Morgunblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979
Engin verkföll
flugmanna í dag
A SATTAFUNDI flug-
manna og fulltrúa Flug-
leiða með sáttanefnd í gær
var lögð fram sáttatillaga
til lausnar deilunni og þeg-
ar Mbl. hafði tal af Birni
Guðmundssyni. formanni
Félags ísl. atvinnuflug-
manna. skömmu fyrir
fundinn kvað hann búið
vera að aflýsa aðgerðum í
dag.
— Við eigum von á sáttatillögu,
sagði Björn, og okkur finnst
ástæðulaust að standa í aðgerðum
meðan við ræðum hana á fundi
okkar sem ég geri ráð fyrir að
verði á fimmtudag og komi þá
e.t.v. til atkvæðagreiðslu um hana.
Fundur sáttanefndar hófst kl. 22
í gærkvöldi og tókst ekki að afla
nánari frétta af fundinum áður en
Mbl. fór í prentun.
31skipmeð
12.590tonn
S.EMILEGA gaf til loðnuveiða Arnarnes 220, Albert 570, Huginn
aðfararnótt miðvikudags og til- 540, Jón Finnsson 520, Magnús 510,
Ljósm. Mbl. RAX.
Flugvél þessi varð að nauðlenda á Reykjavíkurflugvelli á þriðjudag er annar hreyfill hennar missti
afl. Ekki urðu slys á þeim tveimur sem með henni voru og vélin er ekki mjög mikið skemmd.
kynnti 31 skip afla frá miðnætti
til kl. tæplega 23 í gærkvöldi.
Hafði aflinn fengist á miðunum
út af Faxaflóa og var samtals
12.590 lestir. Veiðibanninu úti
fyrir Suðurlandi verður ekki
aflétt.
Hrafn 620, Guðmundur 450,
Keflvíkingur 450, Fífill 210,
Sigurður 1200 Hilmir 510, Sæbjörg
450, Pétur Jónsson 450, Bjarni
Ólafsson 700, Örn 500 Seley 300,
Skírnir 420, Bergur II 250, Stapa-
vík 450, Víkurberg 150, Hafrún
460, Börkur 570, Oli Óskars 500,
ísleifur 300, Arney 30, Súlan 300,
Vonin 600, Gjafar 290, Freyja 50,
Víkingur 500, Helga II 160.
Beðið eftir Ólafi
Plötusnúð-
ur keppir
við Mickie
PLÖTUSNÚÐURINN John Lewis
hóf í síðustu viku tilraun til þess
að setja heimsmet í plötusnún-
ingi. John starfar nú á diskóteki
rétt við Frankfurt í Þýskalandi
en hann hefur tvívegis starfað
sem plötusnúður á Óðali í Reykja-
vík. Síðast liðið sumar er John
starfaði hér gekk hann m.a. til
Keflavíkur til þess að safna fé
fyrir sundlaug við Kópavogshæl-
ið.
John hefur sagt, að hann ætli að
sigra Miekie hversu Iengi sem
hann þarf að spila plötur til þess.
Hann hefur í byrjun sett sér það
markmið að spila plötur í 1600
klukkustundir en segist verða
lengur ef nauðsyn krefst. Mickie
sagðist í gær vera hálft í hvoru
vonsvikinn vegna þessa uppátækis
ÞESS ER nú vænzt undir
helgina, að Ólafur
Jóhannesson, forsætisráð-
herra, leggi fram endur-
skoðað frumvarp sitt um
efnahagsmál og bíða
stjórnarsinnar nú spenntir
eftir því að sjá, hvað í því
John Lewis, hann ætlar sér að
sigra Mickie.
Johns en það hefði orðið til þess að
hann hefur ákveðið að hætta ekki
að spila plötur eftir 1200 klukku-
tíma eins og hann ætlaði sér í
upphafi. Mickie mun nú hafa
ákveðið að vera að alla vega fram
að næstu mánaðamótum en n.k.
mánudag kl. 3 slær Mickie núver-
andi heimsmet í plötusnúningi.
r
Utseld vinna
hækkar um
6,9%
AFGREIDD hefur verið frá
embætti verðlagsstjóra
hækkun á útseldri vinnu
iðnaðarmanna og verkstæða.
Nemur hækkunin er vcrðlags-
nefnd samþykkti 6,9%, en hún
á eftir að fara fyrir fund
ríkisstjórnarinnar til staðfest-
ingar. Nokkur mál liggja fyrir
verðlagsnefnd til umfjöllunar
og verður í næstu viku önnur
umræða um hækkaða
verzlunarálagningu.
felst. Munu alþýðuflokks-
menn hafa látið að því
liggja að þeir drægju sig
úr stjórninni um helgina,
ef frumvarpið yrði ekki
komið fram þá. Sagði Bene-
dikt Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins, þetta
m.a. í útvarpsumræðu í
fyrrakvöld, kvað tímann
þrotinn, en annað hvort
yrði samkomulag eða sam-
starfsslit.
Lítið var að gerast í gær,
utan það að þingmenn
ræddu á Alþingi þings-
ályktunartillögu Sjálf-
stæðisflokksins um þingrof
og nýjar kosningar. Hins
vegar biðu menn eftir því,
hvað fram kæmi frá Ólafi,
en talið er að hann leggi ekki
fram frumvarp sitt fyrr en
lyktir þingsályktunartil-
lögunnar liggja fyrir. „Menn
eru bara sona að voma yfir
þessu og vita í raun ekki
hvað þeir eiga að gera,“
sagði einn þingmanna
Alþýðuflokksins í gær, og
hann bætti við: „Það er beðið
eftir leiðtoganum mikla, en
enginn veit hvað hann ger-
ír.
Ólafur Jóhannesson sást
ekki mikið í þingsölum í gær.
Hann sótti þingfund við
upphaf hans, en hvarf síðan
á braut. Þá var og Benedikt
Gröndal heldur ekki í þing-
inu síðari hluta dags í gær.
Matthías Á. Mathiesen:
„Lögregluríki” Olafs
á rætur að rekja til
ráðherratiðar Eysteins
Matthías Á. Mathiesen, fyrrverandi fjármála-
ráðherra, gerði sérstaklega að umtalsefni í þingrofs-
umræðum í gær ummæli ólafs Jóhannessonar um
skattalögin, sem sett voru í tíð fyrrverandi ríkis-
stjórnar. Forsætisráðherra hefur nú tvívegis gagn-
rýnt þessi lög.
I sjónvarpsþætti fyrir
skömmu sanöi hann að um 44.
o« 45. gr. laganna geröi það að
verkum, að ísland nálgaðist það
að vera löjíreiíluríki og í út-
varpsumræðum í fyrrakvöld
endurtók ráðherrann þetta og
vísaði nú til 94. greinar gildandi
skattalaga. Matthías Á.
Mathiesen benti á, að grein
þessi væri efnislega samhljóða
greinum í skattalögunum frá
1971 og ætti rætur að rekja til
skattalaga, sem sett voru í
fjármálaráðherratíð Eysteins
Jónssonar 1954.
Lárus Jónsson gerði þessi
ummæli forsætisráðherra
einnig að umtalsefni í gær og
kvaðst líta á það sem alvarlegan
hlut, að Ólafur Jóhannesson
hefði sl. vor sem dómsmála-
ráðherra lyft hendi til þess að
greiða atkvæði með lögum, sem
hann teldi gera ísland að lög-
regluríki.
Einkennilegt er að heyra for-
sætisráðherra tala um nýju
skattalögin og lögregluríki í
sömu andrá, sagði Matthías Á.
