Morgunblaðið - 28.10.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1979
35
þangað myndi hann aldrei leggja
leið sína, hvað sem í boði væri.
Allmargir leiðangrar hafa
lagt á K2, en aðeins þrem hefur
lánast að stíga á tindinn. Þar
þykir útsýni ægifagurt, en fáir
eru til frásagnar.
Fyrsta fjallgöngusveitin sem
upp komst var ítölsk, árið 1954;
síðan kom japönsk sveit árið
1977 og bandarísk sveit í fyrra,
1978.
I fyrra gerðu Bretar út mikinn
leiðangur á K2, og var hún
skipuð úrvalsmönnum eingöngu.
Chris Bonnington var leiðang-
ursstjóri; hann hafði áður
stjórnað tveim breskum leið-
öngrum á Mt. Everest. Aðrir
voru þar Doug Scott, sem kleif
Everest fyrstur Englendinga,
Pete Boardman, Joe Tasker og
Nick Estcourt.
Nick Estcourt var aðeins
þrítugur að aldri, en þótti þegar
einn af snjöllustu fjallamönnum
Bretlands. Hann lenti í snjóflóði
í þessum leiðangri, og hefur lík
hans aldrei fundist. Enn einu
sinni hafði Fjallið grimma skek-
ið hramminn, og leiðangurinn
varð frá að hverfa.
Skuggabaldur tók saman.
Halda áf ram byggdahugmynd-
um á Laugardalssvæðinu
Felldu tillögu sjálfstæðismanna
Borgariulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins báru fram
breytingartillögu í borg-
arráði á þriðjudag, þar
sem lagt var til að horfið
yrði frá hugmyndum um
íbúðabyggð í Laugardal
vestan Glæsibæjar og í
Sogamýri, austan Skeið-
arvogs og efnt til hug-
myndasamkeppni um
Laugardal. Var tillagan
felld af 3 borgarráðs-
mönnum Framsóknar-
flokks, Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags, sem að
svo búnu samþykktu að
halda áfram að kanna
hugsanlegt byggingar-
magn og afmörkun byggð-
ar á svæðinu.
Á fundinum lögðu borgarráðs-
fulltrúar meirihlutans fram svo-
fellda tillögu, og voru fyrstu 3
liðirnir samþykktir samhljóða. En
ágreiningur varð um síðustu máls-
greinina, sem samþykkt var með 3
atkvæðum gegn 2.
Borgarráðsfulltrúar meirihlut-
ans lögðu fram svofellda tillögu:
Borgarráð samþykkir að fela
Þróunarstofnun að hefja nú þegar
undirbúning að gerð deiliskipu-
lags undir íbúðarhús:
1. Á Laugarási, utan þess svæðis,
sem eðlilegt verður talið að
friðlýsa sem náttúruvætti.
2. Á stofnanasvæði við Hafnar-
fjarðarveg, þó þannig að tekið
verði tillit til eðlilegra þróun-
armöguleika stofnunar, sem á
svæðinu er.
3. Á stofnanasvæði við Eyrarland
með sama fyrirvara og um
ræðir í 2. lið.
Þá óskar borgarráð að kannað
verði nánar hugsanlegt bygg-
ingarmagn og afmörkun byggðar
á athugunarsvæðinu vestan
Glæsibæjar og í Sogamýri, austan
Skeiðarvogs. Þegar sú könnun
liggur fyrir, mun borgarráð taka
ákvörðun um framhald mála.
Lögðu Birgir Isleifur Gunnars-
son og Albert Guðmundsson fram
eftirfarandi breytingartillögu,
sem var felld með 3 gegn 2.
„Hins vegar samþykkir borgar-
ráð að hverfa nú þegar frá hug-
myndum um íbúðarbyggð á svæði
vestan Glæsibæjar og í Sogamýri,
austan Skeiðarvogs. Svæðið í
Sogamýri verði áfram útivistar-
svæði og verði Þróunarstofnun, í
samráði við garðyrkjustjóra, falið
að gera nánari tillögur um nýt-
ingu svæðisins sem útivistarsvæð-
is svo og um nánari skipulagningu
þess. Jafnframt samþykkir borg-
arráð að láta fram fara hug-
myndasamkeppni um nýtingu og
skipulag Laugardalsins allt að
mörkum við Suðurlandsbraut. I
þeirri samkeppni verði ráð fyrir
því gert að Laugardalur verði
útivistarsvæði með íþróttamann,-
virkjum, grasgarði, ræktunarstöð
og skrúðgarði, auk hugsanlegtar
stofnunar, sem færi vel í slíku
útivistarsvæði.“
Sænskur sunnu-
dagur í Esjubergi
ESJUBERG, veitingastaðurinn á
jarðhæð Hótel Esju mun í vetur
perur hafa enn betri nýtni, gefa allt að
20 lúmen/watt og endast tvöfalt
lengur. Þær eru notaðar í aðalljós bíla,
sýningavélar, punktlýsingarlampa og
flóðljós. Þar lýsa þær betur en fyrir-
rennarar þeirra. Gera má ráð fyrir að
innan skamms sjái dagsins ljós nýjar
smáperur með ljósmagni allt að 50
lúmen/watt.
