Morgunblaðið - 21.06.1979, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1979
35
r,
Þór írá Akureyri sigraði íyrr í vor í 5. flokki íslandsmótsins í
handknattleik, og íór úrslitakcppnin íram á Akureyri. Meðíylgjandi
mynd sýnir glaða Þórsara eftir úrslitaleikinn. Neðri röð talið frá
vinstri: Ingólfur Samúelsson, Baldur Guðnason, Siguróli Kristjánsson
fyrirliði, Júlíus Tryggvason og Ólafur Ililmarsson. Efri röð frá
vinstri: Samúel Jóhannsson, þjálfari, Tómas Guðmundsson, Jónas
Ottósson, Úlfar Hauksson, Jón G. Traustason, Steíán Rögnvaldsson,
Gunnar Gunnarsson og Jakob Jóhannsson.
BREIÐABLIK sigraði Leikni
8—0 í bikarkeppni KSÍ í gær-
kvöldi á Kópavogsvelli. Voru
yfirburðir blikanna algerir allan
tímann og hefðu þeir vel getað
skorað fleiri mörk. Staðan í
hálfleik var 4—0. Mörk Breiða-
bliks skoruðu Hákon Guðmunds-
son 1, Sigurjón Rannversson 2,
Vignir Baldursson 1, Sigurður
Örn 1, Heiðar Breiðfjörð 1, Ólaf-
ur Friðriksson 1, og Gunnlaugur
Ilelgason 1. Besta tækifæri
Leiknis á að skora var er þeim
var dæmd vítaspyrna en ekki
tókst betur til en að hún var
varin. Aðrir leikir í bikar-
keppninni voru:
Á Vopnafirði léku Einherjar og
Austri og sigraði Austri 3—1.
Staðan í hálfleik var 1—0 fyrir
Austra.
Á ísafirði léku heimamenn við
Gróttu, og sigruðu örugglega 2—0.
Fylkir sigraði Ármann 3—1 á
Melavellinum.
Á Dalvík sigraði Þór Akureyri
Svarfdæli 3—1, og var staðan 2—0
í hálfleik.
• Valsmenn sækja. Tekst þeim að rífa sig upp úr öldudalnum gegn ÍA
í kvöld?
Valur mætir
ÍA í kvöld
STÓRLEIKUR íer fram í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu í kvöld
og er það viðureign Vals og ÍA á Laugardalsvellinum. Hefst leikurinn
klukkan 20.00, en enn er ekki ljóst hvort hann fer fram á gamla
vellinum, eða þeim nýja.
Með sigri standa Skagamenn jafnfætis ÍBK, Fram og KR í efsta sæti
deildarinnar, en Valsmenn verða nauðsynlega að vinna til þess að
dragast ekki um of aftur úr toppliðunum. Hvorugt liðið hefur þó sýnt
neitt líkt því, sem sjá mátti til þeirra í fyrra sumar, þegar þetta voru
yfirburðalið f fslensku knattspyrnunni.
Og á Siglufirði fór fram hörku-
leikur milli KS og Tindastóls. KS
tókst að knýja fram sigur eftir
framlengdan leik 5—3. Staðan í
hálfleik var 2—0 fyrir Tindastól
en KS náði að jafna og eftir
venjulegan leiktíma var staðan
3—3. Þá hafði KS misnotað víta-
spyrnu. En þeir áttu góðan enda-
sprett og innsigluðu sigurinn með
tveimur góðum mörkum í fram-
lengingunni.
- þr.
Knanspyrnuursllt
IIDróHirl
• Finnbjörn Þorvaldsson var fararstjóri íslenska landsliðsins í EM
keppninni í Luxemborg um síðustu helgi. Hér er Finnbjörn að
afhenda verðlaun fyrir kringlukast í mótinu. Óskar Jakobsson sést
fremstur á myndinni en hann sigraði í greininni.
Ljósmynd þr.
• Úrslitin í 200 m hlaupinu í frjálsíþróttakeppninni í Luxemborg.
Bombardella frá Luxemborg sigrar, Qucola frá Portúgal er annar.
Vilmundur Vilhjálmsson er annar frá hægri en hann varð í fimmta
sæti.
Ljósm. þr.
Úrslit í Bikarkeppni KSÍ
Breióablik sigraði 8—0