Morgunblaðið - 11.01.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.01.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979 3 Uppsagnirnar hjá Liverpool: „Dregin á asnaeyrunum og skrökvað að manni í 3 mánuði” — segir Sigrún Hjartardóttir, sem unnið hafði hjá fyrirtækinu í 15 ár — ÞAÐ VÆRI í rauninni ekkert við þessu að segja ef verzluninni hefði verið lokað og ekkert opnað í staðinn. En það sem mér svíður mest er að nýlega var opnuð verzlun f Kópavogi og í þá þrjá mánuði frá því að okkur var sagt upp vorum við dregin á asna- eyrunum með því að sagt var, að allt yrði fyrir okkur gert. Það var skrökvað að okkur og talað um endurráðningu alian þann tfma og svo er bara allt f einu klippt á þráðinn og nú mæli ég göturnar f leit að atvinnu, geng frá einu fyrirtækinu til annars en það er ekkert að hafa. Ég hef iátið skrá mig á atvinnuleysis- skrá, þannig að ég fæ einhverja peninga en það dugar lítið því ég er ein með barn innan við fermingu. Á þessa leið mæltist Sigrúnu Hjartardóttur, 55 ára gamalli, sem um áramót var ein þeirra starfsstúlkna, sem missti atvinnu sína er verzlunin Liverpool hætti. Sigrún, sem er fyrirvinna síns heimilis, hafði unnið í rösk 15 ár hjá KRON og Liverpool og þannig var einnig ástatt með eina aðra starfsstúlku fyrirtækisins. Sú þriðja hefur hins vegar unnið þar í um 20 ár. Þrjár stúlknanna hafa verið hjá fyrirtækinu í um 7 ár að því er Sigrún taldi og loks hafði ein þeirra, sem sagt var upp, unnið hjá Liverpool í um eitt ár. Sú síðastnefnda hefur nú hafið störf hjá verzluninni Domus, sem KRON rekur. — Það er greinilegt, að KF.ON vill hafa ungt fólk í vinnu, hvort sem það er vegna byrjunarlaun- anna eða einhvers annars, sagði Sigrún. — Ef fólk er ekki gjald- gengt á vinnumarkaðinum 55 ára, þá mætti nú fara að endurskoða það hvenær fólk á að komast á eftirlaunaaldurinn — eða þá að fá örorkubætur, sagði Sigrún. Morgunblaðið leitaði í gær til Magnúsar L. Sveinssonar, for- manns Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, og innti hann álits á þessum uppsögnum hjá Liverpool. Sagði hann, að uppsögn væri í sjálfu sér alltaf alvarlegur hlutur og ekki sízt í þessu tilfelli þar sem uppsagnirnar snertu svo marga. — Ég hefði nú vænzt þess að svo stórt fyrirtæki með svo margar verzlanir hefði reynt að hagræða hlutunum þannig að fólk missti ekki atvinnuna, sagði Magnús. — Þessi breyting á högum fyrirtækisins hefur eflaust orðið með nokkrum fyrirvara og aðdragandinn hefði átt að vera nægur til að útvega þessu fólki aðra vinnu innan fyrirtækisins. Ef það var ekki mögulegt var þá ekki hægt að hafa þetta fólk í vinnu um tíma þar til það hafði tíma til að tryggja sér vinnu til frambúðar, sagði Magnús L. Sveinsson. Bannið við laxahrognum frá íslandi; Kannski eðlileg var- kámi hjá Skotunum — segir Sigurður Helgason fisksjúkdómafræðingur LANDBÚNAÐAR- og sjávarút- vegsráðuneyti Breta neitaði fyrir nokkru um leyfi fyrir innflutning á laxahrognum frá Laxamýri. I skeyti frá Skotlandi hingað til lands var greint frá því að ástæða synjunarinnar væri * sú, að á Islandi hefði komið upp nýrna- veiki í laxi. Morgunhlaðið bar þessa neitun undir Sigurð Helga- son fisksjúkdómafræðing í gær og sagði hann að e.t.v. væri þessi synjun ekki annað en eðlileg varkárni af hálfu Skotanna. Sigurður sagði, að fyrir nokkr- um árum hefði nýrnaveiki borist í lax í Skotlandi frá Bandaríkjunum og þaðan hefði sjúkdómurinn einnig borizt til Frakklands og Spánar. Vegna þessa máls hefðu Skótar hert mjög allar reglur um innflutning á hrognum og þessi synjun væri aðeins einn liðurinn í því. Það væru ekki óeðlileg vinnu- brögð og alls ekki beint gegn Islendingum heldur öllum hrogna- innflutningi. Þó svo að Skotar bönnuðu að flytja inn hrogn héðan þyrfti það alls ekki að þýða að t.d. Norðmenn gerðu slíkt hið sama því reglur væru mismunandi strangar eftir löndum. Að sögn Sigurðar er algengast að nýrnaveikigerillinn