Morgunblaðið - 19.05.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1979 3
Erfingjar Gunnars Gunnarssonar:
Gáfu Stofnun
AmaMagnús-
sonar hand-
rit og bækur
Ragnar Arnalds menntamálaráðherra tók við gjafabréfinu fyrir
hönd Stofnunar Árna Magnússonar.
ERFINGJAR Gunnars
Gunnarssonar rithöfund-
ar og Franziscu Gunnars-
son, konu hans, hafa gef-
ið Stofnun Árna Magnús-
sonar bækur, bréf, skjöl
og ýmsa aðra persónu-
lega muni er tilheyrðu
lífsstarfi þeirra beggja.
Var gjöf þessi afhent við
athöfn í Stofnun Árna
Magnússonar í gær, 18.
maí, en þann dag hefði
Gunnar Gunnarsson orð-
ið níræður. Franzisca
Gunnarsdóttir afhenti
gjöfina og tók Ragnar
Arnalds menntamálaráð-
herra við henni fyrir
hönd stofnunarinnar.
í ávarpi sínu við afhendinguna
sagði Franzisca Gunnarsdóttir
að erfingjarnir gæfu þessa muni
vegna þess, að þeir væru þeim
hjartfólgnir og þeir vildu gera
sitt til þess að þeir fengju að
standa sem heild og glötuðust
ekki. „íslenzka þjóðin átti hug
afa og ömmu og hjarta," sagði
Franzisca, „því fannst okkur
þetta tilheyra þjóðinni en ekki
einungis okkur, sem ofur smáum
hluta hennar. Við gefum Stofn-
un Árna Magnússonar þessa gjöf
því okkur finnst hún öðrum
stofnunum fremur vera ímynd
okkar íslenzku menningar. Þá
fyrir þær sakir að hún geymir
okkar dýrmætasta menningar-
arf, að því janframt ógleymdu að
afi var með fyrstu mönnum til
þess að berjast fyrir því að fá
handritin heim. Og það áratug-
um áður en það mál komst í
algleyming. Afi var grein af því
mæta tré, sem er okkar
menningarstofn og rætur þess
nærðu hann. Ég vil sérstaklega
geta ömmu minnar, Franziscu,
því afi hefði aldrei getað unnið
sitt lífsverk eins og raun varð á
ef hún hefði ekki fórnað sér
algjörlega fyrir hann og það
lífsverk. Hennar þáttur í hans
starfi er miklu meiri en flestir
gera sér grein fyrir.“ í lok
ávarps síns lét Franzisca
Gunnarsdóttir þess getið að þeir
sem kynnu að eiga t.d. bréf frá
afa hennar og ömmu kæmu því
til Stofnunar Árna Magnús-
sonar.
Ragnar Arnalds menntamála-
ráðherra sagði í ávarpi er hann
flutti að Gunnar Gunnarsson
væri óumdeilanlega einn mikil-
hæfasti rihöfundur sem islenzka
þjóðin hefði eignast, hann hefði
um áratuga skeið lagt fágætan
skerf til menningar þjóðarinnar
og í ritverkum sínum hefði hann
reist íslenzku mannlífi, hugsun
og tilfinningum ódauðlegan
minnisvarða. Þrátt fyrir langa
dvöl erlendis hefði hann fyrst og
fremst verið íslendingur enda
ættu flestar sögur hans sér
íslenzkt sögusvið og mannlíf að
inntaki. I lok ávarpsins færði
hann erfingjum Gunnars og
Franziscu þakkir fyrir þessa
rausnarlegu gjöf og sagði að
ánægja og heiður væri að veita
þessari gjöf viðtöku.
I gjafabréfinu eru taldir upp
þeir munir sem gefnir voru:
Eigin verk Gunnars Gunnars-
sonar, handrit, safn hans af
norrænum bókmenntur., bréfa-
og skjalasafn, ljósmyndasafn
þeirra hjóna, úrklippusafn er
varða hans eigin verk og áhuga-
mál, skrifstofuhúsgögn hans,
eirlíkan Sigurjóns Ólafssonar
myndhöggvara af Gunnari og
rauðkrítarmynd af honum.
Ólafur Halldórsson sagði að
ákveðið hefði verið að koma
munum þessum fyrir í sérstakri
Gunnarsstofu, en hún yrði þar
sem nú er sýningarsalur hand-
rita.
