Morgunblaðið - 20.01.1979, Page 23

Morgunblaðið - 20.01.1979, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANUAR 1979 23 Bob Dylan Helstu fréttir úr bresku popppressunni PLATA ársins 1978 hjá Melody Maker var „This Year's Model" meö Elvis Costello. Costello hefur nú gefið út nýja plötu sem heitir „Armed Porces". Plata ársins hjá Sounds var „Give Em Enough Rope“ með Clash ... Elton John hyggst snúa sér að hljómleikahaldi á ný eftir eins og hálfs árs hlé. í febrúar hefjast- Evrópuhljómleikar hjá honum, en eini aðstoðarmaður hans að þessu sinni er Ray Cooper, slagverksmaður... Keith Richard slapp naumlega út úr brennandi húsi sínu í Los Angeles rétt fyrir jólin. Brann inni mest af skartgripasafni gítarleikarans. Richard er annars á leiðinni með sína fyrstu sóló- plötu, en lítil plata kom út með honum fyrir jól: „Run Rudolph Run“/ „The Harder They Come“ ... Boney M héldu hljómleika í Rússlandi í byrjun desember og fram undir jól við mjög góðar undirtektir og var uppselt löngu áður en þau komu þangað. Hljómleikaplata Bob Dylan „Live At The Budokon" sem Japanir gáfu út selst í Bretlandi nú fyrir 15 pund eða um 18 þúsund krónur með venjulegri skattálagn- ingu hérlendis, og þykir nokkuð mikið verð fyrir 2 plötur ... George Harrison er á leiðinni með nýja plötu sem heitir „Faster" og er boðað að hún verði hressilegri en fyrri plötur hans ... Debbie Harry, söngkona Blondie, og Robert Fripp fyrrum konungur King Crimson eru aðal- leikendur í væntanlegri spæjara- mynd „Alphaville" ... Doomed hafa breytt nafninu í Damned á ný. I hljómsveitinni eru Dave Vanian, Rat Scabies, Cap- tain Sensible og Alistair Ward ... Væntanlegar eru plötur frá Bad Company, Wings, Pink Floyd, Graham Parker, Gerry Rafferty, Roxy Music, Patti Smith, Super- tramp (Breakfast In America), Stevie Wonder (The Secret Life Of Plants), og Stranglers (Live)... Þess má líka geta að Jefferson Starship virðist enn vera við lýði, þar sem tilkynning kom um nýjan trommuleikara í stað John Bar- bata, Aynsley Dunbar ... Önnur hljómsveit frá sjöunda áratugnum virðist hafa vaknað til lífsins, Byrds. Þó þeir leiki ekki undir því nafni enn, er hljómsveit- in, sem er skipuð Roger McGuinn, Chris Hillman og Gene Clark, á hljómleikum í Nýja Sjálandi. Auk þeirra er í hljómsveitinni George Grantham fyrrum trymbill Poco... Vinsœldalistarnir LOKSINS er Ian Dury orðinn alvöruvinsæll en hann er kominn í fyrsta sætið í Bretlandi. Ian Dury hefur verið að; reyna að berjast til vinsælda síðastliðin 5 ár fyrst meðr hljómsveitinni Kilburn & The Highroads og síðan einn. Líklegustu lögin til að ná fyrsta sæti á eftir honum eru „September“ frá Earth Wind & Fire sem er í 4. sæti og nýtt lag „One Nation Under A Groove“ með Funkadelic sem er í 10. sæti. Bandaríski listinn breytist lítið eins og oft áður og eina lagið sem má búast við að hækki er „A Little More Love“ frá Olivíu Newton-John. Annars er hann fremur einhæfur og lögin flest líflaus. L0ND0N 1. (2) Hit Me With Your Rhythm Stick lan Dury 2. (1) Y.M.C.A. 3. (3) Song For Guy 4. (7) September 5. (4) Lay Your Love On Me 6. (5) La Freak 7. (-) Hello This Is Joanne v 8. (8) A Little More Love 9. (10) Pm Every Woman 10. (-) One Nation Under A Groove Village People Elton John Earth Wind & Fire Racey Chic Paul Evans Olivia Newton-John Chaka Khan Funkadelic BANDARÍKIN 1. (1) Le Freak 2. (2) Too Much Heaven 3. (3) My Life 4. (4) Y.M.C.A. 5. (6) Hold The Line 6. (7) September 7. (8) Ooh Baby Baby 8. (4) You Don't Bring Me No Flowers 9. (-) A Little More Love 10. (-) Every l‘s A Winner Chic Bee Gees Billy Joel Village People Toto Earth Wind & Fire Linda Ronstadt Barbara Streisand & Neil Diamond Olivia Newton-John Hot Chocolate Valgerður Sigurbergs- dóttir Kirkjuferju- hjáleigu — Minning Valgerður var fædd 23. júní 1901 í Fjósakoti í Meðallandi. Hún lést í Landspítalanum 9. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Sigur- bergur Einarsson og Árný Eiríks- dóttir. Þau eignuðust 13 börn. Á lífi eru fjórar systur og tveir bræður. Móðir Árnýjar var Halldóra Árnadóttir Hjörleifssonar læknis, faðir hennar var Eiríkur Einars- son í Rofabæ. Móðir Sigurbergs var Hólmfríður Sigurðardóttir frá Fagurhólsmýri í Öræfum, faðir Einar Magnússon á Orustustöðum, kona Magnúsar á Orustustöðum var Ingibjörg Gísladóttir Þor- steinssonar á Geirlandi. Lengra er hægt að rekja ættartölu þessarar merku konu eða allt til 1655. Valgerður var í föðurhúsum til 20 ára aldurs, þá fór hún til Reykjavíkur í atvinnuleit. Þar dvaldi hún í fá ár, í Ölfusi bjó hún meiri hluta ævi sinnar. I Reykja- vík kynnist Valgerður unnusta sínum Guðjóni Jónssyni frá Gilj- um í Mýrdal. Hann fórst með togaranum Reykjaborg sem skot- inn var niður í mars 1941. Þau Valgerður eignuðust einn son, Sigurð Gísla, er hann einkabarn þeirra. Sigurður er giftur Hrefnu Guðmundsdóttur frá Blesastöðum og eiga þau sex syni: Björn sem er giftur Ragnheiði Sigurðardóttur, þau eiga tvö börn; Guðjón sem er giftur Veru Valgarðsdóttur og eiga þau tvö börn; í heimahúsum eru þeir Guðmundur, Atli Már, Valur og Kristján, allir við nám. Skömmu eftir að Valgerður flyst í Ölfusið giftist hún Birni Sigurðs- syni frá Króki, þeim ágæta manni, sem kom Sigurði syni Valgerðar í föður stað. Ég vil þakka þeim hjónum, fyrir þá hjálp sem þau veittu móður minni við fráfall föður míns og síðar í uppvexti okkar systkinanna. Kynni mín af Valgerði frænku minni eru allt frá því að ég man fyrst eftir mér. Eftir því sem lengra líður fylla minningarnar betur upp þá mynd sem ég á í huga mínum af góðri konu, sem var eðlisgreind og víðsýn. Lítið atvik frá bernsku langar mig að rifja upp sem skýrir nokkuð hvers vegna börn og aðrir sem minna máttu sín hændust frekar að henni en öðrum. Ég hef verið 5—6 ára gamall, en þá var Valgerður á heimili foreldra minna með son sinn. Systkini mín voru á ýmsum aldri. Einhvern veginn hafði ég komist yfir boga og örvar. Þessi ágæta íþrótt tók hug minn allan og skaut ég í tíma og ótíma, þó var verst á inniteppudögum, þá var boginn tekinn af skyttunni sem brá við hart. Frænka mín kunni ráð sem dugði; hún leiddi mig til herbergis sem lítið var notað, fékk mér bogann og örvarnar, benti mér á þiljurnar alsettar kvistum sem ég skildi reyna að hitta, þegar ég væri orðinn þreyttur þá skyldi ég geyma bogann upp á hillu þar sem litlu krakkarnir næðu ekki til hans. Ég var orðinn eldri þegar ég skynjaði lagni frænku minnar. Svona var hún, allt var til góðs sem hún lagði hönd að. Valgerður bjóst vel við dauða sínum. Þegar hún var flutt frá heimili sínu á Landspítalann sagðist hún ekki mundu eiga afturkvæmt. Hún lést 9. janúar. Fyrst í desember heimsótti ég hana á sjúkrahúsið, þá sagðist hún óska þess að geta kvatt piltana sína áður en yfir lyki, en tveir af sonarsonum hennar voru við nám erlendis og ætluðu þeir að koma heim í jólaleyfi. Hún lifði það að sjá þá og kveðja. Ég þakka þá gæfu að hafa átt Valgerði að frænku. Guð blessi fjölskyldu hennar. Aðalsteinn Steindórsson. Gott er sjúkum að sofna. meðan sólin er aftanrjóð, ok mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vöKguIjóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin f djúpinu er. og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sér. D.St. Margs er að minnast, er við kveðjum Valgerði Sigurbergsdótt- ur, Kirkjuferjuhjáleigu, Ölfusi. Hún verður