Morgunblaðið - 20.01.1979, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1979
39
Knattspyrnumönnum ÍA boð-
ið í keppnisferð til Indónesíu
Knattspyrnudeild
Iþróttabandalag Akra-
ness hefur borist óvenju-
legt tilboð frá knatt-
gpyrnusambandi
Indónesíu, en það er í því
fólgið, að bikarmeisturum
ÍA er boðið til Indónesíu,
þar sem liðið mun taka
þátt í 12 liða móti nærri
Djakarta. Er talið víst, að
Skagamenn hafi þekkst
þetta boð, en farið verður
síðla í apríl.
Þetta mun vera 3 vikna
ferð hjá Skagamönnum,
en liðin sem þátt taka í
keppninni eru flest eða öll
frá Indónesíu, eða nær-
liggjandi löndum, Burma,
Japan o.fl. Eitt af því sem
gerir boð þetta sérlega
aðlaðandi er að
knattspyrnusamband
Indónesíu mun greiða
allan kostnað við ferðir og
uppihald rúmlega 20
manna hóps frá Akranesi.
Eftir því sem Mbl. hefur
komist næst, mun ekki
standa á neinum af knatt-
spyrnumönnum ÍA um að
fá sig lausan úr vinnu til
fararinnar.
Auk þessa mun hafa
komið til tals að leika
einn eða tvo leiki við
millilendingar í Kuala
Lumpur.
Hinn nýi hollenski
þjálfari ÍA, Jo Jansen,
mun stýra liði Skaga-
manna í keppni þessari,
verður þetta því frumraun
hans með Skagaliðið og
gaman að sjá hvernig
honum tekst upp með
mikið breytt lið í A.
— SS/ gg.
!
!
Þór lék vel
en tapaði
KR LAGÐI bór að velli í íþrótta-
skemmunni á Akureyri í úrvals-
deildarleik, í körfubolta í gær-
kvöldi. Lokatölurnar urðu
95—82, cftir að KR hafði haft
yfir 46—43 í hálfleik. Þetta var
með betri leikjum Þórsara á
vetrinum, en dugði þó ekki til
sigurs, m.a. vegna slakra inná
skiptinga. T.d. þótti furðulegt
þegar Jóni Indriðasyni var kippt
útaf í síðari hálfleik, en hafði
sýnt mjög góðan leik fram að því.
Þá tók liðiö sér aidrei hlé allan
síðari hálfleik og vakti það einnig
athygli. í lið KR vantaði nokkra
fasta leikmenn, svo sem Bjarna
Jóhannesson. Kolbein Pálsson og
Kristin Stefánsson.
Lengst af í fyrri hálfleik var
leikurinn mjög jafn, þannig var
staðan jöfn 35—35, þegar 5 mín-
útur voru til leikhlés. I síðari
hálfleik hélt KR síðan þetta 4—5
stiga forystu þar til um 5 mínútur
voru til leiksloka, en þá sigu þeir
lengra fram úr.
Jón Indriðason var mjög góður í
liði Þórs og Mark Qmstiansen
sömuleiðis, einkum í fyrri hálfleik.
Hjá KR var Jón Sigurðsson í
sérflokki. Hudson var einnig
góður, en skoraði minna en hans er
venja.
Stig Þórs: Jón Indriðason 27,
Mark Christiansen 23, Eiríkur Sig.
19, Birgir Rafnsson 6, Karl Ólafs-
son 3, Þröstur Guðjónsson og
Ágúst Pálsson 2 hvor.
Stig KR: Jón Sig. 28, John
Hudson, Eiríkur Jóhannesson og
• Jón Sigurðsson var að vanda í
sérflokki.
Einar Bollason 16 hver, Garðar
Jóhannsson 14 og Gunnar Páll
Jóakimsson 5. Sigb./— gg.
ÍS: Albert Guðmundsson 2, Bjarni Gunnar Sveinsson 3, Gísli Gíslason
2, Gunnar Halldórsson 1, Ingi Stefánsson 2, Jón Héóinsson 3, Jón
Oddsson 1, Steinn Sveinsson 2.
