Morgunblaðið - 20.01.1979, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1979
DÓMKIRKJANs Kl. 11 messa.
Séra Þórir Stephensen. Kl. 2
messa. Séra Hjalti Guðmunds-
son.
ÁRBÆJARPRESTAKALL.
Barnasamkoma í safnaðarheim-
ili Árbæjarsóknar kl. 10:30 árd.
Guðsþjónusta í safnaðarheimil-
inu kl. 2. Séra Guðmundur
Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL. Guðsþjón-
usta kl. 2 að Norðurbrún 1. Séra
Tómas Guðmundsson messar.
Sóknarprestur.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL.
Laufíardafíur: Barnasamkoma í
Ölduselsskóla kl. 10:30 árd.
Sunnudagur: Barnasamkoma í
Breiðholtsskóla kl. 11 árd.
Messa í Breiðholtsskóla kl. 2 e.h.
Miðvikudafíur: Kvöldsamkoma
að Seljabraut 54 kl. 8:30. Séra
Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA. Barna-
íjuðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 2 — barnagæsla. Organ-
leikari Guðni Þ. Guðmundsson.
Séra Ólafur Skúlason.
DIGIÍANESPRESTAKALL.
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu v/Bjarnhólastífí kl.
11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 2. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
FELLA- OG Hóiaprestakall.
Laugardagur: Barnasamkoma í
Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h.
Sunnudagur: Barnasamkoma í
Fellaskóla kl. 11 f.h. Guðsþjón-
usta í safnaðarheimilinu að
Keilufelli 1 kl. 2 e.h. Miðviku-
dagur: Almenn samkoma að
Seljabraut 54 kl. 20:30. Séra
Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA. Barnasam-
koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2.
Organleikari Jón Þ. Þórarins-
son. Almenn samkoma n.k.
fimmtudagskvöld kl. 20:30. Séra
Halldór S. Gröndal.
IIALLGRÍMSKIRKJA. Guðs-
þjónusta kl. 11. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson. Fjölskyldu-
messa kl. 14:00. Séra Karl
Sigurbjörnsson. Lesmessa n.k.
þriðjudag kl. 10:30. Beðið fyrir
sjúkum. Séra Karl Sigurbjörns-
son. Munið kirkjuskóla barn-
anna á laugardögum kl. 2.
LANDSPÍTALINN. Messa kl.
10. Séra Karl Sigurbjörnsson.
IIÁTEIGSKIRKJA. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Séra Tómas
Sveinsson. Messa kl. 2. Séra
Arngrímur Jónsson. Messa og
fyrirbænir kl. 5. Séra Tómas
Sveinsson. Organleikari Orthulf
Prunner. Biblíuleshringurinn
kemur saman á mánud. 22.
janúar kl. 20:30 í kirkjunni.
Prestarnir.
KÁRSNESPRESTAKALL.
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 10 árd. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11 árd. Séra
Árni Pálsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL.
Laugardagur: Börnum boðið til
„Óskastundar" kl. 4 í safnaðar-
heimilinu. Sunnudagur: Barna-
samkoma kl. 10:30. Séra Árelíus
Níelsson. Guðsþjónusta kl. 2. I
GUÐSPJALL DAGSINS.
Matt. 8.. Jesús gekk ofan af
fjallinu.
LITUR DAGSINS.
Grænn. Litur vaxtar og
þroska.
stól: Sig. Haukur Guðjónsson.
Við orgeiið: Jón Stefánsson. Kór
kirkjunnar syngur. Safnaðar-
stjórn.
LAUGARNESKIRKJA. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 2.
Kirkjukaffi eftir messu i umsjá
kvenfélagskvenna. Þriðjudagur
23. jan.: Bænastund og altaris-
ganga kl. 18 og æskulýðsfundur
kl. 20.30. Sóknarprestur.
NESKIRKJA. Barnasamkoma
kl. 10:30 árd. Guðsþjónusta kl. 2,
altarisganga. Órganleikari
Reynir Jónasson. Séra
Guðmundur Óskar Ólafsson.
