Morgunblaðið - 02.09.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.09.1979, Blaðsíða 32
iSími á afgreiðslu: 83033 JH»ro«nbInbií> SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1979 Samið um sölu á 130 þús. tunn- um af saltsíld — söluverðmætið áætlað um sex milljarðar SAMNINGAUMLEITANIR um fyrirframsölu á saltaðri Suður- landssíld við kaupendur í hinum ýmsu markaðslöndum hafa staðið yfir að undanförnu og er nú samningagcrð lokið um sölu á 130 þúsund tunnum af saltsfld til kaupenda í Svíþjóð, Finnlandi og Sovetríkjunum Til Svíþjóðar hafa verið seldar Mánaðamótaölyun MIKIL ölvun var á Akranesi í fyrrinótt, og hafði lögreglan í ýmsu að snúast af þeim sökum. Dansleikur var á Hótel Akranesi á föstudagsknöldið, og urðu þar nokkrar stympingar. Meðal ann- ars varð að flytja mann á sjúkra- hús nokkuð lerkaðan eftir slagsmál. Þá brenndist stúlka einnig á fæti, þar sem hún ætlaði að sparka í logandi benzínbrúsa á vegarkandi, sem kunningjar henn- ar höfðu kveikt í. Það var einnig mikil ölvun í Keflavík í fyrrinótt, og fylltust fangageymslurnar þar og á flug- vellinum af þeim sökum. Er svo að sjá sem mánaðamótin hafi menn tekið hressilega að þessu sinni. 45.000 tunnur og er hugsanlegt að það magn kunni að aukast eitt- hvað. Finnar hafa samið um kaup á 25.000 tunnum og Sovétmann 60.000 tunnum. Á síldarvertíðinni í fyrra voru seldar til Svíþjóðar 52.000 tunnur, Finnlands 9.000 tunnur og Sovétríkjanna 60.000 tunnur. Nokkur hækkun á sölu- verði náðist í öllum þessum þrem löndum. Gunnar Flóvenz, framkvænda- stjóri Síldarútvegsnefndar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að mjög erfitt væri að segja til um endanlegt söluverðmæti þessara samninga þar sem um mjög marg- ar tegundir og síldarstærðir væri að ræða. Hann sagði að í öllum samningunum væri tryggð heim- ild að ákveðnu marki handa Is- lendingum til að afgreiða eina stærð ef nægilegt veiðist ekki af annarri. Lauslega áætlað gæti salan til þessara þriggja landa þó verið einhversstaðar í kringum sex milljarðar króna. Gunnar Flóvenz sagði einnig að samningaumleitanir myndu halda áfram um fyrirframsölu á saltaðri síld til annarra markaðslanda og sagði að samningaviðræður við Vestur-Þjóðverja og Pólverja myndu fara fram í næstu viku. MYNDIN var tekin í Reykjavíkurhöfn í gær og er af togaranum Júpíter sem Stálvík í Garðabæ hefur nýlokið við að endursmíða sem loðnuskip. Skipið er í eigu Ilrólfs Gunnarssonar útgerðarmanns, en hann keypti það á sínum tíma frá fyrirtækinu Júpíter og Marz. bað var smíðað í Þýskalandi árið 1956 og er nú, eftir breytinguna 804 brúttólestir. Ljósm.: Kristján. Bændur víða á N-Austurlandi: Ekki búnir að ná strái í hlöðu Loðnuaflinn orðinn 40 þúsund lestir FRÁ miðnætti í fyrrinótt til hádegis í gær höfðu eftirtalin skip tilkynnt afla til loðnunefnd- ar: Harpa 550 lestir, Kap II. 530, Skarðsvík 570, Grindvfkingur 900, Sæbjörg 400, Loftur Bald- vinsson og Albert 450. Skipin eru sem fyrr á Vest- fjarðamiðum, og landa öll að einu undanskildu í Siglufirði og Krossanesi. Veður var sæmilegt á miðunum, en fór versnandi í gær að sögn talsmanna loðnunefndar. Alls hafa nú komið á land tæp 40 þúsund tonn af loðnu síðan veiðar hófust á ný í síðasta mánuði. MJÖG ILLA horfir nú með heyskap bænda á annesjum norðurlands og við sjávarsíðuna þar. Eins og víða um land hefur grassprctta á þessum slóðum verið léleg í sumar cn óþurrkar hafa auk þess gert mönnum erfitt fyrir. Eru þess dæmi cinkum í Þingeyjarsýslum að á sumum bæjum séu bændur ekki búnir að ná inn strái og á fæstum bæjum er heyskapur nema hálfnaður. Ifeyskapur hefur gengið öllu betur í dölunum á Norðurlandi og vestantil á Norðurlandi hefur þurrkur verið öllu meiri að undanförnu heldur en á Norð-Austurlandinu. „Heyskapur hér í Axarfirði er mjög skammt á veg kominn en síðasta hálfan mánuð hefur verið hér meiri og