Morgunblaðið - 16.03.1979, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 16.03.1979, Qupperneq 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979 Útgöngu- bann í Salisbury Salishury, 14. marz. AP ÚTGÖNGUBANN frá sólsetri til döKunar hefur verið fyrirskipað í iðnhverfum Salisbury til þess að koma í veg fyrir hugsanlegar árásir hryðjuverkamanna. Tveir yfirmenn í hernum hafa jafnframt varað við blóðugum þingkosningum í Rhódesíu vegna hótana skæruliða um að spilla fyrir þeim. Uppreisnarmenn hafa ráðizt á orkuver og olíu- geymslustöð í Salisbury á síðustu þremur mánuðum. lan Smith, leiðtogi hvítra manna, og skæruliðaleiðtog- inn Joshua Nkomo skiptust á svívirðingum í brezka sjón- varpinu í gærkvöldi og kölluðu hvor annan „fasista" og „hryðjuverkamann.“ Sjónvarpað var um gervi- hnött. í lok klukkustundar umræðna virtist hvorugur hafa hvikað frá fyrri afstöðu. Kosningarnar fara fram í næsta mánuði. Auglýsing um skoðun bifreiða í lögsagnar- umdæmi Kópavogs Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér með, aö aðalskoðun bifreiöa 1979 hefst mánudaginn 2. apríl og veröa svo sem hér segir: skoöaöar eftirtaldar bifreiðar Mánudaginn 2. apríl Y- 1 Y- 200 Þriöjudaginn 3. apríl Y- 201 Y- 400 Miövikudaginn 4. apríl Y- 401 Y- 600 Fimmtudaginn 5. apríl Y- 601 Y- 800 Föstudaginn 6. apríl Y- 801 Y-1000 Mánudaginn 9. apríl Y-1001 Y-1200 Þriöjudaginn 10. apríl Y-1201 Y-1400 Miövikudaginn 11. apríl Y-1401 Y-1600 Þriðjudaginn 17. apríl Y-1601 Y-1800 Miövikudaginn 18. apríl Y-1801 Y-2000 Föstudaginn 20. apríl Y-2001 Y-2200 Mánudaginn 23. apríl Y-2201 Y-2400 Þriöjudaginn 24. apríl Y-2401 Y-2600 Miðvikudaginn 25. apríl Y-2601 Y-2800 Fimmtudaginn 26. apríl Y-2801 Y-3000 Föstudaginn 27. apríl Y-3001 Y-3200 Mánudaginn 30. apríl Y-3201 Y-3400 Miövikudaginn 2. maí Y-3401 Y-3600 Fimmtudaginn 3. maí Y-3601 Y-3800 Föstudaginn 4. maí Y-3801 Y-4000 Mánudaginn 7. maí Y-4001 Y-4250 Þriöjudaginn 8. maí Y-4251 Y-4500 Miövikudaginn 9. maí Y-4501 Y-4750 Fimmtudaginn 10. maí Y-4751 Y-5000 Föstudaginn 11. maí Y-5001 Y-5250 Mánudaginn 14. maí Y-5251 Y-5500 Þriöjudaginn 15. maí Y-5501 Y-5750 Miövikudaginn 16. maí Y-5751 Y-6000 Fimmtudaginn 17. maí Y-6001 Y-6250 Föstudaginn 18. maí Y-6251 Y-6500 Mánudaginn 21. maí Y-6501 Y-6700 Þriöjudaginn 22. maí Y-6701 Y-6900 Miövikudaginn 23. maí Y-6901 Y-7100 Föstudaginn 25. maí Y-7101 Y-7300 Mánudaginn 28. maí Y-7301 Y-7500 Þriöjudaginn 29. maí Y-7501 Y-7700 Miövikudaginn 30. maí Y-7701 Y-7900 Fimmtudaginn 31. maí Y-7901 Y-8100 Föstudaginn 1. júní Y-8101 og yfir. Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar að Ahaldahúsi Kópavogs við Kársnesbraut og veröur skoðun framkvæmd þar mánudaga — föstudaga kl. 8.15 til 12.00 og 13.00 til 16.00. Viö skoöun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því að bifreiöagjöld fyrir árið 1979 séu greidd, og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið greid, verður skoöun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð þar til gjöldin eru greidd. