Morgunblaðið - 02.09.1979, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1979
Minning — Ottó
Vilhelm Símonsen
Fæddur 14. sept. 1916.
Dáinn 22. ágúst 1979.
að Colorado Springs, Colorado
í Bandaríkjunum.
Foreldrar hans voru Jón
Símonsen norskur að ætt, frá
Bergen í Noregi, og kona hans
Þóra Vilhjálmsdóttir d. 1977, frá
Þykkvabæ, einu elsta kauptúni á
Islandi.
Börn þessara heiðurshjóna voru
sem hér segir, Ottó Vilhelm
Símonsen sem fyrr segir, Guðrún
Símonsen, vann lengi hjá Varnar-
liðinu á Keflavíkurflugvelli, en nú
orðin nokkuð heilsutæp. Kiara
búsett í Englandi, gift Jóhanni
Tryggvasyni hljómlistarkennara, í
því sambandi mætti minnast á, að
Þórunn dóttir þeirra hjóna, sem
vel þekkt var vegna hljómleika-
hæfileika sinna, er gift hinum
heimsfræga hljómlistarmanni
Askenazy.
í annað sinn giftist frú Þórunn
Vilhjálmsdóttir Jakobi Eyjólfs-
syni d. 1953, dóttir þeirra Jenny,
stúdent og litrík persóna, gift
Guðmundi Agnarssyni stýri-
manni, eru þau búsett í Keflavík.
Ungur að árum giftist Ottó
Símonsen konu sinni Emilíu Jóns-
dóttur, sem lifir mann sinn, og er
búsett í Bandaríkjunum.
Foreldrar Emilíu voru Jón Ólaf-
ur Jónsson vélstjóri, ættaður úr
Vopnafirði, síðast vélstjóri á tog-
aranum Apríl, sem fórst með allri
áhöfn á leið frá Englandi heim til
Islands 1930, og kona Jóns Mar-
grét Ketilbjarnar frá Tjaldanesi í
Dalasýslu, d. 1969.
Voru foreldrar hennar, Ketil-
björn Magnússon, hreppstjóra og
fræðimanns Jónssonar í Tjalda-
nesi, og kona Ketiibjarnar, Hall-
dóra Snorradóttir Árnasonar
dennebrogsmanns Eyjólfssonar að
Arnarstapa á Mýrum vestur. Börn
þeirra Ottós og Emilíu eru þessi:
Eggert Snorri Símonsen vegg-
fóðrarameistari, átti Brynju Ág-
ústsdóttur ættaða úr Árnessýslu,
eiga 4 börn, Margrét Símonsen, nú
Feldstein, gift háttsettum herfor-
ingja í Utah, Bandaríkjunum, eiga
börn. Sigrún Símonsen gift og
búsett í Ameríku, á börn, Þóra
Símonsen átti Jónas Aðalsteins-
son, eru skilin og eiga börn, nú
búsett í Ameríku og gift
Ameríkana, Guðný Símonsen átti
Ásgeir Hjelm, eru búsett í
Ameríku og eiga börn, þar á meðal
2 dætur, Elínu Margrétu og Em-
ilíu, báðar búsettar í Keflavík og
eru giftar og eiga börn.
Nú þegar komið er að leiðarlok-
um og Ottó Símonsen er allur,
koma fram í huga minn fjöldi
minninga frá liðnum árum, enda
vorum við Ottó og undirritaður
samtíða um 20 ára skeið, í hinum
fagra höfuðstað Snæfellinga
Stykkishólmi, á þeim tíma vann
Ottó að bifvélavirkjun hjá Bif-
reiðastöð Stykkishólms, og þótti
liðtækur í starfi sínu og velliðinn
af starfsfélögum sínum og öðrum
sem hann kynntist í Stykkishólmi.
Þá má og segja um Ottó, að
hann var með allra lögnustu
mönnum, og allt lék í höndum
hans, svo aðdáunarvert var.
Þessi góðu hjón Ottó og Emilía
eignuðust gott og friðsælt heimili
í Stykkishólmi, og lék þá allt í
lyndi, enda hjónin samhent og
dugleg.
