARSSON „Pétur Gunnarsson vakti mikla og verðskuldaóa athygli, er hann sendi frá sér bókina Punktur punktur komma strik. . . og enn sem komið er finnst mér hann komast meö ágætum frá verki sínu. Þaö hefur oróiö ákveöin stígandi frá fyrri bók, söguþráöurinn oróiö þéttari í sér, betur spunninn. . . eins og eftirvæntingin var mikil eftir Punktinn þannig veröur hún enn meiri eftir þessa bók. . .” Heimir Pálsson (Visir) ■ enn hnitmióaðri saga en Punktur punktur komma strik L. . hér er greinilega unnió á markvissan listrænan hátt. . Jóhann Hjálmarsson (Morgunblaðið) „. . . ny kynferðisleg vitund rafmagnar andrúmsloftið. . . stórskemmtileg í sprettum og óborganleg lýsing á þeim furöulegu uppátækjum sem fylgja þessu skeiði. . . Fyrir svona nokkuð þakkar maöur kærlega.” Jt1-**,, n Aóalsteinn Ingólfsson (Dagblaðið) •ÍÍT" '»i IPPIÍ. Bræðraborgarstíg 16 sími 12923-19156

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.