Morgunblaðið - 02.09.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1979
19
Guðmundi fyrir skömmu hitti ég
unga garðyrkjukonu og spurði
hana hvar „Gúndi" væri en hann
er jafnan nefndur hér Gúndi, en
þegar vistmennirnir segja
„Gúndi“, þá er það með sérstökum
tón sem þýðir „hann Gúndi minn“.
„Auðvitað í gróðurhúsinu," sagði
hún, með djúpri lotningu, sem fól í
sér innilega vináttu og trúnaðar-
traust, enda þykir öllum vist-
mönnunum innilega vænt um
hann. Enginn er jafn þolinmóður
og hann að tala við þá, og taka
þátt í áhugamálum þeirra. Hann
er félagi þeirra, vinur, en gleymir
þó aldrei að hann er leiðbeinand-
inn. Guðmundur er laginn að
vinna með vistmönnunum, þeir
bera traust til hans og þeir finna
að hann ber traust til þeirra,
samstarfið byggist á vináttu og
trausti og það er nauðsynlegt í
þessu starfi.
Guðmundur hefur nokkra vist-
menn með sér í gróðurhúsunum og
garðinum og það er eftirsótt starf
að vinna með „Gúnda" og einn af
þeim er hin unga garðyrkjukona.
Þegar við komum í gróðurhúsið
var Guðmundur falinn á milli
himinhárra tómataplanta, stand-
andi upp á tröppupalli að brjóta af
þjófa. Kappklæddur var hann með
sporthatt á höfði og þótt hann
ynni af kappi þá draup ekki af
honum einn einasti svitadropi, og
ég er sannfærður um það, að
Guðmundur á heimsmet í því að
vinna í fullu gróðurhúsi án þess að
svitna.
Á þessum olíukrepputímum er
gott fyrir menn að minnast þess,
að Guðmundur fór eitt sinn á hjóli
frá Keflavík til Bolungarvíkur yfir
vestfirsk fjöll og firnindi og sömu
leið til baka.
Ég vil benda þessum blöðum á,
sem standa fyrir bílakeppni, að
hrinda af stað kappakstri reið-
hjóla og vera ekki deigari að
leggja á brattann en Guðmundur
Benediktsson.
Á dögum Sesselju var hér mikil
leikstarfsemi og voru jafnan sýnd
2—3 leikrit á ári og jafnvel fleiri.
Guðmundur tók þátt í þessu starfi
af lífi og sál og lék í öllum
leikritunum sem ekki voru ein-
göngu leikin af vistmönnum, eða
kröfðust kvenhlutverka. Já, alltaf
var Guðmundur reiðubúinn að
leggja hönd á plóginn, þegar hans
var vitjað.
Árið 1975 fluttist Guðmundur
frá Sóiheimum að Nethömrum í
Ölfusi og tók þar við eyðibýli.
Hófst Guðmundur þegar handa
við ræktun og er á góðri leið með
að gera Nethamra að skemmtileg-
um gróðrarreit. Guðmundur er
höfðingi heim að sækja. Fyrsta
skiptið. sem ég heimsótti hann
bauð hann mér upp á heimabakað
brauð og kökur og alltaf er búið
veisluborð hjá honum, þegar ég
heimsæki hann. Og ekki get ég
borið á móti því að betra þykir
mér brauðið hans Guðmundar en
það sem í búðum er keypt.
Guðmundur er mikill dýravinur
og þeir sem efast um, að hundur
geti tekið húsbónda sinn sér til
fyrirmyndar þurfa ekki annað en
heimsækja Guðmund á Nethömr-
um. Hundurinn hans, Kátur Pílu-
son, hefur tamið sér marga hætti
Guðmundar, t.d. er Guðmundur
manna háttprúðastur og hátt-
prúðari hund en Kát þekki ég ekki.
Guðmundur hefur mikinn
áhuga á ræktun íslenskra hænsna
og hafa margir fengið hjá honum
íslenskar hænur.
Um leið og ég og fjölskylda mín
Guðrún, Garðar Hannes og Berta
litla Margrét óska þér til innilegr-
ar hamingju með daginn og alls
góðs á langri ókominni ævi, taka
allir heimilisbúar á Sólheimum
undir þær óskir. Ingimundur
Stefánsson og Ulrica Aminoff
biðja að flytja þér hjartanlegustu
hamingjuóskir með þökk fyrir hið
liðna.
