Morgunblaðið - 11.01.1979, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979
| Altrincham náði jöfnu
«1 á White Hart Lane!
I
Nokkrir leikir fóru fram í 3.
umferð ensku bikarkeppninnar
ok voru að vanda nokkur óvænt
OK merkileK úrslit. Enkum kom
þá á óvart frammistaóa litla
Altrincham, sem leikur utan
deilda. en liðið gerði sér lítið fyrir
ok jjerði jafntefli við Tottcnham á
heimavelli Tottenham. l>á gerði
Sunderland það K«tt. sló út
Everton, eitt af efstu liðum 1.
deildar. Southend var einnig í
stuði á hcimavclli sinum og hélt
jöfnu Kej{n Evrópumeisturunum
frá Liverpool.
Peter Taylor náði forystunni
fyrir Tottenham snemma í leikn-
um með marki úr vítaspyrnu. Það
var af og frá að Tottenham ætti
nokkuð meira í leiknum og það var
fyllilega sanngjarnt, þegar Jeff
Johnson tókst að skora jöfnunar-
mark Altrincham.
Sunderland, sem varð bikar-
meistari 1973, var mun sterkara í
leiknum gegn Everton á Roker
Park. Gary Rowell skoraði fyrsta
markið úr vítaspyrnu í fyrri
hálfleik og þegar 10 mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik, skoraði
Bob Lee og kom Sunderland í 2—0
Waine Entwhistle skaut í þverslá
skömmu síðar og Sunderland
algerlega yfirspilaðÞ Everton.
Gestunum tókst þó að minnka
muninn rétt fyrir leikslok; þegar
Martin Dobson skoraði.
• Lið Arsenal og Everton hafa
ekki átt mikilli velgengni að
fagna í bikarkeppninni til þessa,
Everton er úr leik. en Arsenal
hefur tvívegis gert jafntefli við 3.
deildar lið Sheffield Wednesday.
Bikarmeistararnir frá Ipswich
áttu í miklum brösum með 3.
deildar lið Carlisle, lið sem löngum
hefur reynst stórliðunum erfitt
viðureignar í bikarleikjum. Kevin
Beattie náði forystunni fyrir
Ipswich um miðjan hálfleikinn
eftir góðan undirbúning Paul
Mariner og rétt fyrir hlé skoraði
Hollendingurinn Arno Múhren
annað mark Ipswich beint úr
aukaspyrnu. Mínútu síðar var
staðan orðin 2—1 eftir að Mick
Tait hafði skorað fyrir Carlisle. Og
fljótlega í síðari hálfleik jafnaði
Dave Kemp fyrir Carlisle. Víta-
spyrna frá John Wark rétt fyrir
leikslok tryggði Ipswich hins vegar
sigurinn.
Aston Villa hélt út töluvert
fram í síðari hálfleik gegn
Nottingham Forest, en um miðjan
hálfleikinn skoraði Dave Needham
fyrir Forest og braut þannig ísinn.
Tony Woodcock bætti öðru marki
við og John Deehan, miðherji
Villa, var rekinn af leikvelli
skömmu síðar.
Loks má geta þess, að Noel
Brotherstone og John gamli Rad-
ford skoruðu mörk Blackburn gegn
Millwall, en Phil Walker skoraði
eina mark Lundúnaliðsins.
f gærkvöldi
Urslit leikjanna
urðu þessi:
Ipswich — Carlisle
Millwall — Blackburn
N. Forest — Aston Villa
Southend —Liverpool
Tottenham — Altrincham
Sunderland — Everton
Leikjum Man. Utd. gegn Chelsea
og Newcastle gegn Torquai
frestað.
3:2
1:2
2:0
0:0
1:1
2:1
var
Varaformaður IHF í samtali við Mbl:
„Wadmark gerði
aðeins skyldu sína“
MBL. HAFÐI í gær samband við Danann
A. Fredslund-Pedersen og innti hann
álits á brottvísun Víkings úr Evrópu-
keppni bikarhafa. Voru svör Pedersens
hin merkilegustu og gefa Víkingum
sannarlega ekki auknar vonir um að
dóminum verði hnekkt.
Pedersen sagði m.a. að Wadmark,
formaður aganefndarinnar, hefði aðeins
gert skyldu sína þegar hann tók upp mál
Víkings og hefði það ekkert með þjóðerni
og hlutleysi að gera. — Ég get ekki séð,
að dóminum yfir Víkingum verði hnekkt
nema að til komi algerlega ný sjónarmið
í málinu, sagði Fredslund-Pedersen að
lokum. — áij.