Ljósm. Emilía
Hagsmunafélag hrossabænda gengst á morgun. sunnudag. fyrir
degi hestsins og hefst hann kl. 14 á Melavellinum í Reykjavík. Koma
þar fram um 70 hestar, en í dag verða kynntir stóðhestar á
Víðivöllum, en dómnefnd heíur gefið þeim einkunnir og verður þá
tilkynnt um þær.
Gísli B. Björnsson sem sæti á í undirbúningsnefnd sagði að á
Melavellinum mætti sjá marga af helztu gæðingum landsmanna.
verðlaunahesta, og yrðu margs konar atriði sýnd, bæði af unglingum
svo og eldri og þekktum hestamönnum. Yrði t.d. sýndur kerruakstur,
stökk yfir hindranir o.fl. en gert er ráð fyrir að dagskráin standi yfir í
l'/2—2 tíma. Á myndinni eru bræðurnir Gísli og Eyjólfur Gíslasynir á
Kóp og Svölu frá Ilofsstöðum.
Sjúkrarúmið 50 þús. kr. á dag
DAGGJÖLD á sjúkrahúsum verndarstöðinni á Barónsstíg
borgarinnar voru lögð fram á er 23.300 kr., á Hvftabandinu
fundi sjúkrastofnana Reykja- við Skólavörðustíg 16.700 kr. á
vikurborgar. Eru heildardag- Fæðingarheimilinu við Eiríks-
gjöldin á Borgarsjúkrahúsinu i götu 30.700 kr., í Arnarholti
Fossvogi frá 1. marz 51.500 kr. 19.200, á Grensásdeild 22.900 og
Heildardaggjald á Heilsu- í Hafnarbúðum 23.600 kr.
Afmælishappdrætti
S j álfstæðisflokksins
allan daginn frá og með næsta sækja andvirði heimsendra miða,
mánudegi. Þeir, sem óska að láta hringi í síma 82900.
1923 AFlVMEUSMARRÖRÆTfTt
1QOO : GIO 3. uúruf 1973 • •
Nýtt fiskverð:
„Engar fréttir fyrr
en i lok næstu viku
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur nú hrint af stokkun-
um landshappdrætti, sem
tengt er 50 ára afmæli
hans 25. maí n.k. og er
verið að leggja síðustu
hönd á útsendingu happ-
drættismiða til stuðnings-
manna flokksins.
I bréfi formanns flokksins,
varaformanns og framkvæmdar-
stjóra, sem látið er fylgja til
þeirra, sem fá senda miða, segir:
„Sjálfstæðisflokkurinn er nú í
þeirri óvenjulegu aðstöðu að vera í
stjórnarandstöðu á Alþingi, í
borgarstjórn Reykjavíkur og í
mörgum stærstu sveitarfélögum
landsins. Sú staða krefst óvenju-
mikils starfs hjá flokknum.
Öflugt flokksstarf kostar mikið
fé, en um fjármagn getur flokkur-
inn ekki leitað annað en til
stuðningsmanna sinna. Happ-
drættið gegnir veigamilku hlut-
verki í fjáröflun flokksins. Því
heitir Sjálfstæðisflokkurinn á
alla, sem vilja ljá honum lið, að
þeir veiti þessari fjáröflun góðan
stuðning og stuðli þannig að nýrri
flokkslegri sókn og um leið að
betra þjóðlífi á íslandi."
Skrifstofa happdrættisins er í
Valhöll, Háaleitisbraut l, og er
hún opin í dag kl. 13 til 17 og síðan
„ÉG á ekki von á því að neitt
verði að frétta af ákvörðun fisk-
verðs fyrr en í lok næstu viku,“
sagði Jón Sigurðsson forstjóri
Þjóðhagsstofnunar í samtali við
Mbl. í gær, eri Jón er oddamaður í
yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins. sem nú fjallar um nýtt
fiskverð.
„Það er ljóst að tengja verður
fiskverðsákvörðunina við annað
sem er að gerast í þjóðfélaginu.
Við verðum að bíða eftir því hvað
kemur út úr verðbótaákvörðun og
hvort almenn launabreyting
verður önnur að auki.“
Aðspurður um það hvort ríkis-
stjórnin yrði ekki að leggja línurn-
ar við fiskverðsákvörðunina vegna
olíuvandans sagði Jón að þetta
væri hiklaust vandi, sem ríkis-
stjórnin yrði að taka á. „Mér er
ekki kunnugt um það hvort endan-
legar ákvarðanir hafa verið teknar
í málinu en ríkisstjórnin hefur
rætt það mikið og sjávarútvegs-
ráðherra hefur lagt þar fram
vissar tillögur," sagði Jón.