Morgunblaðið - 02.09.1979, Side 20

Morgunblaðið - 02.09.1979, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1979 Ný sending af $ i 11 #»fii r 125 P Bíllinn sem vekur eftir- tekt ekki bara verösins vegna. Verð m. ryðvörn Árg.1980 2.790.000.- eru á leiðinni. miöað viö gengi 28/8. Innifalið í veröi m.a. * Kraftbremsur meö diskum á öllum hjólum. * Radíaldekk. * Tvöföld framljós meö stillingu * Læst bensínlok * Bakkljós * Rautt Ijós í öllum hurðum * Teppalagöur * Loftræstikerfi * Öryggisgler * 2ja hraða miöstöð * Tau í sætum * 2ja hraoa rúöuþurrkur * Rafmagnsrúðusprauta * Hanzkahólf og hilla * Kveikjari * Litaöur baksýnisspegill * Verkfærataska * Gljábrennt lakk * Ljós í farangursgeymslu * 2ja hólfa karborator * Synkromeraður gírkassi * Hituö afturrúða * Hallanleg sætisbök * Höfuöpúðar * Ofl. O.fl. Vinsamlegast staðfestið parvtanir. Nokkrum bílum óráðstafað. FÍAT EINKAUMBOO Á ÍSLANDI DAVÍO S/GUfíÐSS(M hf. SlÐUMULA 35. SlMI 85855 Haraldur Gunnlaugs■ son — Minningarorð Fæddur. 30. maí 1923 Dáinn 27. ágúst 1979. Það eru nærri þrettán ár síðan að hár og myndarlegur maður, gráhærður nokkuð og gekk við staf, kom til viðtals í bakhúsinu að Aðalstræti 4 við Fishersund í Reykjavík, um starf á skrifstofu G. Ólafsson hf. Mér er það vel í minni, að ég velti því mikið fyrir mér, hvort sjúkdómsafleiðingarnar, sem staf- urinn var augljóst vitni um, væru frekar orsök óskarinnar um nýtt starf, eða hvort yfirlýsingar um persónulegar langanir og óskir um tengund starfs, væru hinar réttu skýringar, því að það var reyndar svolítið sérstakt að vilja frá all tryggu starfi hjá ríkinu, í næsta ótryggt starf hjá þá litlu einkafyr- iræki. Bjartur og hreinskilnislegur svipur mannsins og einarðleg framkoma hans, afdráttarlausar yfirlýsingar, sérstök blanda per- sónutöfra og meðfæddrar glæsi- mennsku réðu baggamuninn og við sömdum. Það var samningur tveggja ein- staklinga, þar sem stundum át hvor úr sínum poka og áttu hvor sína meiningu, en alltaf samstarf og sívaxandi skilningur og vin- átta. Samstarf, sem ég sakna í dag, og þakka að leiðarlokum. Trúrri og grandvarari starfs- mann og samstarfsmann en Har- ald Gunnlaugsson er ekki að finna. Víst átti hann æði oft við sjúkdóm og erfiðleika þess vegna að stríða og víst þurfti hann á stundum að fara sér hægar en ella og einstöku sinnum að slaka á vegna þessa, en þær voru líka æði margar helgarnar, þegar bíllinn hans Haraldar var við skrifstofu- dyr, af því að eigandinn var að ljúka því, sem hann sjálfur taldi að þyrfti að ljúka fyrir vikulok. Það var óbrigðult að Haraldur hugsaði um hag fyrirtækisins, eins og það væri hans einkaeign og að hann kom fram fyrir þess hönd út á við af þeim myndugleik og glæsimennsku, sem aðeins gat orðið því til álitsauka og trausts. í samstarfi var hann glaðlyndur og einarður, léttur í máli og laus við tæpitungu, en jafnframt sá sem ekki aðeins skilaði réttum og öruggum úrlausnum, heldur og listilega unnum, hvað varðaði rithönd t.d. og annan frágang. Haraldur Gunnlaugsson var fæddur 30. maí 1923, foreldrar hans voru Ingibjörg Arnórsdóttir frá Hesti og Gunnlaugur Guðjóns- son frá Siglufirði. Hann ólst að mestu upp í Reykjavík og bjó það síðan. Nám stundaði hann í Verzl- unarskóla íslands og starfaði síð- an við ýmis verzlunarstörf og fleira, en þó lengst af hjá Sælgæt- isverksmiðjunni Nóa, hjá Vega- gerð Ríkisins og hjá Heildvezlun G. Ólafsson hf. í Reykjavík, s.l. rúm tólf ár. Fyrri kona Haraldar var Erla Beck og áttu þau einn son, Erik, sem nú býr í Noregi. Seinni kona Haraldar er Sesselja Valdemars- dóttir og áttu þau eina dóttur, Ingibjörgu húsfreyju í Garðabæ, gifta Jóhanni Briem. Haraldur fór ekki varhluta af andstreymi þessa heims, því að sjálfur var hann hjartasjúklingur til fjölda ára og ágerðist sá sjúkdómur mjög s.l. ár, en einnig hefur kona hans átt við verulega vanheilsu að stríða nú s.l. ár. Haraldur lét þó sjúkdóm sinn eða erfiðleika aldrei buga sig, og er þess skemmst að minnast, að