ÍR: Erlendur Markússon 1, Guömundur Guömundsson 1, Jón
Jörundsson 3, Kolbeinn Kristinsson 1, Kristinn Jörundsson 3, Kristjón
Sigurðsson 1, Stefón Kristjánsson 2.
ÞÓR: Jón Indriöason 3, Eiríkur Sigurösson 2, Birgir Rafnsson 1, Karl
Ólafsson 1, Þröstur Guölaugsson 2, Ágúst Pálsson 1 og Ellert
Finnbogason 1.
KR: Jón Sigurðsson 3, Eiríkur Jóh. 2, Einar Bollason 2, Garðar Jóh. 2,
Gunnar Páll Jóakimsson 1.
HSÍ grynnkar á skuldunum
HIÐ langþráða ársþing
HSÍ hófst í gærkvöldi og og
mun það standa fram eftir
helgi. í gærkvöldi var
einkum farið yfir skýrslur
og reikninga.
Nokkur blaðaskrif urðu á síð-
asta ári um þann rosalega skulda-
bagga sem HSÍ var farið að draga
með sér. Var um tíma áætlað að
skuldirnar næmu allt að 15—20
milljón króna. í ársskýrslu HSÍ,
sem stóð öllum opin á þinginu í
gær, mátti hins vegar sjá í
rekstrarreikningi sambandsins, að
skuldirnar næmu nú aðeins
3.143.722 krónum. Má af þessu sjá,
að stjórn HSÍ hefur unnið ötullega
að því á síðustu mánuðum, með
góðum árangri,
skuldakófinu.
að draga úr
-gg-
Þór fær liðsauka
ÞÓRSARAR á Akureyri hafa
fengið til liðs við sig nýjan
leikmann, en það er Þórarinn
Jóhannesson, miðvörður úr
Fram. Þórsarar hafa misst
nokkra leikmenn suður, en nú
heíur jafnvægið lagast dálítið.
Þórarinn hefur lítið fengið að
spreyta sig með Fram, lék þó
nokkra leiki árið 1977. Var hann
þá í liði Fram sem lék til úrslita í
Man.Utd.enn áskjánum
SJÓNVARPIÐ sýnir ekkert nema stórleiki þessar vikurnar.
Leikurinn í ensku knattspyrnunni í kvöld er að vísu orðinn
nokkurra vikna gamall, en að sögn Bjarna Felixsonar,
umsjónarmanns þáttarins. er hér um hörkuviðureign að ræða.
Það er leikur Derby og Manchester Utd., sem fram fór á Baseball
Ground í Derby fyrir nokkrum vikum.
bikarkeppninni gegn Val, en
tapaði 1 — 2. Munaði mjóu eitt
sinn í þeim leik, að Þórarinn
kæmi knettinum í net Valsara.
_________ Sigb. G.
Maraþon í
Sandgerði
FRAM hefur komiö, áö knattspyrnu-
deild Rwynis í Sandgeröi hyggist
gera atlögu að íslandsmeti því sem
Stjarnan setti nýlega í maraþonknatt-
spyrnu innanhúss. Stjarnan lék
samfleytt í rúmar 26 klst. en á undan
þeim höfðu ýmis félög verið að slá
met hvers annars. Til þessa hefur
ekkert félag fariö af stað meö
maraþonkeppni án þess aö slá
gildandi met í greininni. /Etli það
veröi nokkur breyting á nú? Leikur-
inn hefst á morgun.
Botnlið leika
gegn topplióum 5
LaIaI aIIiiv aI KA IpAMt ItAÍI iiimIapA ■ 4 jIaÍIjIimmi
Handknattleikurinn hefst aftur af
fullum krafti nú um helgina og fer
Leikir helgarinnar eru þessir:
Laugardagur:
Akranes
Vestm.eyjar
Þá fram heil umferð í 1. deildinni,
auk fjölda annarra leikja.