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoöunar á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum sam- kvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli. Umskráningar verða ekki framkvæmdar á skoöunar- staö. Bæjarfógetinn í Kópavogi, 12. marz 1979. Sigurgeir Jónsson. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU I !.«.«« «ii«i • * » ii t a i.«.«.«.« « « ««i hiihiii««««««««««i««« « «44* Viðskipti og þjónusta: ítarlegar upplýs- ingar um tíu þús- und aðila á íslandi „UPPHAF þess að við hófum vinnu við útgáfu þessarar bókar, er kom út í fyrra, var það, að ég hafði unnið við ýmis störf þar sem ég fann tilfinnanlega fyrir að það skorti viðamikið en þó handhægt uppsláttarrit af þessu tagi,“ sagði Jón Arnar Pálmason, einn eigenda Árbliks h.f., sem á sfðasta ári gaf út bókina „Viðskipti og þjónusta“, er Morgunblaðið ræddi við hann fyrir skömmu. Jón Arnar kvaðst meðal annars hafa unnið við auglýsingasöfnun, sölumennsku, margs konar upplýsingaöflun fyrir fyrirtæki og fleira. „Mér fannst vanta rit er gæfi heildarupplýsingar um öll þau mál er að gagni mega koma við hin fjölbreytilegustu störf í nútíma fyrirtækjum og á einka- heimilum," sagði Jón ennfremur, „en farið var að bera á því að fólk var hætt að nota rit af þessu tagi sem fyrir hendi eru, vegna þess hve þau voru ófullkomin. Nú þetta varð til þess, að ég hófst handa ásamt félaga mínum Björgólfi Thorsteinsson, en öllu þessu hafði ég verið að velta fyrir mér í um það bil tvö ár áður en hafist var handa." — Stofnuðuð þið Björgólfur þá þegar fyrirtækið Árblik? „Nei, upphaflega hét það Aug- lýsingatækni h.f., en við breyttum því í Árblik þar sem okkur fannst fyrra nafnið gefa ranga mynd af því sem við vorum að vinna að. Bókarnafnið, „Viðskipti og þjón- usta“, var hins vegar ákveðið þegar frá upþhafi." Aðilum boðið að vera með — Hvernig komu hinir ýmsu aðilar á framfæri við ykkur hinum fjölbreytilegustu upplýsíngum sem í bókinni er að finna? Aug- lýstuð þið eftir þessum upplýsing- ' um eða höfðuð þið samband við viðkomandi aðila? „Við ýmist fórum til þessara aðila eða hringdum í þá, og feng- um upplýsingar um viðkomandi fyrirtæki, og buðum þeim að vera með. Sumir þessara aðila voru tregir til, en þó fengum við yfirleitt umbeðnar upplýsingar og þeir* 1 2 3 4 1 voru með án skuldbindinga. — Sjónarmið þeirra flestra var það, að þeir óttuðust að bókin yrði ekki nægilega góð; þeir töldu reynsluna ekki hafa verið með þeim hætti undanfarin ár að eitthvað væri á bókaútgáfu af þessu tagi að græða. Þegar bókin kom svo út var hún send öllum þessum aðilum til skoðunar og væntanlegrar greiðslu ef hún uppfyllti þær kröfur sem þeir teldu að gera ætti til upplýsingarits af þessu tagi.“ — Og hvernig urðu svo móttök- ur þessara óákveðnu aðila er bókin kom út? „Ég held ég megi segja það, að bókin hlaut mjög góðar viðtökur og flestir hafa lofað hana, en heldur hefur gengið seint að innheimta skráningargjöldin og vildi ég beina þeim tilmælum til þeirra sem enn hafa ekki sent inn greiðslu að gera það sem allra fyrst og flýta þar með fyrir næstu útgáfu." — Hvað kostar það hvert fyrir- tæki að vera með? „Innskriftargjald í bókina er 27.000 krónur, og er þá bókin innifalin. Þetta innskriftargjald greiðist aðeins einu sinni, það er í Rœtt við Jón Arnar Pálmason framkvœmda- stjóra Árbliks hf. upphafi, en eftir það heldur viðkomandi aðili stöðu sinni í bókinni og greiðir aðeins fyrir bókina sjálfa er hún kemur út.