Morgunblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979
41
- u w /s - "3T
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—11
. FRÁ MÁNUDEGI
jnuAMx-aa'tj
sjálfsagt að hvert um sig megi
hafa kynferðissamband við annan
aðila af gagnstæðu kyni og einnig
finnst þeim ekkert athugavért þótt
tveir kvenmenn hafi slíkt sam-
band.
En hér eru það lög hjónabands-
ins sem eru brotin með tilkomu
þriðja aðilans. „Það er vilji Guðs
að þér verðið heilagir. Hann vill að
þér haldið yður frá frillulífi, að
sérhver yðar lærist að lifa
hjúskaparlífi við konu sína eina í
heilagleika og heiðri en ekki í
girndarbruna eins og heiðingjarn-
ir sem ekki þekkja Guð“ (1.
Þessalónikíubréf 4:3—5). Slíkan
boðskap konunni til handa er
einnig að finna í heilagri ritningu.
Það skal tekið fram að vímu-
gjafar þurfa ekki að koma hér til
sem í þessu dæmi en þeir fylgja
oftast.
Hugsunarháttur og þar af leið-
andi lífshættir þeirra (ungu hjón-
anna) eru mjög svo frjálslyndir og
bera mikið bragð af lífsháttum
„hippa“ og er þannig hugsunar-
háttur oft undirrót þjóðfélags-
ádeilna og ádeilu á Guð.
Við erum öll full af girndum og
eins og sekur maður reynir að
réttlæta brot sitt út frá samvisku
sinni reyna þeir að réttlæta
girndarbruna sinn, þeir sem ekki
trúa á Guð.
Biblían segir okkur að Guð veit
að það er erfitt að breyta rétt fyrir
manninum í þessu lífi en einmitt
vegna þess ættum við sem treyst-
um honum að hafa ánægju af að
gera það sem hann vill að við
gerum þó að það geti mörgum
fundist erfitt.
Einar Ingi Magnússon.
• Illa gert
Vegna skrifa móður í Velvak-
anda s.l. sunnudag vildi ég koma
því hér að að ég hef svipaða sögu
að segja.
Fyrir nokkrum misserum fór ég
ásamt unglingi í tískuverslun á
Laugaveginum. í einni þessara
verslana rákumst við á skyrtu en
tilgangur þessarar ferðar var
einmitt að kaupa eina slíka. Okkur
fannst skyrtan of dýr og keyptum
hana ekki en héldum áfram að
leita. í annarri búð við sömu götu
sáum við af tilviljun alveg sams
konar skyrtu og við sáum áður en
þessi var helmingi ódýrari en hin
fyrri. Munurinn var bara sá að
seinni verslunin var ekki tísku-
verslun.
Mér finnst það illa gert hjá
kaupmönnum að stíla upp á
tískuna og skrumauglýsingar og
hafa fé út úr unglingum á þennan
hátt. Þeir gera sér ekki grein fyrir
því hvað er á ferð og leita ekki í
öðrum verslunum.
Faðir.
Þessir hringdu . . .
• Ekki heldur
við hæfi
fullorðinna
Húsmóðir hringdis
„Ég vildi gjarnan fá að taka
undir orð mæðranna sem hringdu
til Velvakanda vegna þáttarins
„Ég Kládíus" sem sýndur var s.l.
sunnudag. Það er ekki hægt að
bjóða heimilum slíkan viðbjóð og
það á sunnudagskvöldi. Þótt lítið
sé gert með hvíldardaginn á
þessum síðustu tímum þá var
a.m.k. venjan hér áður fyrr að fara
í kirkjur og leggja rækt við kristna
trú að öðru leyti. En hjá sjónvarp-
inu á sunnudaginn var sýnd
viðbjóðslegasta hryllingsmynd og
á eftir var hugvekja. Þetta á vel
saman, eða hvað?