Mikið skorað í
stjörnuleiknum
KIMNGUM tókst á lokasekúnd-
um stjörnuleiksins í gærkveldi að
tryggja sér sigur þegar Jón
Sigurðsson. hinn snjalli Klt-ing-
ur. renndi sér í gegnum vörn
Valsmanna og kom liði sínu citt
stig yfir. 107 — 106. Þegar 31
sekúnda var eftir voru Valsmenn
2 stig yfir. 106 — 104. John
Hudson fékk þrjú vítaskot en
nýtti aðeins eitt og staðan var
106 — 105. Stjiirnulið Vals fékk nú
holtann. en KR-ingurinn Gunnar
Jóakimsson komst inn í sendingu
og hrunaði upp. Eftir nokkurt
fum og fuður kom Jón Sigurðsson
holtanum glæsilega í körfuna og
sigur KR var tryggður.
Valsmenn komust yfir í byrjun,
með körfu Grindvíkingsins Mark
Holmes, en KR-ingar jöfnuðu nær
samstundis. Þá tóku Valsmenn
mikla skorpu og komust 10 stig
yfir, 16—6, og var Holmes maður-
inn á bak við flest stigin. Það var
ekki fyrr en um miðjan hálfleikinn
að KR-ingar jöfnuðu og komust
yfir, 28—26. Þaðan af skiptust
liðin nánast um að hafa forystuna
og var oft hrein unun að sjá til
leikmanna beggja liða. Enginn
einn skar sig úr heldur virtust
allir færir um að gera ótrúlegustu
hluti. Átti þetta ekki aðeins við um
Bandaríkjamennina heldur sýndu
þeir Jón Sigurðsson og Þórir
Magnússon, að þeir standa þeim
mörgum ekki langt að baki.
Munurinn í hálfleik var 5 stig
KR-ingum í vil, 58—53.
í seinni hálfleik hljóp skapið
nokkuð í menn og fékk meðal
annars John Johnson, Fram, tvö
tæknivíti á sömu mínútunni og
yfirgaf leikinn þá með 5 villur. Þá
voru þeir Tim Dwyer og John
Hudson ekkert yfir sig hrifnir af
dómgæslu þeirra Erlends Ey-
steinssonar og Þráins Skúlasonar.
En svo við snúum okkur aftur að
leiknum, þá skiptust liðin alltaf á
um að hafa forystuna fram eftir
seinni hálfleiknum, en á 7. mínútu
hálfleiksins tóku Valsmenn foryst-
una og héldu henni nánast út
leikinn, en það var ekki fyrr en
að KK-ingar jölnuðu og komust una og héldu henni nánast út Ríkharður Hrafnkelsson 6 stig og
V yfir, 28—26. Þaðan af skiptust leikinn, en það var ekki fyrr en John Johnson 4. — gig
hinn ágæti lokasprettur KR-inga
kom til að þeir náðu forystunni og
ekki mátti tæpara standa.
Bestu menn KR-inga voru þeir
Jón Sigurðsson, Mark Christian-
sen og John Hudson og verða
þessir menn KR vafalaust drjúgir
í móti því sem KR-ingar halda nú í
á Englandi. Aðrir KR-ingar stóðu
þessum mönnum nokkuð að baki,
en stóðu sig vel eftir atvikum.
Valsmenn allir áttu skínandi
leik. Þórir, Stewart, Holmes,
Dwyer, Johnson og Dunbar á
öðrum fætinum brilleruðu allir
þótt ekki dygði það til sigurs. Þessi
leikur verður vafalaust mörgum
minnisstæður enda sást þarna það
besta sem körfuknattleikurinn hér
hefur upp á að bjóða.
Stig KR skoruðu: Hudson 43,
Mark 27, Jón Sig. 14, Birgir
Guðbjörnsson 10, Gunnar Jóa-
kimsson 6 og Einar Bollason og
Árni Guðmundsson 2 hvor.
Stig Vals: Dunbar 28, Dwyer 21,
Holmes 18, Stewart 16, Þórir 8,
Ríkharður Hrafnkelsson 6 stig og
John Johnson 4. — gig
Landsleikurinn
ekki á skjáinn
— Nei. leikurinn. var ekki tekinn upp og því getur ekkert
orðið af því að hann verði sýndur, sagði Bjarni Felixson,
iþróttafréttamaður sjónvarpsins. í spjalli f gær, er hann var
spurður hvort iandsleikur íslands og Danmerkur yrði á dagskrá
íþróttaþáttarins á næstunni.
— Danska sjónvarpið tekur yfirleitt ekki upp leiki og engin
breyting varð þar á að þessu sinni. Ég hef orðið var við mikinn
áhuga landsmanna á að sjá leik þennan, en því miður getur
ekkert úr því orðið.
