Morgunblaðið - 11.07.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.07.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979 Ríkisstjórnin enn í eldsneytisvandræðnm OLÍU- og bensínverð verða á dagskrá á fundi verðlagsnefndar 5 rússneskar flugvélar til Reykjavíkur FIMM rússneskar flugvélar á leið frá Moskvu til Kúbu hafa fengið leyfi utanríkisráðuneytisins til þess að lenda á Reykjavíkurflugvelli 12. júlí og dvelja hér til 14. júlí. Flugvélarnar lögðu af stað frá Moskvu 7. júlí og hafa millilent á ýmsum stöðum á leiðinni, m.a. í Kaupmannahöfn og Bretlandi, en vélarnar fá leyfi til að lenda vegna eldsneytistöku og áhafnahvildar fyrir alls 30 manns. Kin rússnesk vél af gerðinni IL 76 lenti hér á sömu leið 9. júlí s.l., en vélarnar 5 eru af gerðinni AN 26. í dag, en ekki var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun, hvernig ríkisstjórnin ætlar að standa að sínum hlut þeirra mála. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér í gær, er líklegt að bensínlítrinn fari í 312 krónur og að bensínverðið verði svo endanlega afgreitt á fundi ríkisstjórnarinnar á morgun. Hins vegar er óvíst, hvort olíumálið verður endanlega afgreitt um leið. Verðlagsnefnd mun afgreiða nýtt verðreikningsverð á olíu, en sölu- verðið fer svo eftir þeim ákvörð- unum, sem ríkisstjórnin tekur varðandi niðu rgreiðslur á olíu til fiskiskipa og húshitunar. Til heiðurs flugmálastjóra: Nær 200 manna síðdegisboð sam- gönguráðherra Kvöldverðarboð utanríkisráðherra SA MGÖNGURAÐUNEYTIÐ mun bjóða tæplega 200 gestum til samkvæmis n.k. fimmtudag í tilefni þess að forseti alþjóða- flugmálastofnunarinnar, A. Kotaite, mun afhenda Agnari Kofoed-Hansen flugmálastjóra Edwards Warner verðlaunin, sem fastaráð stofnunarinnar ákvað að veita á fundi sínum 4. júní s.l. íslenzka flugmálastjór- anum. í samkvæminu sem verð- ur síðdegis á Hótel Loftleiðum verða, samkvæmt upplýsingum Birgis Guðjónssonar í sam- gönguráðuneytinu, æðstu menn þjóðarinnar, ýmsir gestir og fyrrverandi og núverandi starfsmenn að flugmálum. Um kvöldið mun utanríkisráðherra síðan halda boð fyrir nokkra tugi gesta í tilefni afhendingar- innar i Þingholti. Viðstaddir athöfnina verða m.a. flugmála- stjórar Norðurlanda. Til Edward Warner verðlaun- anna er stofnað 1958 í minningu Dr. Edward Warner, fyrsta for- seta alþjóðaflugmálastofnunar- innar. Verðlaunin eru æðsti heiður, sem veittur er einstakl- ingi eða stofnun fyrir framlag til flugmála. Sérstök nefnd á vegum fastaráðs alþjóðaflugmálastofn- unarinnar tekur á móti tilnefn- ingum hinna 142 þjóða, sem aðild hafa að stofnuninni. Nefndin gerir síðan tillögu til fastaráðsins um næsta verð- launahafa. Um 80 millj. kr. vextir á mán. af halla olíujöfnunarreiknings 300 millj. kr. á viku út úr viðskiptabönkunum HALLINN á stöðu olíujöfnunar- reiknings olíufélaganna við við- skiptabankana er nú liðlega 2000 millj. kr., en halli sjóðsins eykst nú um 300 millj. kr. á viku eftir að það eldsneyti er komið í sölu sem síðast var keypt til landsins. Þessar 300 milljónir króna eru teknar úr viðskiptabönkunum, Landsbanka íslands og Útvegs- bankanum, og eru um 200 millj. kr. frá Landabankanum og um 100 millj. kr. frá Útvegsbankanum. Vextir af þessum 300 millj. kr. á mánuði er um 12 millj. kr. þar sem miðað er við dagvexti, eða 4% á mánuði. Vextir af halla reiknings- ins eru því um 80 millj. kr. á mánuði. Risaskip fulltafbílum fyrirEimskip Eimskipafélag íslands hefur nú 4 erlend skip í leigu og eitt íslenzkt auk 25 eigin skipa. Eitt erlenda skipið, m.s. Stafford, kom til Reykjavíkur í gær með fullfermi af vörum frá Hamborg og Antwerpen. m.a. landbúnaðartæki og gáma. Þá er væntanlegt stórt leiguskip á vegum Eimskips n.k. þriðjudag, Alida Smits, með fullfermi af stykkjavöru frá Hamborg og Kaupmannahöfn. Myndirnar sýna hið stóra skip, Stafford við bryggju í Reykjavík og inn í hluta bilageymslu skipsins. Félagsdómur vísaði mál- inu gegn farmönnum frá vegna Bráðabirgðalaganna — Vinnuveitendur áfrýja til Hæstaréttar FÉLAGSDÓMUR vísaði í gær írá málum þeim er Vinnuveitendasambandið og Vinnumálasamband samvinnufélaganna höfð- Bráðabirgða- lögí dagum lántöku vegna orkuframkvæmda FJÁRMÁLARÁÐHERRA mun í dag fyrir hönd ríkissjóðs gefa út bráðabirgðalög um 2.275 milljón króna viðauka við fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir 1979, en fé þessu skal verja til aukinna framkvæmda í orkumálum og verður þess aflað með lántöku erlendis. Upphafleg samþykkt ríkis- stjórnarinnar var um 2,6 millj- arða króna viðauka, en þingflokk- ur Alþýðuflokksins féllst ekki á fyrirhugaðar boranir við Kröflu og lækkar framkvæmdaáætlunin um 325 milljónir króna þess vegna. e uðu gegn Farmanna- fiskimannasambandi lands vegna yfirvinnu banns farmanna. Var málinu vísað frá með atkvæðum þriggja dómenda og sagði í niður- stöðu þeirra að bráða- birgðalög nr. 70/1979, sem sett voru til lausnar í farmannadeilunni skipi málum á annan hátt en gert sé í lögum um stéttar- félög og vinnudeilur og verði ekki hjá því komist að líta svo á að Félagsdómur eigi ekki úrskurðarvald um ágreiningsefni málsins. Minnihluti dómsins tveir dómendur töldu að ákvæði bráðabirgðalaganna stæðu ekki í vegi fyrir því að Félagsdómur leggði efnis- dóm á málið og því bæri að hrinda frávísunarkröfunni. Bæði Vinnuveitendasam- bandið og Vinnumála- sambandið hafa ákveðið að áfrýja þessum úrskurði til Hæstaréttar. Viðbrögð umsækjenda — við veitingu embættis yfirborgarfógeta „Ekki rétt mat eða á rökum reist” segir forseti borgarstjómar um gagnrýni á veizlugleði MORGUNBLAÐIÐ hafði í Kær samhand við Sigurjón Péturs- son forseta borgarstjórnar og innti hann eftir áliti á þeirri gagnrýni sem hann hefur orðið fyrir að undanförnu fyrir veizlugleði og tilstand f opin- berum störfum sem forseti borgarstjórnar, m.a. í heilsíðu- viðtali í Þjóðviljanum þar sem mátti sjá setningar eins og þessar þar sem verið var að tala um svik Alþýðubandalagsins við „málstaðinn“: „Tökum til dæmis hann Sigurjón. Að sjá hann í laxinum — jesús minn. Með vindil í trantinum, burg- eisabros og veiðistöngina á lofti,“ eða þar sem segir, „ég hef satt að segja aldrei þolað snobb- ara af neinu tagi.“ „Ég hef ekkert um þessi um- mæli að segja," sagði Sigurjón, „það er eitt af hlutverkum for- seta borgarstjórnar nú, að koma fram fyrir hönd borgarinnar. Ég hef heyrt að veizlustand og tilstand hafi aukizt, en það er alrangt, það hefur jafnvel dregið úr því. En eins og ég sagði er það hlutverk forseta að taka á móti gestum og sinna ýmsu í þeim efnum og ég mun rækja það hlutverk á meðan ég sit í emb- ætti forseta." Blm. Mbl. spurði forseta borg- arstjórnar þá hvað honum finndist um orðalag eins og burgeisabros í hans garð. „Mér finnst það ekki rétt mat eða á rökum reist," svaraði Sigurjón, „þetta burgeisahjal svo ég er ekkert hörundsár yfir því.“ SVO sem kunnugt er af fréttum hefur Jón Skaftason verið skipað- ur í embætti yfirborgarfógeta í Reykjavík. í frétt í blaðinu í gær kom fram að einn umsækjenda um embættið, Unnsteinn Beck borgarfógeti, mun segja starfi sinu lausu í mótmælaskyni. Jón Skaftason kom til landsins f gær cftir nokkurra vikna dvöl erlend- is og vildi að svo komnu máli ekki tjá sig um embættisveiting- una. Umsækjendur um stöðu yfir- borgarfógetans voru alls sex og fara viðbrögð annarra umsækj- enda við embættisveitingunni hér á eftir en Elías I. Elíasson bæjar- fógeti sagðist ekki vilja tjá sig um málið. Ásberg Sigurðsson borgarfógeti sagði að hann teldi að þarna hefði verið gengið fram hjá hæfasta umsækjandanum, Unnsteini Beck, sem átt hefði skilyr^islausan em- bættislegan rétt til starfans. „Þessi embættisveiting er að mín- um dómi frekleg valdníðsla, sem ætti ekki að eiga sér stað," sagði Ásberg. Ásgeir Pétursson sýslumaður sagði að pólitískar stöðuveitingar hefðu vissulega lengi viðgengist hérlendis. „Hér er bara gengið lengra en menn eiga að venjast," sagði Ásgeir. Guðmundur Vignir Jósefsson gjaldheimtustjóri sagði að hann hefði ekkert sérstakt um þessa embættisveitingu að segja. „Hins vegar tel ég að Jón Skaftason sé fullfær um að gegna þessu em- bætti og ég óska honum alls velfarnaðar," sagði Guðmundur. Benedikt í Bandaríkjunum BENEDIKT Gröndal utanrfkis- ráðherra er nú í sumarleyfi og dvelur í Bandaríkjunum, á heim- ili tengdamóður sinnar. Ráðherr- an er væntanlegur aftur til starfa 30. júli. Hörður Helgason ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu sagði Bandaríkjaferð utanríkisráðherra einkaferð hans og myndi hann ekki sinna opinberum erinda- gjörðum vestanhafs í sumarleyf- inu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.