SELTJARNARNESSÓKN.
Barnasamkoma kl. 11 árd. í
félágsheimilinu. Séra Frank M.
Halldórsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík.
Barnasamkoma kl. 10:30 árd.
Messa kl. 2. Organleikari Sig-
urður ísólfsson. Prestur séra
Kristján Róbertsson.
DÓMKIRKJA Krists Konungs,
Landakoti. Lágmessa kl. 8.30
árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
Lágmessa kl. 2 síðd. Alla virka
daga er lágmessa kl. 6 síðd.,
nema á laugardögum, þá kl. 2
síðd.
FELLAHELLIR, Kaþólsk
messa kl. 11 árd.
KIRKJA Óháða safnaðarins.
Messa kl. 2 síðd. Pétur Maack
cand. theol. prédikar. Séra Emil
Björnsson.
FÍLADELFÍUKIRKJAN.
Sunnudagaskólarnir byrja kl.
10.30 árd. Safnaðarguðsþjónusta
kl. 2 síðd. Almenn guösþjónusta
kl. 8 síðd. Söngstjóri og organ-
leikari Árni Arinbjarnarson.
Einar J. Gíslason.
GRUND — elli- og
hjúkrunarheimili. Messa kl. 2
síðd. Gisli Brynjólfsson fyrrv.
prófastur messar. Fél. fyrrv.
sóknarpresta.
HJÁLPRÆÐISHERINN.
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Bæn kl. 20 og hjálpræðissam-
koma kl. 20.30.
KIRKJA Jesú Krists af síðari
daga heilögum — Mormónar.
Samkomur að Skólavörðustíg 16
klukkan 14 og kl. 15.
GARÐASÓKN. Barnasamkoma
í Skólasalnum kl. 11 árd. Séra
Bragi Friðriksson.
KAPELLA St. Jósepssystra í
Garðabæ. Hámessa kl. 2 síðd.
MOSFELLSPRESTAKALL.
Messað að Mosfelli kl. 14. Séra
Birgir Ásgeirsson.
VÍÐISTAÐASÓKN. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árd. í Hrafnistu.
— Guðsþjónusta í Hafnar-
fjarðarkirkju kl. 14. Safnaðar-
kvöld verður í Hrafnistu kl.
20.30. Séra Sigurður H. Guð-
mundsson.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði,
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Organ-
leikari Jón Mýrdal. — Að
lokinni messu verður almennur
safnaðarfundur og er safnaðar-
fólk hvatt til þátttöku. Séra
Magnús Guðjónsson.
IIAFNARFJARÐARKIRKJA,
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Guðsþjónusta kl. 14. Séra Sig-
urður H. Guðmundsson. —
Helgi- og bænarstund kl. 17.
Beðið fyrir sjúkum. Séra Gunn-
þór Ingason.
KEFLAVÍKURKIRKJA.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd. —
Munið skólabílinn. Guðsþjón-
usta kl. 14. Sóknarprestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA,
Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur.
IIVALSNESKIRKJA, Messa kl.
2 síðd. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA,
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd.
Sóknarprestur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 2 síðd.
Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA, Barna-
guðsþjónusta kl. 10.30 árd.
Messa kl. 2 síðd. Helgi Hró-
bjartsson kristniboði prédikar.
Altarisganga. Séra Björn Jóns-
son.
Útvarpsguðs-
þjónustan
ÚTVARPSGUÐSÞJÓNUSTAN á sunnudagsmorgun verður að
þcssu sinni í Dómkirkjunni. Prestur séra Þórir Stephensen.
Dómkórinn. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Þessir sálmar
verða sungnir,
Nýja sálma- GI. sálma-
bókin, bókin.
3 43
224 25
207 346
Stólvcrs 109, fyrsta vers
343 223
519 664
Stefán Snævarr:
Um ástandið
Fréttaflutningur íslenskra fjöl-
miðla af ástandinu i íran hefur
verið með svo eindæmum hlut-
drægur, að ég fæ ekki orða bundist
lengur. I blaðafregnum eru and-
stæðingar keisarans kallaðir
„óeirðaseggir", en keisarinn reynir
að „koma á lögum og reglu".