berist utan á hrognum, en þó svo að hrogn væru sótthreinsuð virtist sem svo að hann gæti einnig borizt innan í hrognunum. Tilraunir hefðu verið gerðar með sótthreinsilyf, sem hægt væri að koma inn í hrognin og hefðu þau m.a. verið notuð við þessi hrogn í Laxamýri. Engin reynsla væri komin á þessi lyf og því væri ekki hægt að segja með vissu hvort gerillinn kynni ekki að leynast í hrognum. Fyllsta hreinlætis vár gætt við meðferð laxahrognanna í stöðinni í Laxamýri og eftirlit var nákvæmt með hrognunum. Ekki er vitað til þess að neitt samband hafi verið á milli stöðvarinnar nyrðra og í Laxalóni, þar sem nýrnaveiki fannst fyrir nokkru. Laumufarþegamir fara varla frá borði fyrr en í Reykjavík LÍKLEGT er að piltarnir tveir, sem gerðust laumuíar- þegar með Bakkafossi á leið til Bandaríkjanna sfðastliðinn laugardag, verði látnir koma heim með skipinu á ný. Skipið er á leið til Portsmouth og er væntanlegt þangað á mánudag, en hingað til lands ekki fyrr en upp úr 25. þessa mánaðar. Eimskipafélagið hefur gert utanríkisráðuneytinu grein fyrir málinu og hefur sendiráðinu í Washington verið gert viðvart um mál- ið. Piltarnir tveir hafa ekki vegabréf né aðra pappíra og fá því ekki að fara í land í Bandaríkjunum. Háar sektir þarf að greiða fyrir þá sem komast í gegnum útlendingaeftirlit og inn í Bandaríkin án þess að hafa vegabréfsáritanir til lands- ins. Morgunblaðið fékk í gær upplýst í utanríkisráðu- neytinu að það hefði ekki verið beðið um aðstoð í þessu máli og liti þannig á, að málið væri í höndum EÍ. Ólíklegt væri að piltarnir fengju að fara í land í Bandaríkjunum þar sem þeir hefðu ekkert af til- skildum leyfum og færu því varla frá borði fyrr en í höfn í Reykjavík. I samtali við Mbl. sagði Arngrímur Guðjónsson skipstjóri að drengirnir hefðu ekki gefið neinar sérstakar skýringar á ferð- um sínum og væri ekki annað að sjá en einhver ævintýravitleysa væri á ferðinni. Sagði hann, að þeir hefðu náð sér af sjóveiki og gerði hann ráð fyrir að koma til Ports- mouth á mánudag eða þriðjudag, en veður hefur verið á móti skipinu að undanförnu. — Aramóta- fagnaður ítölsk hátíð—Útsýnarkvöld Hótel Sögu — Súlnasal, sunnudagskvöld 14. jan. * kl. 19.00 — Húsiö opnaö. Svaladrykkir og lystaukar á barnum. Afhending ókeypis happdrættismiöa. * kl. 19.45— Veizlan hefst stundvíslega. Ljúffengur ítalskur veizlumatur framreiddur. Osso Bucco alla Napolitana. Verö aóeins kr.: 3.500.- * Skemmtiatriði: Hin nýja glæsilega söngstjarna Kristjón Jóhannsson, tenór, syngur vinsæl ítölsk lög og óperuaríur. Tízkusýning: r \ * Tízkusýning: Módelsamtökin sýna glæsilegan tízkufatnaö fyrir dömur og herra. Handprjónaöa kjóla stutta og síöa brúöar- kjóla ásamt silfurskartgripum eftir Jens Guðjónsson, frá íslenzkum heimilisiönaöi. Kjólarnir eru hannaöir og prjónaðir af Aöalbjörgu Jónsdóttur, þá verða einnig sýndir pelsar frá Pelsinum og skór og stígvél frá Skósel. * Fegurðar samkeppni: Ljósmyndafyrirsætur Útsýnar. Stúlkur 17—22 ára valdar úr hópi gesta. 10 Útsýnarferöir í vinning. Forkeppni. * Myndasýning: Forstjóri Útsýnar sýnir nýjar litmyndir frá sólarlöndum. Danssýning: * Heiöar Ástvaldason og kennarar í dans- skóla hans sýna og kenna dansa úr * Bingó: Vinningar 3 Útsýnarferöir. * Ferðadagatal og bráöabirgöaráætlun lögö fram með ótrúlega fjölbreyttum og hagkvæmum Útsýnarferöum 1979. * Dans til kl. 01:00 Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og söng- konan Þuríöur Siguröardóttir. * Allar dömur fá ilmvötn frá hinu heimsþekkta snyrtivörufyrirtæki „Nina Ricci“ og „Nitchewo". Missið ekki af glæsilegri skemmtun og möguleikum á ókeyþis Útsýnarferö. Boröapantanir hjá yfirþjóni í síma 20221 frá kl. 3 e.h. Allir velkomnir. Góöa skemmtun. Fagnið nýja irinu með Útsýn. Ath .1 Allir gestir sem koma fyrir kl. 20.00 fá ókeypis happdrættismiða. Vinningur: Ítalíuferð með ÚTSÝN: Ferdaskrifstofan Útsýn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.