IMIIIv
Nei, sjónvarpið mætti gjarnan
skoða afstöðu sína og reyna að
hafa efni þess sem mest við hæfi
allrar fjölskyldunnar. Það er
ósköp erfitt að vera að tína úr hina
yngstu til að fara frá sjónvarpinu
og sumir unglingar telja sig ekki
börn þótt þeir í raun og veru séu
ekki hæfir til að sjá slikan
hrylling. Og alls ekki eru þeir
„viðkvæmt fullorðið fólk“.
En það var ekki aðeins börnum
ög viðkvæmu fólki sem hryllti við
þessum þætti. Fullorðin mann-
eskja, sem ég talaði við, horfði á
þáttinn þar sem hún hefur gaman
af þessum myndaflokki og er alls
ekki talin viðkvæm manneskja. En
þessi tiltekna persóna átti í mestu
erfiðleikum með að festa svefn
eftir að hafa horft á hryllinginn.
Þátturinn var því ekki heldur við
hæfi fullorðinna.
Ég hef alltaf haldið að sjónvarp-
ið ætti að vera til fróðleiks og
skemmtunar. Engin var fróð-
leikurinn í þessum þætti. Allir
vissu að mesta siðleysi var uppi í
Róm á þessum tíma og ekki var
atferði persónanna til eftirbreytni.
Mér hefur heldur aldrei fundist
nein skemmtun í að sjá manneskju
pínda eða drepna né heldur að
horfa á annan viðbjóð, mér finnst
nóg að komast hjá slíku í daglegu
lífi á þessum síðustu og verstu
tímum.“
HÖGNI HREKKVÍSI
PA& L'/ruz L'rr ry/Zlfl A£> Pa&ö! ,
þ//zaj rbm rrjtj ) kv6lö !"
MANNI OG KONNA
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Tillögur
uppstillingarnefndar og trúnaöarráös um stjórn
og aöra trúnaöármenn félagsins fyrir áriö 1979
liggja frammi í skrifstofu félagsins frá og meö
fimmtudeginum 11. janúar. Öörum tillögum ber
aö skila í skrifstofu Dagsbrúnar fyrir kl. 17
föstudaginn 12. janúar 1979.
Kjörstjórn Dagsbrúnar.
eigendur: sparið benzín!
_ og komið með bílinn reglulega í 10.000 km. skoðun eins og
framleiðandi Mazda mælir með. í þessari skoðun er bíllinn allur
yfirfarinn og vélin stillt þannig að benzíneyðsla verður í lágmarki.
Þetta er mikilvægt atriði með stórhækkandi benzínverði.
BÍLABORG HF.
Smiðshöfða 23 Verkstæði sími 81225
A Stjórnunarfélag íslands Jk
Fundartækni
Framkoma
í sjónvarpi
Fímmtudagínn 18. janúar hefst i Hótel
Esju námskeið í Fundatækni og fram-
komu í sjónvarpi á vegum Stjórnunar-
félags íslands. Nimskeiðiö stendur yfir
dagana 18. og 19. jan. kl. 14—19 og 20.
jan. kl. 9—12 eða alls í 13 klst.
Á námskeiöinu veröa kynnt fundarsköp,
fundarstjórn og grundvallaratriöi ræöu-
mennsku. Einnig verður leiðbeint um
framkomu í sjónvarpi. Námskeiðið hentar
vel stjórnendum félaga, fyrirtækja, stofn-
ana og öörum þeim sem vilja öölast þjálfun
í ofangreindum atriöum.
Leiöbeinendur veróa Fríörik Sóphusson
lögfræóingur og Markús Örn Antonsson
ritstjóri.
Nénari upplýsingar og skráning Þátttak-
enda é skrifstofu Stjórnunarfólags
íslands, Skipholti 37, sími 82930.
Markús örn
Antonssson,
ritstjóri
Fririk Sophusson,
lögfræðingur.
HAGTRYGGING HF <ff
PJÚFF! EG HEFÐI
LÍKLEGA EKKI
ÁTT AÐ FARA
SVONA HRATT,
ÞAÐ ER SVO
HÁLT.
HALKA ER HASKALEG.