Morgunblaðið - 19.05.1979, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1979
15
þess að gefa ríkisstjórn landsins
tækifæri og ráðrúm til þess að
leysa þetta mikla vandamál, enda
hefðu ráðherrar hvað eftir annað
sagt opinberlega, að þeir vildu
ráðast gegn vandanum með
stjórnvaldsaðgerðum. Því hefði
VSI ekki viljað spilla. Nú væri
hins vegar ljóst, vegna mjög mis-
munandi tillagna innan ríkis-
stjórnarinnar, að hún myndi ekki
grípa til neinna aðgerða á næstu
dögum — og því kallaði ástandi ð
á viðbrögð af hálfu vinnuveitenda.
Páll Sigurjónsson og Þorsteinn
Pálsson vildu á blaðamannafund-
inum í gær ekki skilgreina nánar,
hverjar yrðu hinar „víðtæku
varnaraðgerðir" vinnuveitenda,
félagsfundur VSÍ myndi taka
ákvörðun um það. Hins vegar
sagði Páll, að helzt vildu vinnu-
veitendur komast hjá því að þurfa
að grípa til nokkurra aðgerða, en
eins og ástandið væri, sæju þeir
ekki hvernig unnt yrði að komast
hjá því.
Fékk aðsvif
í ræðustól
neðri deildar
HALLDÓR E. Sigurðsson, for-
maður þingflokks Framsókn-
arflokksins, fékk aðsvif í ræðu-
stól í neðri deild Alþingis í
gær, um klukkan 15.15, og hné
að gólfi.
Bragi Níelsson læknir, sem á
þessari stundu var í ræðustól
efri deildar, var þegar kvaddur
til og hlúði hann að þingbróður
sínum og fylgdi honum eftir, er
hann var borinn út í sjúkrabíl.
Þingmaðurinn var kominn til
meðvitundar, er hann var bor-
inn út, og brosti til viðstaddra.
Hlé varð á þingfundum um
stund, en deildafundum var
haldið áfram að stuttri stundu
liðinni.
Handavinnu-
sýning í Bú-
staðasókn
AÐ VENJU verður messað í Bú-
staðakirkju á sunnudaginn kemur,
þann 20. maí kl. 2 síðdegis. En
eftir messu verður kirkjugestum
boðið að ganga í safnaðarsalina til
þess að skoða þar handavinnusýn-
ingu, sem opin verður sunnudag-
inn allan. Gefur þar að líta muni,
sem aldraðir hafa unnið á mið-
vikudagssamverustundunum, sem
verið hafa í allan vetur undir
handleiðslu frú Magdalenu Sigur-
þórsdóttur, handavinnukennara.
Þarna verða einnig munir, sem
unnir hafa verið á námskeiðum
Kvenfélags Bústaðasafnaðar í vet-
ur.
Auk handavinnusýningarinnar
er boðið upp á veitingar eftir
messuna.
Gamlar mynd-
ir frá Norðfirði
í TILEFNI 50 ára bæjarafmælis
Neskaupstaðar er í undirbúningi
myndasýning sem ætlað er að
sýna þróun byggðar o'g mannlífs í
bænum þessi 50 ár og reyndar
lengur. Afmælisnefnd Neskaup-
staðar hefur því beint því til
brottfluttra Norðfirðinga og ann-
arra sem kunna að eiga gamlar og
sögulegar myndir að þeir láni þær
til eftirtöku vegna sýningarinnar.
Afhenti
trúnaðarbréf
Hinn 15. þessa mánaðar afhenti
Páll Ásgeir Tryggvason, sendi-
herra, Olafi V. Noregskonungi
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
íslands í Noregi.
Er Afghanistan
Vietnam Rússa?
Washington, 18. maí. AP.
UPPREISNIR andstæð-
inga kommúnista í
Aíghanistan haía breiðzt
út til allra 20 fylkja
landsins nema tveggja
þrátt fyrir umtalsverða
tilraun Rússa til að halda
átökunum í skefjum sam-
kvæmt fréttum sem hafa
borizt til Washington.
