Morgunblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979 BRIDGE Umsjón: Pgll Bergsson Úrspilaæfins vikunnar er af léttara taginu. I>ó ekki svo, að þeir. sem telja sík tilheyra hópi reyndari spilara þurfi að skamm- ast sín fyrir að spreyta sír á slíku verkefni. Vestur gjafari, allir utan haettu. Norður S. KG5 H. D743 T. G64 L. Á98 Suður S. ÁDIO H. KG1098 T. 52 L. KG6 Sagnir hafa gengið þannig: COSPER Við veröum örugglega vör við það ef Lilli dettur út úr vöggunni! Athyglisverð kvikmynd Kæri Velvakandi. Um þessar mundir er verið að sýna mjög athyglisverða kvik- mynd „Allice býr hér ekki lengur" í Austurbæjarbíói. Ég vil hvetja sem flesta til þess að sjá þessa mynd. Hún lýsir á manneskjulegan og trúverðugan hátt lífi og baráttu konu sem verður skyndilega ekkja og þarf að standa á eigin fótum og sjá fyrir sér og ungum syni. Við slíkar aðstæður standa konur e.t.v. frammi fyrir raunverulegri stöðu sinni skynja sjálfa sig betur en áður og hvernig þjóðfélagið lítur á þær. Þetta er saga margra, en vegna hins einhliða, strangt afmarkaða „hlutverks" kvenna, þ.e. sem móð- ur og eiginkonu (aðeins í þessu samhengi NB) verða vandamálin þeim mun erfiðari þegar þær detta út úr því hlutverki. Þessi mynd minnir á það á hressilegan hátt, að nútímakonur hafa engan veginn í huga að bregðast börnum sínum og fjöl- skyldum, — þær ætla einungis að hafa eigin markmið með inni í myndinni, hvort sem þær róa einar á báti ellegar þegar þær ásamt fjölskyldum sínum setja sér sameiginleg markmið. Þakklátur bíógestur. • Hlutverk leikhúsa Það var í leikhúsþætti hér á dögunum að spurt var um hvernig staðið væri að því að velja leikrit. Þessu var lýst vel af hálfu Þjóð- leikhússins og eins Iðnó. Forstöðu- kona Alþýðuleikhússins sagði bara að þau sýndu ekkert nema áróður á vestrænt lýðræði því það skyldi feigt. Hér var gengið hreint til verks. Allur áróður er tvíeggja og sérstaklega ef hann er sósíalískur. Hvað mörg heljarst.ökk hafa ekki sósíalistarnir orðið að taka sbr. menningarbyltinguna í Kína og Lysenkow sem nærri var búinn að eyðileggja landbúnaðinn í Rúss- landi. Smjörfjallið okkar væri ekki hálft ef kýrnar mjólkuðu ekki nema 700—1000 lítra á ári eins og þær gerðu eftir uppskriftabók Lysenkows. Mál og menning tók hann auðvitað upp á sína arma. Það er líka fróðlegt að blaða í þeirri Vestur 1 Tígull pass allir pass. NorAur pass 3 Hjörtu Austur pass pass Suður 1 Hjarta 4 Hjörtu Suður er þannig sagnhafi í fjórum hjörtum og vestur spilar tíglunum. Tekur á ás, kóng og spilar drottningunni, sem þú trompar og spilar trompgosa. Vestur lætur sexið, þristur, ás og austur spilar aftur trompi. Vestur lætur þá tígul og þá er komið að þér. Hvernig hagar þú framhald- inu? Auðvitað byrjar þú á að taka síðasta trompið af austri. En síðan þarf að staðsetja laufdrottning- una. Getur verið, að hún sé á hendi austurs? Nei, mjög ósennilegt. Hann sagði pass við opnun félaga síns og að auki verður að gera ráð fyrir fleiri háspilum en þrem hæstu tíglunum á hendi vesturs. Vestur Austur S. 9742 S. 863 H. 6 H. Á52 T. ÁKD98 T. 1073 L. D74 L. 10532 Þá er þetta ljóst. Laufunum þarf að spila frá hendinni og við gætum þess, að spila fyrst gosanum með í huga að láta hann fara hringinn. En vestur leggur drottninguna eflaust á og þá má svína fyrir tíuna. [„Fjólur — mín ljúfa“ Framhaldssaga eftir Else Fischer Jóhanna Kristjónsdóttir Þýddi 78 tautaði Martin. — Það er engin forsenda ... Það er engin ... Hann þagnaði. — Kannski við nálgumst lausnina þegar við komumst yfir fórnarkrúsina, sagði Bernild og beygði inn t heim- reiðina að kránni. 17. kafli Ef Susanne hafði vonað að æðislegur flótti hennar myndi bera hana nær þjóðveginum, varð hún nú fyrir vonbrigðum, þegar hún kom að rjóðri og sá blasa við sjónum Eikarmosabæ. Hún starði örvæntingarfull í áttina að húsinu, sem var dökkt og drungalegt að sjá þrátt fyrir upplýsta glugga. Að baki henni einhvers staðar í myrkr- inu var Martin og skammt undan var fjölskylda Martins — en þau gátu ekki öll verið vitorðsmenn og hvernig sem á málin var litið varð hún alténd að ná í Bernild hið skjótasta og Bernild var á Eikarmosabæ. Henni var þungt fyrir hrjósti cr hún gekk í áttina að húsinu og þó var hún þakklát fyrir að björgun skyldi vera svo innan seilingar. Hún vissi að hún hafði farið svo hratt yfir að Martin hafði varla getað fylgt henni. en samt sem áður leit hún sýknt og heilagt um öxl og hjartað barðist ákaft í brjósti hennar. Við hræðsluna bættist nú einnig sú hugsun að það var hún sem hlaut að dæma hann. Það gat enginn efi verið leng- ur: það hlaut að hafa verið Martin sem hafði slegið hana niður í skóginum og ef svo hafði verið þá lá einnig ljóst fyrir að sá hinn sami Martin hafði einnig myrt Einar Einarsen... og hvað með pen- ingana? Alla pcninga Einars Einarsens? Martin hlaut að hafa tekið þá og komið þeim svo áleiðis til Hermans frænda. Martin hlaut að vera miður sín af heift og tryllingi vegna þess að Einar hafði ætlað að svipta hann h'fsafkomu hans og fjöl- skylda Martins hlaut að vera jafn æst í að fá Mosahax). Hún sá Mögnu frænku fyrir sér, þriflega og glaðlega, og Herman fra-nda. Þau gátu ekki hafa vitað neitt. Það var ómögulegt að þau væru öll fla*kt í málið, en líklega höfðu þau einhvern grun um að eitt- hvað væri að, eftir að Martin hafði látið þau fá alla þessa peninga. Hægum skrefum gekk Susannc upp tröppurnar. Gamla klukkan i horninu sýndi að hún hafði verið f burtu f hálfa aðra klukkustund en sjálfri fannst henni það hafa verið heil eilífð. Stundin var nú komin, hún varð að ganga á fund Bernilds og segja honum að maðurinn sem hún hafði elskað væri viðurstyggilegur morðingi en þegar hún var nú komin inn í öryggið fór hún að reyna að íinna skýringar og afsakanir. Ilann hlaut að hafa keyrt Einar Einarsen niður fyrir slysni. Martin gat ckki hafa drcpið mann með köldu blóði. Þegar hann sá svo hvað hann hafði gert og hvcr maðurinn var scm hann hafði ekið niður og orðið að bana hafði hann fyllzt örvæntingu og hann hafði ílutt líkið á brott. Hún hafði heyrt um að fólk væri gripið slíkri skelfingu og bezta fólk gat lent í því og brugðist við eins og það væri viti firrt. Hvað viðkom peningunum þá gat Martin ekki hafa tekið þá í auðgunarskyni. Liklega hafði hann tekið þá til þess að reyna að láta þetta líta út eins og... eins og hvað? Susanne nam staðar í þankagang sfnum. Ef þetta átti að líta út sem auðg- unarbrot, þá var engin ástæða til þess að setja þetta á svið svo að menn héldu það væri bflslys og þá var heldur engin ástæða til þess að hafa peningana á brott mcð sér. Hún sá aftur Martin fyrir sér eins og hann hafði staðið að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.