Morgunblaðið - 11.07.1979, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979
31
Sími50249
Ásinn er hæstur
Ace high
Hörkuspennandi mynd
Eli Wall Ach, Terence Hill, Bud
Spencer.
Sýnd kl. 9
Lostafulli erfinginn
Ný, djörf og skemmtlleg mynd um
.raunir" erfingja Lady Chatterlay.
Aöalhlutverk: Harlee Mac. Bridde og
William Berkley.
Sýnd kl. 9
Segulstál
- r * v
vigtar 1 kiló. Lyftir 60 kílóum.
Stærö 8x9x3 sentimetrar.
Gott til að „fiska" upp járnhluti
ár sjó, ám, vötnum, gjám,
svelg, tönkum. Líka til aö halda
verkfærum og smíöahlutum.
Sendum í póstkröfu.
Vesturgötu 16, sími 13280
lliil
WM
Skemmti
ferð
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar R.K.Í. minnir
félagskonur á skemmtiferöina þriöjudaginn
17. júlí n.k. Tilkynnið þátttöku eigi síðar en
föstudaginn 13. júlí. Sími 28222.
Fjölmenniö.
flfargtiiifrliifrft
símanúmer
Ritot iíiu mm
11 w I ilullN K
10100
AUGLÝSINGAR;
22480
AFGREIÐSLA
■
m
83033
Sigurvegarar í A-flokki alhliða gæðinga. Sá með flaggstöngina er Gísli Guðmundsson. sem sat Fána. í
öðru sæti varð Skjóni Óskars Karelssonar og þriðji Vinur, sem Guðmundur Páll Pétursson situr.
Langdregið
Hellumót
Árlegt hestaþing Hesta-
mannafélagsins Geysis í Rang-
árþingi fór fram um helgina á
Hellu. Á laugardaginn fór fram
gæðinga- og unglingakeppni.
Félagssvæði Geysis er eitt hið
stærsta á landinu eða öll Rang-
árvallasýsla að undanskildum
A-Eyjafjöllum. Mótið var fjöl-
sótt og mörg af bestu hlaupa-
hrossum landsins komu fram.
Mótið hófst nokkuð stundvís-
lega klukkan tvö mcð hópreið
félagsmanna. Kappreiðarnar
gengu nokkuð vel, en úrslita-
keppni fimm efstu hesta í A og
B flokki gæðinga og unglinga-
keppni tóku allt of langan tíma,
eða um tvo tíma.
Dæmt var eftir nýendurskoð-
uðu dómkerfi, L.H. Gæðingasýn-
ingin á að vera hápunktur hvers
hestamannamóts, sýndist vera
nóg að kynna gæðingana og
afhenda verðlaun. Þessi lang-
dregna endurröðun er aðeins til
að fæla fólk frá hestamótunum.
Sigurður Haraldsson formaður
Geysis sagði að kerfið væri
gallað, og enn þörf á að endur-
skoða það, taldi hann vafasamt
að kerfið hefði breyst til bóta.
Helluvöllurinn er einn af bestu
Kristinsson situr hér Svan, en hann var valinn besti knapi
Geysisfélaga á mótinu. Ljósm. Sík. SíKm.
kappreiðavöllum landsins og
áhorfendasvæðið sæmilegt. En
önnur aðstaða mótsgesta léleg,
eitt lítið sölutjald veitinga sem
margfaldur mannhringurinn
beið við eftir afgreiðslu og
hreinlætis- og snyrtiaðstaða
bágborinn. Ef sunnlenskir
hestamenn ætla að nota Hellu-
völlinn sem aðalvöll til stórmóta
í framtíðinni þarf að koma sem
allra fyrst viðunandi veitinga-
og snyrtiaðstaða líkt og á Vind-
heimamelum.
Á mótinu á Hellu voru staddir
níu norskir hestamenn frá
hestamannafélaginu Heini í
Drammen. Eru þeir gestir Geys-
isfélaga í 10 daga.
Úrslitin í einstökum greinum
urðu þessi: í unglingakeppni
sigraði Ágúst Sigurðsson á Ljúf
með 7,84 stig, annar varð Eiður
Kristinsson á Svan með 7,72 stig,
var hann jafnframt valinn besti
knapi Geysisfélaga, þriðji varð
Davíð Jónsson á Stjarna með
7,64 stig. í A-flokki gæðinga
varð efstur Fáni, gráblesóttur 6
v. Eigandi, Elín Osk Óskarsdótt-
ir, fékk 7,76 stig. Knapi var Gísli
Guðmundsson. Annar varð
Skjóni, bleikskjóttur 9 v. Eig-
andi og knapi Óskar Karelsson,
hann hlaut 7,60 stig. Þriðji varð
Vinur, rauður 6 v. Eigandi
Hrund Logadóttir, knapi Guð-
mundur Páll Pétursson. Hann
var með 7,78 stig. Þess ber að
geta að einkunnir gilda frá
deginum áður en breytast ekki
við endurröðun.
í B-flokki sigraði Peningur,
rauður 8 v. með 8,16 stig, eigandi
og knapi Rúnar Ólafsson. Annar
varð Heródes, brúnn 7 v. Eigandi
Birna Jónsdóttir, knapi Eyþór
Óskarsson, hlaut 8,12 stig, og í
þriðja sæti varð Svanur, leirljós,
7 v. með 8,02 stig, knapi og
eigandi Ágúst Ingi Ólafsson.
Úrslit í nýliðaskeiði urðu þau að
fyrstir og jafnir voru Hrímnlr
Ólafs Sigfússonar og Ægir Ág-
ústs Inga Ólafssonar á 16,0 sek.,
þriðji varð Váli Sigurbjörns
Bárðarssonar, knapi Trausti Þ.
Guðmundsson. Váli hljóp á 16,5
sek.
í 250 m skeiði sigraði Fannar
Harðar G. Albertssonar á 23,7
sek, knapi Aðalsteinn Aðal-
steinsson, Ás Þorkels Bjarna-
sonar varð annar á sama tíma,
knapi Þorkell Þorkelsson, og í
þriðja sæti var Skjóni á 23,9 sek.
Eigandi Helgi Valmundsson,
knapi Albert Jónsson. í 250
metra unghrossahlaupi sigraði
Leó Baldurs Baldurssonar, knapi
Björn Baldursson, afl8,9 sek,
annar Hrímnir Guðmundar Þ.
Sigurðssonar, knapi Atli Guð-
mundsson, hljóp á 19,4 sek og
þriðji Gauti Ragnars Tómasson-
ar, knapi Tómas Ragnarsson, á
19,7 sek.
Þá urðu úrslitin í 350 m
stökkinu þau að Stormur sigraði
eins og á Vindheimamelunum,
hljóp nú á 25,0 sek. Eigandi hans
er Hafþór Hafdal en Baldur
Baldursson sat úrslitasprettinn.
Óli Guðna Kristinssonar varð að
láta sér nægja annað sætið á
25.2 sek, Þórður Þorgeirsson
hefur hleypt honum í sumar. í
þriðja sæti varð svo Gjálp Gylfa
og Þorkels á Laugarvatni, knapi
Gunnar Sigurðsson. Hún hljóp á
25,6 sek.
Tinna sem Þórdís H. Alberts-
son á sigraði í 800 m stökki á
63.3 sek, ungur og efnilegur
knapi Hörður Harðarsson sat
hana. Annar varð Móri Hörpu
Karsldóttur, hljóp á sama tíma
en Mósi varð í þriðja sæti, hljóp
á 64,8 sek. Kristinn Guðnason í
Skarði sem hefur verið sigursæll
með Frúarjarp Unnar Einars-
dóttur í 800 m stökkinu undan-
farin ár hefur nú skipt um grein.
Hann sigraði nú í 800 metra
brokkinu á 1,48.0 mín, annar
varð Heródes Birnu Jónsdóttur á
1,52.0 mín og í þriðja sæti var
Skussi Hreins Þorkelssonar,
hljóp á 1,54,7 sek. Sig.Sigm.
•»