Sumir embættismenn telja að
Afghanistan geti orðið Víetnam
Rússa þar sem umrótið heldur
áfram þrátt fyrir aukna hernaðar-
aðstoð Rússa við ríkisstjórn Nur
Mohammes Taraki.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
sagði í síðustu viku, að Rússar
hefðu sent 1,000 borgaralega ráðu-
nauta og 2,000 hermenn til
Afghanistan auk ótiltekins fjölda
Skora á von
Weizsácker
Bonn. 18. maí, AP.
LEIÐTOGAR vestur-þýzku sam-
steypustjórnarinnar hvöttu í dag
heimspekinginn og vísindamann-
inn Carl Friedrich von Weizs-
a—cker til að gerast frambjóðandi
þeirra í væntanlegum forseta-
kosningum Sambandslýðveldisins
í næstu viku. Von Weizsácker mun
ekki hafa gert það upp við sig
hvort hann tekur áskoruninni.
Formaður frjálslyndra,
Hans-Dietrich Genscher, og jafn-
aðarmaðurinn Willy Brandt, fyrr-
verandi kanzlari, sögðust mundu
leggja hart að honum að gefa kost
á sér í næstu viku.
orrustuflugvéla, skriðdreka og
þyrlna.
Talsmaður ráðuneytisins sagði,
að engar órækar sannanir væru
fyrir þvi að orrustuflugvélarnar
væru mannaðar sovézkum flug-
mönnum en vildi ekki útiloka
þann möguleika.
Ýmsir bandarískir sérfræðingar
telja, að mikið sé í húfi fyrir
Rússa í Afghanistan ef til vill
meira en fyrir Bandaríkjamenn í
Víetnam. Ef Rússar geta ekki bælt
niður uppreisnina muni
múhameðstrúarmenn í Sovétríkj-
unum draga af því sínar ályktanir.
Castro vingast
vid Mexíkana
Cozumel. Mexíkó. 18. maí. AP.
FIDEL Castro er í heimsókn í
Mexikó til þes að efla tengsli
Kúbu við landið og veittist í dag
að Bandaríkjamönnum fyrir
meðferð þeirra á Mexíkönum sem
fiytjast ólöglega til Bandaríkj-
anna en hrósaði Jose Lopez
Portillo Mexíkóforseta íyrir að
neita að laga stefnu sfna í olíu-
málum að stefnu bandarfsku
stjórnarinnar.
Castro sagði að atvinnuleysi ylli
því að Mexikanar færu yfir banda-
rísku landamærin og kvað undir-
rót vandamála Mexíkós illa með-
ferð Mexíkana af hendi Banda-
ríkjamanna. Hann kvaðst styðja
kröfur Mexíkana um réttláta og
mannúðlega meðferð af hendi
Bandaríkjamanna.
Þetta er fyrsta heimsókn
Castros til Mexíkó síðan hann fór
þaðan til þess að hefja bylt.ingu
sína á Kúbu fyrir 23 árum.
Lopez Portillo forseti sagði, að
olíumál hefðu verið eitt af um-
ræðuefnum hans og Castros. Get-
um ér að því leitt að Kúbumenn
vilji fá olíu frá Mexíkó í stað
þeirrar sem þeir flytja inn frá
Sovétríkjunum, en Lopez Portillo
gaf í skyn að þeir hefðu rætt
olíumál almennt.
