Morgunblaðið - 21.06.1979, Side 35

Morgunblaðið - 21.06.1979, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1979 35 r, Þór írá Akureyri sigraði íyrr í vor í 5. flokki íslandsmótsins í handknattleik, og íór úrslitakcppnin íram á Akureyri. Meðíylgjandi mynd sýnir glaða Þórsara eftir úrslitaleikinn. Neðri röð talið frá vinstri: Ingólfur Samúelsson, Baldur Guðnason, Siguróli Kristjánsson fyrirliði, Júlíus Tryggvason og Ólafur Ililmarsson. Efri röð frá vinstri: Samúel Jóhannsson, þjálfari, Tómas Guðmundsson, Jónas Ottósson, Úlfar Hauksson, Jón G. Traustason, Steíán Rögnvaldsson, Gunnar Gunnarsson og Jakob Jóhannsson. BREIÐABLIK sigraði Leikni 8—0 í bikarkeppni KSÍ í gær- kvöldi á Kópavogsvelli. Voru yfirburðir blikanna algerir allan tímann og hefðu þeir vel getað skorað fleiri mörk. Staðan í hálfleik var 4—0. Mörk Breiða- bliks skoruðu Hákon Guðmunds- son 1, Sigurjón Rannversson 2, Vignir Baldursson 1, Sigurður Örn 1, Heiðar Breiðfjörð 1, Ólaf- ur Friðriksson 1, og Gunnlaugur Ilelgason 1. Besta tækifæri Leiknis á að skora var er þeim var dæmd vítaspyrna en ekki tókst betur til en að hún var varin. Aðrir leikir í bikar- keppninni voru: Á Vopnafirði léku Einherjar og Austri og sigraði Austri 3—1. Staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Austra. Á ísafirði léku heimamenn við Gróttu, og sigruðu örugglega 2—0. Fylkir sigraði Ármann 3—1 á Melavellinum. Á Dalvík sigraði Þór Akureyri Svarfdæli 3—1, og var staðan 2—0 í hálfleik. • Valsmenn sækja. Tekst þeim að rífa sig upp úr öldudalnum gegn ÍA í kvöld? Valur mætir ÍA í kvöld STÓRLEIKUR íer fram í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu í kvöld og er það viðureign Vals og ÍA á Laugardalsvellinum. Hefst leikurinn klukkan 20.00, en enn er ekki ljóst hvort hann fer fram á gamla vellinum, eða þeim nýja. Með sigri standa Skagamenn jafnfætis ÍBK, Fram og KR í efsta sæti deildarinnar, en Valsmenn verða nauðsynlega að vinna til þess að dragast ekki um of aftur úr toppliðunum. Hvorugt liðið hefur þó sýnt neitt líkt því, sem sjá mátti til þeirra í fyrra sumar, þegar þetta voru yfirburðalið f fslensku knattspyrnunni. Og á Siglufirði fór fram hörku- leikur milli KS og Tindastóls. KS tókst að knýja fram sigur eftir framlengdan leik 5—3. Staðan í hálfleik var 2—0 fyrir Tindastól en KS náði að jafna og eftir venjulegan leiktíma var staðan 3—3. Þá hafði KS misnotað víta- spyrnu. En þeir áttu góðan enda- sprett og innsigluðu sigurinn með tveimur góðum mörkum í fram- lengingunni. - þr. Knanspyrnuursllt IIDróHirl • Finnbjörn Þorvaldsson var fararstjóri íslenska landsliðsins í EM keppninni í Luxemborg um síðustu helgi. Hér er Finnbjörn að afhenda verðlaun fyrir kringlukast í mótinu. Óskar Jakobsson sést fremstur á myndinni en hann sigraði í greininni. Ljósmynd þr. • Úrslitin í 200 m hlaupinu í frjálsíþróttakeppninni í Luxemborg. Bombardella frá Luxemborg sigrar, Qucola frá Portúgal er annar. Vilmundur Vilhjálmsson er annar frá hægri en hann varð í fimmta sæti. Ljósm. þr. Úrslit í Bikarkeppni KSÍ Breióablik sigraði 8—0

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.