Jan Ingimundarson
Ágóða af
gullsölu
úthlutað
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hefur skipt 396 milljóna dollara
hagnaði af gullsölu á milli 104
vanþróaðra rfkja, að því er til-
kynnt var f dag. Upphæðinni,
sem er andvirði 146,5 milljarða
ísienzkra króna, var skipt miðað
við hlutdeild hvers ríkis í sjóðn-
um. Hlutdeild rfkja miðast m.a.
við efnahag og utanríkisverzlun
þeirra.
Af úthlutuninni hlaut Indland
mest, eða um 46 milljónir dollara.
Argentína og Brazilía fengu 21,5
milljónir dala hvort, Mexíkó 18,
Venezuela 16,1 og Indónesía 12,7
milljónir.
Tvisvar áður hefur hagnaði af
gullsölu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
verið skipt milli fátækra þjóða.
Sams konar úthlutun fer fram í
júlí að ári.
margra í rúst engu síður en
skuggavofa fátæktarinnar. En
hún er ennþá mesti og svívirði-
legasti fjöldamorðinginn í heimin-
um í dag. Júníorinn hefir lifað sín
snöggbreyttu lífskjör af, eins og
ekkert hefði í skorizt líkt og
uppskurð upp á líf og dauða, sem
hann gekkst undir í Ameríku
forðum. Margur hefir umturnast
af minna tilefni þegar arfur var
annars vegar líkt og hendir stund-
um grandvarasta fólk, sem vinnur
óvæntan stórvinning í happdrætti.
Stundum er engu líkara en Krist-
ján sé með innibyggt öryggiskerfi
og sikkerhedsventla gegn flestum
meiriháttar hættum lífsins og
öðru amstri og óláni. Hann er
drengur góður eins og hann á kyn
til og reynir aldrei að sýnast betri
en hann er. Hann er bæði
skemmtilegur og velviljaður,
hnyttinn í tilsvörum og líkist mest
föður sínum um holdarfar, and-
litsfall, tilburði og takta með
aldrinum. Ég á ekkert nema ljúfar
minningar af kynnum okkar
Kristjáns.
Haft er eftir Nóbelskáldinu
Halldóri Laxness í blaðaviðtali, að
fátt væri sér hugleiknara en
skrifa eftirmæli og afmælisgrein-
ar. Nóbelshöfundurinn Hemm-
ingway slær á svipaða strengi
þegar hann segir, að sín mesta og
bezta heilsubót og hollusta hafi
verið að fást við bréfaskriftir.
Fjandakornið, að ég finni til
einhverra heilsu- og sálarbóta og
óvæntrar vellíðunar nú að loknu
þessu tilskrifi mínu vegna þessara
tímamóta í litríku lífi vinar míns
og gamla sambæings, Kristjáns
júníors. En ég vona og veit, að mér
mun líða stórum betur í fyrirhug-
aðri afmælisveizlu hans, sem ég er
boðinn til með kurt og pí þegar
hann kemur aftur úr átthagareis-
unni til Akureyrar, þar sem hann
dvelur nú á Hótel Varðborg í
nokkra daga. Ef að líkum lætur
mun revisorinn þá sjálfur veita í
mun stærri og veglegri skömmtum
úr heimilisapótekinu en með te-
skeiðum og dropateljurum.
örlygur Sigurðsson.
BLÓMA-
MERKI
ÁRLEGIR fjáröflunardagar
Hjálpræðishersins — „Blóma-
söludagar” er hermenn Hjálp-
ræðishersins selja blómamerki á
götum bæjarins verða að þessu
sinni frá n.k. miðvikudegi til
föstudags.
Forráðamenn Hjálpræðishers-
ins hafa beðið blaðið að færa
almenningi þakkir fyrir góðar
undirtektir er Herinn leitar til
hans um stuðning við starfsemina,
á einu eða öðru sviði, t.d. á
merkjasöludögum eða við jóla-
söfnunina, svo nefnd séu dæmi.
S ■
® K
1 tilcini af alþjóölogu xörusvningunni 1079. b>oö.» framlciöcndur WIBASS \DOR borösiotuhuscac
scrstakt k\ NMNGARYFRÐ a íslandi.
A MBASSAD( )R bordstofuhúsgöe iiin chí íi ííiitIci Bclsnu ur ookkri cik.
bcr getib \ a!iö um:
ö tegundir af stólum. aklæöi cftir \öar oigm vaii.
3 tcgundir af borðum.
5 tegundir at' 4ra hurda skápum
4 tcgundir af barskápum
2 tcuundir af\ccgsamstæöuin Otruicca eon \crö
Nu cr la’kitænð,
bcnðstotu h U'cöcn —
crcuViuskiimaiar\ iö u
akmarkaöar
Husgógn Arnuila S
Simar SnóSO - so"