Morgunblaðið - 11.07.1979, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979
33
komið fyrir hérlendis. Við teljum
okkur vera fyrir utan hringiðu
umheimsins.
Ein þessara frétta er um orku-
sparnað erlendra ríkja og orku-
skort heimsins. Nokkur ríki eru
þegar farin að taka upp skammt-
anir, eins og til dæmis ben-
sín-skömmtun. Jafnvel þjóðir svo
nálægar okkur sem Norðmenn eru
farnir að hugleiða möguleikana á
slíku.
En við hér á íslandi stöndum
enn eins og þursar og hlustum á.
Við hugsum ekki um það, að fyrr
eða síðar verðum við orkuskortin-
um að bráð ef ekkert verður að
gert. En við eyðum bensíni í alls
kyns íþróttir, bátarall og bifreiða-
íþróttir, í stað þess að spara til
vondu áranna eða eyða peningun-
um í rannsóknir á því hvernig
hægt er að notfæra sér innlenda
orku til að fullnægja allri
orkuþörf landsmanna, einnig hvað
snertir farartæki.
Eini sinni heyrði ég skrýtlu um
seinagang Norðurlandabúa og mér
Þessir hringdu . . .
• Þágufallssýki
Kona nokkur hringdi til Velvak-
anda:
„1 morgunstund barnanna er
verið að lesa sögu eftir Magneu
frá Kleifum „Halli, Kalli, Palli og
Magga Lena“. Ég hlusta á þessa
sögu með öðru eyranu og hef
ekkert út á hana sjálfa að setja.
En einn morguninn brá mér
óskaplega er ég heyrði upplesar-
ann segja útdrátt úr síðasta lestri.
„Þeim langaði í hvolp" var sagt.
Ekki veit ég hverjum þessi villa er
að kenna. En mér finnst það vera
algjör óþarfi svo lengi sem þágu-
fallssýki er ekki viðurkennd að
láta hana koma fram í fjölmiðlum.
Börnum er kennt að þetta sé rangt
mál en það verður ósköp erfitt að
útskýra það fyrir þeim ef slíkt fer
að heyrast í fjölmiðlum og ekki
síst í sögum fyrir börn.“
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
I borgakeppni á milli Moskvu,
Prag og Belgrad sem fram fór í
Moskvu sl. haust kom þessi staða
upp í skák þeirra Gross, Prag, sem
hafði. hvítt og átti leik, og
Zlotniks, Moskvu.
30.Hxh6+! og svartur gafst upp,
því að eftir 30. — gxh6, 31. Rf6 er
hann óverjandi mát. Keppninni
lauk á þá leið að Moskvusveitin
varð efst með 9% vinning af 16
mögulegum. Belgrad varð næst
með 8 lA vinning og sveitin frá
Prag rak lestina með 6 vinninga.
finnst hún eiga vel við í þessu
sambandi. Þrjú tröll voru eitt sinn
búsett í Norðurálfu, hvert í sínu
fjallinu. Eitt árið segir eitt tröllið
„Mér heyrðist ég heyra einhvern
baula hér fyrir handan". Síðan
liðu 1000 ár og þá sagði annað
tröllið „Það var áreiðanlega eng-
inn að baula.“ Eftir enn ein
þúsund ár sagði þriðja tröllið: „Ef
þið hættið ekki þessu kjaftæði, þá
flyt ég héðan.“
Islendingar ættu að sjá að sér
áður en það verður um seinan,
áður en orkuskorturinn fer að
sauma að okkur. Þá verður gott að
geta staðið uppi með næga orku úr
íslenskum orkulindum.
O.P.
• Álitshnekkir
„Fátt er svo með öllu illt að ekki
boði nokkuð gott“ segir máltækið,
svo það er kannski engin ástæða
til að örvænta. En einhvern veg-
inn segir mér svo hugur að fram-
kvæmdir varðandi ferðafrelsi og
frelsiskerðingu hermannanna á
Keflavíkurflugvelli eigi eftir að
orsaka enn verri blaðaskrif en þau
sem okkar ágæti utanríkisráð-
herra kvað vera ástæðuna fyrir
ákvörðun sinni um aukið ferða-
frelsi til handa hermönnum
Bandaríkjahers á Keflavíkurflug-
velli.
Hvað haldið þið að bandarískir
blaðamenn geri þegar þeir komast
að því að það sem þeir skrifuðu
um samskipti íslendinga og her-
mannanna hafi haft þau áhrif að
utanríkisráðherrann tók fyrr-
nefnda ákvörðun, en dró hana
síðan til baka þar sem enginn
áhrifamaður virtist vera honum
sammála? Auðvitað gera þeir sér
mat úr því efni og skyldi enginn lá
þeim. Þetta hringl er íslendingum
ekki til álitsauka en var ekki
vanþörf á.
P.H.
HÖGNI HREKKVÍSI
í
S\GeA V/öGÁ 2 liLVtVAti
ý() vfa AO Lö<bh V/6 V/Q VI \N. VÍ^ÁN VÍO VöN oV&fcNOW.vteN/é Bksmisro mn V VAMmföíALbM ff) V49 Gtö! M\V SAj$- /Amroví V/P YlW.Oi VANNMAA/-/I \ £/N0 \Í8/9 A¥!Á\\ V//&
Fréttir frá Stykkishólmi
Stykkishólmi. 5. júlí.
ÞESSI fallegi bátur er smíðaður í Skipasmíðastöð Kristjáns
Guðmundssonar Stykkishólmi. Hann er 9 smálestir að
stærð og heitir Hjörtur N.S. 98. Báturinn er með Buch vél,
65 hestafla, og er búinn öllum venjulegum tækjum til veiða.
Báturinn var afhentur í maí s.l. og seldur til Vopnafjarðar.
Nú er farið að dubba upp gömul hús hér í Hólminum með
álklæðningu og taka þau mjög stakkaskiptum og eru hin
mesta prýði eins og sjá má af meðfylgjandi mynd. Þá hefir
Sig. Ágústsson hraðfrystihús látið setja álklæðningu á
skelfiskvinnsluna og er að hefja framkvæmdir við að setja
utan á hraðfrystihúsið sem stendur við Austurgötu og
verður það mikil bót og setur fallegan svip á umhverfið.
Hótel Stykkishólms hefir
haft mikil verkefni það
sem af er sumri þrátt
fyrir að tíðarfar hefði
mátt vera miklu betra. Nú
hefir hótelið gefið út með-
fylgjandi bækling til leið-
beiningar fyrir ferða-
menn. Þeir fjölgar sem
notfæra sér hótelið og
þess ágætu þjónustu.
Fréttaritari.
fmzm
HOTEL
STYKKISHOLMIK
Fvrstrt flokkf
---