Veður
Akureyri -3 skýjaó
Amsterdam 14 heiöskírt
Apena 26 skýjaó
Barcelona 21 pokumóóa
Berlín 23 skýjaó
Bruatel 19 skýjaó
Chicago 28 skýjað
Frankfurt 18 rigning
Genf 18 skýjaó
Helsinki 17 skýjaó
Jerúsalem 20 heióskírt
Jóhannesarb. 20 léttskýjað
Kaupmannah. 23 skýjaó
Lissabon 20 heiðsktrt
London 15 skýjaó
Los Angeles 22 heióskírt
Madríd 25 heiðskírt
Malaga 23 skýjaó
Mallorca vantar
Miami 27 skýjaó
Moskva 28 heióskírt
New York 25 heióskírt
Ósló 11 rigning
París 17 skýjaó
Reykjavík i léttskýjaó
Rio Oe Janeiro 29 skýjaó
Rómaborg 24 heiöskírt
Stokkhólmur 19 skýjað
Tel Aviv 24 heióskírt
Tókýó 20 skýjaó
Vancouver 14 skýjaó
Vínarborg 26 heiöskírt
Þetta gerdist 19. maí
Sprenging
á Sardiníu
SanKari, Sardinfu. 18. mai. AP.
TVEIR biðu bana og um 60
slösuðust þegar hluti gamallar
byggingar hrundi í sprcngingu í
borginni Sassari á Sardiníu. Lög-
reglan telur að gasleki hafi vald-
ið sprengingunni, en útilokar
ekki að um skemmdarverk hafi
verið að ræða.
1977 — Villidýraveiðar bannaðar í
Kenya vegna ofveiði.
1974 — Giscard d’Estaing kosinn
forseti Frakklands.
1973 — Vestur-þjóðverjar og
Rússar undirrita 10 ára samstarfs-
samning.
1968 — Allsherjarverkfallið í
Frakklandi.
1967 — Rússar staðfesta samning
um bann við kjarnavopnum í
geimnum.
1915 — Rúm 400 „fljúgandi virki"
ráðast á Tokyo.
1906 — Stimplon-göngin opin-
berlega opnuð.
1897 — Vopnahlé undirritað í
stríði Grikkja og Tyrkja.
1802— Franska Heiðursfylkingin
stofnuð.
1798 — Leiðangursher Frakka
siglir frá Toulon til Egyptalands —
Wellesley skipaður landstjóri
Indlands.
1792 — Rússar gera innrás í
Pólland.
1692 — Bretar eyða frönskum flota
við Cap de la Hogue.
1643 — Orrustan um Rocroi:
Frakkar sigra Spánverja.
1635 — Frakkar segja Spánverjum
stríð á hendur.
1588 — „Flotinn ósigrandi" siglir
frá Lissabon til Englands,
1585 — Hald lagt á ensk skip í
spænskum höfnum og stríði þar
með lýst yfir.
1554 — Hinrik II af Frakklandi
ræðst inn í Niðurlönd.
1536 — Anna Boleyn, önnur
drottning Hinriks VIII, hálshöggv-
in.
Afmæli. J. G. Fichte, þýzkur heim-
spekingur (1762—1814) — Nellie
Melba, árströlsk óperusöngkona
(1861-1931).
Andlát. James Boswell, rithöf-
undur, 1795 — Nathaniel
Hawthorne, rithöfundur, 1864 —
W. E. Gladstone, stjórnmála-
leiðtogi, 1898 — T. E. Lawrence,
landkönnuður, 1935.
Innlent. Brezkar freigátur sigla
inn fyrir 50 mílna mörkin 1973 —
Danska þingið samþykkir hand-
ritalögin 1965 — f. Steingrímur
Thorsteinsson 1831 — Heklugos
hefst 1341 — „Lagarfoss" kemur
1917 — Æstur mannfjöldi sækir
fanga í hegningarhús í Vest-
mannaeyjum 1933 — „Gullfoss"
kemur 1950 — Lífeyrissjóður fyrir
verkafólk 1969 — Bernhöftstorfan
máluð 1973 — f. Snæbjörn Jónsson
1887 — Birgir Finnsson alþm. 1917.
Orð dagsins. Það skaðar engan að
borða lítið og tala lítið — Sir John
Lubbock, enskur stjörnufræðingur
(1803-1865).