Annar Bliki til ÍA
UNGUR Bliki að nafni Helgi Bentsson fer að öllum líkindum til liðs
við ÍA næsta sumar. Áður hefur verið frá því sagt, aö Sigurjón
Kristjánsson, 18 ára unglingalandsliðsmaður úr Breiðabliki, hafi í
hyggju að fara upp á Skaga. Auk þess er víst að Einar Þórhallsson
fari til KA og hefur einnig þegar verið frá því skýrt. Virðist sem
eitthvert rót sé í herbúðum UBK og orðrómur um að fleiri
leikmenn hyggi á félagaskipti er víða á sveimi. — gg.
Borðtennislandsliðið
leggur land undir fót
LANDSLIÐSNEFND B.T.Í. hefur valið þrjá karla og tvær konur
til keppni í Evrópukeppni landsliða, c-riðli, 5.—13. íeb. Níu
þjóðir eru í riðli með okkur. Þær eru. Rúmcnía, Sviss, Portúgal.
Noregur. Danmörk, Wales, Guernsey, Jersey og Malta.
íslenska liðið skipa.
Tómas Guöjónsson, KR.
Stefán S. Konráðsson. Vík.
Hjálmtýr Hafstcinason. KR.
Ragnhildur Sigurðardóttir, UMSB.
Ásta Urhancic, Erninum.
Einnig mun fslenska liðið taka þátt f opna velska
meistaramótinu en það er eitt af sterkustu mótum í heiminum í
dag.
Þess má geta, að borðtennismenn hafa látið í Ijós nokkra
bjartsýni á að árangur kunni að verða betri en áður. Síðast þegar
leikið var gegn Möltu, tapaði landinn naumlega og Möltuhúa ætti
að vera hægt að sigra á góðum degi. Þá eru í riðli með
(slendingum lið sem nokkrir möguleikar ættu að vera á að sigra,
svo sem Jersey og Gucrsncy.
ÍS- Valur í kvöld
EINN leikur fer fram í úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld og hefst
hann klukkan 20.00 í íþróttahúsi Kennaraháskólans. Þar eigast við
lið ÍS og Vals.
Valsmenn eru að sjálfsögðu sigurstranglegri aðilinn að þessu
sinni, enda berjast liðin hvort á sínum enda töflunnar, Valsmenn
við toppinn og stúdentar við botninn. Ekkert verður þó hægt að
fullyrða um úrslit leiksins fyrr en að honum loknum.
Slæm færð fækk-
aði þátttakendum
Nýlega fór fram borðtennismót Víkings og fór það fram sem hér
segir:
Sunnudaginn 7. janúar var keppt í kvennaflokki í litla salnum í
Laugardalshöll. Keppendur voru ails 7 og léku þær allar við allar og
urðu úrslit sem hér segir:
1. sæti Ragnhildur Sigurðardóttir. U.M.S.B.
2. sæti Dagrún Hjartardóttir Víkingi
3.-4. sæti Nanna Harðardóttir Víkingi
Mánudaginn 8. janúar var leikið í 2. flokki og nú í Fossvogsskóla.
Keppendur voru alls 11 og var leikinn einfaldur úrsláttur. Úrslit
urðu sem hér segir:
1. sæti Brynjólfur Þórisson Gerplu
2. sæti Ragnar Ragnarsson Erninum
3.-4. sæti Gylfi Pálsson, U.M.F.K.
Þriðjudaginn 9. janúar var enn á ný leikið í Fossvogsskóla og nú í
3. flokki. Skráðir voru til keppni 58 keppendur en því miður vegna
slæmrar færðar komust ekki þátttakendur frá u.m.s.b. 8 talsins, og
aðeins 1 frá Keflavík af 5 skráðum en engu að síður fór fram jöfn
og skemmtileg keppni. Úrslit urðu sem hér segir:
1. sæti Guðmundur Maríusson, KR.
2. sæti Kristján Jónasson Víkini •
3.-4. sæti Gunnar Andrésson, F'ram. Fréttatilkynning.
Leikið við Pól-
verja í kvöld
ÍSLENDINGAR leika í kvöld
þriðja leik sinn í Baltic-keppn-
inni og hefst lcikurinn klukkan
19.30 að staðartíma. Að þessu
sinni éru mótherjarnir Pólvcrjar
og er þetta því þriðji leikurinn
við þá á skömmum tíma. íslend-
ingar hafa sýnt það í keppninni,
að þeir eru til allra hluta líklegir
og má þess vegna búast við
jöfnum og spcnnandi leik. Fer
Icikurinn fram í Hammei og eru
dómararnir sem dæma eiga
danskir.