Morgunblaðið - 08.12.1978, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 08.12.1978, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 Haukar lögöu FH HAUKAR lögðu FH-inga í 1. deild- inni í handknattleik í Hafnarfirði i gœrkvöldi með 20 mörkum gegn 17. Að venju var leikurinn afar spenn- andi og harður eins og alltaf pegar Dessi tvö lið mætast. Og áhorfendur iem voru fjölmargir létu vel i sár heyra í pessu innanbæjaruppgjöri. Það gefur hugmynd um hörku leiksins, að alls 19 sinnum purftu dómararnir að dæma vítakast og alls var fimm leikmönnum vísað af velli til kælingar í heilar 14 mínútur. Þaö voru Haukar sem tóku forystu í leiknum strax í upphafi meö kröftugum leik og mátti strax sjá aö oeir ætluöu ekki aö gefa neitt eftir. Þrátt fyrir þaö hristu þeir FH aldrei af sér og í hálfleik var staöan 10—7, Haukum í vil. í síöari hálfleiknum gekk svo á ýmsu en FH-ingar smám saman minnkuöu forskotiö og á 50. mínútu leiksins ná þeir aö jafna, 15—15. Var nú allt komið á suöu- þunkt í húsinu. Haukar skora og enn jafnar FH. Nú kom Harðar kafli Haröarsonar í leiknum. Á síöustu 8 mínútum leiksins geröi hann fimm falleg mörk og sökkti FH-ingum sem voru mjög illa á veröi gegn fjölbreytilegum skotum hans. Breytti Höröur stöö- unni úr 16—16 í 19—16 og lokatölur leiksins sem leystist upp í darraöar- dans í lokin uröu 20—17 fyrir Hauka. í STUTTU MÁLIi Islandsmótið 1. deild. fþrðttaháaið Hafnarflrði 7. des. Haukar — FH. 20-17 (10-7). MÖRK HAUKA. Hörður Harðarson 8 (3v). Ólafur Jóhannxson 4 (2v), Stefán Jónsson 3 (2v), Árni Sverrisson 2, Andrés Kristjánsson 2. Þórir ólafsson 1. MÖRK FH. Geir Hallsteinsson 8 (3v), Viðar Sfmonarson 4 (3v), Valgarður Val^-arðsson 2, Guðmundur Magnússon 2, Guðmundur Árni Stefánsson 1. MISHEPPNUÐ VÍTAKÖST. Magnús Ólafsson varði hjá bóri Ólafssyni á 10. mfnútu. Höröur llarðarson skaut í stöng á 17. mín. Birgir Finnbogason varði hjá Herði Harðarsyni á 22. mín., Ólafur Jóhannsson gerði ógilt vfti á 28. mfn., Gunnlaugur Gunnlaugsson varði hjá Geiri Hallsteins- syni á 29. mfn. og Viðar Sfmonarson skaut f stöng á 58. mfn. BROTTREKSTUR AF VELLI. Guðmundur Árni Stefánsson FH f 2. mfn., Ólafur Jóhannsson Haukum f 2 mfn.. Gils Stefánsson f 4 mfn., Valgarður Vaigarðsson FH f 2 mfn. og Hans Guðmundsson f 4 mfn. Dómarar voru þeir ólafur Steingrfmsson og Gunnar Kjartansson og voru þeir mjög mistækir f dómum sfnum. ÞR. Rauö U.S.A. delicíus epll Kr. kg. 330 18 kg. kassar 5.300 Bananar „Dolg“ kg. 371 10 kg. kassar 3.000. Frönsk delicius epli kg. 451 [ 18 kg. kassar 5.300 Argentinskar appelsínur kg. 415 18 kg. kassar 5.600 Spánskar sítrónur kg. 508 16 kg. kassar 6.300 1 Jaffa grape verö ókomiö (mánud.) | Honduras grape frugte kg. 560 | 15 kg. kassar 5.580 | Afríkönsk blá vínber kg. 1.394 4,5—5 kg. kassar 4.690 ; Spönsk græn vínber kg. 1.330 4,5 kg. kassar 4.600 ftaiskar mandarínur kg. 556 10 kg. kassar 3.898 ! Spénskar klementínur kg. 588 i 10 kg. kassar 4.290 Spáhskar melónur grænar kg. 832 ’ 10 kg. kassar 5.800 ftalskar perur kg. 775 11 kg. kassar 6.455 Nýr ananas .Dolg" kg. 568 19 kg. kassar 7.900 Avocadó kg. 4.366 2,5 kg. kassar 8.790 Grænmeti: Tómatar — Agúrkur — Hvítkál - Rauðkál — Rauðbeöur - Gulrófur — Blómkál — Gulrætur — Salathausar - Steinselja — Laukur— Sveppir - Paprika — Piparrót - Sellerí — Lækjarveri, Laugalæk 2, simi 3 50 20 ÁVEXTIR FYRIR ALLA • Geir Hallsteinsson