Morgunblaðið - 19.05.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1979
13
Dulargervi
þingmannsins
• Ekki vitum við hvort Ellert B.
Schram alþingismaður og for-
maður Knattspyrnusambands
Islands hefur brugðið sér í
dulargervi á þessum síðustu
dögum þess Alþingis, sem nú
situr. Við vitum það eitt, að á
miðvikudag fannst okkur full
ástæða til að endurskoða
Myndasafn Morgunblaðsins með
mynd af Ellert í Tímanum þann
dag í huga. Óneitanlega fannst
okkur Ellert vera farinn að
minna talsvert á kúbanska stór-
hlauparann Juantorena. En sem
sagt, á myndinni hér til hliðar er
mynd Tímans af Ellert Schram.
Lágu númerin
á ný í tízku
• Fyrir nokkrum árum var mikil
eftirspurn eftir lágum bílnúmer-
um í Reykjavík og menn fúsir til
að greiða stórfé fyrir R-númer
með tveggja eða þriggja stafa tölu.
Hin siðari ár hefur ekki eins mikið
farið fyrir þessari ásókn, en í
Morgunblaðinu á miðvikudag ber
nýrra við í auglýsingu á sjöundu
síðu blaðsins. Þar er auglýst eftir
kaupum á þriggja stafa bílnúmeri,
en þess þó ekki getið að númerið
þurfi endilega að vera skráð í
Reykjavík.
Ekkert að marka
• Meðal þeirra merku mála, sem til
umræðu hafa verið á Alþingi að
undanförnu, er tillaga um breytingu
á nafni íslenzka gjaldmiðilsins úr
krónu í mark. Ymsar hugmyndir
hafa spunnizt út frá þessari tillögu.
Til að mynda yrði þá ekki talað um
sláttumennsku þegar menn þyrftu
að fara í banka og slá sér víxil.
Heldur yrði um eyðimerkurgöngu að
ræða. Fjármálaráðherrann yrði þá
væntanlega kallaður Marka-Tommi
eða eitthvað slíkt. Verðbólgan fengi
trúlegast nafnið Markarfljót og
svona mætti lengi halda áfram.
Þvílíkt
fiskileysi
• Svo segir í Akureýrarblaðinu
Degi frá því á þriðjudag:
1 s.l. viku hófu nokkrir trillukarlar
róðra frá Siglufirði, en til þessa
htfur ekki orðið vart við fisk á
grunnmiðum. Einn re.vndasti trillu-
karlinn á Siglufirði, Jóhannes
Hjálmarsson, fékk sex fiska eftir að
hafa verið úti allan fimmtudaginn,
og var haft eftir honum að hann
hefði aldrei lent í öðru eins fiski-
leysi.
Fisksalar og frjótœknat
kaupakonur og klœðskerar
í UPPLÝSINGABÆKLINGI frá Líftryggingaíélaginu Andvöku. scm
þcssa dagana hcldur upp á 30 ára afmæli fyrirtækisins, cr að finna
töflu þar scm hinum ýmsu starfsgrcinum cr skipt í áhættuflokka.
IAgjöld cru síðan mjög misjöfn cftir þcssum flokkum. sem cru níu
talsins. Minnst cru iðgjöldin fyrir 1. flokk og mcst fyrir 9. flokk.
í 1. flokki eru m.a. rithöfundar, veöurfræöingar, skólastjórar, tónskáld,
bóknámskennarar, arkitekt á stofu, teiknarar og skrifstofumaöur án
feröalaga.
í 2. flokki er að finna blaöamenn, afgreiöslufólk í blómaverzlunum,
endurskoöendur og forstjóra, lækna, lögfræöinga og presta, gullsmiöi,
rakara og hljóöfæraleikara svo eitthvaö sé nefnt.
í 3. flokki eru bifreiöamálarar, efnafræöingar, fararstjórar, fiskvinnslu-
fólk, fóstrur, héraöslæknar, hjúkrunarkonur, húsmæöur, kaupakonur,
klæöskerar, leikarar, skósmiðir, útvarpsvirkjar, þjónar og veggfóörarar.