Keisarinn vill færa landið í
„lýðræðisátt", en múhameðstrúar-
menn vilja koma því aftur á
„miðaldastig".
Þeir sem einhvern tímann hafa
hitt Irani á ferðalögum erlendis
hafa ef til vill orðið varir við það
fát sem oft kemur á þetta fólk ef
það er spurt um stjórnmála-
ástandið í heimalandinu. Skýring-
in er sú, að íranska leyniþjónustan
SAVAK fylgist mjög vandlega
með hegðun Irana erlendis.
Sagt er, að Bandaríkjastjórn
hafi gefið SAVAK frjálsar hendur
úm eftirlit með írönum í Banda-
ríkjunum. Það kemur oftsinnis
fyrir þar vestra, að íranir sem
„fara út af línunni" verða fyrir
aðkasti „dularfullra" manna. Ekki
þarf mikið til að fara úr náðinni
hjá írönskum valdhöfum. íslend-
^igur sem nam hagfræði í Svíþjóð
slagði mér, að írani, sem með
fionum lærði, hefði alls ekki þorað
áð taka námskeið í marxískri
hagfræði; ef slíkt fréttist í íran
fengi hann aldrei vinnu.
Plnginn er öfundsverður af að
lenda í klónum á SAVAK. Ég las
nýlega grein í bandarísku tímariti
eftir íranskan menntamann sem
setið hafði í fangabúðum SAVAK.
Lýsingarnar á meðferðinni sem
hann hlaut eru með ógeðslegasta
sem ég hef lesið. Það kom m.a.
fram í greininni, að pyntinga-
meistarar Iranskeisara skirrast
ekki við að misþyrma börnum.
Það hefur e.t.v. vakið athygli
einhverra, að dr. Baktiar, hinn nýi
forsætisráðherra, leggur á það
ríka áherslu, að enginn af samráð-
herrum hans hafi tekið þátt í
ríkisstjórn síðasta aldarfjórðung.
Ástæðan er sú, að í Iran hefur ekki
alltaf ríkt sú harðstjórn sem þar
ríkir nú. Framan af ferli sínum
var núverandi keisari harla valda-
lítill, og einhvers konar þingræði
ríkti í landinu. Síðasti lýðræðis-
lega kjörni forsætisráðherra írans
var Mossadegh, sem reyndi að
þjóðnýta eigur erlendra olíufyrir-
tækja og hrekja keisarann frá
völdum. Flúði keisarinn um tíma
til Sviss, en sneri aftur þegar
Mossadegh hafði verið steypt meö
aðstoö CIA. CIÁ hefur viðurkennt
opinberlega að hafa stuðlað að
falli Mossadegh og hefur hrósað
sér af „afreki“ sínu.
Eftir að keisarinn sneri aftur úr
Stefán Snævarr
/
í Iran
útlegðinni tók hann til óspilltra
málanna við að tryggja sér al-
ræðisvald í landinu. Naut hann til
þess dyggs stuðnings Bandaríkja-
manna sem umfram allt óttuðust
að nýr Mossadegh kæmist til
valda.
Á þessum árum var SAVAK
byggð upp með aðstoð bandarísku
leyniþjónustunnar, og sagt er, að
SAVAK hafi nú um tvö þúsund
bandaríska ráðgjafa á sínum
snærum.
Keisarinn hefur notað aðstöðu
sína til að auðgast all gífurlega, og
er nú talinn einn auðugasti maður
í heimi. Ættmenn hans og helstu
gæðingar hafa einnig rakað til sín
fé, og líta margir Iranir á
keisarann sem hvern annan
ræningjahöfðingja.