minni óþurrkur," sagði Sigurður Björnsson bóndi á Skógum í Axar- firði. „Hey eru marghrakin og þau eru búin að liggja á túnum í hálfan mánuð til þrjár vikur. Það hefur komið einn og einn sólskinsdagur og 30 eða 50 flótta- menn til íslands? Rædst af fjölskyldustærð, segir utanríkisráðherra FIMM til sex fjölskyldur flótta- fólks frá Víetnam munu innan skamms koma til íslands, eins og komið hefur fram í fréttum. Ekki er enn ljóst hversu margt flóttafólkið verður, en það fer eftir stærð fjölskyldnanna. Benedikt Gröndal utanrikisráð- herra sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að gert hefði verið ráð fyrir því að fimm manns væru í hverri fjölskyldu, þannig að flóttafólkið sem hingað kæmi yrði þá alls um 30. Síðar hefðu komið fyrirspurn- ir frá Rauða krossinum þess efnis, hvort fjöldinn væri fast- bundinn við þá tölu. Kvaðst utanr'kisráðherra hafa svarað þv' ill að svo væri ekki, heldur yrði það að ráðast af fjölskyldu- stærðum. Sú væri ákvörðun hana, hvort heldur flóttamenn- ríkisstjórnarinnar, og þyrfti því irnir er hingað koma verða 30 ekki að leggja málið aftur fyrir eða nær 50 talsins. menn hafa þurrkað, en síðan hefur þetta rignt niður og heyin eru því orðin mjög léleg. Á sumum bæjum er ekki búið að ná strái inn og hvergi er heyskapur meira en hálfnaður," sagði Sigurður og tók fram að hver heil- brigður maður sæi að ef þetta ástand lagaðist ekki næstu daga væri vá fyrir dyrum og þegar væri fyrirsjáan- legt að mikill niðurskurður á búfé væri óhjákvæmilegur. Ljóst væri og að lömb yrðu mjög rýr í haust. „Austan Vaðlaheiðar í Suður-Þing- eyjarsýslu er ástandið mjög alvarlegt en að vísu er það misjafnt eftir bæjum og sveitum. Verst er ástandið sennilega á Tjörnesi og með sjávar- síðunni en inni í landi hafa menn náð heldur meiri heyjum, því þurrkur hefur verið meiri þar,“ sagði Vigfús B. Jónsson bóndi á Laxamýri í Suð- ur-Þingeyjarsýslu. Vigfús sagði að á Tjörnesi væru þó nokkrir bændur, sem ekki væru búnir að ná neinu heyi inn og í sýslunni ættu bændur al- mennt enn flatt 'h til 'k af sínum heyfeng. Sagði Vigfús að það væri lýsandi dæmi um óþurrkana að frá því að sláttur hefði hafist á Laxamýri um mánaðamótin júlí-ágúst hefðu ekki komið nema 4 dagar, sem ekki hefði eitthvað rignt. „Hér á Skaganum hefur gras- spretta verið mjög rýr en að undan- förnu hefur þurrkur verið sæmilegur og menn hafa náð inn því litla, sem á túnum er. Það er þvi farið að síga á seinni hlutann enda ekki seinna vænna, því sumarið er búið,“ sagði Sveinn Sveinsson á Tjörn á Skaga í Húnavatnssýslu. Sveinn sagði að heyfengur bænda þar um slóðir væri um helmingur af heyfeng í meðalári og sjálfsagt yrðu menn að skera niður bústofn sinn, sem því næmi, ef ekki yrði með einhverjum ráðum reynt að útvega fóður annars staðar að. Torgsmót Lækjartorgsmót Skákfélagsins Mjölnis verður haldið á Lækjar- torgi n.k. miðvikudag. Flestir af sterkustu skákmönnum landsins munu taka þátt í því, enda há verðlaun í boði. V élar salta síld á Hornafirdi SÍLDARSÖLTUN er nú í fullum gangi á Höfn í Hornafirði, og hefur veiðst nokkuð vel að undanförnu, og sfldin er talin góð miðað við árstíma. Sfldarsöltun hófst fyrir nokkru hjá Óslandi, og í gær var einnig byrjað að salta hjá Stemmu. Sextán bátar leggja upp hjá Óslandi. og fimmtán hjá Stemmu, auk þess sem aðkomuskip leggja upp hjá báðum stöðvunum. Síldin hefur einkum veiðst út af snertir stærð og fitumagn. í sölt- Hálsunum og við Hrollaugseyjar, unarstöðinni Stemmu er nú saltað en að sögn þeirra Kristjáns Gúst- með vélum, og hófst söltunin í gær afssonar hjá Stemmu og Guð- um hádegisbil. Þar raða konur því mundar Finnbogasonar hjá Ós- síldinni í vélar í stað þess að salta landi virðist vera mikið af síld um beint í tunnur á plani eins og allan sjó, og hún nokkuð góð hvað fyrrum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.