Morgunblaðið - 19.04.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979
5
Tölur Alþjóðabank-
ans voru rangar
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi athugasemd frá
Jóhannesi Nordal. seðlabanka-
stjóra, vegna fréttar um þróun
þjóðartekna á Norðurlöndum,
sem byggist á opinberum tölum
Alþjóðabankans. í Ijós er komið,
að tölur Alþjóðabankans, sem
fréttin byggðist á, eru rangar og
hefur bankinn nú leiðrétt þær.
Bréf Nordals fer hér á eftir:
I Morgunblaðinu var 10. þ.m.
birt frétt um þróun þjóðartekna á
Norðurlöndum síðastliðin fimm
ár, þar sem fram kom, að Islend-
ingar hefðu dregizt mjög aftur úr
á þessu tímabili í þjóðartekjum á
mann. Var fréttin byggð á tölum,
sem Aíþjóðabankinn hefur birt um
þessi efni. Þar sem þessar tölur
báru með sér ótrúlega mikla lækk-
un á þjóðartekjum hér á landi í
samanburði við hin Norðurlöndin,
var í fréttinni reynt að leita
skýringar á þessu í því, að
bankans um skýringar á þessum
tölum. Hefur Seðlabankanum í
dag borizt svar frá einum deildar-
stjóra bankans, þar sem fram
kemur að hér sé um reikningsvillu
að ræða, sem komizt hafi inn í
tölvuforskrift bankans og valdið
verulegri skekkju á umreikningi
talna um þjóðarframleiðslu ís-
lendinga á árunum 1975, 1976 og
1977. Hefur bankinn reiknað þess-
ar tölur að nýju og eru þær sem
hér segir (eldri tölurnar settar í
sviga til samanburðar): 1975 6060
dollarar (3920), 1976 6520 dollarar
(4220), 1977 7060 dollarar (4570).
Munu þessar tölur verða leið-
réttar innan Alþjóðabankans og í
þeim skýrslum hans, sem sendar
verða út héðan í frá. Að gerðum
þessum leiðréttingum er tafla sú,
sem í Morgunblaðinu birtist, um
samanburð á þjóðarframleiðslu á
mann á Norðurlöndunum síðast-
liðin fimm ár, sem hér segir:
Þjóðarframleiðsla á mann í bandarískum dollurum
ísland Noregur Finnland Danmörk Svíþjóð
1973 5,030 5,190 4,120 5,870 6,360
1974 5,430 5,860 4,700 6,430 7,240
1975 6.060 7.060 5,590 6,950 8,490
1976 6,520 7.800 5,890 7,690 9,030
1977 7.060 8,540 6.150 8,050 9,250
Alþjóðabankinn hlyti að hafa not-
að eitthvað annað gengi en skráð
gengi krónunnar í umreikningi
þjóðartekna hér á landi yfir í
dollara. Væri þessi skýring rétt,
benti það til þess, að Alþjóðabank-
inn hefði í þessu efni allt aðra
skoðun en aðrar Alþjóðastofnanir,
t.d. OECD, en tölur þeirrar stofn-
unar um þjóðartekjur hér á landi á
árunum 1975 til 1977 eru miklu
hærri.
Til þess að leiða hið sanna í ljós í
þessu máli var leitað til Alþjóða-
Að lokum er rétt að taka fram,
að umreikningar til sambærilegs
gengis í samanburði á þjóðarfram-
leiðslu milli landa er ætíð álita-
mál, en í því efni notar Alþjóða-
bankinn meðaltalsreikning, sem
hefur valdið því, að þjóðarfram-
leiðslutölur hér á landi hafa síð-
ustu árin orðið hlutfallslega lægri
en ella miðað við hin Norðurlönd-
in.
Virðingarfyllst,
Jóhannes Nordal.