var að venju langmarkhæstur FH-inga í leikn- um í gærkvöldi, skoraði 8 mörk. Stúdentar mörðu Þór Þórsarar fóru illa aó ráói sínu á síóustu sekúndunum í leik gegn ÍS í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Þegar 30 sek. voru eftir var staðan 82:81 fyrir ÍS og Þórsarar höfóu knöttinn, en peir háldu ekki haus og glopruóu boltanum og Dirk Dunbar innsiglaói sigurinn fyrit ÍS, er hann skoraöi úr tveimur vítaskot- um, Þegar 5 sekúndur voru eftir, lokatölur pví 84:81 ÍS í vil. Leikurinn í gærkvöldi var allan tlmann mjög jafn og í leikhléi var staöan 38:37, Þór í vil, en Þórsarar höföu frumkvæðiö allan fyrri hálfleik- inn og náöu mest 5 stiga forystu. Á lokamfnútum leiksins skorti hins vegar alla yfirvegun i leik Þórsara og stúdentar fóru meö sigur af hólmi, eins og fyrr er lýst. Stúdentar geta frekar þakkaö sigurinn klaufaskap Þósara en eigin getu. Bjarni Gunnar Sveinsson lék nú sinn besta leik í vetur og var iöinn viö aö skora. Dirk Dunbar var drjúgur og skoraði mikiö undir lokin. Þá var Jón Oddsson frískur. Víkingur — ÍR TVEIR LEIKIR fara fram f Höllinni f kvöld. Klukkan 20.00 hefst leikur VfkingK og Þórs f 1. deild kvenna og strax að honum loknum leika Vfkingur og IR f fyrstu deild karla. Eins og áöur sagöi leika Þórsarar ekki nógu yfirvegaö, en þeir hafa alla buröi til aö veröa ágætisliö. Mark Christensen bar höfuö og heröar yfir aöra leikmenn á vellinum og var hittni hans með ólíkindum. Þá var Eiríkur Sigurösson mjög góöur. Stigin fyrir lS. Bjarni G. Sveinsson 29, Dirk Dunbar 28, Jón Oddsson 12, Ingi Stefánsson, ólafur Thoroddsen og Steinn Sveinsson 4 stig hver, Guðni Kolbeinsson 2 og Albert Guðmundsson 1. Stigin fyrir Þór. Mark Christensen 39, Eirfkur Sigurðsson 24, Birgir Rafnsson 10, Jón Indriðason 5 og Karl Ólatsson 3. Dómarar voru Jón Otti Ólafsson og Gunnar Valgeirsson. ÁG. Skagamenn ræöa viö Hollending FORRÁÐAMENN knattapyrnuráós Akraness héldu í morgun tll Hol- lands. Aðalerindió er aó athuga möguleika á pví aó ráóa hollenakan topppjálfara til aó pjálfa Akraneslió- iö næata sumar. Munu Akurnesing- ar hafa ákveóin mann ( huga. Þá munu forráóamenn KRA einnig ræóa vió forystumenn Feyenoord í feröinni. — SS.. Árni þjálfar FH ÁRNI Njálsson hefur verið ráðinn þjálfari liðs FH, sem síðastliðið haust féll niður í 2. deild. Árni hefur í mörg ár starfað að þjálfun og þá einkum hjá Val, en einnig hjá Selfossi og fleiri félögum. Undanfarin sumur hefur Árni verið framkvæmdastjóri knatt- spyrnudeildar Vals. Elnkunnagjöfln ÍS: Albert Guömundsson 1, Bjarni Gunnar Sveinsson 3, Carsten Kristinsson 1, Guöni Kolbeinsson 1, Ingi Stefánsson 1, Jón Oddsson 2, Ólafur Thoroddsen 2, Steinn Sveinsson 1, Þorleifur Guömundsson 1. Þór: Birgir Rafnsson 2, Eiríkur Sigurósson 3, Ellert Finnbogason 1, Jón Indriðason 1, Karl Ólafsson 2, Þröstur Guðjónsson 1. FH: Magnús Ólafsson 3, Birgir Finnbogason 1, Geir Hallsteinsson 3, Viöar Símonarson 2, Guómundur Árni Stefánsson 1, Valgaróur Valgarósson 2, Hans Guómundsson 1, Kristján Bragason 1, Sæmundur Stefánsson 2, Gils Stefánsson 2, Guómundur Magnússon 2. Haukar: Gunnlaugur Gunnlaugsson 3, Ólafur Guójónsson 2, Svavar Geirsson 2, Árni Sverrisson 2, András Kristjánsson 3, Árni Hermannsson 2, Siguróur Aöalsteinsson 2, Ingimar Haraldsson 2, Þórir Gíslason 2, Stefán Jónsson 3, Höróur Haróarson 4.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.