Morgunblaðið - 27.04.1979, Side 1
32 SlÐUR
94. tbl. 66. árg. FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1979 Prentsmiðja Morgunblaósins.
Öryggisráðið vill
enn auka eftirlitið
Verður
keisara
rænt?
Teheran, 26. april. Reuter.
FRELSISSAMTÖK Palestínu-
manna hafa í hyggju að ræna
útlegðarkeisaranum Reza Palevi
samkvæmt frásögn
PLO-erindreka, sem birtist í
írönsku tímariti í dag.
Fulltrúi PLO í Teheran, Hani
al Ilassan, sagði vikuritinu Ly
Javan frá því að sérstökum
hryðjuverkahópi hefði verið gefin
fyrirmæli um að framkvæma
mannránið. Skipunin er beint
komin frá leiðtoga Frelsissam-
takanna, Yasser Arafat.
Bannfœrði
r
Olaf kóng
Ósló, 26. aprtl, fró fréttaritara Mbl.
TVEIR norskir prestar hafa
hrundið af stað væringum í
trúarlífi Norðmanna. Prestur-
inn í Balsfirði, Börre
Knudsen, hefur ákveðið að
snúa baki við þeim þætti
starfsins, er lýtur að hinu
opinbera, í mótmælaskyni við
lög um fóstureyðingar. Neitar
hann þvf að taka við launum. í
Heröy, hefur Wiily Abiidsnes,
neitað að taka á móti biskupn-
um í kirkjuvitjunum. Ber séra
Willy því við að biskupinn
styðji textabreytingu í
Faðirvorinu.
Presturinn í Balsfirði hefur
einnig bannfært þá sem leggja
fóstureyðingarlögunum lið. Nær
bannfæringin til ríkisstjórnar-
innar, hluta Stórþingsins og loks
einnig Ólafs Noregskónungs.
Biskupinn í umdæminu hefur
veitt presti harðar átölur en séra
Börre segist lifa af fiski úr
sjónum og einskis þurfa með frá
ríkinu. Séra Willy vill ekki að
texta Faðirvorsins verði breytt til
samræmis við nútímamál.
Reza Palevi
Beirut. 26. aprfl — AP — Reuter
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna bauð í dag líbönsku stjórn-
inni aukinn herstuðning í Suð-
ur-Líbanon, þar sem hersveitir
kristinna manna hafa í skjóli
ísraela torveldað friðargæzlu-
starf. Ráðið samþykkti að koma
saman án tafar ef drægi til
alvarlegra tíóinda. Þykir and-
rúmsloft í þessum landshluta nú
mjög magnað spennu.
Kyrrt var í Suður-Líbanon í
dag eftir að Palestínumenn og
ísraelar féllust á vopnahlé eftir
fjögurra daga átök. bað voru
starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
sem gengust fyrir vopnahléinu.
í tilkynningu sem forseti Örygg-
isráðsins, Norðmaðurinn Ole Al-
gárd, gaf út, eftir skyndifund
ráðsins var hvatt til þess að virt
yrði eining landsins og samheldni,
fullveldi þess og pólitískt sjálf-
stæði.
Hvergi var minnst á loftárásir
Israela á bækistöðvar Palestínu-
manna í Líbanon.
Egyptar slitu í dag stjórnmála-
sambandi við Líbanon en einnig
Qatar og Bahrein og arabísku
furstadæmin vegna andstöðu
þeirra við friðarsamninga.
Sýrlenzkar flugvélar sáust í gær
á sveimi yfir Beirut. Talsmenn
PLO kváðu þær vera á varðbergi
gegn nýjum loftárásum óvinanna.
Amin í hópi
afsprengja
— Enginn getur sagt fyrir með vissu hve margar konur eða hve mörg
börn harðstjórinn Amin á. Á meðfylgjandi mynd sjáum við forsetann
fyrrverandi umkringdan tuttugu og þremur afkvæma sinna og var hún
tekin áður en Amin var hrakinn frá völdum. Hann fer nú huldu höfði
og er alls óvíst um afdrif hans. Hin nýja ríkisstjórn Uganda hefur nú
farið þess á leit við grannríkið Kenya, að allir flóttamenn úr röðum
einræðisherrans verði framseldir. símamynd ap
Stjórnarherinn
ber á Kúrdum
Teheran, 26. aprfl, Reuter.
ÍRANSHER sótti í dag í átt að
vesturlandamærum íraks og segir
talsmaður stærsta stjórnmála-
flokks Kúrda, að stjórnarherinn
hafi beitt þyrlum í árásum á fjalla-
þorp í þeim tilgangi að ná aftur á
sitt vald svæðum, sem verið hafa á
valdi þjóðernissinnaðra uppreisnar-
manna síðan í febrúar. Talsmaður-
inn sakaði stjórnina um að styðja
við bakið á Tyrkjahéraðinu
Azerbaijani, er Kúrdar hafa eldað
grátt silfur við um skeið. bjóðernis-
sinnar úr olíuhéraðinu Khuzestan
hafa einnig sótzt eftir takmarkaðri
sjálfsstjórn, en segjast þó ekki vilja
yfirtaka olfuiðnaðinn.
Begin stingur
upp á Carter
Jerúsalem, 26. apríl, Reuter.
FORSÆTISRÁÐHERRA ísraels,
Menachem Begin, stakk upp á
þvf við norska þingið í dag að
friðarverðlaun Nóbcls í ár kæmu
í hlut Carters Bandarfkjaforseta
fyrir þátt hans í að friðarsamn-
ingar ísraela og Egypta voru
undirritaðir.
í bréfi, sem hann sendi Nóbels-
nefnd þingsins, sagði Begin: „í
ljósi alls sem ég veit er enginn
maður í veröldinni betur að friðar-
verðlaunum Nóbels kominn fyrir
árið 1979 en Bandaríkjaforseti,
Jimmy Carter."
ki