Ottó og Milla frænka fluttu úr
Hólminum um 1950 og þá til
Keflavíkur, þar sem Ottó stundaði
bifvélavirkjun um nokkurt skeið,
en fluttu svo til Reykjavíkur, enda
var heilsa Ottós þá á niðurleið. Til ^
Bandaríkjanna fluttu þessi góðu !
hjón 1971, enda voru þá flest börn
þeirra flutt til Ameríku, svo ekki
var óeðlilegt þótt þau flyttu þang-
aðlíka.
í Ameríku unnu hjónin af at-
orku og eignuðust gott og friðsælt
heimili, og gekk þá allt að óskum,
en á síðast liðnu ári fór heilsan
hnignandi og varð Ottó að liggja á
sjúkrahúsi meira og minna, allt
síðast liðið ár, sem endaði á
fyrrnefndan hátt 22. ágúst síðast
liðinn. Skarð er nú fyrir skildi, þar
sem Ottó vinur minn er nú allur,
og sorg ríkir innan fjölskyldu
hans og meðal vina, og sárast
finnst okkur hér heima, að hann
Þegarþú kaupirVolvo
ertu að gera varanlega
fjárfestingu
Allir keppast við að fjárfesta á arðbæran hátt í
kappi við verðbólguna. í verðbólgukappinu
undanfarin ár, hefur reynslan sannað, að
fjárfesting í Volvo bifreið hefur borgað
sig - margborgað sig.
Endursöluverð Volvo hefur alltaf meira en haldist
í hendur við dýrtíðina.
Þannig færðu bæði varanleg gæði og verðmæti
með í kaupunum.
Margir Volvoeigendur nefna bíla sína „fasteign
á hjólum", enda er það augljóst að þegar
þú kaupir Volvo ertu að gera traustafjárfestingu
- sem skilar sér.
VOLVO
- fasteign á hjólum
liggur nú í erlendri mold, en það
voru örlög hans er ei var unt að
breyta.
Sjálfsagt mætti hugsa, þá er
leið að lokaþættinum, eins og
skáldið okkar vinsæla Stefán frá
Hvítadal segir í kvæði sínu „Nú
líður"
Nú líöur óöum
á lokaþáttinn
Mér er ördugt og þungt
um andadráttinn
HiÖ ytra viröist
í engu breytt
en sært er hjartaö
ok sál mín þreytt
biö auðn ok myrkur
þiÖ í mÍK náiÖ
því lampinn er tæmdur
ok Ijósiö dáiÖ
bað er vetur í landi
ok veðraKnýr
ok sál mína næðir
ok svefninn flýr
baö er einn sem heyrir
ok aldrei neitar
ok hjálparvana
mitt hjarta leitar
til hans sem er Ijósið
ok hjálpin manns
Ék byrKÍ mÍK niður
ok bið til hans.
ó láttu drottinn
þitt ljós mér skfna
ok sendu frið inn
f sálu mfna.
ó vertu mér drottinn
f dauða hlff
Ék biö ekki framar
um bata ok Iff.
Ekkja Ottós, Emilía Símonsen,
börn og barnabörn, systur, frænd-
ur og vinir hins látna, kveðja nú
heiðursmanninn Ottó Símonsen í
hinsta sinn, og biðja honum Guðs
friðar, þar sem hann nú dvelur
handan landamæra lífs og dauða.
Frændfólki mínu, sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur, og bið góðan Guð að blessa
hinn látna, og ykkur öll, þess
óskar frændinn,
Árni Ketilbjarnar.
Strandaseli 9, Reykjavík.
Keramik-
sýning
KOLBRÚN Björgólfsdóttir opnar
keramiksýningu í Gallerí Lang-
brók í dag, laugardag, kl. 17.
Sýningin verður opin frá kl. 13—
18 virka daga í 14 daga og sýnir
Kolbrún þar ýmsa postulínsmuni.
Hún útskrifaðist úr Myndlista- og
handíðaskólanum 1973 og hefur
síðan stundað nám í Kaupmanna-
höfn í 2 ár.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU