Morgunblaðið - 02.09.1979, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1979
Prýðið húsið vafningsviðum:
HUMALL
(Humulus lupulus)
Hér á landi þrífast nokkrar
klifur- og vafningsplöntur mæta-
vel upp við hús í sæmilegu skjóli
t.d. humall, maríuklukka og vaf-
toppur. Vaftoppurinn blómgast
fagurlega en hinar tvær geta
klætt húshliðar iðgrænu skrúði.
Það getur bergfléttan líka en er
öllu vandræktaðri. Hér skal aðal-
lega vikið að humlinum, en hann
er frægur frá fornu fari og hefur
verið ræktaður mikið erlendis
vegna aldinkolla kvenjurtarinnar,
en þeir eru notaðir í öl. Kven-
blómakollarnir líkjast könglum
og eru alsettir gulum kirtilhárum,
sem í eru lupulin beiskt efni sem
og eykur geymsluþol ölsins. Fræg-
ur er líka „humlakoddinn" vegna
svæfandi áhrifa.
Á ferð í Bæjaralandi sá ég
einkennilega bletti alsetta mjóum
grænum súlum. Þetta voru
humlagarðar en þar eru reknar
visna á haustin. Hægt er að skipta
humli með því að skipta hinum
skriðula jarðstöngli og er sú
aðferð fljótlegust. Nær hann þá
tveggja—þriggja metra hæð á 3.
eða 4. ári og síðan árlega. Hann
breiðist smám saman út með
jarðstönglinum. Auðvelt er einnig
að fjölga humlinum með græðl-
jngum en það tekur lengri tíma.
Þá er tekinn greinarendi fyrri
Jiluta sumars og settur í vatn inni.
myndast þá fljótlega rætur og má
síðar gróðursetja ungu jurtina úti
í garði. Auðvelt er að fjölga
honum í stórum stíl í gróðurhúsi.
Humall er venjulega látinn klæða
veggi en líka má láta hann vaxa
flatan út á steina. Mikinn skugga
af trjám þolir hann varla þó ekki
þurfi hann sérlega mikla birtu
heldur. Humall sést nú orðið
allvíða í görðum á íslandi en vert
væri að nota hann miklu meira.
i Flestir hafa veitt athygli grænum blöðum humalsins þar sem
hann klifrar upp eftir húsveggjum, en færri munu hafa augum
litið hina sérkennilegu aldinkolla kvenjurtarinnar.
niður mjóar grenistengur svo að
humallinn geti vafið sig utan um
þær og klifrað þannig upp í birtu
og yl. I norðlægum löndum er
humallinn aðallega ræktaður til
prýði og hér á landi þekur hann
húshliðar hér og hvar á sumrum.
í góðum sumrum myndar hann og
aldinkolla. Humallinn vefur sig til
hægri utanum mjóa hluti t.d. prik
eða spotta. Net hæfir honum
einnig vel til að klifra í. Hann er
fremur gróf og harðgerð jurt,
hrjúf átöku og ber stór handflip-
ótt blöð. Hvassviðri geta skemmt
laufið svo best er að velja honum
fremur skjólgóðan stað, en mikla
sól þarf hann ekki, vex t.d. allvel
norðan í móti. Humall er fjölær
jurt þ.e. rót og jarðstöngull lifir
veturinn af en stöngull og blöð
Önnur vafningsjurt — öllu
fíngerðari — en engu að síður
harðgerð er MARÍUKLUKKA
(Convolvus sepium) Blöð hennar
eru hjartalaga og stilklöng, stöng-
ull fremur mjór. í góðum sumrum
ber hún mörg hvít eða bleikrauð
klukkulaga blóm. Vex upp af
jarðstöngli og er fjölgað eins og
humli. Bæði humall og maríu-
klukka þekja t.d. hliðar hússins
Lindin á Laugarvatni. En fyrst sá
ég maríuklukku þekja hús Guð-
laugs Rósinkranz á Ásvallagötu í
Reykjavík. Hafði Guðlaugur flutt
sprota af henni frá Svíþjóð í vasa
sínum. Maríuklukka breiðist út
með rótarsprotum líkt og humall-
inn.
I. D,
29
SL Petersburg Florída
Draumafeití
fidrÚnalsveiö
1. ferð 15. sept.
18 næstur St. Petersburg
3 nætur New York. Uppselt.
2. ferð 30. sept.
18 nætur St. Petersburg
3 nætur New York. Laus sæti.
3. ferð 21. okt.
20 nætur St. Petersburg. Laus sæti.
4. ferð 10. nóv.
14 nætur St. Petersburg Laus sæti.
5. ferð 24. nóv.
20 nætur St. Petersburg. Laus sæti.
FERÐASKRIFSTOFAN
URVAL
VID AUSTURVÖLL SÍMI26900
Dvalist verður á Hótel Hilton Inn, St. Pet-
ersburg Beach, vió Mexicoflóa. Hótelið
er byggt í Austurlandastíl Öll herbergi eru
með baði, loftkælingu, litasjónvarpi og
svölum. Og það er sannarlega nóg að
gera þarna, þú getur auk þess að sleikja
sólskinið:
— farið á sjóstangaveiðar
— spilað golf
— jafnvel minigolf
— leikið tennis
— siglt seglskútu
— o.m.fl.
Verð frá 417.800.— Innifalið í verði eru
flugferðir, gisting í tveggja manna her-
bergjum, fararstjórn og flutningur til og
frá flugvelli. Brottfararskattur er ekki
innifalinn.
ATH: Verðið er miðað við að bókað sé 30
dögum fyrir brottför, eftir það hækkar
verðið.
Aukaverð fyrir herbergi með eldhúskrók
er 15.000.— á mann. Aukaverð fyrir eins
manns herbergi er 69.000.—
Öll verð miðast við 1. september 1979.
7 §
Sigrún Davíðsdóttir
Matreiðslubók
handa ungu fólki
á öllum aldri.
o«u^6tte9»5' o«eo>ö|'iU, °9
sa .a v^ess au _ e\nQOOy evr\a v
Almenna
bókafélagið
Austurstræti 18, — sími 19707.
Skemmuvegi 36, Kópavogi — Sími 73055.