Morgunblaðið - 08.03.1979, Side 37

Morgunblaðið - 08.03.1979, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979 37 Upplýsingar um innkaup á olíuvörum Að undanförnu hafa farið fram miklar umræður um hinar stór- felldu hækkanir, sem orðið hafa á innkaupsverði á olíu. Af því tilefni teljum við undirritaðir, sem höfum átt hlut að samninga- gerð um innkaup á olíum um langt árabil, nauðsynlegt að veita eftirfarandi upplýsingar um þessi mál: , 1. Lang mestur hluti af olíuvið- skiptum heimsins fer fram á veg- um hinna stóru alþjóðlegu olíufé- laga. Þau ýmist vinna jarðolíuna sjálf úr eigin olíulindum eða kaupa hana á föstum samningum frá oftast rikisreknum olíufélögum OPEC landanna. Jarðolían er að mestum hluta flutt óhreinsuð til markaðslandanna þar sem hún er unnin í olíuhreinsunarstöðvum og seld neytendum. Dótturfélög hinna alþjóðlegu olíufélaga eiga flestar olíuhreinsunarstöðvarnar og dreifingarfyrirtækin, sem selja hinar unnu olíuvörur, eru þá einn- ig dótturfélög hinna sömu olíufé- laga. Þegar bæði seljandi og kaup- andi (olíuhreinsunarstöð og dreif- ingarfélag) eru sami aðilinn, er ljóst að ýmis önnur sjónarmið en markaðsverðið eitt geta ráðið verðum, a.m.k. um takmarkaðan tíma. Þegar framanritað er haft í huga verður skiljanlegt að aðeins lítill hluti af unnum olíuvörum í heiminum er í raun á frjálsum markaði. 2. Á íslandi er engin olíuhreinsun- - arstöð og ekkert dótturfélag fjöl- þjóða olíufélags eins og í flestum löndum Vestur Evrópu. ísland hefur því ekki getað stuðzt við langtíma samninga um jarðolíu- kaup frá OPEC löndum, en verð- ákvæði slíkra samninga virðast nú sem óðast einhliða felld úr gildi. 3. Frá því á árinu 1953 hefur meginhluti af olíuþörfum íslands, öðru en flugvélaeldsneyti, smurn- ingsolíum og ýmsum sérhæfðum olíuvörum, verið keyptur frá Rúss- landi. Innkaupsverð var á árunum 1953—1961 miðað við skráningar frá suðurströnd Bandaríkjanna (U.S. Gulf). Við lok fyrrnefnds tímabils voru þessar skráningar orðnar óraunhæfar og hærri en viðast annars staðar. Samningum við Rússa fékkst þá breytt þannig, að miðað var við skráningar í Aruba og Curacao, en það eru eyjar út af strönd Venezuela. Að undanskildum árunum 1973 og 1974 varð verðþróun þannig, að þessar viðmiðanir, sem voru not- aðar 1961 til 1975, urðu smam saman óhagstæðari fyrir Island miðað við skráningar í Rotterdam. I febrúar 1975 var svo komið, að verð á gasolíu var 18% hærra samkvæmt skráningu í Curacao en Rotterdam. Var þá ákveðið að óska eftir endurskoðun á verðákvæðum samningsins við Rússa fyrir árið 1975, en fyrirvari um slíka endur- skoðun hafði verið settur í olíu- kaupasamning fyrir þaö ár. Við- ræður fóru fram í Moskva dagana 4.-7. apríl 1975. Niðurstaða af þessum viðræðum varð sú, að verð var frá þeim tíma miðað við meðaltal af skráðu verði í Curacao og Rotterdam. Þetta gilti frá apríl 1975 til 31. des. 1977. I samningum fyrir árin 1978 og 1979 var hins vegar aðeins miðað við Rotterdamskráningu. Fjórar meginástæður lágu til þess að breyting þessi var samþykkt af okkar hálfu. a. Verðmyndunin á Rotterdam- markaðnum fyrir unnar olíuvörur var almennt að verða viðurkennd eðlilegasti grundvöllur fyrir við- miðun á hinum frjálsa markaði í Evrópu, enda þótt afskipanir á olíuvörum og eigendaskiptin færu ekki fram í Rotterdam. Verðlag á Rotterdammarkaði á árinu 1977 og fram á haust 1978 hafði almennt verið stöðugt. b. Staðfest var að verð á unnum olíuvörum, sem seldar eru frá Rússlandi til V-Evrópu, þ.á m. til Norðurlanda, er yfirleitt miðað við skráningar - á markaðsverði í Rotterdam. c. Skráningar í Aruba og Cura- cao voru árið 1977 og fram yfir mitt ár 1978 að staðaldri hærri en í Rotterdam. Er hér átt við meðal- talsverð á þeim olíutegundum, sem íslendingar keyptu frá Rússlandi. d. Eftir að olíuiðnaðurinn í Venezuela var þjóðnýttur voru skráningar í Aruba og Curacao aðeins að takmörkuðu leyti grund- völlur fyrir raunverulegar sölur, heldur fyrst og fremst grundvöllur skattlagningar. Það er því að okkar dómi ljóst, að miðað við þekktar aðstæður þegar samningar voru gerðir um olítakaup frá Rússlandi fyrir árin 1978 og 1979, þ.e. haustið 1977 og haustið 1978, var það eðlilegra báðum sammngsaðilum og íslend- ingum hagkvæmara að miða kaup- verðið eingöngu við skráningar á Rotterdammarkaði. 4. Það ætti ekki að þurfa að skýra sérstaklega frá því, að mestur tíminn við undirbúning olíusamn- inga og í samningaviðræðum fer í að ræða um verð og viðmiðanir. Auðvitað hefur alla tíð í samning- um við Rússa komið til álita að fá föst verð. Það hefur aldrei fengizt á grundvelli, sem að okkar dómi væri viðunandi fyrir ísland. Þessi mál voru einnig itarlega rædd við framkvæmdastjóra Petrogal í Portúgal í janúarmán- uði s.l. Samningamenn Petrogal lýstu því yfir, að föst verð fyrir gasolíu og bensín, er tækju breyt- ingum miðað við jarðolíuverð OPEC ríkjanna, kæmi ekki til greina. Þeir vildu ekki fallast á neitt nema viðmiðun við Rotter- damskráningar, enda væru þær nú almennt notaðar í slíkum viðskipt- um, enda þótt aðeins takmarkaður hluti slíkra viðskipta fari fram í höfninni í Rotterdam. I þessum viðræðum reyndi íslenzka samn- inganefndin einnig að fá samninga um hámarksverð (og lágmarks- verð). Því var einnig hafnað. Is- lenzka samninganefndin var sam- mála um að ganga frekar að samningum um verð miðað við Rotterdammarkaðinn en láta slitna upp úr samningum og koma samningslaus heim. Hugmyndin um að semja um fast verð í olíukaupum til Islands er því ekki ný, heldur hefir hún komið til athugunar í flestum þeim samningum, sem við höfum átt hlut að. 5. Að síðustu er rétt að undir- strika, að verð á olíuvörum á frjálsum markaði lýtur sömu lög- málum og verð á öðrum vörum. Ef eftirspurnin er meiri en framboðið hækkar verðið en lækkar ef að- staðan er öfug. Er í því efni nærtækast að vísa til þeirra verð- sveiflna, sem orðið hafa á undan- förnum árum á útflutningsafurð- um okkar Islendinga. Ástæða er til þess að ítreka að hin mikla verðhækkun á olíuvör- um á síðustu vikum og mánuðum er síður en svo eingöngu vandamál okkar hér á íslandi. T.d. hefir verð á gasolíu og marineolíu til far- skipa í flestum höfnum í Evrópu nálega tvöfaldast frá 2. janúar til 27. febrúar og er til mikilla muna hærri nú en verð til skipa á Islandi. 6. Líklegt má telja, að verðhækkun sú á olíuvörum, sem orðið hefir að undanförnu, verði ekki varanleg, nema að hluta. Engu skal þó spáð um það hér hvenær verðið á hinum frjálsa markaði mun lækka og að hvaða marki. Vilhjálmur Jónsson Indriði Pájsson Önundur Ásgeirsson AKARN H.F., Strandgötu 45, Hafnarfirði, sími 54444, heimasími 52784. NORSK GÆÐAVARA argus Miðakaup og endumýjun 3. flokkur Eftir að hafa eignast miða íHappdrætti Háskól- ans er endurnýjun mánaðarlega nauðsynleg. Þannig haldast möguleikarnir á að hljóta vinning. Muniö að endurnýja tímanlega og forðast þannig þröng síðasta daginn. VIÐ DRÖGUM 13. MARZ 18 @ 1.000.000,- 18.000.000,- 36 — 500.000- 18.000.000,- 207 — 100.000,- 20.700.000,- 378 — 50.000,- 18.900.000- 7.947 — 25.000- 198.675.000,- 8.586 274.275.000- 36 - 75.000,- 2.700.000,- 8.622 276.975.000- HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Menntun f þágu atvinnuveganna Kvenstúdentar Hádegisveröarfundur veröur haldinn í Lækjar- hvammi Hótel Sögu, laugardaginn 10. marz og hefst meö borðhaldi kl. 12.30. Silja Aöalsteinsdóttir flytur erindiö: Þróun íslenskra barnabóka frá 1970. Stjórnin. Albert Sveinn VIÐTALSTIMI Alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins verða til viðtals i Sjálf- stæðishúsinu Háaleitisbr. 1 á laugardög- um frá klukkan 1 4:00 til 1 6 00 Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa. Laugardaginn 10. marz veröa til viðtals: Albert Guðmundsson, alþm. og borgar- fulltrúi Sveinn Björnsson, verkfræöingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.