í 4. flokki finnum viö bakara og ökukennara, fisksala og frjótækna,
hreppstjóra og lögtaksmenn, rannsóknarlögreglumenn og síldarsaltend-
ur, sorphreinsara og tollveröi.
í 5. flokki eru settir í sama hóp bændur og danskennarar, kaupamenn
og málarar, bifreiöastjórar og blikksmiöir.
í 6. áhættuflokki eru m.a. fangaverðir og götulögregluþjónar,
jarðfræöingar og jaröýtustjórar, knapar og kranastjórar, múrarar,
rafvirkjar og trésmiöir.
f 7. flokki eru þyggingarverkamenn og hafnsögumenn, starfsmenn viö
hvalvinnslu og rúöuísetningu, slökkviliösmenn og þeir sem starfa aö
stíflugerð.
í 8. flokki eru þeir sem starfa viö loftlínulagnir, lögregluþjónar á
bifhjólum, starfsmenn við háspennu og tamningamenn.
Loks í 9. og mesta áhættuflokki eru eftirtaldar starfsgreinar:
Froskmenn, gluggahreinsarar, kafarar, ketilhreinsarar, mastursupp-
setjarar og þeir sem sjá um viðhald þeirra, verkamenn viö upp- og
útskipun.
HELGARVIÐTALIÐHHHIHHHHHIIHBaHHBHHi
ÞRÍR ÍSLENZKIR skákmeistarar hefja í dag Þátttöku sína í einu af 13
svæöamótum, sem haldin eru í heiminum. Þaö eru Þeir Guðmundur Sigurjónsson
stórmeistari og alpjóölegu meistararnir Margeir Pétursson og Helgi Ólafsson, sem
tefla á Miö-Evrópusvæöamótinu, sem haldið er í Lucerne í Sviss. Margeir
Pétursson er lesendum Morgunblaðsins að góöu kunnur, en hann hefur í nokkur
ár annast skákpátt í blaöinu við góöan orðstír. Viö ræddum viö Margeir í vikunni
um petta mót, möguleika íslendinganna og skáklíf almennt.
■i / m ■ ■■ |
„Fra Islandi þar sem
allir eru að tefla“
— Hvera vegna eru
íslenzkir akákmenn með á
Mið-E vrópue væðamótinu?
— Það er Alþjóöaskáksam-
bandiö FIDE, sem ákveöur hvaða
þjóðir keppa á hverju móti og
reynir FIDE aö hafa mótin, sem
svipuöust aö styrkleika. í þessu
móti í Sviss eru skákmenn frá 10
löndum, þar á meöal frá öllum
Noröurlöndunum. islendingar
eiga þrjú sæti á þessu móti og
aöeins V-Þjóöverjar eiga fleiri
fulltrúa, 4 talsins. Hingaö til hefur
ísland aöeins átt tvö sæti, en
fjöldi sæta til okkar hefur senni-
lega verið aukinn er Guömundur
Sicjurjónsson bættist í hóp
stormeistara.
— Hverja telurðu aigur-
atranglegaata á þeaau móti?
— Húbner hlýtur aö teljast
sigurstranglegur, en Liberzon,
sem sigraöi í Lone Pine í apríl,
gæti veitt honum haröa keppni.
Maður vonar aö sjálfsögöu aö
Guömundur blandi sér í keppni
þeirra efstu og veröi í svipuöu
formi og á svæöamótinu í Búlga-
ríu fyrir fjórum árum. Þá tapaði
hann í síöustu umferö, seildist of
langt eftir vinningi. Jafntefli heföi
gefiö honum efsta sætið ásamt
tveimur öörum og rétt til aö tefla
viö þá tvo um sæti á millisvæða-
móti. Sigur í stöustu umferöinni
heföi fært Guöpiundi efsta sætiö
og hann því farið án frekari
keppni á millisvæðamót.
— Þrír þeir efstu komast áfram
í millisvæöamót af þessu móti í
Sviss, en t.d. aöeins tveir þeir
efstu á V-Evrópusvæöamótinu.
Þar var toppurinn sterkari en í
Sviss, en hins vegar er breiddin
miklu meiri á motinu, sem við
teflum á, mótiö er miklu þéttara.
