Morgunblaðið - 08.03.1979, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979
Frá bladamanni Morgunbladsins, Sigtryggi Sigtryggssyni í Kaupmannahöfn
Réttargœzlumaður Islendinganna:
Málið ekki eins stórt
og lögreglan telur
Telur að íslendingarnir fái ekki þunga dóma
Kaupmannahöfn 7. marz —
„ÞAÐ ER skoðun mín að þetta mál sé ekki eins stórt og
lögreglan telur og að Islendingarnir fái því ekki stranga
dóma, ef það sannazt að þeir hafi haft fíkniefni undir
höndum,," sagði Henrik Kástrup-Larsen, réttargæzlu-
maður Islendinganna, þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins hitti hann að máli í skrifstofu hans í Skindegade 23,
en í þessu sama húsi eru einnig til húsa skrifstofur hins
fræga þingmanns og lögmanns Mogens Glistrup.
Kástrup-Larsen er ungur maður og býður af sér góðan
þokka og aðspurður um Glistrup kvað hann engin tengsl
milli skrifstofanna, þótt í sama húsi væru.
málinu. íslendingarnir hefðu allir
neitað að hafa staðið að dreifingu
á fíkniefnum og það gæti liðið
töluverður tími, þar til tækist að
upplýsa málið og þá myndi það
ganga fyrir dóm. „Þegar og ef
málið fer fyrir dóm, lýkur mínum
afskiptum af því, a.m.k. að hluta,
því að þótt íslendingarnir óskuðu
eftir því, að ég yrði verjandi þeirra
fyrir réttinum, gæti ég í hæsta
lagi tekið að mér tvö mál,“ sagði
Kástrup-Larsen. Hámarksrefsing
fyrir sölu og dreifingu kókaíns er 6
ár, en Kástrup-Larsen kvaðst gera
sér vonir um að íslendingarnir
slyppu með vægari refsingu í
þessu máli. „Ég ítreka það,“ sagði
hann, „að ég tel að þetta mál sé
miklu minna í sniðum en lögreglan
hefur talið og sumt af því fólki,
sem nú situr inni sé alveg sak-
laust.“
Samkvæmt dönskum lögum
verða Islendingarnir að afplána
refsingu sína í Danmörku, verði
þeir sakfelldir og dæmir í fangelsi,
en gæzluvarðhald dregst frá refs-
ingu. Ekki piun mögulegt að fá
undanþágu til þess að afplána dóm
á Islandi í máli sem þessu, að því
er Kástrup-Larsen upplýsti blaða-
mann Morgunblaðsins.
Kástrup-Larsen réttargæzlu-
maður sagði að lokum, að gæzlu-
varðhald sumra Islendinganna
rynni út á föstudagsmorguninn og
þá yrði fyrst að vænta nýrra
tíðinda frá lögreglunni. Þá myndi
skýrast, hvort fólkinu yrði sleppt
eða lögreglan óskaði að eitthvert
þeirra yrði áfram í gæzluvarð-
haldi.
flenrik KÁstrup-Larsen, réttargæzlumaöur íslendinganna, á skrif-
stofu sinni í Skindegade 23 í gær. Ljósm: SS
„Það er algjör tilviljun, að ég
skuli vera verjandi Islending-
anna,“ sagði Kástrup-Larsen.
„Kerfið hérna í Kaupmannahöfn
er þannig að við erum allmargir
lögfræðingar, sem dómstólar geta
leitað til, þegar upp koma saka-
mál. Ég var á vakt á laugardaginn,
þegar þetta tiltekna mál íslend-
ingánna kom upp og því var ég
skipaður verjandi þeirra. Ég var
að sjálfsögðu viðstaddur réttar-
höldin yfir þeim á laugardaginn og
síðan talaði ég við þau öll á
mánudaginn. Þá ræddi ég ekkert
um þetta meinta fíkniefnamái,
heldur aðeins um persónuleg mál,
sem leysa þurfti, svo sem hvar
ætti að koma fyrir börnunum
þremur. Á friðjudag var ég svo
viðstaddur yfirheyrslur yfir einni
íslenzku konunni, en henni var
síðan sleppt þennan sama dag.
Mitt hlutverk er fyrst og fremst að
gæta þess að farið sé með mál
skjólstæðinga minna að réttum
lögum og aðstoða þá ef með þarf.
Málið sjálft er á rannsóknarstigi
og ég skipti mér ekkert af því.“
Aðspurður sagði Henrik
Kástrup-Larsen að nokkur tími
gæti liðið áður en dómur gengi í
Lögreglan hefur stöðv-
að sölu á nukhimagni
Kaupmannahöfn, 7. marz
EINS og frá var skýrt í Morgun-
hlaðinu hefur danska fíkniefna-
lögreglan nú á skömmum tíma
stöðvað sölu á miklu magni fíkni-
efna. Stærsta málið varðar fíkni-
efnahring, sem smyglað hefur
hassi til Danmerkur að undan-
förnu, en lögreglan í París hand-
tók um síðustu helgi 44ra ára
gamlan brezkan arkitekt, sem
talinn er vera foringi þessa
hrings.
Samkvæmt upplýsingum, sem
franska lögreglan gefur, hefur
þessi hringur að undanförnu
smyglað 1,2 tonnum af hassi til
Danmerkur. í Álaborg fékk lög-
reglan nafnlausa upphringingu í
síma, sem leiddi til handtöku 53ja
ára útlendings, sem smyglað hafði
65 kg af marihuana til landsins í
afrískum styttum, og í Árósum
handtók lögreglan sjö menn, þar á
meðal fjóra forstjóra og einn
lækni, sem smyglað höfðu 40 kg af
hassi í sérbyggðri flugvél beint frá
Marokkó til Danmerkur.
Þetta fikniefnamál, sem íslend-
ingarnir eru bendlaðir við, er nú
dottið út sem sjálfstætt mál í
blöðum hér í Kaupmannahöfn.
Hins vegar eru fíkniefnamál mikið
til umræðu í blöðunum, þar sem á
einni viku hafa upplýsts 4 slík
stórmál. Alls hafa 25 manns verið
handteknir og er talið að andvirði
fíkniefna, sem komið hafi verið í
veg fyrir sölu á, sé um 200 milljón-
ir danskra króna eða jafnvirði 12,7
milljarða íslenzkra króna.
Þrátt fyrir þetta segja lögreglu-
menn í viðtölum við dönsku blöðin,
að ekki séu líkur á að innflutning-
ur fíkniefna stöðvist, þar sem
lögreglumenn hafi slæman aðbún-
að til starfa og lögreglan sé í
fjársvelti.
Komkókamið
frá Mexíkó?
Fangelsið. þar sem íslendingarnir eru í haldi á meðan rannsókn fer fram.
Ljósm: Nordfoto
Kaupmannahöín. 7. marz.
BLAÐAMAÐUR Morgunblaðsins
fregnaði í dag að önnur hjón-
anna, sem sitja inni vegna þessa
máls, hafi skroppið til Mexikó um
jólin í frí. Þar mun vera mikið
framboð af kókaíni og eru uppi
getgátur um að kókainið, sem
talið er að íslendingarnir hafi
haft undir höndum, hafi þau
komið með frá Mexíkó. Morgun-
blaðið spurði Svend Thorstcd,
deildarstjóra fíkniefnadeildar
lögreglunnar hér, um þetta
atriði, en hann vildi ekki stað-
festa að þetta væri sérstaklega í
rannsókn. Þess má geta. að í
Ekstrabladet á mánudag er
maðurinn nafngreindur og sagt
að hann og kona hans hafi búið í
Agnar Kl. Jónsson, sendiherra:
Mesta og alvarlegasta málið
Kaupmannahöfn, 7. marz —
„ÞAÐ hefur ekki verið haft samband við sendiráðið,
það fylgist með gangi mála hjá lögreglunni,“ sagði
Agnar Klemenz Jónsson, sendiherra hér í Danmörku,
er blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við hann í
morgun.
„Við höfum komið þeim
skilaboðum til íslending-
anna, sem hafa verið
fangelsaðir, að við séum
tilbúnir til þess að veita
alla þá aðstoð, sem þeir
þarfnast, en einskis hefur
verið óskað af okkur, enda
fólkinu skipaður réttar-
gæzlumaður." Agnar
Klemenz sagði að sendi-
ráðið veitti utanríkisráðu-
neytinu jafnharðan
upplýsingar, sem það
miðlaði svo áfram til
ættingja fólksins heima á
íslandi, sem eðlilega væru
áhyggjufullir vegna þessa
alvarlega máls.
„Ég hef verið sendi-
Agnar Kl. Jónsson.
herra hér í Kaupmanna-
höfn í 3 ár og það hefur
komið fyrir í nokkur
skipti að lögreglan hefur
þurft að hafa afskipti af
nokkrum íslendingum
vegna fíkniefnameðhöndl-
unar og þá aðallega í
Kristjaníu, en þetta mál
er það langstærsta og
alvarlegasta, sem upp hef-
ur komið meðal Islend-
inga,“ sagði Agnar
Klemenz Jónsson, sendi-
herra, að lokum.
Danmörku í 1 Vi ár og allan þann
tíma hafi þau hvorki unnið úti né
þegið ba:tur af hinu opinbera og
gefur blaðið í skyn, að fíkniefna-
sala hafi verið atvinnugrein
þeirra þennan tíma.
Ein þeirra tveggja stúlkna, sem
enn eru í gæzluvarðhaldi, var yfir-
heyrð í tvær klukkustundir í morg-
un, en hún var úrskurðuð í 6 daga
gæzluvarðhald á laugardaginn og
gæti þetta bent til þess, að henni
yrði sleppt áður en gæzluvarðhald
hennar rennur út á föstudags-
morguninn. Samkvæmt heimiidum,
sem Morgunblaðið hefur aflað sér, er
talið líklegt, að þessi stúlka og
önnur, sem var látin laus á þriðju-
dagsmorguninn, sé ekki viðriðin
þetta mál og sömuleiðis ekki einn
karlmannanna, sem inni sitja. Hins
vegar telur lögreglan að hin fjögur,
þrír karlmenn og ein kona, þurfi að
yfirheyra nánar.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær á ein konan fimm mánaða
stúlkubarn, sem lögreglan lét flytja
á Gentofte Amtsjúkrahúsið, barna-
deild, þegar móðirin var handtekin.
Lögfræðingur Islendinganna gekkst
síðan í það að móðirin yrði flutt á
sjúkradeild Vesterfangelsisins, svo
að hún gæti haft dóttur sína hjá sér.
Þessi kona og maður hennar, sem
einnig situr inni vegna þessa máls,
eiga ennfremur 9 ára gamlan dreng,
sem er í umsjá íslenzku konunnar,
sem sleppt var úr gæzluvarðhaldi
síðastliðinn þriðjudag. I morgun
barst íslenzka sendiráðinu hér ósk
um það frá ættingjum hjónanna
heima á íslandi, að börnin yrðu send
til íslands. Séra Jóhann Hlíðar
heimsækir móður barnanna í fang-
elsið á morgun, fimmtudag, og leitar
eftir leyfi hennar til þess að börnin
verði flutt til íslands. íslendingarnir
eru í algjörri einangrun í
Vestre-fangelsinu og þarf danskur
lögreglumaður að fylgja Jóhanni,
þegar hann gengur á fund konunnar.