Svipadar
þjódartekjur
Morgunblaðinu barst í gær
eftirfarandi frá Jóni Sigurðssyni,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar:
Að undanförnu hafa orðið
nokkrar umræður um þjóðartekj-
ur á mann hér á landi og saman-
burð við aðrar þjóðir. Helzta
heimild um þjóðhagsreikninga
Vesturlandaþjóða eru skýrslur
OECD, Efnahagssamvinnu- og
framfarastofnunarinnar í París,
en meðal verkefna þeirrar stofn-
unar er að safna, samræma og
birta þjóðhagsreikninga aðildar-
ríkjanna. I nýútkomnu hefti úr
ritröðinni „OECD economic
surveys" eru birtar tölur um
þjóðartekjur á mann í aðildar-
ríkjum OECD á árinu 1977 og í
þeirri ritröð, svo og í þjóðhags-
reikningaárbókum stofnunarinn-
ar, er að finna sambærilegar tölur
fyrir fyrri ár. Samkvæmt þessum
skýrslum hafa þjóðartekjur á
mann í Bandaríkjadollurum verið
sem hér segir á Norðurlöndum
árin 1970-1977:
tekjur á mann verið töluvert hærri
en hjá hinum þjóðunum allt tíma-
bilið. A þennan mælikvarða hafa
Svíar raunar verið meðal tveggja
eða þriggja tekjuhæstu þjóða í
heiminum undanfarin ár. Þjóðar-
tekjur á mann á Islandi hafa allt
tímabilið 1970—1977 verið hærri
en í Finnlandi og oftast verið á
borð við þjóðartekjur á mann í
Danmörku og Noregi.
Við samanburð sem þennan þarf
að hafa hugfast að hann er engan
veginn einhlítur og getur aldrei
orðið nákvæmur mælikvarði á
efnahagssæld. Þjóðartekjur eru
hér metnar á markaðsvirði á
verðlagi hvers árs og jafnframt
miðað við meðalársgengi á hverj-
um tíma gagnvart Bandaríkjadoll-
ar. Gengið eitt sér er hins vegar
ófullkomið tæki til að bera saman
hagstærðir í ólíkum gjaldmiðli og
getur hénding um tímasetningu
oft ráðið miklu um niðurstöður.
Þetta á ekki sízt við um ríki þar
sem gengisskilyrði eru mjög
ísland Danmörk Svíþjóð Noregur Finniand
1970 2.398 3.160 4.095 2.876 2.247
1971 2.968 3.478 4.439 3.240 2.455
1972 3.663 4.158 5.153 3.793 2.845
1973 4.899 5.448 6.199 4.837 3.745
1974 6.280 6.026 6.878 5.847 4.712
1975 5.717 7.006 8.467 7.063 5.643
1976 6.610 7.590 9.030 7.770 5.950
1977 8.597 8.489 9.497 8.805 6.308
Þessar tölur sýna, að þjóðar- sveiflukennd eins og raunir hefur
tekjur á mann hér á landi hafa orðið hér á landi. Af þessum
verið svipaðar í dollurum og á sökum verður að líta yfir alllangt
öðrum Norðurlöndum, ef Svíþjóð árabil í einu, þegar gera skal
er undanskilin, en þar hafa þjóðar- samanburð af þessu tagi.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Menntamálaráðherra afhcndir Alþýðuleikhúsinu 3 millji.
í framhaldi af grein, er Kristín G.
Magnús skrifaði í Morgunblaðið
hinn 24. marz sl. og vegna breytinga
á leiklistarlögum, er samþykkt voru
nýlega á Alþingi, þess efnis að
tryggja að fjárveitingar Alþingis nái
til annarra atvinnuleikhúsa en
þeirra, sem talin voru upp í 2. gr.
leiklistarlaga (Þjóðleikhús, Leikfélag
Reykjavíkur og Leikfélag Akureyr-
ar), hefur Morgunblaðið nú haft
samband við Kristínu og innt hana
nánar um fjárveitingar, samkvæmt
þessum nýju lögum, er gera augljós-
lega ráð fyrir styrkveitingu til starf-
semi Ferðaleikhússins, the Summer
Theatre.
.iUlislarlHKiU"
iveitingumtil oper '
,wr atvinnuleiknopu
rf.sÆK1”
-'„t*i77. M-m l> 'ur ’
l iil annarr*
nn«i> v , irra.
a-ikló'ak '
, i\d 'i>» u"'"1r
^ w «•!»»> «•' ,r
-ku'i yr*
Það er augljóst mál, að núverandi
menntamálaráðherra er ekki fær um
að veita af opinberu fé til leiklistar-
starfsemi á nýjum lið í 2. gr.
leiklistarlaga. Enda er hvergi hægt
að finna í lögum neina línu þess efnis
að menntamálaráðherra eigi einn að
fara með þau mál, — í gömlu
lögunum er talað um að
menntamálaráðuneyti úthluti fé er
veitt hefur verið í fjárlögum og var
sá liður (IV. liður) „TIL ALMENNR-
AR LEIKLISTARSTARFSEMI" -
ég er mjög efins um að ráðherra hafi
haft lagalega heimild til að ráðstafa
umræddum 3 milljónum eftir eigin
geðþótta.
