Morgunblaðið - 11.07.1979, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979
Rætt við
félagsmenn
Septem-hópsins
sem nú sýna
á Kjarvais-
stöðum
Septem-hópurinn varð til
árið 1974, þegar sjö mynd-
listarmenn tóku sig saman
og efndu til sýningar í
Norræna húsinu. Það hefur
örlað á þeim misskilningi
að þessi hópur væri nokk-
urskonar endurlífgun
gömlu Septembersýningar-
innar frá árinu 1947, en svo
er ekki, þrátt fyrir það að
kjarni hópsins er að nokkru
sá sami. Margir af fyrri
félögum eru látnir, einn
fluttur úr landi, aðrir hafa
bæst í hópinn. Einn úr
Septcm-hópnum er Valtýr
Pétursson og sagði hann
ástæðuna fyrir þessu nafni
vera að upphaflega hefðu
þeir verið sjö, sem Sep-
tem-hópinn stofnuðu, en
síðan hefði einn bæst í
hópinn svo nú væru þeir
átta.
Septem-hópurinn hefur haldið
árlega sýningu í Norræna húsinu
frá árinu 1974, auk þess sem tveir
þekktir erlendir listamenn hafa
tekið þátt í sýningum Sep-
tem-hópsins sem gestir.
Jh f í seinni tíð
hallast að því
fígúratíva“
„Astæðan fyrir því að við
ákváðum að stofna nýjan Sep-
tem-hóp var sú að okkur fannst
ekki nógu mikil áhersla lögð á
myndverkið," sagði Valtýr Péturs-
son í viðtali við blaðamann Mbl.
nú fyrir stuttu. Valtýr var þá,
ásamt öðrum meðlimum Septem—
hópsins, að leggja síðustu hönd á
þá miklu vinnu, sem felst í því að
opna listaverkasýningu.
Valtýr hlaut menntun sína í
Bandaríkjunum, Ítalíu og Frakk-
landi og hefur hann tekið þátt í
sýningum um langt árabil í flest-
um löndum Evrópu og einnig hafa
yerk hans verið sýnd í Kanada,
Bandaríkjunum og Suður-Ame-
ríku. Hefur hann haldið fjölmarg-
ar einkasýningar, bæði hér á landi
og erlendis.
„Við vorum búin að halda lengi
saman og vildum sýna, saman, og
þess vegna ákváðum við að stofna
nýjan Septem-hóp,“ sagði Valtýr
ennfremur.
Septem-hópurinn. Talið f.v. Jóhannes Jóhannesson, Kristján Davíðsson, Guðmunda Andrésdóttir, Valtýr Pétursson, Þorvaldur Skúlason og
Steinþór Sigurðsson. Á myndina vantar Sigurjón Ólafsson og Karl Kvaran. Ljósm.: Kristinn.
„ Við vildum
halda hópinn...“
Guðmunda Andrésdóttir við myndina Vorblót, sem hún málaði fyrr á
þessu ári.
Valtýr Pétursson við mynd sína Gulu hnjúkarnir.
„Þeir sem tilheyra Sep-
tem-hópnum eru ásamt mér, Guð-
munda Andrésdóttir, Jóhannes
Jóhannesson, Karl Kvaran,
Kristján Davíðsson, Sigurjón
Ólafsson, Steinþór Sigurðsson og
Þorvaldur Skúlason. Karl Kvaran
er þó ekki með á þessari sýningu,
þar sem hann er nýbúinn að halda
stóra einkasýningu."
„Mínar myndir hér á sýning-
unni eru eingöngu unnar í olíu og
eru mest landslagsmyndir og sjáv-
armyndir, auk nokkurra abstrakt-
sjóna,“ sagði Valtýr.
„Enginn þessara mynda hafa
verið á sýningu áður, og eru þetta
allt nýjar myndir, sem ég hef lokið
við á þessu ári. Allar myndirnar
mínar hér á sýninguni eru til
sölu.“
„í mörg ár hef ég lagt mesta
áherslu á „nonfígúratívar" mynd-
ir, en nú í seinni tíð hef ég meira
hallast að því „fígúratíva", hvort
sem það fer mér betur eða verr.
Um það verða aðrir að dæma.“
„ Vinn þetta eins
og hverja
aðra vinnu“
Guðmunda Andrésdóttir stund-
aði listnám í Svíþjóð og Frakk-
landi og hefur hún haldið fimm
einkasýningar í Reykjavík, auk
þess sem hún hefur tekið þátt í
sýningum á öllum Norðurlöndun-
um, Bretlandi, Ítalíu, í Frakklandi
og Bandaríkjunum.
Öll verk Guðmundu á sýning-
unni á Kjarvalsstöðum eru olíu-
verk og flest unnin á þessu ári, en
inni á milli eru þó eldri verk að
sögn Guðmundu.
„Þetta eru allt abstraktmyndir,
sem ég sýni hér og eru þær allar
til sölu,“ sagði Guðmunda.
„Ég var með á síðustu sýningu
gamla September-hópsins og hef
verið með á öllum Septem-sýning-
unum frá því þær byrjuðu árið
1974.“
Aðspurð sagði Guðmunda að
hún liti á vinnu sína við málverkin
eins og hverja aðra vinnu.
„Myndirnar smámótast í hönd-
unum á mér, en ég vinn oftast út
frá ákveðnum hugmyndum, sem
ég set mér áður en ég byrja.
Hugmyndirnar þróast síðan smátt
og smátt meðan ég mála, og oft
vinn ég mjög þröngt, þ.e. ég tek
fyrir ákveðin þemu, sem ég vinn í
margar myndir og útfæri á mis-
munandi hátt. Sumar myndirnar
mínar eru því nokkuð líkar, því
mér finnst mjög gaman að leika
mér að formunum fram og aftur."
„Myndirnar verða
að túlka sig
sjálfar“
„Hér á sýningunni eru mest
nýjar myndir eftir mig,“ sagði
Þorvaldur Skúlason, er blm. Mbl.
sneri sér að honum.
„Það kemur þó oft fyrir að mörg
ár fari í að vinna eina mynd þótt
margar taki nú styttri tíma.“
Þorvaldur stundaði listnám við
Listaháskólann í Osló og síðan í
París og dvaldist hann í mörg ár í
París og Kaupmannahöfn. Hefur
hann tekið þátt í sýningum á