Morgunblaðið - 11.07.1979, Síða 13

Morgunblaðið - 11.07.1979, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979 13 öllum Norðurlöndunum, auk þess sem hann hefur sýnt víða um heim. „Ég mála mest abstraktmyndir, sem verða að túlka sig sjálfar. Aður en ég byrja að vinna mynd, geri ég mér yfirleitt grein fyrir því hvað ég ætla að fást við og stundum legg ég megináhersluna á litinn, stundum línuna, eða formið. Hvað verður fyrir valinu hverju sinni er ákaflega mismun- andi, en myndin tekur oft miklum breytingum meðan ég er að vinna hana. Stundum margeyðilegg ég myndina, meðan ég er að vinna hana, og oft breyti ég fullgerðum myndum. Ég er svo sérvitur." Allar myndir Þorvaldar eru unnar í olíu og eru til sölu. „Myndin þróast meðan hún er í vinnslu“ Kristján Davíðsson tjáði blm. Mbl. að flestar af hans myndum á sýningunni væru nýjar, og væri sú elsta frá árinu 1976. Kristján stundaði listnám í Reykjavík og síðar í Bandaríkjun- um, og hefur tekið þátt í sýningum Sigurjón ólafsson myndhöggvari. Hann á 14 verk á sýningunni. upplifað í náttúrunni og umhverfi mínu.“ „Allar myndirnar mínar hér á sýningunni eru unnar í olíu og eru flestar þeirra til sölu." „ Vinn nær eingöngu í tré nú orðið“ Sigurjón Ólafsson er eini mynd- höggvarinn í Septem-hópnum, en aðrir í hópnum leggja aðaláhersl- una á málverkið. Sigurjón stund- aði listnam í Reykjavík og síðan á Listaháskólanum í Kaupmanna- höfn. Hann hefur tekið þátt í sýningum víða um heim, auk þess sem höggmyndir hans eru á mörg- um söfnum og við opinbera staði í Reykjavík og víðar. I viðtali við blm. Mbl. sagði Sigurjón að flest verka hans á Septem 79 væru nýleg og unnin á þessu og síðasta ári. „Öll verkin nema tvö eru unnin í tré, þó ekki sé um eiginlegan myndskurð að ræða,“ sagði Sigur- jón. „Þetta eru nokkurs konar mód- el, sem hægt væri að stækka í annað efni, ef áhugi væri fyrir hendi." málaðar á árunum 1978 og 1979. Alit eru þetta olíumyndir og eru allar til sölu,“ sagði Jóhannes Jóhannesson. Jóhannes stundaði listnám í Reykjavík og í Bandaríkjunum og hefur tekið þátt í mörgum listsýn- ingum hérlendis og erlendis, auk þess sem hann hefur haldið nokkr- ar einkasýningar í Reykjavík. „Ég tilheyri kjarnanum úr gamla Septem-hópnum, og get ekki annað en ságt að margt hafi breyst síðan ég byrjaði á þessu. Gamli listamannaskálinn var ákaflega skemmtilegur sýningar- staður og það var alltaf svo mikið um að vera þegar við vorum að bauka við að setja þar upp sýning- ar í gamla daga. Annars verður ekki annað sagt, en að það sé alveg stórkostlegt að fá tækifæri til að setja upp sýningu hér á Kjarvals- stöðum. Þótt Norræna húsið sé alveg ágætt er það full lítið fyrir okkur í Septem-hópnum, en hérna er mun stærri salur og miklu betra að koma verkunum fyrir svo að þau njóti sín. Kjarvalsstaðir eru eiginlega eini staðurinn í Reykjavík, sem ber svona stóra sýningu, og var það því alveg ágæt Kristján Davíðsson við mynd sína Andlit í kyrrstæðri bflalest. Hugmyndina að þessari mynd fékk Kristján er hann var staddur í Chicago-borg í aprfl síðastliðnum. Lenti hann þá í miklu umferðar- öngþveiti, en í myndinni reynir hann að túlka hvernig honum leið á meðan hann beið eftir því að komast áfram. Jóhannes Jóhannesson við mynd er hann nefnir Landnám. Sagði hann að í þessari mynd hefði honum fundist hann geta ráðið fram úr vandamáli, sem hann var að glíma við „og því er þetta eins konar landnám með sjálfum mér.“ Blár dagur heitir þessi mynd Þorvaldar Skúlasonar. Steinþór Sigurðsson hjá mynd sinni Vetrarblóm. Hlutafélag stofnað um klak-ogfisk- eldisstöð á Hólum í Hjaltadal Ba'. 