Mathicsen. Minnti hann á að
lögin voru samþykkt samhljóða
á Alþingi í fyrra, og að þau væru
í þeim greinupn er Ólafur
Jóhannesson nefndi, nær sam-
hljóða lögum frá 1971, auk þess
sem þau væru í meginatriðum
byggö á lögum allt frá þeim
tíma er Eysteinn Jónsson var
fj ármálaráðherra.
Matthías sagði sem fyrr segir,
að lögin í fyrra hafi verið sam-
þykkt samhljóða frá efri deild
Alþingis sem lög. Áður hafi þau
fengið óvenjulega vandaða
meðferð hjá þingmönnum sem
hafi grandskoðað þau og rætt
fram og aftur þar til samstaða
náðist. Varðandi 94. grein lag-
anna, sem forsætisráðherra
gagnrýndi, þá sagðist þing-
maðurinn vilja upplýsa það, að
sú grein væri nær alveg sam-
hljóða greinum í skattalögunum
frá 1971. Þau lög hafi fram-
sóknarmenn að vísu ekki sett, en
þeir hafi heldur ekki haft uppi
neina tilburði í þá átt að breyta
þeim er þeir komust til valda þá
skömmu síðar. Afhenti
Matthías forsætisráðherra bæði
þessi lög er hann lauk ræðu
sinni, til þess eins og hann sagði,
að ráðherrann gæti sjálfur
rannsakað þau og komist að því
af eigin raun hve lík þau væru í
þeim atriðum ,er Ólafur gagn-
rýndi einkum í ræðu sinni dag-
inn áður.
Matthías sagði einnig, að
þeim, sem ræddu um lögreglu-
ríki í sambandi við skatta, væri
hollt að lesa þann hluta núver-
andi stjórnarsáttmála, er fjall-
aði um hert skattaeftirlit og
strangari viðurlög, eignakönnun
og fleira í þeim dúr, og nú væri
veitt á fjárlögum 75 milljónum
króna til þess eins að fara ofan í
skattaframtöl fólks.
Sjá ennfremur 1978 - 1971 -
1954 á bls. 20.
Átti að fá við-
urkenningu
fyrir öruggan
akstur en lenti
í árekstri
ÖKUMAÐUR í Reykjavík sem
var á leið til að taka við
viðurkenningu Samvinnu-
trygginga í gærkvöldi fyrir 10
ára öruggan akstur, varð fyrir
því óhappi. að ekið var aftan á
bfl hans. Var það á Hring-
braut á gatnamótum hennar
og Njarðargötu. en hann hafði
staðnæmst á rauðu Ijósi cr bfll
rann aftan á hann. Ökumaður-
inn sagði að glerhált hefði
verið á þessum stað, en
skemmdir hefðu ekki orðið
miklar á bfl hans.
— Þessi töf varð þó til þess,
að ég náði ekki í athöfnina þar
sem afhenda átti nokkrum öku-
mönnum viðurkenningu fyrir
10 ára akstur, sagði ökumaður-
inn í samtali við Mbl. í gær-
kvöldi, og er ég nokkuð súr yfir
því, en fæ hana vonandi bara
senda i pósti eins og þegar ég
fékk 5 ára viðurkenningu.
Ökumaðurinn kvaðst vona, að
áreksturinn rændi hann ekki
viðurkenningunni þar eð hann
teldi sig í 100% rétti.
Tap hjá Frið-
rik og Spassky
NÍUNDA umferð skákmótsins í
Miinchen var tefld í ga*r og tapaði
Spassky þá fyrir Vestur-Þjóðverj-
anum Harald Lieb. Friðrik tapaði
fyrir Pfeger sem er einnig Vest-
ur-Þjóðverji og Guðmundur tap-
aði fyrir Austurríkismanninum
Robatsch.
Eftir 9 umferðir er Spassky með
6 vinninga, Anderson með 5Vfe,
Húbner með 5 og Friðrik og
Pachman með 4V2. Guðmundur er
með 2 V2. Tíunda umferð er tefld í
dag og á morgun verður frí.