Laugardalshöll
Varmá
Sunnudagur:
Varmá
Seltjarnarnes
kl. 14.30
kl. 15.30
kl. 19.00
Mánudagur:
Laugardalshöll
kl. 15.00 3. deild karla ÍA-Dalvík
kl. 13.15 2. deild kvenna Þór Ve. — ÍBK
kl. 14.15 2. deild karla Þór Ve — KR
kl.15.30 1. deild karla ÍR — FH
kl. 16.45 2. deild kvenna Fylkir —
Grindavík
kl. 16.45 2. deild kvenna Fylkir —
Grindavík
kl. 14.30 3. deild karla Afturelding —
Týr
kl. 13.30 3. deild karla UBK — Týr
kl. 14.00 3. deild karla Grótta — Dalvík
Hafnarfjöróur
1. deild kvenna Haukar — Fram----------
1. deild karla Haukar — Fram Laugardalshöll
1. deild karla Valur — Fylkir
kl. 20.00
kl. 21.00
1. deild kvenna
1. deild karla
Víkingur — KR
Víkingur — HK
Toppleikur i
Njarðvíkum
AÐEINS einn leikur fer fram i
úrvalsdeild islandsmótsins í körfu-
knattleik um helgina, viöureign
Njarðvíkur og Vals suöur í Njarövík-
um. Hefst leikurinn klukkan 14.00.
Um leikinn Þarf svo sem lítið að
fjölyröa, tap fyrir hvorn aðilann sem
er gæti Þýtt aö tækifæri á islands-
meistaratitlinum væri úr sögunni.
Leikir helgarinnar eru þessir:
Laugardagur:
Borgarnes kl. 14.00, 1. deild karla:
Snæfell—ÍV. Njarðvík kl. 14.00,
úrvalsdeild: Njarðvík—Valur.
Sunnudagur:
Njarövík kl. 13.00, 1. deild karla:
UMFG—Fram. Njarðvík kl. 14.30, 1.
deild karla: ÍBK—Ármann.
i
!
!
$
Laugdælarefstir?^
SPENNANDI uppgjör toppliöa í
blakinu er í uppsiglingu í Haga-
skólanum í dag. Það er ekki
viðureign Þróttar og ÍS eins og verið
hefur til þessa þegar talað er um
toppliðin í blakinu. Heldur er hér um
að ræða viðureign Þróttar og Laug-
dæla, sem mjög óvænt hefur bland-
að sér í toppbaráttuna í 1. deild.
Hápunkturinn hjá þeim var þegar
liðið vann ÍS um síöustu helgi, en það
var í annað skiptið sem UMFL leggur
ÍS að velli í vetur. Bæði Þróttur og
UMFL hafa hlotið 14 stig,
Aðrir leikir á dagskrá í blakinu um
helgina eru eftirtaldir:
LAUGARDAGUR:
Hagaskóli kl. 14.00 1. deild kvenna
ÍS-Völsungur
Hagaskóli Kl. 15.00 1. deild karla
Þróttur — Laugdælir.
Vestmannaeyjar: kl. 13 eöa 14.
(óljóst) 2. deild karla ÍV-Víkingur.
SUNNUDAGUR:
kl. 14.00 1. deild kvenna UBK —
Völsungur.
Kambaboöhlaup á sunnudag
HIÐ árlega Kambaboðhlaup ÍR og
HSK verður háó sunnudaginn 28.
janúar ef veður og færð leyfa. Þetta
verður sjöunda áriö í röð sem
boðhlaupið fer fram, en Það hefst á
Kambabrún og lýkur viö ÍR-húsið
við Túngötu í Reykjavík. Vegalengd-
in er um 40 km og hleypur hver
hlaupari um 10 km. Þau félög sem
hyggja á Þátttöku í hlaupinu eru
beðin um að hafa samband við
Guðmund Þórarinsson Þjálfara ÍR
hiö fyrsta.