Morgunblaðið - 11.07.1979, Qupperneq 36
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINL'
\l <.I,VSI\(. \
SIMINN KK:
22480
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
\l (.l,VSIN(. \
SIMINN KK:
22480
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1979
Skattskrár Vestf jarða lagðar fram í dag:
Hækkun gjalda á einstaklinga
um 60% og á félög um 97%
SKATTSKRÁR Vestfjarðakjör-
dæmis verða lagðar fram í dag.
Alögð gjöld nema alls
1.026.013.883 krónum á 5.496 ein-
staklinga og 1.312.877.378 krón-
um á 500 félög. Álögð gjöld í
skattskrám 1978 námu
2.431.374.001 krónu á 5278 ein-
staklinga og 666.374.289 krónum
á 496 félög. Gjaldahækkun ein-
staklinga milli ára er um 60% og
hjá féiögum er hún um 97%.
Hraðfrystihúsið Norðurtangi hf.
ísafirði ber hæst gjöld fyrirtækja,
samtals 150,7 milljónir króna og
Ishúsfélag Isfirðinga kemur næst
með 89 milljónir króna, en það var
skatthæsta fyrirtækið á Vestfjörð-
um í fyrra.
Jón Fr. Einarsson bygginga-
meistari í Bolungarvík ber hæst
gjöld einstaklinga nú, 29,6 milljón-
ir króna, og Hrafnkell Stefánsson
lyfsali Isafirði er annar hæsti
einstaklingurinn með 14,9 milljónir
króna. Þessir tveir voru einnig
hæstir einstaklinga í fyrra.
Gjöld á einstaklinga eru nú hæst
að meðaltali á ísafirði 936.356
krónur, í Bolungarvík eru þau
929.538 krónur, í Súðavík 765.282
krónur, á Þingeyri 760.012 krónur
og á Flateyri eru meðaltalsgjöld
einstaklinga 719.323 krónur.
Sjá: Skattskrá Vestfjarða bls. 3.
Talsvert jarðrask á sér stað á
Landakotstúninu um þessar
mundir vegna fyrirhugaðra
byggingaframkvæmda þar í
vesturhorni túnsins bak við
kirkjuna. M.a. þarf að leggja
skolplagnir í gegn um túnið,
en að því loknu verður það
sléttað aftur og grætt og m.a.
er unnið að lagfæringum á
túninu austan kirkjunnar.
Isafjörður:
Æstur Frakki á flug-
vél inn í flugstöðina
4ESTUR Frakki ræsti um miðnætti
í gærkvöldi tveggja hreyfla flugvél
af gerðinni Cessna 310 á ísafjarðar-
flugvelli, en missti stjórn á vélinni
og hún Ienti í gegnum stóran
glugga á farþegaafgreiðslunni.
Enginn var í hyggingunni þegar
slysið varð og Frakkinn slapp
ómeiddur. Vélin er stórskcmmd,
m.a. tættist annar hreyfiliinn, nef-
hjól hrotnaði og ýmsar skemmdir
urðu á vélinni.
Aðdragandi málsins var sá að
flugmaður vélarinnar, sem er frá
Leiguflugi Sverris Þóroddssonar, var
á Mánakaffi á ísafirði ásamt tveim-
ur farþegum, íslendingi og Frakka.
Var flugmaðurinn að bíða eftir
veðurfréttum, en það líkaði Frakk-
anum ekki og rauk út í miklu fússi.
Mun hann hafa ferðast á „puttan-
um“ út á flugvöll, en þar voru þá
engir nema nokkrir Isfirðingar að
draga svifdreka á loft. Sáu þeir hvar
Frakkinn æddi inn í vélina, kom
Þ jn*la eftir
skipverja
á Hval 9
ÞYRLA Varnarliðsins sótti í
gærkvöldi skipverja á Hval 9 sem
var um 60 mílur vestur af
Garðskaga, en skipverjinn hafði
fengið hjartaáfall. Þyrlan kom til
Reykjavíkur um miðnætti. SVFÍ
barst hjálparbeiðni kl. 8 og þyrl-
an fór á 10. timanum.
öðrum hreyflinum í gang án þess að
hafa stjórn á bremsunum og skipti
það engum togum að vélin tók hægri
beygju og ók um 30 metra beint á
gluggavegg flugstöðvarbyggingar-
innar með fyrrgreindum afleiðing-
um. Var Frakkinn enn í mjög æstu
skapi þegar lögreglan kom á vett-
vang.
Sameignarsamningur
um nýia Landsvirkjun
99
Ekki í samræmi við hagsmuni Reykjavíkur
99
— segir Birgir ísleif ur Gunnarsson
SAMNINGANEFNDIR Akureyr-
arbæjar, Reykjavíkurborgar og
iðnaðarráðuneytisins hafa kom-
ist að samkomulagi um sameign-
arsamning nýrrar Landsvirkjun-
ar. Grundvöllur þessa samnings
er að Laxárvirkjun sameinist
núverandi Landsvirkjun og að
fyrirtækið, sem áfram heiti
Landsvirkjun, yfirtaki Byggða-
línurnar.