jarðsungin frá Kot- strandarkirkju í dag 20. janúar. Valgerður lést í Landspítalanum 9. þessa mánaðar, eftir rúmlega tveggja mánaða legu. Allt var gert, sem hægt var til hjálpar, en kallið var komið. Mikið var hún þakklát fyrir alla þá hjálp, sem henni var veitt á sjúkrahúsinu og henni gefin mikil sálarró og andlegur styrkur í baráttunni við að skila lífinu, lífinu er henni var gefið í þennan heim, hinn 23. júní 1901. Ég man Völu frænku frá því að ég var barn að aldri og ég man hana unga ög glæsilega stúlku og áfram til hins síðasta. Kynni okkar hafa spannað rúma hálfa öld. Alla tíð var hún mér mikil og góð frænka og einnig okkur öllum Steindórsbörnunum, eins og hún kallaði okkur oft. Halldóra systir mín ólst að miklu leyti upp hjá henni. Þó við tvær dveldum mest á hennar heimili þá voru hin syst- kini mín oft á tíðum þar líka. Verður henni aldrei fullþökkuð sú ást og virðing er hún sýndi bróður sínum látnum, með að reynast konu hans og börnum vel og var alla tíð góð vinátta með mömmu og Völu meðan báðar lifðu. Vala eignaðist eitt barn, Sigurð Gísla, f. 21. nóv. 1924 og byrjaði þá lífsbaráttan fyrir alvöru. Það þykir erfitt í dag að vera einstætt foreldri og efa ég það ekki, en í þá daga þurfti meira en meðal- mennsku til. En lífið hjá Völu tók breyting- um. Hún eignaðist góðan mann er hún gekk að eiga Björn Sigurðsson frá Króki í Arnarbælishverfi. Voru þau gefin saman í Kot- strandarkirkju 28. október 1928. Hann andaðist 19. ágúst 1968. Sonurinn ólst upp hjá þeim og hafði Bjössi mikið dálæti á honum. Þau byrjuðu að búa að Borgarkoti (nú Ingólfshvoll) í Ölfusi og bjuggu.þar í 2 ár, en flytjast þá að Nýjabæ í Arnarbælishverfi og eru þar til ársins 1949, er þau fá Kirkjuferjuhjáleigu til ábúðar og eru þar upp frá því. Vala var góð húsmóðir og held ég að öllum hafi liðið vel hjá þeim hjónum og hafði húsbóndinn góð áhrif á mannskap- inn með sinni léttu lund. Oft var gott að vakna á sunnudagsmorgn- um er Vala gaf mjólk og pönnu- kökur. Taldi hún ekki eftir sér að fara snemma niður til að baka ofan í mannskapinn. Þannig var Vala frænka. Þær hefðu verið fljótar að fyllast skjólurnar henn- ar, ef unnið hefði verið í uppmæl- ingu eða bónus, eða hvað það er nú allt saman. Hún var afburða dugleg kona, trygg og vinföst. Arið 1937 flytjast til þeirra að Nýjabæ foreldrar Völu, Árný og Sigurbergur, og dvöldu með þeim til dauðadags. Einnig flyst til þeirra Júlía systir Völu og er hún búin að annast heimilið ásamt systur sinni hátt í 30 ár. Er nú skarð fyrir skildi hjá Júllu minni og votta ég henni sérstaklega samúð mína. Milli föðursystkina minna hefur alla tíð verið mikil tryggð og vinátta enda þau öll gott fólk og vinfast. Þykir mér trúlegt að þar hafi komið til arfur úr foreldra- húsum eftir mínum kynnum af afa og ömmu. Vala fékk þá ánægju að fylgjast með syninum og hans ágætu konu Hrefnu Guðmundsdóttur og son- um þeirra 6 öllum góðum og mannvænlegum og litlu barna- barnabörnin farin að halla sér að langömmu. Eitt barnabarnið, Guð- jón hefur alist upp hjá afa og ömmu og Júlíu. Við þessi þáttaskil vottum við honum samúð okkar fjölskyldunnar. Það væri hægt að tala um svo margt er gerst hefur í sambandi við Nýjabæjarheimilið og margir unglingar dvöldu hjá þeim hjónum yfir sumartíma. Eitt nafn vil ég nefna sérstaklega, Halldór Sig- urðsson, er ilengdist þar um árabil og var Völu alltaf hlýtt til hans. Hrefnu minni og Didda, börnum þeirra og systkinum Völu og öðrum vandamönnum votta ég samúð mína. Við hvert og eitt í fjölskyldunni söknum innilega elsku Völu frænku, en gleðjumst, því hún er gengin á Guðs sins fund. Guðríður Steindórsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.