Ég bjóst viö aö mótiö í Lucerne
yröi jafnvel sterkara, en þar verða
þó 4 stórmeistarar og 12 alþjóö-
legir meistarar, en aðeins 6 titil-
lausir. Daninn Larsen fer beint í
millisvæöamót, Svíinn Anderson
hefur lýst því yfir aö hann hafi ekki
áhuga á þessum svæöamótum,
þar sem hann teiur sig ekki hafa
neitt í Karpov heimsmeistara að
gera og sér þvt ekki ástæöu til aö
taka þátt í þessari undankeppni
fyrir helmsmeistaraeinvígiö. Finn-
inn Westerinen er ekki með,
kannski vegna þess aö hann á
ekki fín jakkaföt, en af einhverjum
furöulegum ástæöum eru skák-
menn skikkaðir til aö mæta með
fín jakkaföt á mótiö til aö mæta í í
einhverjar fínar veizlur, sem menn
hafa varla mikinn áhuga á.
— Hveó meó möguleika
ykkar Helga Ólataaonar?
— Keppendum verður skipt í
tvo 11 manna riöla og úr þeim
komast fjórir þeir efstu í úrslita-
riöil. Ég get ekki annað en svaraö
fyrir mig og takmarkið hlýtur aö
vera aö komast í úrslitin og sjá
svo hvaö setur. Væntaniega
veröur raöaö eftir styrkleika
manna hverjir skipa hvorn forriðil-
inn, en því miöur vitum viö ekki
ennþá hverjir verða í hvorum riöli.
— Hvernig hefuróu hagaó
undirbúningi pínum fyrir
petta mót?
— Ég hef ekki undirbúö öðru
vísi fyrir þetta mót en önnur. Ég
tefldi á mótinu í Lone Pine í
Bandaríkjunum í byrjun apríl og
síöan á móti í London í lok þess
mánaöar. Síöara mótiö var ekki
ýkja sterkt og eingöngu hugsaö
sem undirbúninrjur fyrir þetta
svæöamót. Á baðum stööunum
viöaöi ég aö mér nýjum bókum og
síðan ég lauk stúdentsprófum fra
Menntaskólanum viö Hamrahlíö
fyrir nokkru hef ég getaö „stúder-
aö" byrjanir, sem ég ætla aö nota
á mótinu.
— Hefur ekki verió erfitt
aó aamræma akólann og
akákina?
— Þaö hefur veriö mesta furöa
hvernig þetta hefur gengið. Mér
gekk það vel í prófunum síöastlið-
iö vor aö ég gat teflt meira í vetur
en áöur og prófin í vor töföu mig
lítiö frá skakinni.
— Hvera vegna peaai mikli
akákáhugi, en ekki t.d. fót-
bolti eóa handbolti eina og
hjá mörgum öórum atrákum?
— Ég spilaði reyndar fótbolta
meö Þrotti í 5. flokki, en þótti ekki
Margeir Pétursson
sýna af mér sérstaka hæfileika
svo því var í raun sjálfhætt. Ég
fékk snemma skákdelluna og var
12 ára gamall þegar Heims-
meistaraeinvígið var haldiö hér á
landi. Þaö kveikti endanlega í mér
og síöan hef ég veriö ólæknandi.
Haustiö eftir einvígiö fór ég aö
sækja skákheimilið á Grensás-
vegi, en þar voru þá iöulega
margir unglingar og mikiö líf.
— Hvaó er framundan í
hauat, akák eóa akóli?
— Þaö er enn alveg óráöiö og
fer mest eftir því hvernig_ mér
gengur á mótum í sumar. í júlí-
byrjun fer ég til Bandaríkjanna og
tefii væntanlega á tveimur mótum
í Fíladelfíu. Siöan koma tvö mót í
Noregi og eitt í London þannig aö
nóg er aö gera.
— Hvenær megum vió
eiga von á aó Margeir Pétura-
aon verói atórmeiatari?
— Kröfurnar sem settar eru til
aö ná stórmeistaraárangri hafa
mjög verið hertar svo þaö veröur
sífellt erfiöara að ná þessu tak-
marki. í 15 skáka móti barf t.d.
einum vinningi meira en aöur. Ég
er sannfæröur um aö í ár veröa
miklu færri stórmeistarar útnefnd-
ir en undanfarin ár.
