Morgunblaðið - 02.09.1979, Síða 23

Morgunblaðið - 02.09.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1979 23 Sovéskir dagar á veg- um MÍR HÓPUR áhugalistamanna frá einu af Miðasíulýðveldum Sovét- ríkjanna, Kazakhstan, er vænt- anlegur hingað til lands hinn 6. sept. n.k. til þátttöku í „Sovésk- um dögum“, sem félagið MÍR efnir orðið til árlega. Listafólkið kemur fram á tónleikum og danssýningum á nokkrum stöðum á Norður- og Austur- landi, auk Reykjavíkur. 25 manna hópur kemur frá Sovétríkjunum til þátttöku í „Sovéskum dögum" MIR að þessu sinni, þeirra á meðal er 3ja manna sendinefnd sem skipuð er þeim Sjamelkhanov, varaformanni Áætlunarráðs Kazakhstan, Kum- antaévu kennaraskólarektor og N. Pétkov starfsmanni Sovéska vin- áttufélagssambandsins og félags- ins Sovétríkin — ísland. Aðrir í hópnum eru félagar í Þjóðlaga- og dansflokknum „Ulítá“ frá einni af yngstu byggð- um Miðkazakhstan, Dsezkazgan- héraði. í hópnum sem hingað kemur eru 4 einsöngvarar, 7 hljóðfæraleikar- ar og 10 dansarar og á efnisskrá flokksins eru um 20 atriði: ein- söngur, kvartettsöngur, hljóð- færaleikur og þjóðdansasýning. Úlítá-flokkurinn sýnir fyrst fáein atriði efnisskrár sinnar að Kjarvalsstöðum föstudagskvöldið 7. september, en þá verða „sovésku dagarnir" settir þar og jafnframt opnuð sýning á listmunum og minjagripum, barnateikningum, grafik og ljósmyndum frá Kaz- akhstan, svo og forvitnileg sýning á svartlistarmyndum við efni Njálssögu eftir rússneska lista- manninn Viktor Prokofiev. Við opnun sýningarinnar verða flutt ávörp og Baldur Pálmason dag- skrárfulltrúi les upp ljóð. Aðgang- ur að Kjarvalsstöðum er ókeypis og öllum heimill. Úlítá-þjóðlaga- og dansflokkur- inn heldur tónleika og danssýn- ingu í Þjóðleikhúsinu laugardginn 8. september kl. 3 síðdegis og síðan verða tónleikar á Akureyri 10. sept., Húsavík 11 sept., Neskaup- stað 12. sept. og Egilsstöðum 14. september. Nauðsynleg at- hugasemd vegna yfirvofandi verk- falls á dagblöðum í MORGUNBLAÐINU í gær, 1. sept., er birt greinargerð frá Vélaverk- stæði Sigurðar Sveinbjörnssonar hf. vegna verka félagsins við breytingar á r/s Hafþóri. Þessi greinargerð gefur vissulega tilefni til umfangs- mikilla andsvara, sem ekki verður nú við komið vegna yfirvofandi stöðvunar á útgáfu dagblaðanna. En óhjákvæmilegt er að koma nú þegar að einni athugasemd. í greinargerð- inni segir m.a.: „Og var gert sam- komulag við verkkaupann, dags. 23. júlí s.l. undirritað af deildarstjóran- um, Ingimar Einarssyni, f.h. sjávar- útvegsráðuneytisins, þar sem sjávar- útvegsráðuneytið tók við verkinu sem fullbúnu af verktakanum, og kemur þar fram, að öll verk verk- takans teljist fullokin eftir því sem fram kemur í úttekt eftirlitsmanna sjávarútvegsráðuneytisins með verkinu Skipatækni hf.“ I 2. lið samkomulags aðila frá 23. júlí s.l. segir: „Öll verk við breyting- una, önnur en breyting á togvind- um, lagnir að þeim. stjórnun þeirra, og drif þeirra (dælubún- aður), teljast fulllokin o.s.frv. Þarna kemur skýrt og ótvírætt fram, hvers vegna verkkaupi taldi óhjákvæmilegt að Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar yrði leyst frá störfum við þetta verk. Fjölmargt annað er athugavert við þessar athugasemdir. En það verður að bíða betri tíma. Ingimar Einarsson. UTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA Mikið góðar vörur á makalausu verði! Skólabuxur á unglinga! Mikið magn af buxum í litlum númerum (25, 26, 27) á aðeins ICr.öOOO Nú er um að gera að fjárfesta í buxum fyrir veturinn (skólann). Alliríbuxurnar! Einnig stórglæsilegt úrval af buxum jafnt á dömur sem herra, s. s. gallabuxur, flauelsbuxur og canvasbuxur. Sitt mikið aí hverju! Ennþá meira fyrir alla, s. s. peysur, skyrtur, léttar blússur og jakkar. Einnig bolir, lang- og stutterma svo og bómullarpeysur og síðast en ekki síst kuldaflíkur. Lcrttu sjá þig og gerðu mikið góð kaup! LAUGAVEGI47

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.