DAGSLJÓS
Jafnhliða þessu voru sömu braut-
ryðjendurnir að þróa úrhleðsluperur,
U0 3b'N/8Vv H lg\
MAIÍ INHClLANrP?
PHILIPS
Ljósmagn í Lumenum Orkuþöri í wöttum Lumen áwatt
Glópera 1.280 100 13
Halogen pera 1.700 100 17
Halogen bílpera 1.500 60 25
Blandljóaapera ML 3.150 160 20
Flúrpípa TL 80 (38 mm) 3.400 40 85
Flúrpípa TLD 80 (26 mm) 3.450 36 96
Kvikasilfurspera HPL—N 23.000 400 58
Háþrýsti — natríumpera SON 25.000 250 100
Lágþrýsti — natríumpera SOX 22.500 135 167
Málmhalíóapera HPI—T 90.000 1000 90
perur sem ekki hafa glóþráð, en gefa frá
sér miklu meira ljósmagn, endast
lengur og eru hagkvæmari í rekstri.
Gestir í Haag í Hollandi, árið 1932,
urðu mjög undrandi að sjá hverja aðra
rauðgula frá hvirfli til ilja í undarlegri
birtu frá nýrri götulýsingu. Hér var
um að ræða natríum-lýsingu frá
Philips, sérstaklega hagkvæma.
Á sama hátt lýstu bláhvítu kvika-
silfursperurnar ökumönnum á leið
þeirra um evrópskar hraðbrautir allt frá
1935.
SON háþrýsti-natríumperan, sem
Philips bjó til 1965, gefur 130 lúmen/
watt, og stærstu perurnar senda frá sér
eitthundrað og þrjátíu þúsund lúmen
af hlýlegu gullnu ljósi. Hár hiti og
mikill þrýstingur natríum-gassins valda
því, að innra hylki perunnar verður að
vera úr gegnsæju keramiki í stað glers.
SOX-peran frá Philips, árangur nýj-
ustu þróunar lágþrýstinatríum-
perunnar, er í þann veginn að setja
heimsmet, 200 lúmen/watt. Hún er
ákjósanlegasta og hagkvæmasta per-
an til almennings- og öryggislýsingar,
innan dyra sem utan.
Síðast en ekki síst má nefna HPI
háþrýsti-kvikasilfursperuna, sem húð-
uð er að innan með sérstöku ljómefni,
gerðu úr blöndu málmhalíða og yttrí-
um vanadíats. Hún er notuð í lista-
söfnum og sjónvarpsupptökusölum, því
engin pera á markaðinum kemst nær því
að líkja eftir dagsljósinu. Ljósmagn
hennar er nálægt 10ö
lúmen/watt.
ÞÚ HEFUR ENGU
AÐ TAPA NEMA
KÍLÓWATT-
STUNDUM
Flúrpípurnar, sem
komu til sögunnar 1939
sýndu umhverfið í und-
arlegum og kulda-
legum litum, því
góðri litendurgjöf
var fórnað fyrir
betri nýtni.
Þá fórn þarf ekki lengur að færa.
Árið 1974 framleiddi Philips
flúrpípuna TL 80 með
litendurgjöf, sem nálgast
að uppfylla þær kröfur,
sem gerðar eru til lýsingar
í listasöfnum. Þrátt
fyrir svo góða litend-
urgjöf var hægt að skipta
út þremur
venjulegum flúrpípum fyrir
tvær nýjar og spara þannig
33% orkunnar. En Philips lét
ekki þar við sitja og á síðastliðnu
ári kom endurbætta flúrpíopan
TL D80 á markað inn, en hún
notar 10% færri wött og gefur
sama ljósmagn. Nú fæst hún
einnig í stöðluðum litum.