fyrir rúmri viku tókumst við í hendur um áætlun enn nýs samstarfs og nýrra átaka, en sá sem meiru ræður og betur sér, hafði uppi aðrar áætlanir, svo að það sam- starf verður nú að bíða um sinn. Haraldur hafði mikla trú á íslenzkri verzlun og bar hag henn- ar mjög fyrir brjósti. Hann var stoltur fyrir hönd íslenzkra verzl- unarmanna og sjálfur var hann góður fulltrúi stéttarinnar. Ég veit að ég má fyrir hönd alls samstarfsfólks hjá G. Ólafsson hf., flytja Haraldi Gunnlaugssyni þakkir fyrir samstarf og samveru liðinna ára. Fá orð lýsa bezt þeirri þökk og kveðju, hans er saknað. Við hjónin sendum frú Sesselju og öðrum ástvinum smaúðar- kveðjur. Einar Birnir. Þótt það sé ein af staðreyndum tilverunnar að „ekkert líf sé án dauða og enginn dauði án lífs,“ þá gerist það jafnan þegar vinir falla frá, að þessi staðreynd verður manni erfið, og öll orð verða fátækleg þegar vinir eru kvaddir hinsta sinni. Eigi að síður langar mig til þess að minnast með nokkrum orðum Haralds Gunn- laugssonar sem andaðist að heim- ili sínu, Laufásvegi 10, 27. ágúst s.l., en útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík á morg- un. Það eru nú um tíu ár síðan fundum okkar Haralds bar saman í fyrsta sinni og þá kynntist ég strax þeim eiginleikum sem ein- kenndu far hans, — hljóðlátt glaðlyndi, jákvæð hugsun og vel- vild til allra samferðamanna sinna. Þótt Haraldur ætti við mikla erfiðleika að stríða hin síðari ár sín, vegna þungbærra veikinda, breyttust aldrei viðhorf hans til þess að öll mál ættu sínar björtu hliðar, og að á þær bæri að líta fyrst og fremst. Sú einlægni og hlýleiki sem fylgdu Haraldi hvert sem hann fór og hvar sem hann starfaði var okkur, sam- ferðamönnum hans, mikils virði að skilja eftir í hugum okkar þakklæti þegar við kveðjum hann. Haraldur var fæddur 30. mái 1923. Hann var sonur Ingibjargar Arnórsdóttur frá Hesti í Borgar- firði og Gunnlaugs Guðjónssonar útgerðarmanns frá Siglufirði. Að mestu ólst Haraldur upp í Reykjavík og átti þar jafnan heima, eftir að hann komst á fullorðinsár. Á yngri árum sínum lagði hann stund á nám í Verslun- arskóla íslands og urðu síðan verslunarstörf starfsvettvangur hans alla tíð. Starfaði Haraldur hjá nokkrum fyrirtækjum, og gegndi jafnan störfum sínum af trúmennsku og skyldurækni. Síðustu árin starfaði hann hjá fyrirtækinu G. Ólafsson h.f. og var starfið hjá því honum mikils virði. Það fyrirtæki sér m.a. um lyfja- innflutning og fann Haraldur vel til þeirrar áþyrgðar sem slíkum innflutningi fylgir, og sparaði oft ekki sporin til þess að nauðsynleg lyf kæmust til þeirra sem þurftu á þeim að halda. Hafði hann einlæg- an áhuga á því að leysa hlutverk sitt vel af hendi, eftir því sem heilsa hans og starfsorka leyfði. Haraldi var líka sérlega hlýtt til stjórnenda og starfsmanna fyrir- tækisins sem hann vann hjá, og minntist þeirra oft með þakklæti. Á yngri árum tók Haraldur virkan þátt í skátastarfinu og tengdist starf hans þar öðru áhugamáli hans, — útiveru og hreyfingu, en af því hafði hann mikla unun. Hann naut þess að fara í skíðaferðir eða í sund, og var það því honum mikið áfall er hann varð að mestu að hætta þessum íþróttaiðkunum eftir að heilsa hans bilaði alvariega fyrir almörgum árum. Haraldur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Erla Beck og eignuðust þau einn son, Eirík mjólkurfræðing, sem nú er búsett- ur í Noregi. Síðar kvæntist Har- aldur eftirlifandi konu sinni, Sess- elíu Valdimarsdóttur og eignuðust þau eina dóttur, Ingibjörgu. Var Sesselía honum mikil stoð í hinum erfiðu veikindum hans, þótt hún ætti sjálf við mikla vanheilsu að stríða. Haraldur Gunnlaugsson var maður sem ef til vill bar ekki mikið á í íslensku þjóðlífi. Það var honum aldrei keppikefli að sækj- ast eftir metorðum, heldur kunni hann því best að fá tækifæri til þess að vinna þjónustustörf fyrir aðra, og létta þannig samferða- mönnum sínum vegferðina. Með PELSINN KIRKJUHVOLI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.