Eingaraðild að þessu nýja fyrir-
tæki yrði þannig að Akureyrarbær
Islenzku liðin
í lukkupottinn
ÍSLANDSMEISTARAR Vals í
knattspyrnu og bikarmeistarar
Akraness hafa undanfarin ár
verið stórveidi í íslenzkri
knattspyrnu. í gær er dregið
var um það, hverjir yrðu mót-
herjar íslenzku iiðanna í
Evrópumótunum þremur í
haust komu upp úr hattinum
tvö af stórveldum evrópskrar
knattspyrnu.
Valsmenn leika í keppni
meistaraliða og mæta v-þýzka
liðinu Hamborg SV, en meðal
leikmanna þess liðs er Kevin
Keegan, knattspyrnumaður árs-
ins í Evrópu. Skagamenn leika
gegn Barcelona, en það lið hefur
m.a. orðið Evrópumeistari í
íþróttinni. Meðal leikmanna í
liði Spánverjanna er Daninn
Allan Simonsen, knattspyrnu-
maður ársins fyrir tveimur ár-
um. Þriðja íslenzka liðið í keppn-
inni er lið íþróttabandalags
Keflavíkur og mæta Keflvíking-
ar liði Kalmar frá Svíþjóð.
Sjá nánar íþróttir á
bls. 34 og 35.
eigi 7,6%, Reykjavíkurborg 42,4%
og ríkissjóður 50,0%.
Þetta kom fram á
blaðamannafundi í gær þar sem
fulltrúar samninganefndanna
gerðu grein fyrir samningnum og
lagafrumvarpi um nýja Lands-
virkjun. Á fundinum kom fram að
skuldbindingar ríkissjóðs til að
koma í veg fyrir að yfirtakan valdi
hækkun á rafmagnsverði á núver-
andi markaðssvæði Landsvirkjun-
ar, verði 8—9 milljarðar.
Birgir ísleifur Gunnarsson
22% hækkun á
farmgjöldum
skipafélaganna
SKIPAFÉLÖGIN fengu í gær
afgreidda 22% hækkun á flutn-
ingsgjöldum sem háð eru verð-
lagseftirliti, þe. 18% hækkun auk
óskerts gengis sem þýðir 4% í
viðbót.
Tafir á þessari afgreiðslu frá
ríkisvaldinu ollu töfum við af-
greiðslu á vörum til innflytjenda
þar sem skipafélögin drógu að
afhenda farmskrár skipanna fyrr
en afgreiðslan lægi fyrir. Einnig
hækkar pakkhúsleiga um 22%.
Stjórnvöld hafa lofað endurskoð-
un á hækkun innan tveggja mán-
aða, en farið var fram á 40%.
borgarfulltrúi Sj álfsstæðisflokks-
ins sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að ýmislegt að-
finnsluvert við samninginn. „Ég
hef áður lýst þeirri skoðun minni
að ég er á móti þeirri stefnu sem
fólgin er í því að sameina öll
orkuöflunarfyrirtæki í eitt fyrir-
tæki“, sagði Birgir ísleifur. „Mér
finnst það nokkuð táknrænt að
það skuli vera iðnaðarráðherra
sem heldur blaðamanna fund til
að kynna niðurstöður samninga-
viðræðnanna. Það bendir til þess
að ráðherra hafi fengið það fram
sem hann vildi og Reykjavíkur-
borg hafi ekki gert samning sem
fyllilega sé í samræmi við hags-
muni Reykjavíkur."
Sjá nánar „Ríkissjóður
tekur á sig..bls. 18.
F orvígism enn st jórn m álaflokkann a:
Kosið verði um stjórn-
arskrárbreytingar
í næstu kosningum
FORVÍGISMENN stjórnmála-
flokkanna eru sammála um að
nauðsynlegt sé að samstaða
náist um breytingar á sviði
kosningaréttar og um kjör-
dæmaskipun á því kjörtímabili
sem nú stendur yfir. Þetta
kemur fram í viðtölum sem
Morgunblaðið átti við þá Geir
Hallgrfmsson, Lúðvík Jóseps-
son, Sighvat Björgvinsson og
Steingrím Hermannsson í gær.
Svo sem kunnugt er sagði dr.
Gunnar Thoroddsen í viðtali við
Morgunblaðið á föstudag í síð-
ustu viku að stjórnarskrárnefnd-
in hygðist leggja greinargerðir
um ýmis atriði stjórnarskrár-
innar fyrir þingflokkana í haust.
Varðandi kjördæmamálið yrðu
þannig nokkrir valkostir með
upplýsingum, útreikningum og
rökstuðningi lagðir fyrir þing-
flokkana. Morgunblaðið leitaði
álits forvígismanna stjórnmála-
flokkanna á þessu efni og kom
þar fram að þeir töldu æskilegt
að stjórnarskrárnefndin lyki
störfum sínum á tilskildum tíma
svo unnt yrði að kjósa um
stjórnarskrárbreytingar í næstu
kosningum.
Sjá nánar „Hvert verður
framhald....á bls. 18.