„Óheiðarleika i starfi
skal ég aldrei umbera”
Kristín: Áður en núverandi lög
tóku gildi, hafði fjárveitinganefnd
Alþingis veitt í fjárlagafrv. 22 millj.
á lið IV. 2. gr. — til almennrar
leiklistarstarfsemi, — þar af voru 19
milljónir til áhugamannafélaga
(B.I.L.) en Geir Gunnarsson, formað-
ur fjárveitinganefndar og alþingis-
maður Alþýðubandalagsins, vildi að
afgangurinn, — 3 milljónir — yrðu
veittar Alþýðuleikhúsinu — sunnan-
deild.
Ráðagerð þessi náði ekki samþykki
annarra nefndarmanna fjárveitinga-
nefndar, þar sem augljóst var að
réttur Ferðaleikhússins væri þá
fyrir borð borinn.
Á þessum sama tíma stóðu einnig
yfir umræður í Alþingi um breyting-
ar á leiklistarlögum og var því
eðlilegt að fjárveitinganefnd tæki
engar endanlegar ákvarðanir um
skiptingu áðurnefndra 3 milljóna, —
en þá gerðist atburður, sem fór fram
með mikilli leynd og fáir vissu um,
segir Kristín
G. Magnús
— sjálfur menntamálaráðherra
Ragnar Arnalds gerir sér lítið fyrir
og afhenti forráðamönnum Alþýðu-
leikhússins — sunnandeildar — alla
upphæðina, sem þýðir að á þessu
fjárveitingaári fær Ferðaleikhúsið,
the Summer Theatre, ekki eina
krónu í styrkveitingu frá íslenzka
ríkinu.
Við höfum talað við nefndarmann
í fjárveitinganefnd Alþingis og
skrifstofustjóra menntamálaráðu-
neytisins og voru þessir aðilar mjög
undrandi á fjárveitingunni, sem
ráðherra veitti algjörlega upp á sitt
eigið eindæmi.
Ég gekk á fund ráðherra nýlega,
sem gat ekki gefið neinar skýringar
á þessu athæfi sínu, — það var bara
sett upp grímubros og bitið á jaxl-
inn!
Eitt er víst, — að hvorki mun ég
treysta núverandi menntamálaráð-
herra né þeirri nefnd, er ráðherra
ætti að skipa, til að annast heiðar-
lega og réttláta úthlutun af opinberu
fé. Úthlutunin á ekki að fara eftir
duttlungum og persónulegum smekk
nokkurra manna, — heldur sam-
kvæmt heiðarlegum starfsreglum,
sem unnar eru eftir tillögum þeirra,
er eiga að vinna eftir þeim. Ég hef
staðið í eldlínunni í 13 ár og veit um
hvað ég er að tala.
Til þessa hafa ekki verið til lög um
fjárveitingar til einstaklingsfram-
taksins í leiklist á íslandi, þannig að
fyrrverandi ráðherrar hafa ekki haft
möguleika á að úthluta okkur styrkj-
um, sem neinu nemur, þar sem af
engu var að taka. — Fátækt og
fáfræðslu í leiklistarmálum hef ég
kynnst af ráðherrum og ráðamönn-
um í gegnum árin og orðið að sætta
mig við, — en óheiðarleika í starfi
skal ég aldrei umbera.
Ihermor
LOFTRÆSTIVIFTUR
PIFCO
Á undanfömum tveimur áratugum höfum við byggt upp stcerztu og reyndustu sér- }
verzlun landsins með loftrcestiviftur í híbýli, skrifstofur, skóla, samkomuhús, -
verksmiðjur, vörugeymslur, gripahús og aðra þá staði þar sem loftrcestingar er þörf.
Veitum tceknilega ráðgjöf vio val á loftrcestiviftum.
Fálkinn
póstsendir
allar nánari
upplýsingar,
sé þess óskað.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670