9. júlf. FÖSTUDAGINN sjötta þessa mánaðar var stofn- fundur hlutafélags um klak- og eldisstöð á Norð- urlandi vestra haldinn á Hólum í Hjaltadal. Þar voru mættir um 30 fulltrú- ar frá fiskiræktar- og veiðifélögum á þessu svæði. Til fundar var boð- að af undirbúningsnefnd, sem síðastliðin tvö ár hef- ur unnið að undirbúningi málsins. Þarna var mættur sem fulltrúi landbúnaðarráðherra Haraldur Árnason skólastjóri, en fyrirhug- að er að Bændaskólinn á Hólum eignist 40% af hlutafé félagsins, sem ákveðið er 70 milljónir króna. Á fundinn komu einnig Árni ísaksson frá Veiðimálastofnun- inni, sem hélt erindi um klak- og eldisstöðvar og Eyjólfur K. Jóns- son alþingismaður sem sat fund- inn sem lögfræðilegur ráðunautur hlutafélagsins. Hið nýstofnaða hlutafélag hlaut nafnið Hólalax h.f. og er heimilis- fang þess Hólar í Hjaltadal og fá færri hlut í þessU félagi en vilja, því ásókn í að eignast hlut í því hefur verið meiri en hægt hefur verið að anna. Stjórn félagsins var kosin á fundinum og skipa hana Gísli Pálsson, Hofi, formaður, Valgeir Guðjónsson, varaformað- ur, Gísli Gíslason, ritari, Haraldur Árnason, Björn Lárusson, Böðvar Sigvajdason og Pétur HafsteLns- son. Áætlað er að stöð þessi taki til starfa haustið 1980 en sú áætlun byggist á því heitt og kalt vatni verði til staðar á skólasetr- inu. Miklar vonir eru bundnar við þessa framkvæmd og jafnframt að þarna gefist tækifæri til að veita bændaefnum undirstöðumenntun í fiskirækt. Hefur veiðimálastjóri einnig talið líklegt að á Hólum verði fastráðinn maður frá stofn- uninni. Gestkvæmt hefur verið á Hólum undanfarið og t.d. voru lærðir og leikir kirkjunnar menn á tveggja daga námskeiði þar um síðustu helgi. Spretta er mjög hæg og ekki eru líkur til að sláttur hefjist fyrr en um eða eftir næstu mánaða- mót. — Björn. með íslenskum og erlendum lista- mönnum víða um heim, auk þess sem hann hefur haldið 18 einka- sýningar. Á Kjarvalsstöðum sýnir Kristján nú olíumálverk og teikn- ingar, auk þess sem ein mynd er unnin í akríl. „Ég reyni alltaf að láta litina og formið styðja hvort annað. A meðan myndin er í vinnslu þróast hún á ýmsa vegu, en eitthvað er þó á bak við myndina, sem mig langar til að framkvæma. Það kemur fyrir að ég mála stóra mynd á einum degi, svo eru það aðrar myndir sem eru mörg ár að fæðast." Kristján sagði að allar mynd- irnar á sýningunni væru til sölu nema tvær, sem væru í einkaeign. „Minningar og hug- hrií iír úr náttúr- unni og um- hverfinu“ Steinþór Sigurðsson er yngsti listamaðurinn í Septem-hópnum og sýndi ekki með gamla kjarnan- um. Hann stundaði listnám í Reykjavík, Stokkhólmi og Barce- lona og hefur tekið þátt í sýning- um víða um lönd. Hann starfar nú sem leikmyndateiknari í Reykja- vík. „Margar af myndunum mínum eiga rætur að rekja til þeirra áhrifa, sem ég hef orðið fyrir úti í náttúrunni og má eiginlega segja að þær séu minningar og hughrif sprottin upp úr þvi sem ég hef „Ástæðan fyrir því að flest verka minna á sýningunni eru unnin í tré, er sú, að ég get ekki lengur unnið í grjót. Eg er með ofnæmi fyrir ryki og vinn því nær eingöngu í tré nú orðið." „Á sýningunni eru 14 verk eftir mig og á ég þau öll sjálfur nema eitt,“ sagði Sigurjón ennfremur. „Ég hef ekkert endilega hugsað mér að selja þessi verk, og því eru þau öll óverðmerkt. Það má eigin- lega segja að ég sé að þessu að gamni mínu, en ekki til að selja." „Stórkostlegt að sýna á Kjarvalsstöðum “ „Þetta eru allt nýjar myndir, sem ég sýni hér núna, og eru hugmynd hjá stjórn Kjarvalsstaða að bjóða okkur að sýna hér.“ „Myndirnar mínar verða bara að tala sínu máli. Þetta eru allt abstraktmyndir og legg ég höfuð- áhersluna á litinn. Það er eigin- lega vegna litarins, sem ég er að fást við þetta." „Áður en ég byrja að vinna við mynd geri ég mér í stórum drátt- um grein fyrir viðfangsefninu. Oft fæst ég við svipuð vandamál í fleiri en einni mynd og útfæri þá einstök þemu í margar myndir." „Ég er mjög lengi að mála og það tekur mig stundum mörg ár að mála eina mynd. Þegar maður er orðinn svona gamall verður maður svo gagnrýninn," sagði Jóhannes að lokum. A.K. Kópavogur og Garðabær: Þúsund ný símanúmer um áramót UNNIÐ ER nú að smíði nýrrar símstöðvar ( Kópavogi sem þjóna á Kópavogi og Garðabæ. Er gcrt ráð fyrir að símstöðin verði tekin í notkun um næstu áramót. en nú er verið að steypa upp húsið. Að sögn Kára Jónassonar símstjóra verða um 1.000 ný númer í stöðinni en nú bíða um 300 manns eftir að fá síma í Kópavogi og Garðabæ og kvaðst hann voná að þessi stækkun stöðvar- innar myndi duga um nokkurt skeið, en sumir hafa beðið allt að einu ári eða lengur eftir nýjum síma á þessum stöðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.