— Hvernig feró pú aó pví
aó kljúta pann koatnaó, aem
hlýtur aó vera aamtara avo
mikilli akákiókun ?
— Sem alþjóðlegur meistari fæ
ég boö um þátttöku í fleiri mótum
en áöur og þá uppihald og yfirleitt
dagpeninga meðan a móti
stendur. Skáksamband íslands
og Taflfélag Reykjavíkur hafa
dyggilega stutt við bakiö á okkur,
ýmislegt annaö kemur til og svo á
maöur góöa aö, þannig aö þetta
hefur allt bjargast.
— Hvaó teflirðu margar
klukkuatundir í viku aó
meðaltali?
— Það er mjög misjafnt, ein-
hvern daginn sat eg viö í 12 tíma
án hvíldar og þaö kemur fyrir aö
maöur byrji snemma á morgnana
og sé viö fram á nótt. Aöra daga
er maður illa upplagöur og þá
þýðir ekkert aö reyna aö pína sig
til að sitja yfir taflinu. Aö meðaltali
þá hugsa ég aö ekki fari undir 40
tímum á viku í skákina.
— Varðandi stórmeistaratitil-
inn má nefna það, aö Friörik
Ólafsson sapöi einhvern tímann
aö árangur i skák byggist 90% á
vinnu og ég held ég geti tekiö
undir þau orð. Menn veröa þó líka
aö hafa þetta í sér. Það er að
miklu aö keppa aö ná stór-
meistaraárangri, t.d. eru stór-
meistararnir okkar, Friörik Ólafs-
son og Guömundur Sigurjónsson,
á kennaralaunum hjá ríkinu, en
viö alþjóðlegu meistararnir
njótum ekki neinnar slíkrar
fyrirgreiöslu.
— Hefur kjör Friðrika
Ólafaaonar aem foraeta FIDE
haft einhver áhrif á vióhorf til
íalenzkra akákmanna
erlendia?
Ég veit ekki hvort kjör hans
sem slíkt hefur enn sem komið er
haft einhver bein áhrif á mögu-
leika og hugsunarhátt gagnvart
íslenzkum skákmönnum. Islenzkir
skákmenn eru þekktir erlendis og
ísland er viöurkennt sem mikil
skákþjóð og kemur þar ýmislegt
til. Ég hef oröiö var viö aö erlendis
sýna skákmenn mjög mikinn
áhuga á aö komast a mót hér á
landi og eru si'fellt aö spyrja um
þau.
— Það eru þó ekki aöeins
skákmenn, sem vita um skák á
íslandi. T.d. vorum viö íslenzkir
skákmenn í leigubíl í úthverfi New
York í vetur og vorum þá spurðir
hvaöan viö værum. Viö svöröum
því og varö leigubílstjóranum þá
aö oröi án þess að vita aö viö
værum skákmenn: „Já eruð þiö
frá íslandi, þar sem allir eru aö
tefla".
— Nú er oft talaó um
aterkuatu akákmenn aem
einræna furðufugla og peir
jafnvel kallaóir akákmunkar.
Ertu aammála peaau?
— Þeir eru mjög fáir skák-
mennirnir, sem eg þekki, sem
ekki eru viðræðugóöir og
skemmtilegir viökynningar og a
það jafnt viö þá sterkari og einnig
hina. Hins vegar haga menn sér
mjög misjafnlega í mótum. Sumir
vilja slappa af með því aö fara í
skoðunarferðir eða rabba saman
um allt annað en skák þegar þeir
eru ekki aö tefla. Menn eins og
t.d. Karpov vilja hins vegar frekar
loka sig inni yfir skák milli um-
feröa og telja þaö afslappandi en
ekki þreytandi. Fischer haföi t.d.
þann siö aö biðja um hótelher-
bergi þegar hann var á skákmót-
um þar sem væri lélegt útsýni sem
truflaöi hann ekki. Ég held þetta
sé misjafnt og mjög einstaklings-
bundið, sagöi Margeir Pétursson
aö lokum.
— áij.