Morgunblaðið - 20.01.1979, Page 19

Morgunblaðið - 20.01.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1979 19 - -j **’‘o. 'é Nicaragua: Hermenn fella 13 skæruliða Managua, 19. janúar. Reuter. IIERNAÐARYFIRVÖLD í Nicaragua skýrðu frá því í dag að þjóðvarðliðar hefðu fellt 13 vinstri sinnaða félaKa Sandinista-skæru- liðahreyfingarinnar í átökum sem urðu í fjallahéraðinu Nueva Segovia nærri landamærum Honduras. Ekki var frá því skýrt hvenær átökin hefðu átt sér stað, en sagt að einn þjóðvarðliði hefði fallið og tveir særst. Samkvæmt þessum fregnum hafa 63 skæruliðar fallið í átökum við stjórnarhermenn það sem af er árinu. Atökin hafa einkum átt sér stað við landamæri Costa Rica í suðri og Honduras í norðri. Skæruliðar Sandinista-hreyfingarinnar, sem hefur það að markmiði að koma Anastasio Somoza forseta frá völdum, réðust í gærkvöldi á stöð þjóðvarðliða um 35 kílómetrum fyrir sunnan Managua. Skæruliðarnir náðu stöðinni á sitt vald, en flýðu um síðir til fjalla. Areiðanlegar heimildir herma að a.m.k. tveir þjóðvarðliðar hafi særst í árásinni. Þessar heimildir skýrðu ennfremur frá því að herflugvélar og sveitir hermanna hefðu haldið á eftir skæruliðunum til fjalla, en ekki dregið þá uppi. Frekari handtökur London 19. janúar. — AP — Reuter LÖGREGLAN handtók í nótt fjóra menn til viðbótar þeim sem þegar hafa verið handteknir vegna sprengjufaraldurs á meginlandi Bretlands að undanförnu sem írski lýðveldisherinn er talinn valdur að. Áður höfðu sjö manns verið handteknir vegna málsins, fjórir þeirra eftir síðustu sprengingu s.l. miðvikudag þegar olíubirgðastöð var sprengd í loft upp í einu úthverfa London. Kólumbía: Sjö hermenn felldir í árás Bogota, 19. janúar — Reuter SJÖ IIERMENN Kamhódíustjórnar féllu í dag og þrír særðust í árás vinstri sinnaðra skæruliða á hermenn á eftirlitsferð skammt norðan við höfuðborg landsins, að því er heryfirvöid skýrðu frá í dag. Skæruliðarnir höfðu komið jarðsprengjum fyrir á veginum milli bæjanna Yacopi og La Palma og sprungu tveir herflutningabílar í W atergate-m álið: bílalest. Samstundis hófu skæruliðarnir að skjóta á herflutningavagn- ana, en flýðu þegar hermennirnir veittu þeim mótstöðu. I tilkynningu hersins voru engar fregnir af mannfalli í röðum skæruliða. Jimmy Carter: Kambódíuinnrásin ögrun við slökun Washington, 19. janúar — Reuter JIMMY CARTER Bandaríkjaforseti sagði í sjónvarpsviðtali dag að stuðningur Sovétríkjanna við innrás Víetnama í Kambódíu væri ögrun við afslökunarstefnuna. Carter sagðist ennfremur hafa áhyggjur af tilvist kúbanskra hersveita í ýmsum ríkjum Afríku, en Kúbumenn hafa notið stuðnings Sovétríkjanna í þeim efnum. Carter sagðist í viðtalinu vera vongóður um að Bandaríkjamenn og Sovétmenn undirrituðu brátt sáttmála um takmörkun gereyðingarvopna, en aðspurður vildi forsetinn ekki spá um það hvenær Leonid Brezhnev kynni að koma til Washington þeirra erinda. „Ad pessu sinni held é að félagi Teng hafi gengið einum of langt“. Þétta gerðist 19. janúar 1961—Embættistaka John F. Kennedys, 35. forseta Banda- ríkjanna og hins fjórða sem var ráðinn af dögum. 1936 — Georg V konungur Stóra Bretlands andast. 1926 — Landkönnuðurinn Charles Doughty andast. 1811 — Kínverjar láta Hong Kong af hendi við Breta (stað- fest með samningi einu ári síðar). 