“ — Hvað er innihald bókarinnar „Viðskipti og þjónusta"? „Hún skiptist í allmarga hluta eða kafla, og eru þessir helstir: 1. Flokkaskrá, sem vísar til starfsgreina skrárinnar, númer eru við allar starfsgreinar, þannig að unnt er að fletta upp hverri starfsgrein. 2. Starfsgreinaskrá, en hún er listi yfir öll fyrirtæki innan hverr- ar greinar. I kaflanum um hús- gögn er til dæmis að finna alla húsgagnaframleiðendur og alla söluaðila, innflutningsaðila og svo framvegis. Þá er þess einnig að gæta, að margir aðilar geta verið á mörgum stöðum í bókinni, húsgagnainn- flytjandi gæti til dæmis bæði verið undir kaflanum um húsgögn og innflytjendur. I bókinni er vísað á þessa aðila. og þannig sagt frá staðsetningu fyrirtækjanna að auðvelt á að vera að finna þau jafnvel þó sá sem leitar sé ekki kunnugur i viðkomandi hverfi eða bæjar- félagi. 3. Þá er í bókinni kort ai Stór-Reykj avíkursvæðinu. 4. í bókinni er grein á ensku með ýmsum upplýsingum um ísland. 5. í bókinni eru upplýsingar um alla þá aðila sem í henni koma fyrir, eftir stafrófsröð. Stór-Reykjavík fyrst, þá ýmsir byggðakjarnar og loks sýslur landsins. 6. Kort af öllum þéttbýliskjörn- um landsins, og inn á þau kort er staðsetning hinna ýmsu fyrir- tækja merkt. 7. Upplýsingar um erlend viðskipti Islendinga, sendiráð íslands erlendis, ræðismenn og margt fleira. 8. Umboðsskrá, en hún er mjög veigamikill þáttur bókarinnar. Þar er að finna heiti á vörutegundum og síðan nafn innflytjanda. 9. í bókinni er einnig að finna söluskattsnúmera- og nafn- númeraskrá er inniheldur öll fyrirtæki iandsins." Kemur bókin út aftur? — Það hefur heyrst að „Viðskipti og þjónusta" muni ekki koma út aftur að þetta verði eina útgáfan^Er'það rétt? „Frá því þessi bók kom út hefur stöðugt verið unnið að endurbótum og ég vil segja fullkomnun á henni fyrir næstu útgáfu. Er bæði verið að afla nánari upplýsinga um þá aðila sem eru í þessari bók, og svo er einnig verið að ná í þá aðila sem ekki náðist í er fyrsta bókin kom út. Einnig má nefna að við erum nú að vinna sérstaklega að þvi að endurbæta umboðaskrána. Það er gífurlegt verk, þar sem engar upplýsingar eru til í landinu á einum stað um umboðsaðila, þó fyrir liggi upplýsingar um þá sem hafa heildsölu- eða innflutnings- leyfi, þá getur verið erfiðara að finna hvaða vöru hver selur eða flytur inn. En hvað spurningunni sjálfri viðkemur, þá hafa hrakspár alltaf fylgt þessari bók. Fyrst var sagt að hún kæmi aldrei út, síðan átti dreifingin að mistakast, við áttum að fara á hausinn, og nú er sagt að bókin komi ekki út aftur. Þessum 1978/1979 m '■% fíusiness Direcwry of lceland VIDSKIPTIOG ÞJÓNUSTA Uþpsláttarbókfyrir heimili. fynrtœki, stofnanir I JJJIIIIIII i i h i>i h<i ifii’i'ntin'i i*i.i • ■ iim « i M

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.