Þróun raflýsingarinnar tekur aldrei enda. Orkulindir jarðar kunna að fara
þverrandi en sama gildir um kröfur okkar til þeirra. Þörfin fyrir meiri og betri lýsingu
mun halda áfram að aukast og við munum fullnægja henni. Þetta eru ekki ósættanlegar
andstæður. Það sannar saga fyrirtækis okkar frá upphafi. Eins og er höfum við
ljósgjafa, sem gætu minnkað orkunotkun til lýsingar á heimilum allt að 70%, í
verslunum og skrifstofum allt að 50%, á skemmtisvæðum og vaktsvæðum allt að 75%
og á hraðbrautum allt að 70% — ef fólk vildi. En það sem meira er, þessi sparnaður næst,
þó Ijósgæði og ljósmagn haldist óbreytt, eða jafnvel aukist. En að sjálfsögðu erum við
ekki komnir á leiðarenda. Önnur öld raflýsingar er að hefjast. Uppfinning Edisons er
rétt að komast á skrið og við munum ekki láta olíuskort hefta framgang okkar. Við
munum bjóða heiminum þá hagkvæmu ljósgjafa, sem hann þarnfast.
Philips, Hollandi
En ljósaperurnar eru aðeins hluti
framleiðslunnar. Ljosrannsókn-
arstofa og Lýsingarhönnunar-
' og verkfræðismiðstöð Philips
í Eindhoven vinr.a stöðugt að
þróun nýrra og betri
ljósbúnaða, stjórnbúnaða
(svo sem rafeindastraum-
festu með 10% minni orkutöp)
svo og á sviði ljóstækni.
Þrotlaus barátta er háð fyrir
aukinni hagkvæmni, sem verið
hefur aðalsmerki okkar og von
framtíðarinnar allt frá 1891.
1879/1979
Rafliós
100 ara
Þeir sem vilja afla sér nánari upplýsinga um ljósaperuna geta
fengið sent frá Heimilistæki hf. Sætúni 8, frítt eintak af
bæklingnum HOW IS AN INCANDESCENT LAMP MADE?
sem gefin er út af PHILIPS verksmiðjunum.
Nafn ..
Heimili
Staður
heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 — SIMI 24000
taka upp þann sið að hafa
sérstaka sunnudaga helgaða
ákveðnu þjóðerni og verður þá
matur viðkomandi þjóðar á
boðstólum í veitingasalnum. Nú
um þessa helgi verður „sænskur
sunnudagur* í Esjubergi og þar
boðið upp á sænskt góðmeti.
Esjuberg mun í dag kynna
sænska matargerðarlist, en hún
byggir á þjóðlegum hefðum. Sem
dæmi um rétti, sem á boðstólum
verða má nefna „rimmad laks“,
„krovsalat", „ostasalat", „grisfött-
er“, „kroppkakor", „Vármalands-
korv“, revbensspjáll", „pytt i
panna“ og „glasmástersill". Auk
þess eru á boðstólum fjölmörg
salöt og réttir.
Gestum til skemmtunar á með-
an snætt er, mun Þjóðdansafélag
Reykjavíkur sýna sænska þjóð-
dansa og Þorvaldur Björnsson og
Jónas Dagbjartsson leika sænska
tónlist á harmoniku og gítar í
hádeginu og um kvöldið.
Norskt tónskáld
kynnir verk sín
NORSKA tónskáldið Magnar
Am frá Bergen mun kynna
tónverk sín í sal Tón-
listarskólans í Reykjavík,
Skipholti 33, sunnudaginn 28.
okt. kl. 2 e.h.
Magnar Ám, sem þykir eitt
af efnilegustu tónskáldum
yngri kynslóðarinnar í Noregi,
hefur kennt hljómfræði og
kynnt norska nútimatónlist
við Tónlistarskólann. Er hér
um kennaraskipti að ræða á
milli Tónlistarskólans í
Reykjavík og Bergen, en þar
hefur Þorkell Sigurbjörnsson
tónskáld kennt undanfarnar
tvær vikur. Á sunnudag munu
m.a. fimm nemendur úr Tón-
listarskólanum flytja eitto af
nýjustu verkum Magnars Am.
Allir sem áhuga hafa eru
velkomnir á þessa tónleika.
(Fréttatilkynning)
Flóamarkað-
ur JC Vík
FLÓAMARKAÐUR Junior
Chamber Vík heldur áfram í
dag, sunnudag, kl. 14—17 og
má fá þar marga góða muni á
lágu verði. Flóamarkaðurinn
verður í Iðnaðarmannahúsinu
við Hallveigarstíg.