Keisarinn lætur sér ekki nægja
að stela af hinum nýfengna
olíuauði landsins til eigin þarfa
heldur sólundar fé í ofboðsleg
vopnakaup. Hann kaupir þotur og
skriðdreka rétt éins og leikfanga-
vopn, og er takmark hans að gera
Iran að stórveldi. Kunningi minn
einn hafði það eftir írönskum
félaga sínum, að ekki væri að
undra þótt írönum gremdust
vopnakaup keisarans, ein
Phantomþota kostar jafn mikið og
nám tíu lækna, og gífurlegur
læknaskortur er í landinu.
Nú kann einhver að spyrja hvort
ólgan í íran sé ekki fremur af
trúarlegum toga en pólitískum
spunnin. Því er til að svara, að ef
trúa má Newsweek hafa bænahús
múhameðstrúarmanna orðið mið-
stöð pólitískra umræðna, lög-
reglan þorir varla að ryðjast inn í
þau og handtaka menn. Líkt og
klerkar í Austur-Evrópu hafa
prestar múhameðstrúarmanna
meira pólitískt svigrúm en margir
aðrir, yfirvöld hugsa sig tvisvar
um áður en þau ögra jafn miklu
afli og trúarbrögð eru. Ennfremur
hefur Múhameðstrú sterka lýð-
ræðis- og jafnaðarþætti, ayatollah
eða höfuðklerkur verður sá kenni-
maður einn sem nýtur hylli hinna
trúuðu.
Ég neita því engan veginn að
stór hluti andófsmanna krefst
afturhvarfs til fornra „dyggða" á
borð við kvenkúgun, en þeir eru
ekki einir um hituna, og hafa
Hellissandi 15. jan. 1979 AÐ GEFNU
tilefni vil ég undirrituð vekja
athygli á því, að sjóður sá er
stofnaður var til minningar um
Matthildi Þorkelsdóttur ljósmóður,
á hundraðasta fæðingardegi henn-
ar þann 8. mars 1948 er enn í fullu
gildi og starfræktur samkvæmt
skipulagsskrá.
Matthildur Þorkelsdóttir var um
30 ára skeið bæði ljósmóðir hér og
eins konar aðstoðarlæknir. Við
erfið skilyrði batt hún um margvís-
leg meiðsli og veitti sjúkum hjálp,
enda haft eftir þáverandi héraðs-
lækni, Halldóri Steinssen, að hún
hefði sparað þessu héraði marga
læknisferðina.
Þegar hér var reist hús fyrir
læknaaðstöðu þótti því vel við hæfi
að styrkja það úr Matthildarsjóði,
m.a. með því að kaupa nauðsynleg
hinar pólitísku kröfur um frelsi,
lýðræði og jöfnuð orðið háværari á
síðustu vikum. Þess skal getið, að
íranskir námsmenn erlendis hafa
kvartað yfir þvi, að vestrænir
fréttamiðlar geri alltof mikið úr
hinum trúarlega þætti andspyrn-
unnar.
Ég vona, að grein mín verði til
þess, að fréttamiðlun af ástandinu
í íran skáni eitthvað og að
Morgunblaðið haldi ekki aftur upp
á jólin með því að birta greinar
með vörnum fyrir harðstjóra á
borð við Reza Pahlavi, keisara í
íran.
tæki og vandaða geymsluskápa
ásamt sjúkrabekk o.fl. Hefur rösk-
lega hálfri milljón króna verið
varið til þessa.
Það mun vera draumur margra
að með vaxandi byggð verði komið
hér upp einhverju hjúkrunar- eða
dvalarheimili fyrir aldraða, þar
gæti verið ánægjuiegt að geta gefið
þó ekkí væri nema eitt herbergi en
á meðan ekkert gerist í þeim
málum mun hlynnt að því sem fyrir
er eftir því sem ástæða þykir
hverju sinni.
Sjóðurinn er á vaxtaauka-
reikningi í Landsbanka ísl., Hellsi-
ssandi. Undirrituð mun fúslega
veita allar upplýsingar og gefa afrit
af reikningum og skipulagsskrá
sjóðsins ef þess er óskað.
Með þökk fyrir birtinguna
Jóhanna Vigfúsdóttir
gjaldkeri.
Lítidtil beggja^hlidn
Matthildarsjóður