1612 — Rudolf II keisari Hins heilaga rómverska ríkis andast. Innlent: F. Benedikt Sveinsson 1826. — Englendingum heimilað að sigla til Islands til verzlunar samkvæmt samningi við Dani 1490. — D. Jörundur Jörundar- son 1841. — Stefán Stefánsson skólameistari 1921. — Pétur Jónsson ráöherra frá Gautlönd- um 1922. — F. Hálfdan Einars- son 1732. — Formaður Verka- lýðsfélags Keflavíkur tekinn með vaidi um nótt og fluttur til Reykjavíkur 1932. — Sorpbíll ekur á Snarfaxa 1972. Orð dagsins: Þungiyndislegasta tilhugsun manna er ef til vill sú, að yfirleitt má spyrja, hvort góðvild mannsins hafi fremur illt í för með sér en gott. — Walter Bagehot, enskur blaða- maður — hagfræðingur (1826-1877). Kína kaupir hveiti Peking, 19. janúar. Reuter. KÍNVERJAR hafa ákveðið að kaupa 2,5 milljónir smá- lesta af hveiti af Ástralíu- mönnum á þessu ári, að sögn áreiðanlegra heimilda. Kín- verjar greiða því sem næst heimsmarkaðsverð fyrir þetta hveiti. Sendinefnd frá hveitirækt- arsambandi Ástralíu er nú í Peking þar sem viðræður um langtíma hveitisölu Ástralíu til Kína fara fram. Skýrt hefur verið frá því að Höfudpaur látinn laus Washington, 19. janúar. Reuter. JOIIN Mitchell fyrrverandi dóms- málaráðherra Bandaríkjanna. sem var einn af höfuðpaurunum í Watergate-hneykslinu verður lát- inn laus úr haidi í dag. Þá situr enginn höfuðpauranna í málinu lengur í fangelsi. Mitchell, sem er 65 ára, var æðsti maðurinn í stjórn Richards Nixons, fyrrum Bandaríkjaforseta, sem settur var inn vegna Water- gatemálsins. Samkvæmt fregnum er búizt við því að Mitchell haldi strax til Washington, en þar hyggst hann byrja nýtt líf, og m.a. ganga í það heilaga. Alls voru 25 manns dæmdir til fangelsisvistar vegna Watergate- málsins. Aðeins tveir þeirra hlutu lengri dóm en Mitchell sem setið hefur inni í 19 mánuði. Sonur Gandhi handtekinn Nýja Delhi, 19. jan. AP SANJAY Gandhi yngsti sonur Indiru Gandhi fyrrverandi for- sætisráðherra Indlands var í morgun handtekinn vegna þess að hann mætti ekki til yfir- heyrslu fyrir rétti s.l. föstudag að því er fréttir frá Nýju Delhi herma í dag. Þetta er í þriðja skipti á einu ári sem Sanjay er handtekinn en í maí s.l. var hann dæmdur til fangelsunar af hæstarétti fyrir að bera ljúgvitni. kínversk sendinefnd fari í næsta mánuði til Kanada til að semja um hveitikaup af Kanadamönnum. Þá skýrði fréttastofan Nýja Kína frá því í dag að Kínverjar hefðu ákveðið að endurbyggja höfnina í Shanghai þannig að höfnin jafnist á við fullkomnustu vöruflutningahafnir innan þriggja ára. Reikna Kínverj- ar með að á næsta ári fari rúmlega 100 tonn af vörum um höfnina og um 150 millj- ónir tonna árið 1985. Til samanburðar má geta þess að á síðasta ári fóru 25,2 millj- ónir tonna af vörum um höfnina í Hong Kong og árið 1975 var allur vöruflutningur á öllum brezkum höfnum um 220 milljónir tonna. ERLENT Járnbrautar- slys á Spáni Valencia, Spáni, 14. janúar Reuter. ÓTTAST er að minnsta kosti fimm hafi farizt og fjöldi særst í árekstri farþegalestar og flutningalestar í nágrenni Valencia í dag. Þetta er fjórða járnbrautarslysið á Spáni á rúmum mánuði og hafa menn farizt í öllum tilvikum. Veður víða um heim Akureyri 2 alskýjað Amsterdam -3 skýjaó Apena 14 heiöskírt Berlín -3 skýjaó BrUssel -3 skýjað Chicago -6 léttskýjað Frankfurt -3 heiöskírt Genf 1 skýjaó Jerúsalem 13 mistur Jóhannesarborg 23 skýjaó Kaupmannahöfn 0 skýjað Lissabon 15 rigning Los Angeles 14 heiðskírt Madrid 13 skýjaó Miami 23 léttskýjað Moskva -5 skýjað New York 1 heiðskírt Ósló 1 skýjaö París 4 skýjað Hio De Jan. 29 léttskýjað Rómaborg 2 léttskýjað Stokkhólmur -4 skýjað Tel Aviv 17 mistur Tókýó 7 heiðskirt Vancouver 4 skýjað Vínarborg -5 heiðskírt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.